Morgunblaðið - 28.04.2003, Page 28
DAGBÓK
28 MÁNUDAGUR 28. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Baldvin Þorsteinsson
og Goðafoss koma í
dag. Selfoss, Þerney
og Venus fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Selfoss kemur til
Straumsvíkur í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Vinnu-
stofa og leikfimi kl. 9,
boccia kl. 10, vinustofa
kl. 13, söngstund á
morgun kl. 14.
Árskógar 4. Kl. 9–12
opin handavinnustofa,
kl. 11 boccia, kl.13–
16.30 opin smíðastofa/
útskurður, opin handa-
vinnustofa, kl. 13.30 fé-
lagsvist, kl. 16 mynd-
list.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
9–16 handavinna, kl. 9–
12 bútasaumur, kl. 9–
17 fótaaðgerð, kl. 10–
11 samverustund, kl.
13.30–14.30 söngur við
píanóið, kl. 13–16 búta-
saumur.
Félagsstarf eldri borg-
ara í Mosfellsbæ, Kjal-
arnesi og Kjós. Fé-
lagsstarfið opið mánu-
og fimmtudaga. Mánu-
dagur kl. 16 leikfimi.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 kl. 20.30.
Fótaaðgerð frá kl. 10.
Skrifstofan Gullsmára
9 er opin kl. 16.30–18,
s. 554 1226.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9
fótaaðgerð, og mynd-
list, kl. 10–12 verslunin
opin, kl. 13 föndur og
handavinna.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 10, leikfimi,
kl. 13 brids.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 9–16 opin
handavinnustofan, kl.
9–12 myndlist, kl. 13–
16 körfugerð, kl. 11–
11.30 leikfimi, kl. 13–16
spilað, kl. 10–13 versl-
unin opin.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Bað kl. 9–
12, vinnustofur lokaðar
í dag vegna uppsetn-
ingar á sýningu, fé-
lagsvist kl. 14, kl. 9–14
hárgreiðsla.
Félag eldri borgara,
Garðabæ. Æfing hjá
Garðakórnum, kór
eldri borgara Garða-
bæ, alla mánudaga kl.
17.30 í safnaðarheim-
ilinu Kirkjuhvoli.
Söngfólk er hvatt til að
koma og taka þátt í
starfi með kórnum.
Stjórnandi kórsins er
Kristín Pjetursdóttir.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Kl. 13 nám-
skeið, tálgað í tré og
lesið í skóginn.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, pútt kl. 10,
biljard og kóræfing kl.
10.30, tréskurður kl. 13
og félagsvist kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Brids kl. 13.
S. 588 2111.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Kl. 15.30
upplestur. S. 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, kl. 9. 30 gler og
postulínsmálun, kl.
10.50, leikfimi, kl. 13
skák og lomber, kl. 20
skapandi skrif.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
9.05 leikfimi, kl. 9.55
stólaleikfimi, kl. 10
ganga, kl. 13 brids, kl.
20.30 félagsvist.
Hraunbær 105. Kl. 9
perlusaumur og fóta-
aðgerð, kl. 10 bæna-
stund, kl. 13.30 sögu-
stund og spjall, kl. 13
postulínsmálun og hár-
greiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9 föndur, kl. 9 og kl. 10
jóga, kl. 13 spilað, kl.
14.15 spænska, fótaað-
gerðir.
Norðurbrún 1. Kl. 10–
11 ganga, kl. 9–15 fóta-
aðgerð, kl. 9–12 mynd-
list, kl. 13–16.45 opin
handavinnustofa.
Vesturgata 7.
Kl. 9–16 fótaaðgerð og
hárgreiðsla, kl. 9.15–12
postulínsmálun. kl.
9.15–15.30 handavinna,
kl. 9.30–10.30 boccia,
kl.11–12 leikfimi, kl.
12.15–13.15 dans-
kennsla, kl. 13–16 kór-
æfing.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla,
kl. 9.30 bókband, búta-
saumur og morgun-
stund, kl. 10 fótaað-
gerð og boccia, kl. 13
handmennt, gler-
bræðsla og spilað, kl.
15.30 jóga.
Gullsmárabrids. Brids
að Gullsmára.
Skráning kl. 12.45, spil
hefst kl. 13.
Félag eldri borgara
Suðurnesjum. Bingó í
Selinu Vallarbraut 4,
Njarðvík öll mánu-
dagskvöld kl. 20.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, félagsheim-
ilið Hátúni 12. Kl. 19
brids.
Minningarkort
Minningarkort For-
eldra- og vinafélags
Kópavogshælis fást á
skrifstofu endurhæf-
ingadeildar Landspít-
alans Kópavogi (fyrr-
verandi Kópavogs-
hæli), síma 560-2700 og
skrifstofu Styrkt-
arfélags vangefinna, s.
551-5941 gegn heim-
sendingu gíróseðils.
Í dag er mánudagur 28. apríl,
118. dagur ársins 2003. Orð
dagsins: „Trúið á ljósið meðan
þér hafið ljósið, svo að þér
verðið börn ljóssins.“
(Jóh. 12, 36.) Kosningar í nánd,
furðuleg auglýsing
VARLA hefur farið
framhjá mörgum auglýsing
(í svart/hvítu) Samfylking-
arinnar í sjónvarpinu, þar
sem strollan af forsætisráð-
herrum (allt karlmönnum)
lýðveldisins rúllar á skján-
um og endar svo á litmynd
af Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur, forsætisráð-
herraefni SF. Hver eru svo
skilaboðin með svona aug-
lýsingu? Að allir eigi að
kjósa konu núna, vegna
þess að hingað til hafa bara
karlmenn verið forsætis-
ráðherrar? Sem sagt að
kjósa konu, konunnar
vegna.
Þetta er auðvitað þvílík
ósmekkvísi að það hálfa
væri nóg.
Kjósandi.
Hrokafullir
sjálfstæðismenn
ÞAÐ er með ólíkindum að
hlusta á og lesa greinar eft-
ir sjálfstæðismenn þessa
dagana.
Þeir væla mikið undan
Ingibjörgu Sólrúnu vegna
Borgarnesræðunnar síðari.
Þeir segja m.a. að þetta
séu ekki málefnalegar um-
ræður, það skiptir þá
kannski engu hvernig
menn fara með vald sitt.
Tökum nokkur dæmi:
Þegar Davíð Oddsson sagði
að biskupinn ætti að fá sér
eitthvað annað að gera þeg-
ar hann talaði um fátækt
hér á landi. Eða þegar Dav-
íð sagði að það væri til fullt
af fólki sem stæði í biðröð-
um hjá mæðrastyrksnefnd
bara til að fá frían mat,
þetta kom eins og blaut
tuska í andlitið á vesalings
fólkinu sem þarna átti í
hlut.
Og ekki má gleyma
greinum Agnesar Braga-
dóttur þar sem hún rekur
hverja ferðina á fætur ann-
arri frá mönnum innan við-
skiptalífsins til forsætis-
ráðuneytisins til að fá
vilyrði fyrir hinum og þess-
um ákvörðunum.
Og svo að því sem Davíð
sagði á landsfundinum, þar
sagði hann að það væri al-
gjör sátt um kvótakerfið (er
hann ekki í neinu sambandi
við það sem er að gerast í
þjóðlífinu?)
Öryrkjadómurinn og
Valdimarsdómurinn, þetta
er allt á eina bókina lært,
hroki og geðþóttaákvarð-
anir samanber Íraksmálið
og stuðningurinn við trúar-
ofstækismenn í USA.
Svo ef einhver vogar sér
að gagnrýna Davíð þá er sá
hinn sami í einhvers konar
samsæri gegn honum.
Ég skora á alla sem lesa
þetta að spá bara aðeins í
þetta, er það svona vald
sem að viljum hafa yfir okk-
ur? Ég kaus Sjálfstæðis-
flokkinn þegar Davíð bauð
sig fyrst fram til Alþingis af
því að ég trúði að hann væri
réttlátur og klár maður, en
það eru mistök sem ég verð
að lifa með.
Virðingarfyllst,
Valur Bjarnason.
Sammála
Kristínu
ALVEG er ég sammála
Kristínu sem segir að það
sé búið að eyðileggja morg-
unþáttinn hjá RÚV. Sjaldn-
ast gengur að finna neitt
áheyrilegt á öðrum stöðv-
um svo við bara slökkvum á
útvarpinu og spjöllum á leið
í vinnuna. Verst er þegar
þetta kosningakjaftæði og
rifrildi er í gangi. Hlýtur að
vera beinlínis óheilsusam-
legt að hlusta á rifrildi og
þras, nýkominn á fætur.
Gamla efnið aftur og minni
hávaðamun á milli þess að
senda út músík og talað
mál, svo hægt verði að hafa
opið útvarp.
110643-4629.
Djúpa laugin
MÉR finnst að það mætti
endurskoða þáttinn „Djúpa
laugin“ á Skjá einum. Mér
fannst þátturinn skemmti-
legri hér áður fyrr. Nú er
hann fyrir neðan allar
hellur með þvílíkar spurn-
ingar sem eru svo heimsku-
legar. Mér finnst að það
þyrfti að vera einhver skyn-
semi á bakvið við þetta.
Gréta.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Í skrúðgöngu í vesturbænum.
LÁRÉTT
1 forljót kona, 4 kasta, 7
þvinga, 8 ótti, 9 renna, 11
lengdareining, 13 bakki á
landi, 14 afbragð, 15 óm-
júk, 17 útungun, 20
málmur, 22 smyrsl, 23
eimyrjan, 24 snáði, 25
flýtirinn.
LÓÐRÉTT
1 hæfa, 2 ull, 3 mjög, 4
höfuð, 5 núa, 6 ákveð, 10
þor, 12 hvíld, 13 tjara, 15
aðstoð, 16 rödd, 18 girnd,
19 báturinn, 20 náttúra,
21 rekast í
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 rysjóttur, 8 lýgur, 9 fóðra, 10 pot, 11 grafa, 13
akrar, 15 klökk, 18 sárna, 21 oft, 22 stutt, 23 askan, 24
hlunnfara.
Lóðrétt: 2 yggla, 3 jarpa, 4 tyfta, 5 Urður, 6 slag, 7
maur, 12 fok, 14 krá, 15 koss, 16 ötull, 17 kotin, 18 starf,
19 ríkur, 20 annt.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Víkverji skrifar...
EINN af kunningjum Víkverja varað koma frá útlöndum. Ferðin
var býsna góð, að sögn kunningjans,
ekki síst vegna þess að hann hefur
gaman af því að fljúga. Hvers vegna
finnst kunningjanum svo gaman að
fljúga? Jú, honum finnst „flug-
vélamatur“ svo ofboðslega góður!
Kunninginn hefur áður haldið því
fram í fullri alvöru við Víkverja að
opna þyrfti veitingastað í Reykjavík
sem hefði aðeins svokallaðan „flug-
vélamat“ á boðstólum. Víkverji er að
vísu ekki jafnviss um að Íslendingar
myndu flykkjast á slíkan veit-
ingastað – en gat þó vel séð fyrir sér
að um „þematengdan“ stað yrði að
ræða; þ.e. að hann yrði innréttaður
sem flugvél; gestir fengju aðeins að
sitja tveir og þrír saman, aldrei and-
spænis hver öðrum og ávallt með
stólbak fyrir framan sig. Kannski
líst einhverjum athafnamanninum
nógu vel á þessa hugmynd til að
hrinda henni í framkvæmd?!
x x x
VÍKVERJI býr í miðbæ Reykja-víkur og kann því vel. Nú er vor í
lofti og fátt ánægjulegra, að mati
Víkverja, en að bregða sér í kvöld-
göngu. Eitt skyggir þó verulega á
gleðina um þessar mundir en það
eru umfangsmiklar framkvæmdir í
Bankastræti, á Bergstaðastrætinu
milli Laugavegs og Skólavörðustígs
og á vegspottanum frá húsi Máls og
menningar við Laugaveg og að
SPRON við Skólavörðustíg.
Í fyrra var Skólavörðustígurinn
meira og minna uppgrafinn langt
fram á sumar og skemmdi sum-
argleðina í brjósti Víkverja og nú
þetta! Hvers vegna þarf alltaf að
vera að grafa upp alla skapaða hluti
– hvenær fær Víkverji eiginlega að
ganga um sitt nánasta umhverfi í
friði?
x x x
VÍKVERJI var að fletta Frétta-blaðinu í vikunni. Þar á bæ eru
sumar fréttir greinilega merkilegri
en aðrar. Á forsíðu blaðsins sl.
þriðjudag var t.d. tvisvar sinnum
greint frá því að hershöfðinginn
fyrrverandi, Jay Garner, væri kom-
inn til Bagdad, en Garner á að fara
fyrir bráðabirgðastjórn Bandaríkja-
manna í Írak. Á miðvikudag bættu
Fréttablaðsmenn hins vegar um bet-
ur; þá var hægt að finna á alls þrem-
ur stöðum í blaðinu litla frétt um nið-
urstöður DNA-rannsóknar í
Bandaríkjunum sem hafði sýnt fram
á sakleysi 23 ára gamals manns, sem
dæmdur hafði verið til dauða fyrir
morð.
Morgunblaðið/Ómar
Framkvæmdir í miðbænum.
Stefán Pálsson skrifargrein á Múrinn, þar
sem hann gagnrýnir það
kerfi, að tiltekinn fjölda
meðmælenda þurfi til að
geta boðið fram til þings.
„Meginröksemdin sem
notuð er til að réttlæta
kröfuna um meðmæl-
endalista er sú að nauð-
synlegt sé að koma í veg
fyrir að allt fyllist af smá-
flokkum,“ segir Stefán.
„Þetta er umdeilanlegt
viðhorf, því hæglega má
halda því fram að æski-
legt sé að sem allra flestir
bjóði sig fram og reyni að
vinna skoðunum sínum
fylgis. En jafnvel þó horft
sé fram hjá því, þá halda
þessi rök ekki vatni því
raunin er sú að núverandi
kerfi hindrar alls ekki
smáflokka í að bjóða
fram. Við hverjar kosn-
ingar koma fram nokkrir
framboðslistar sem fá
færri atkvæði í kosning-
um en mælt höfðu með
listanum.“
Stefán segir að hinn
raunverulegi þröskuldur
sem framboð þurfi að
yfirstíga sé ekki sá að
ganga hús úr húsi með
undirskriftalista, heldur
að fá fólk á framboðslista.
Þess vegna myndi smá-
framboðunum ekki fjölga
að marki þótt krafan um
meðmælendalista væri af-
numin.
Stefán bætir við að með-mælendalistar af
þessu tagi samrýmist tæp-
lega hugmyndinni um
leynilegar kosningar.
„Lengi vel kusu kosninga-
smalar flokkanna og fjöl-
margir þeirra sem kvitt-
uðu undir meðmælalista
að líta svo á að með undir-
skriftinni væri einungis
verið „að lýsa stuðningi
við að viðkomandi listi
fengi að bjóða fram“,
þannig væri undirskriftin
ekki bein stuðningsyfir-
lýsing.
Þessi röksemdafærsla
var góð og gild þar til fyr-
ir kosningarnar 1999,
þegar bundið var í reglur
að einungis mætti skrifa
undir hjá einum flokki.
Með því er ljóst að lög-
gjafinn lítur á undirskrift-
irnar sem hreina stuðn-
ingsyfirlýsingu við við-
komandi framboð. Það er
óásættanlegt. Hvers
vegna eiga nokkrar þús-
undir kjósenda að þurfa
að gefa út opinbera stuðn-
ingsyfirlýsingu til að
hægt sé að efna til leyni-
legra kosninga fyrir alla
hina? Þetta er út í hött!“
skrifar Stefán.
Loks bendir Stefán áenn einn galla: „Hvað
ef t.d. framboðslisti eins
af „stóru“ flokkunum yrði
úrskurðaður ógildur
vegna galla á meðmæl-
endalistum sem óvíst væri
hverjum væri að kenna?
Hugsum okkur t.d. að
hópur illkvittinna stuðn-
ingsmanna vinstri-
grænna og Framsóknar-
flokksins hefði gengið á
milli kosningaskrifstofa
íhaldsins, kratanna og
Frjálslynda flokksins og
skráð nöfn sín á meðmæl-
endalista allra flokka.
Þær undirskriftir hefðu
fallið dauðar niður og
framboð þriggja fram-
boða komist í uppnám!“
STAKSTEINAR
Óþarfir meðmælendur