Morgunblaðið - 28.04.2003, Page 32
32 MÁNUDAGUR 28. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10. B.i.14. / kl. 5.50, 8 og 10.10. b.I. 14. / kl. 8 og 10. B.i. 14. / kl. 8 og 10. B.i. 14
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI / KEFLAVÍK
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 3.45, 5.50, 8 OG 10.10. B.I. 16.
Radio X
Kvikmyndir.is
Óskarsverðlaun
Besti leikari í auka-
hlutverki Chris Cooper
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Radíó X
H.K. DV
1/2 HL Mbl
Kvikmyndir.is
1/2 Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 10.05. B.i. 14.
Mögnuð hrollvekja
frá Stephen King
sem engin má missa af!
Sýnd kl. 6 og 8.
3
Besti leikari
í
aðalhlutverk
Adrien
Brody
Besti
leikstjóri
Roman
Polanski
Besta
handritÓSKARS-
VERÐLAUN
Sýnd kl. 6.
Kvikmyndahátíðin
Reykjavík Shorts & Docs
hefst 30 apríl.
Sýnd kl. 5.30 og 8.15. Sýnd kl. 8.
Sýnd kl. 5.30, 8.30 og 10.05. B.i.14 ára.
Radio X
Kvikmyndir.is
HASARMYNDIN
xXx með Vin Diesel
er enn þá á toppi
mynddiskalistans,
þrátt fyrir harða
keppni frá eðalmynd-
inni Leiðin til Perdi-
tion.
Diesel er þegar bú-
inn að ákveða að
leika í framhaldinu
enda var það alltaf
ætlunin hjá þeim Rob
Cohen leikstjóra að
þetta yrði fyrsta
myndin af mörgum,
ef hún myndi ganga
vel, sem og hún hefur
gert.
Leiðin til Perdition
skartar stórleikurun-
um Tom Hanks og
Paul Newman en hún var gerð af
Bretanum unga Sam Mendes sem
sló rækilega í gegn með fyrstu
mynd sinni Amerískri
fegurð og hlaut Ósk-
ar fyrir.
Mel Gibson hlaut
einnig Óskarinn fyrir
Braveheart, sem
kominn er á topp
Gullmolalistans. Þótt
skoðanir manna séu
skiptar um ágæti
þeirrar miklu myndar
breytir það því ekki
að hún á mjög marga
dygga aðdáendur
sem virðast geta
horft á hana í ótelj-
andi skipti.
Þess má að lokum
geta að að Bítlarnir
bresku hafa hafið
innreið sína á mynd-
diskalistann en
Anthology-safnið þeirra er nú með-
al söluhæstu mynddiska, enda eigu-
leg útgáfa og væn.
!
"#$%
#
%
#
&%
!
'"
()*
"
$%
+
,-
"
."#
/ "
/
/ "
/
#%
0
,
,"0
1
$ 2
$""
%
0
&
#
%
"
" %
$"3
$"
xXx ennþá
á toppnum
Mel Gibson leikstýrði
Braveheart og lék
aðalhlutverkið.
ÞRIÐJA vinsælasta bíómynd sög-
unnar, samkvæmt nýjustu útreikn-
ingum, kemur út á mynddiski í dag
hér á landi. Já, Harry Potter og
leyniklefinn kemur út í dag, önnur
myndin í þessum magnaða bálki um
ævintýri galdradrengsins og vina
hans í Hogwarts-skólanum. Og rétt
eins og flestum gagnrýnendum þótti
myndin sjálf taka hinni fyrstu fram
að flestu leyti þá er mynddiskurinn
betri en sá fyrsti – miklu betri.
Hvar skal byrja? Fyrir það fyrsta
þá er enn meira efni á honum – já,
það var greinilega hægt að koma
meiru fyrir – meira efni og merki-
legra.
Útgáfan er á tveimur diskum, sá
fyrri inniheldur sjálfa myndina, sýn-
ishorn úr báðum myndum og lista yf-
ir leikara og aðra aðstandendur.
Hvað aukaefni varðar er aðalfúttið
hins vegar í seinni diskinum, sem er
sneisafullur af efni. Uppbyggingin
og aðgengið að þessu efni er mun
betra og skilmerkilegra en á auka-
diskinum með Viskusteininum. Það
þarf t.a.m. ekki að leita að afgangs-
atriðunum úr Leyniklefanum heldur
blasa þau við manni í efnisyfirlitinu.
Og eins og vanalega er maður
spenntari að sjá þessi afgangsatriði,
atriðin sem einhverra hluta vegna
fengu ekki að vera með í endanlegu
útgáfunni af myndinni sem kom í bíó.
Þessi atriði úr Leyniklefanum eru
fullkomin að gæðum, sem sagt full-
unnin, 17 mínútur að lengd saman-
lögð. Þar fær maður m.a. að kynnast
honum Dobby litla nánar, illmenninu
Lucius og spjátrungnum prófessor
Gilderoy. Þessi atriði varpa svo sem
engu nýju ljósi á myndina og maður
getur vel séð hvers vegna þau fuku
en þrátt fyrir það er gaman að sjá
þau. Einn hluti disksins er svo alfar-
ið helgaður hinum kostulega Gilde-
roy en þar gefst tækifæri til að skoða
skrifstofu hans nánar og fá yfirlit yf-
ir „glæstan“ feril hans.
Hægt er að fara í fjóra stutta leiki;
leysa þar m.a. þrautir í Leyniklef-
anum sjálfum, Forboðna skóginum
og fá að launum að sjá atriði úr
myndinni eða klapp á bakið. Þessi
þáttur ætti að gleðja yngstu áhorf-
endurna.
Efni um gerð myndarinnar er
mun ríflegra á þessum diski en þeim
síðasta. Að baki Hogwarts er yfir-
skriftin og þar er að finna nokkrar
stuttar heimildarmyndir. Þar er
einnig 16 mínútna viðtal við höfund-
inn J.K. Rowlings og handritshöf-
undinn Steve Kloves sem snýst að-
allega um hvernig þau fóru að því að
laga bókina að hvíta tjaldinu. Stór-
fróðleg er síðan kortérs löng mynd
þar sem nákvæmlega er farið ofan í
saumana á hvernig atriði verður til.
Allt þetta er skemmtilega fram
sett á þrívíðan máta og það aðgengi-
legan. Farið er með mann í eins kon-
ar skoðunarferð um Hogwarts og
þar er að finna kima sem aldrei sáust
í myndinni.
Á diskinum er þar að auki hægt að
fara í Viltu vinna milljón-legan
spurningaleik þar sem allar spurn-
ingarnar eru vitanlega upp úr mynd-
inni.
Fyrir yngri áhorfendur er mesta
fjörið þó trúlega að finna í DVD-
Rom hlutanum fyrir PC-tölvur. Þar
er búnaður sem gerir manni kleift að
láta tölvuna þekkja rödd notandans
og læra að hlýða skipunum hennar.
Þar fyrir utan er heilmikið af efni
fyrir tölvuna á aukadiskinum; tíma-
lína með sögu Hogwarts, ýmsar
þrautir og efni til að gera tölvuna að
einum stórum Harry Potter-heimi,
skjámyndir, skjásvæfur o.fl.
Rúsínan í pylsuendanum fyrir ís-
lenska áhorfendur er svo að hægt er
að horfa á myndina með íslenskri tal-
setningu. Virkilega jákvætt framtak
það hjá íslenska dreifingaraðilanum
Sambíóunum/myndböndum.
Það er auðveldlega hægt að mæla
með þessum diski við Harry Potter-
aðdáendur, en þarf varla. Ef þeir eru
ekki þegar búnir að tryggja sér ein-
tak eða panta það þá verða þeir vart í
rónni fyrr en það er í höfn. Þessi
mynddiskur er þegar farinn að slá öll
sölumet úti í heimi og á vafalítið eftir
að gera álíka miklar rósir hér heima.
Önnur Harry Potter-myndin komin út á mynddiski
Á nýja mynddiskinum gefst færi á að kynnast Leyniklefanum og Harry Potter enn betur.
Leyniklefinn opnaður
Harry Potter og leyniklefinn á
mynddiski kemur í verslanir hér á
landi í dag.
Skarphéðinn Guðmundsson