Morgunblaðið - 28.04.2003, Side 10
FRÉTTIR
10 MÁNUDAGUR 28. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
GUNNLAUGUR Árnason, frétta-
ritari Morgunblaðsins í Stykk-
ishólmi, hefur verið kjörinn for-
maður Okkar manna, félags
fréttaritara blaðsins á lands-
byggðinni. Tekur hann við af
Grími Gíslasyni sem verið hefur
formaður undanfarin ár.
Aðalfundur Okkar manna var
haldinn í húsi Morgunblaðsins
síðastliðinn laugardag. Í stjórn-
inni sem kjörin er til tveggja ára
eru auk Gunnlaugs þau Guðrún
Vala Elísdóttir í Borgarnesi og
Jón Sigurðsson á Blönduósi.
Á fundinum var sérstaklega
fjallað um breytingarnar á Morg-
unblaðinu og stöðuna á fjölmiðla-
markaðnum. Styrmir Gunn-
arsson, ritstjóri Morgunblaðsins,
flutti erindi og ræddi málið við
fréttaritarana ásamt Birni Vigni
Sigurpálssyni fréttaritstjóra og
Sigtryggi Sigtryggssyni frétta-
stjóra.
Afhent verðlaun
fyrir ljósmyndir
Þá voru kynnt úrslit og afhent
verðlaun í samkeppni meðal
fréttaritaranna um bestu ljós-
myndir frá síðustu tveimur árum.
Myndin Frækileg björgun var
valin mynd keppninnar og af-
henti Haraldur Sveinsson, stjórn-
arformaður Árvakurs hf., Alfons
Finnssyni í Ólafsvík verðlaunin.
Aðrir sem fengu verðlaun og
viðurkenningar fyrir myndir eru:
Jónas Erlendsson í Fagradal, Sig-
urður Aðalsteinsson á Vað-
brekku, Sólný Pálsdóttir á Djúpa-
vogi, Hafþór Hreiðarsson á
Húsavík, Pétur Kristjánsson á
Seyðisfirði, Jón H. Sigurmunds-
son í Þorlákshöfn, Atli Vigfússon
á Laxamýri, Jón Sigurðsson á
Blönduósi, Theodór Kr. Þórð-
arson í Borgarnesi, Halldór
Sveinbjörnsson á Ísafirði, Sig-
urður Sigmundsson í Hruna-
mannahreppi, Líney Sigurð-
ardóttir á Þórshöfn, Birkir
Fanndal Haraldsson í Mývatns-
sveit, Guðrún Vala Elísdóttir í
Borgarnesi og Reynir Sveinsson í
Sandgerði.
Fram kom við verðlaunaveit-
inguna að þátttaka var meiri en
áður hefur þekkst í ljósmynda-
keppnum fréttaritaranna, um 750
myndir komu frá 32 fréttarit-
urum og ljósmyndurum á lands-
byggðinni. Í dómnefnd voru
Freysteinn Jóhannsson blaðamað-
ur, Einar Falur Ingólfsson mynd-
stjóri og Sigtryggur Sigtryggsson
fréttastjóri og þeim til aðstoðar
voru þrír starfsmenn ljós-
myndadeildar Morgunblaðsins,
þær Ingibjörg Ólafsdóttir, Ragn-
hildur Aðalsteinsdóttir og Sigríð-
ur Óskarsdóttir. Dómnefndin
valdi 33 myndir til verðlauna og
viðurkenninga og hafa þær verið
settar upp á sýningu í versl-
unarmiðstöðinni Kringlunni.
Morgunblaðið/Sverrir
Haraldur Sveinsson afhendir Alfonsi Finnssyni verðlaun fyrir bestu mynd-
ina í keppni fréttaritara. Keppnin tók til áranna 2001 og 2002 og sendu 32
fréttaritarar og ljósmyndarar alls um 750 myndir.
Nýr formaður
Okkar manna Morgunblaðið/SverrirUm þrjátíu fréttaritarar voru á aðalfundi Okkar manna um helgina. Þeir stilltu sér upp til myndatöku ásamt
nokkrum starfsmönnum Morgunblaðsins við aðalstöðvar blaðsins í Kringlunni eftir fundinn.
FINN Kamper-
Jörgensen, læknir
og forstjóri lýð-
heilsustofnunar
Dana, segir stofn-
un Lýðheilsu-
stöðvar hér á
landi mikilvægt
skref í átt að
bættri lýðheilsu.
Hann telur þó
nauðsynlegt að
Lýðheilsustöðin fáist ekki einungis
við það að safna saman upplýsingum
og miðla þeim heldur sé einnig brýnt
að þar fari fram rannsóknir og
menntun á sviði lýðheilsu.
Kamper-Jörgensen er hér á landi
til að flytja erindi á lýðheilsunám-
skeiðinu Komum lýðheilsu á kortið,
uppbygging til framtíðar. Námskeið-
ið er samstarsverkefni Félags um lýð-
heilsu á Íslandi og Endurmenntunar-
stofnunar Háskóla Íslands.
Kamper-Jörgensen verður einnig
með framsöguerindi á opnum fundi
með Jóni Kristjánssyni heilbrigðis-
ráðherra og Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur, talsmanni Samfylkingar-
innar, á morgun, þriðjudag, í húsa-
kynnum Endurmenntunarstofnunar.
Alþingi samþykkti á vorþingi stofn-
un Lýðheilsustöðvar hér á landi, en
hlutverk hennar á að vera að efla og
samræma lýðheilsustarf og annast
fræðslu til almennings um heilbrigði
og heilsueflingu.
Samstarf um rannsóknir
Kamper-Jörgensen segir að rúmist
rannsóknir og menntun á sviði lýð-
heilsu ekki innan nýju Lýðheilsu-
stöðvarinnar sé mikilvægt að hún hafi
fjárhagslegt bolmagn til að kaupa
slíkar rannsóknir og starfa með öðr-
um að eflingu menntunar á sviði lýð-
heilsu. Hann segir að rannsóknir á
lýðheilsu séu t.d. mikilvægar í því
skyni að fylgjast með því hvernig
ákveðin markmið heilbrigðisáætlana
nái fram að ganga. Sé markmiðið til
dæmis að minnka reykingar þurfi að
vera til vitneskja um það hvort og þá
hvernig slíku markmiði var náð.
Kamper-Jörgensen var um tíma
aðstoðarlandlæknir Dana. Hann er
aðstoðarritstjóri Scandinavian Journ-
al of Public Health og hefur gegnt
lykilhlutverki við mat á árangri á
verkefnum á sviði lýðheilsu í Dan-
mörku og víðar á Norðurlöndum.
Lýðheilsu-
stöð fáist
einnig við
rannsóknir
og menntun
Dr. Finn Kamper-
Jörgensen
ELLERT B. Schram var kjörinn
formaður samtakanna 60 plús á
stofnfundi þeirra sem haldinn var í
Súlnasal Hótels Sögu í gær. Samtök-
in eru á vegum Samfylkingarinnar
en þau eru fyrir 60 ára og eldri og
munu berjast fyrir hagsmunamálum
eldri borgara.
Að sögn Ástu R. Jóhannesdóttur,
alþingismanns Samfylkingarinnar,
var húsfyllir á stofnfundinum og seg-
ir hún að líklega hafi gestir verið um
800 talsins. „Ég held að það sé mjög
mikilvægt fyrir 60 ára og eldri að
eiga sér slíkan vettvang innan
stjórnmálaflokks, alveg eins og ung-
liðahreyfingarnar hafa átt fyrir sinn
aldurshóp. Það þarf að huga að svo
mörgu um sextugt, um það hvernig
menn ætla að verja lífi sínu það sem
eftir er ævinnar og berjast fyrir
þeim hagsmunum sem þá koma upp,
t.d. innan heilbrigðiskerfisins og
húsnæðiskerfisins.“
Samtökin eru stofnuð að erlendri
fyrirmynd en systraflokkar Sam-
fylkingarinnar í Þýskalandi og Sví-
þjóð hafa slík samtök á sínum snær-
um. Að sögn Ástu hafa 60 plús
samtökin orðið mjög öflug í þessum
löndum. Hún segir þó ekki gert að
skilyrði að félagar í samtökunum
hérlendis gangi í Samfylkinguna.
Á stofnfundinum var stjórn sam-
takanna kosin og var Ellert B.
Schram kjörinn formaður þeirra.
Morgunblaðið/Sverrir
Ásta R. Jóhannesdóttir (t.v.) og Bryndís Hlöðversdóttir alþingismenn sam-
fagna Ellerti B. Schram sem kjörinn var formaður samtakanna 60 plús.
Húsfyllir á stofn-
fundi 60 plús
FRAMBJÓÐENDUR Samfylking-
arinnar höfðu í nógu að snúast í
Garðabænum í gær, en þá gengu
þeir í hús og afhentu íbúum kosn-
ingastefnuskrá Samfylkingarinnar.
Hér afhendir Þórunn Sveinbjarn-
ardóttir, þingkona Samfylking-
arinnar, Gunnari Má Gunnarssyni,
íbúa í Garðabæ, kosningaskrána.
Sigurður Björgvinsson, bæj-
arfulltrúi Samfylkingarinnar í
Garðabæ, fylgist með.
Stefnuskránni
útbýtt í Garðabæ
Morgunblaðið/Sverrir