Morgunblaðið - 28.04.2003, Page 27
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. APRÍL 2003 27
Frjálslyndi flokkurinn heldur
stjórnmálafund í Félagsheimilinu
í Kjós í kvöld og hefst fundurinn
kl. 20.30. Á fundinn mæta þau
Gunnar Örlygsson, 1. maður á lista
Frjálslynda flokksins í Suðvestur-
kjördæmi, Sigurlín Margrét Sig-
urðardóttir, 2. maður á lista
Frjálslynda flokksins í Suðvestur-
kjördæmi, og Guðjón A. Krist-
jánsson, formaður Frjálslynda
flokksins og fyrsti maður á lista
Frjálslynda flokksins í Norðvest-
urkjördæmi. Í fréttatilkynningu
frá Frjálslynda flokknum segir að
táknmálstúlkur verði á staðnum,
enda sé Sigurlín heyrnarlaus og
stefni að því að verða fyrsti heyrn-
arlausi þingmaðurinn. Þá segir í
frétt flokksins að þetta sé fyrsti
framboðsfundurinn sem haldinn er
í áratugi í Kjós.
Sumargleði Samfylkingarinnar í
Hafnarfirði fer fram í Hafnarborg
á morgun, þriðjudaginn 29. apríl,
kl. 20.30. Meðal dagskrárliða verð-
ur söngur Karlakórsins Þrasta,
Ríó Tríó treður upp og Margrét
Pálmadóttir tekur lagið. Þórður
Marteinsson tekur á móti gestum
með harmonikkuleik, en ýmsir að-
standendur Samfylkingarinnar
munu stíga í pontu, þar á meðal
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, sem
flytur hátíðarávarp. Stjórnandi
samkomunnar er Lúðvík Geirsson
bæjarstjóri.
STJÓRNMÁL
GÓÐ gjöf bættist við tækjakost
Landspítalans – háskólasjúkrahúss
á dögunum.
Fyrirtækið Bros ehf. gaf með-
göngudeild spítalans vél sem að-
stoðar við mjólkurgjöf hjá mjólk-
andi mæðrum sem fæða fyrirbura.
Vélin, sem er af Symphony-gerð,
mun vafalítið koma deildinni að
miklu gagni.
Ólöf De Bont frá Bros ehf. afhenti Álfheiði Árnadóttur, deildarstjóra með-
göngudeildar, vélina fyrir hönd fyrirtækisins.
Meðgöngudeild Landspítala
fær veglega gjöf
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft-
ir vitnum að stöðu umferðarljósa
vegna áreksturs tveggja fólksbíla á
mótum Arnarnesvegar og Fífu-
hvammsvegar í Garðabæ hinn 9. apr-
íl sl. um klukkan 23.
Þar rákust saman rauður Mitsub-
ishi Lancer og blár Volkswagen
Vento.
Mitshubishi-bílnum var ekið aust-
ur Arnarnesveg og beygt í átt að
Fífuhvammsvegi en hinum bílnum
vestur Arnarnesveg. Þeir sem geta
veitt upplýsingar um málið eru beðn-
ir að hafa samband við lögregluna í
Hafnarfirði eða Reykjavík.
Lýst eftir
vitnum
FYRIR nokkru voru haldin sveins-
próf í rafiðngreinum. Alls útskrif-
uðust að þessu sinni 45 sveinar.
Voru útskrifaðir 28 rafvirkjar og
17 rafeindavirkjar.
Af þessu tilefni héldu Rafiðn-
aðarsamband Íslands, Samtök at-
vinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði,
Rafiðnaðarskólinn og Fræðslu-
skrifstofa rafiðnaðarins hóf í hús-
næði RSÍ, Stórhöfða 31. Í hófinu
voru sveinum afhent sveinsbréf sín
og nokkrum nemendum voru veitt
verðlaun fyrir góðan árangur á
sveinsprófi, segir í fréttatilkynn-
ingu.
45 rafiðnaðarsveinar
fengu sveinsbréfin
UM páskana var haldin í Miklabæj-
arkirkju sýning á smíðisgripum og
listmunum gerðum af Guðmundi
Hermannssyni frá Fjalli, kennara
við Varmahlíðarskóla.
Guðmundur lauk námi frá smíða-
deild Kennaraskólans árið 1965 og
Kennaraháskólanum 1973. Þá stund-
aði hann nám við Notodden Lære-
högskole á Þelamörk í Noregi 1985–
86, í deild sem heitir Tre og forming.
Á sýningunni, sem haldin er á
þeim tímamótum Guðmundar, að
hann er nú að láta af störfum sem
kennari, var margt að skoða, og
vöktu athygli ýmsir fallegir og sér-
stæðir gripir sem hann hefur unnið í
hrossbein, meðal annars verðlauna-
gripur sem kenndur er við hinn
landsfræga hestamann Dúdda frá
Skörðugili, og keppt er um árlega í
ístölti á Holtstjörn. Einnig var
margt fagurlega útskorinna muna í
tré og horn og margir stöldruðu við
við borð með allmörgum hnífum með
sköftum úr ýmsum gerðum beina og
horna sem skreytt voru listilega.
Alls voru um 100 gripir kynntir í
skemmtilegri sýningarskrá og má
þar nefna að gripur númer 21 er
skráður svo: „Ölkanna úr eplatré.
Unnin í Noregi 1985. Á loki er skor-
inn með höfðaletri vísupartur um
smiðinn, eftir Sigurð Hansen, –
Bakkusar þó brunnar þorni, –. Og
Bakkusarmynd á loki líkist óvart
einum vina Guðmundar.“
Á sýningunni var lokaverkefni
Guðmundar frá Notodden Lærehög-
skole, veglegur útskorinn stóll smíð-
aður úr norsku birki.
Hrossaræktarfélagið Gráni í
Akrahreppi hafði forgöngu um að
koma sýningunni á, en sá fé-
lagsskapur virðist fást við ýmis fleiri
menningarmál en ræktun góðhesta
því á vegum félagsins má nefna
bókaútgáfu og ýmsa menningarvið-
burði í sveitinni.
Listasýning í
Miklabæjarkirkju
Sauðárkróki. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Guðmundur situr í stólnum góða.
BORIST hefur ályktun sem sam-
þykkt var á aðalfundi Barnageð-
læknafélags Íslands nýlega en þar er
lýst yfir áhyggjum yfir stöðu í geð-
heilbrigðismálum barna og unglinga.
„Ákvörðun ríkisstjórnar Íslands
að stórauka fjárframlög til geðheil-
brigðisþjónustu við börn og ung-
menni og setja málaflokkinn í for-
gang er fagnað,“ segir m.a. í
ályktuninni. Þá fagnar fundurinn
stofnun átaksteymis til að sinna
bráðveikum börnum sem og áform-
um um stækkun unglingadeildar
BUGL og aukna þjónustu deildar-
innar við landsbyggðina. „Uppbygg-
ing geðheilbrigðisþjónusu við FSA
þarf að hefjast sem fyrst, svo og
gagnger endurskoðun á þjónustu við
börn í hinum dreifðari byggðum
landsins.
Stjórnunarleg staða Barna- og
unglingageðdeildar innan Landspít-
ala háskólasjúkrahúss og vöntun á
prófessorsstöðu og öðrum kennslu-
stöðum við læknadeild Háskóla Ís-
lands er áframhaldandi áhyggjuefni
og er að áliti fundarins ein helsta
hindrunin fyrir eðlilegri þróun innan
sérgreinarinnar.“
Lýsa áhyggj-
um vegna geð-
heilbrigðis-
mála barna
GEIR H. Haarde fjármálaráðherra
hefur skipað Harald Sverrisson
skrifstofustjóra rekstrar- og upplýs-
ingaskrifstofu frá 1. maí nk.
Haraldur hefur langa reynslu í
starfi hjá stjórnarráðinu, hann hefur
m.a. verið rekstrarstjóri fjármála-
ráðuneytisins frá árinu 1991. Sem
rekstrarstjóri hefur hann verið yfir-
maður rekstrar- og upplýsingadeild-
ar ráðuneytisins sem var með skipu-
lagsbreytingum 1. apríl sl. breytt í
skrifstofu. Haraldur er viðskipta-
fræðingur að mennt og stundaði
framhaldsnám í fjármálum í Banda-
ríkjunum á árinu 2001.
Fjármálaráðuneytið
Nýr skrifstofu-
stjóri skipaður
♦ ♦ ♦