Morgunblaðið - 28.04.2003, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 28.04.2003, Qupperneq 5
www.xu.is • vg@vg.is Af hverju? Við boðum framfarir með nýrri hugsun í umhverfismálum. Með ábyrgri stefnu sem tekur mið af því að afkomendur okkar byggi Ísland áfram viljum við nýta landið án þess að eyðileggja það. Alþjóðasamningar og langtímaáætlanir um verndun og nýtingu náttúrugæða eiga að vera leiðarljós stjórnvalda svo koma megi í veg fyrir rányrkju og mengun. Við viljum auka framlög til hafrannsókna og grunnrannsókna á lífríki og jarðfræði Íslands og bæta þannig þekkingu okkar og skilning á landinu. Vatnajökulsþjóðgarður sem nær yfir nálæg friðlönd og helstu náttúruperlur í nágrenni jökulsins er forgangsverkefni í náttúruvernd. Í okkar augum er fegurð landsins og mikilfengleiki ekki baggi á þjóðinni heldur stórkostlegt tækifæri. Til að við getum nýtt það verðum við að bera virðingu fyrir landinu og umhverfinu. Ábyrgðin er okkar. MEÐ Á MÓTI VERNDUN OG NÝTINGU NÁTTÚRUGÆÐA Atli Gíslason, 2. sæti Reykjavík norður, Þórey Edda Elísdóttir, 2. sæti Suðvesturkjördæmi, Jóhanna B. Magnúsdóttir, 1. sæti Suðvesturkjördæmi Snúum við blaðinu! „Ég er ekki bergnumin yfir Eyjabökkum.“ - um inntak einnar af fjórum meginreglum Ríó-sáttmála Sameinuðu þjóðanna íáramótagrein í Morgunblaðinu 31. desember 2002. - í Morgunblaðinu 13. ágúst 1999 eftir ferð að fyrirhuguðu stíflustæði við Eyjabakka. Umhverfisráðherra barðist ekki fyrir verndun Eyjabakka og átti því engan þátt í að svæðinu var þyrmt. „Sumum eru tamar setningar eins og þær „að náttúran skuli ætíð njóta vafans“. Hljómar þetta vissulega snoturlega í munni en er með öllu haldlaust.“ Davíð Oddsson, lögfræðingur, formaður Sjálfstæðisflokksins og núverandi forsætisráðherra Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og núverandi umhverfisráðherra

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.