Morgunblaðið - 28.04.2003, Síða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. APRÍL 2003 9
- ný sending
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00.
Ég er á
leiðinni
40 erlendir skiptinemar koma
til Íslands í ágúst nk. Þeir bíða
spenntir eftir að heyra frá
íslensku fósturfjölskyldunum
sínum.
Er fjölskylda þín
ein af þeim?
Viljið þið kynnast,.....
.....nýjum viðhorfum?
.....framandi menningu?
.....nýrri sýn á land og þjóð?
Ef svo er, þá gefst ykkur færi
á að taka á móti
erlendum skiptinema
í 5—10 mánuði.
Ný sending af
galla-
buxum
Kringlunni, sími 588 1680.
Seltjarnanesi, sími 5611680.
iðunn
tískuverslun
AÐALFUNDUR Blaðamanna-
félags Íslands verður haldinn í
kvöld, mánudagskvöldið 28.
apríl, í húsnæði félagsins í Síðu-
múla 23 í Reykjavík. Á dagskrá
eru venjuleg aðalfundarstörf,
skýrslur frá starfsnefndum,
kosningar og önnur mál. Allir
BÍ-félagar eru hvattir til að
mæta en fundurinn hefst kl.
20:00.
Aðalfundur
BÍ í kvöld
Sendum grænmetismat
í hádeginu
til fyrirtækja
Sími 552 2028 fyrir hádegi
alltaf á föstudögum
Á AÐALFUNDI Veiðifélags Árnes-
inga, sem haldinn var nýlega, kom
fram að veiðiréttareigendur á vatna-
svæði Ölfursár og Hvítár skráðu
2.119 laxa veidda í net á síðast ári en
stangveiði var 917 laxar á öllu vatna-
svæðinu. Þá er veruleg silungsveiði á
svæðinu og var skráð veiði á 2.170
bleikjum og 1.499 urriðum. Allt eru
þetta bráðabirgðatölur.
Flestir veiðiréttareigendur ráð-
stafa veiðirétti hver fyrir landi sinnar
jarðar nema við Stóru-Laxá, en
Stangaveiðifélag Reykjavíkur er með
hana á leigu. Ekki var annað að heyra
á máli manna en að flestir vildu hafa
óbreytt fyrirkomulag á veiðinni á
svæðinu og eru því litlar líkur á að
netaveiði leggist með öllu af á þessu
mikla vatnasvæði.
Fram kom á fundinum að Stanga-
veiðifélag Reykjavíkur hefur lagt
fram tilboð um ræktunarátak á
vatnasvæði Ölfusár og Hvítár. Til-
boðið byggist á því að farið verði í
stórauknar seiðasleppingar á veiði-
svæðinu sem síðar muni skila marg-
faldri stangaveiði og stórauknum
tekjum til hagsbóta fyrir landeigend-
ur.
Að því verkefni, ef af verður, koma
Stangaveiðifélag Reykjavíkur, Veiði-
félag Árnesinga og Veiðimálastofnun.
Skipuð var þrigga manna nefnd
veiðibænda til að ræða nánar við
SVFR og kanna hvort grundvöllur er
fyrir slíku ræktunarsamstarfi. Í við-
ræðun efndina voru skipaðir Ragnar
Magnússon, Birtingaholti, Þorfinnur
Þórarinsson, Spóastöðum og Hrafn-
kell Karlsson, Hrauni.
Stangaveiðifélagið Lax-á hefur nú
tekið Þorleifslæk í Ölfusi á leigu, sett
upp veiðihús og hyggst selja ána sem
fluguveiðiá í framtíðinni. Ný hreinsi-
stöð við Hveragerði mun gjörbreyta
mengunaráhrifum í Varmá og Þor-
leifslæk. Þá hefur sama veiðifélag
tekið á leigu Tungufljót í Biskups-
tungum og eru áform um að rækta þá
á upp sem laxveiðiá.
Á veiðisvæðinu er stundaðar marg-
víslegar vísindalegar rannsókir þó
fjármunir til þeirra hlut þyrftu að
vera miklum mun meiri. Þeir Magnús
Jóhannsson og Sigurður Guðjónsson
frá Veiðimálastofnun skýrðu frá þeim
í máli og myndum. Meðal annars kom
fram hjá þeim að ástand seiðabúskap-
ar er misjafnt, heldur batnandi í
Hvítá sem virðist vera að jafna sig
eftir síðasta jökulhlaup en ástandið
lakara í Soginu og Stóru-Laxá þar
sem miklar sveiflur virðast vera í
seiðauppeldinu.
Yfir 2.000 laxar veiddust á veiðisvæði Ölfusár og Hvítár í fyrra
Óbreytt veiði-
fyrirkomulag
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Frá aðalfundi Veiðifélags Árnesinga, fremstir á myndinni eru Kjartan
Helgason, Haga, Ketill Ágústsson, Brúnastöðum, Sveinn Skúlason,
Bræðratungu, og Þráinn Jónsson, Miklaholti.
Hrunamannahreppi. Morgunblaðið.