Morgunblaðið - 28.04.2003, Page 26
26 MÁNUDAGUR 28. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
NÚ þegar kosningar nálgast heyr-
ast mörg loforðin um hvernig
stjórnmálaflokkar landsins ætla að
bæta líf okkar
flestra með lög-
um og reglu-
gerðum.
Eitt af mörg-
um málum sem
heyrast aldrei
nefnd er sjálf-
sagður réttur
barna til um-
gengni við báða
foreldra eftir
sambúðarslit þeirra. Því miður er
staðan sú að um helmingur allra
hjónabanda endar með skilnaði.
Áður hef ég bent á stöðu feðra í
þeim darraðardansi. Vangaveltur
mínar eru þessar: Ætlar einhver
stjórnmálaflokkur að beita sér fyr-
ir því að sameiginleg forsjá verði
lögleidd við sambúðarslit foreldra?
Hefur einhver flokkanna þá
skoðun að foreldri sem ekki er með
lögheimili barns hjá sér (eða
forsjá) séu tryggðir ákveðnir lág-
marksdagar í umgengni við barn
sitt?
Ég veit að félagsskapurinn
ábyrgir feður hefur lagt til við
dómsmálaráðherra að sett verði í
lög sameiginleg forsjá ásamt 118
daga lágmarksumgengni á ári.
Ekkert hefur gengið hjá henni
Sólveigu Pétursdóttur dómsmála-
ráðherra með þessi mál og virðist
hún fyllilega sátt við stöðu mála í
dag.
Einnig virðist Sólveig sátt við
það kynjajafnrétti að einungis kon-
ur sem starfa hjá sýslumanninum í
Reykjavík skuli ákveða hvaða um-
gengnisrétt börn fá með feðrum
sínum. Að vísu er hægt að kæra
þann úrskurð til ráðuneytis hennar
en þar eru víst líka einungis konur
til að vega og meta úrskurð kyn-
systra sinna.
Við sem erum á þeirri skoðun að
konur og karlar séu jöfn og launa-
jafnrétti sé sjálfsagt rekum okkur
á ókleifan múr þegar við viljum
setja okkur á sama stall og konur
hvað barnauppeldi varðar.
Til að ná fram réttlátu jafnrétti
þarf að viðurkenna okkur karl-
mennina sem uppalendur og berj-
ast gegn þess háttar úrskurðum
sem hljóma á þá leið að faðir megi
ekki hafa barn sitt yfir nótt fyrr en
það er orðið tveggja, þriggja eða
jafnvel fjögurra ára. Sérstaklega
er það slæmt þegar haft er í huga
að barn myndar sín sterkustu
tengsl frá núll til tveggja ára ald-
urs.
Sýslumannskonur hafa farið
mikinn síðustu áratugina og mikið
hefur borið á úrskurðum þar sem
„bestu hagsmunir barna okkar“
eru bornir fyrir borð í gömlum
hugsunargangi og uppþornuðum
viskubrunnum úrskurðaraðila. Nú
finnst mér nóg komið og óska eftir
því að uppeldismenntað fólk af báð-
um kynjum en ekki löglærðar kon-
ur sjái um að gæta að hagsmunum
og andlegri velferð barna okkar í
úrskurðum um samverustundir
með foreldrum sínum.
OTTÓ SVERRISSON,
hópstjóri,
Þrastarási 75, Hafnarfirði.
Af hverju tala stjórn-
málamenn aldrei
um sjálfsögð mann-
réttindi barna?
Frá Ottó Sverrissyni:
Ottó
Sverrisson
KÆRU landsmenn, f. h. íslenskrar
ferðaþjónustu býð ég ykkur út í ís-
lenska vorið. Eftir einn hlýjasta
vetur á Íslandi sem mælst hefur, er
vorið óvenju snemma á ferðinni,
líklega mánuði fyrir tímann.
Þrátt fyrir stutta meðgöngu
kemur vorið fullburða til okkar og
flytur okkur fögnuð gróandans.
Þennan fögnuð fá orð ekki fangað í
líkingu við sjálfa upplifunina. Ég
reyni því ekki að lýsa fyrir ykkur
kæru lesendur hvernig vorið gagn-
tekur mann og umfaðmar náttúru-
algleymi, það er ykkar að ganga á
vit upplifunarinnar og njóta á þann
hátt sem hentar hverjum og einum.
Landið breytir um lit og lykt og
loftið fyllist ómþýðum söng ást-
fanginna fugla. Heima á bæjunum
leikur ungviðið sér hoppandi og
skoppandi um móana á milli mjólk-
urskammta mæðra sinna. Slík
náttúruveisla hríslar sælu-
straumum um kroppinn og læðir
fiðringi inn í hugskot njótandans,
mannfólkið lifnar við og brosir mót
veröldinni.
Það er full ástæða til þess les-
endur góðir að hvetja ykkur til að
fara út í vorið og ferðast um landið
ykkar Ísland.
Til þess að gera sér betur í hug-
arlund upp á hvað landið hefur að
bjóða vil ég benda ykkur á Ferða-
torgið í Smáralind, 2. – 4. maí, þar
má fræðast um flest það sem Ís-
land hefur upp á að bjóða.
Lifið heil.
ÁSMUNDUR GÍSLASON,
Árnanesi, Hornafirði.
Ferðamálasamtök
Austurlands
Frá Ásmundi Gíslasyni: