Morgunblaðið - 28.04.2003, Síða 36
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 28. APRÍL 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
FYRSTA kolmunnanum
á Eskifirði á þessu ári
var landað í gær, þegar
Jón Kjartansson SU 111
kom með 1.500 tonn til
hafnar eftir fjögurra
daga veiðiferð á miðlín-
una milli Færeyja og
Hjaltlandseyja. Grétar
Rögnvarsson skipstjóri
segir fiskinn góðan og
töluvert sé af honum.
„Það virtist vera mikið
magn á ferðinni og auð-
velt að ná fiskinum. Við
fengum fullfermi í fjórum höl-
um,“ segir Grétar um aflann sem
fer í bræðslu og mjöl. Ágætis
veður var við veiðarnar að sögn
Grétars.
Fimmtán menn eru í áhöfn
Jóns Kjartanssonar sem er í eigu
Eskju hf. og átti næsti veiðitúr að
hefjast strax að lokinni löndun í
gærkvöldi eða nótt.
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Jón Kjartansson með fullfermi af kolmunna á Eskifirði í gær.
Fyrsti kolmunn-
inn til Eskifjarðar
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Þeir voru kampakátir skipverjarnir eftir góða
veiðiferð. Ráðgert var að halda út aftur í nótt.
MIKIL slysahætta fylgir því að
sinna samtímis bílstjóra- og leið-
sögumannsstarfi að mati Félags
hópferðaleyfishafa, sem ítrekað hef-
ur ályktað um málið, nú síðast á að-
alfundi félagsins um helgina. Félagið
lýsir yfir miklum áhyggjum með
þróun mála hjá ökuleiðsögumönnun-
um svokölluðu og kallar eftir löggjöf
um starfsstéttina áður en slys hlýst
af.
Félag hópferðaleyfishafa segir að
það færist í vöxt að sami maður sinni
leiðsögn og akstri samtímis og jafn-
vel þótt unnið sé með handfrjálsan
búnað, sé slysahætta fyrir hendi,
ekki síst í ljósi þess að ferðamanna-
hóparnir stækki stöðugt. Félaginu
þykir líka eðlilegt að ökuleiðsögu-
menn sinni ekki fleiri en átta farþeg-
um í einu.
Að sögn Steins Sigurðssonar, for-
manns Félags hópferðaleyfishafa,
gætu um 50 ökuleiðsögumenn verið
að störfum. „Það er mikið um 10
manna bíla og jafnvel upp í 20 til 30
manna bíla,“ segir hann. Félagið lít-
ur svo á að akstur sé fullt starf og
því sé það að bjóða hættunni heim að
bílstjórar séu í ofanálag að bregða
sér í hlutverk leiðsögumanns á með-
an þeir aka. Það auki síðan enn á
slysahættuna þegar margir bílstjór-
ar, eins og Steinn hefur heimildir
fyrir, noti ekki handfrjálsan búnað,
heldur hafi aðra hönd á stýri og
hljóðnema í hinni. „Á meðan það er
talið fullt starf að vera annars vegar
leiðsögumaður og hins vegar bíl-
stjóri, finnst mér það skjóta skökku
við að þetta sé allt í einu orðið eitt
starf. Við viðurkennum tilverurétt
ökuleiðsögumanna, en okkur finnst
að starfseminni þurfi að setja mörk.
Tillögur okkar lúta að því að draga
mörkin við hámark átta farþega. Nú
er t.d. ekkert sem bannar ökuleið-
sögumanni að sinna 50 manna hópi.“
Grunur um að Umferðarráð
hafi verið beitt þrýstingi
Félagið hefur þrívegis á jafn-
mörgum árum ályktað um málið og
hefur upplýsingar um að málið hafi
dregist á langinn hjá Umferðarráði.
Þá segist félagið hafa heimildir fyrir
því að Umferðarráð hafi verið beitt
þrýstingi frá ökuleiðsögumönnum.
Segir í ályktuninni að slíkt sé mjög
alvarlegt ef satt sé. „Einhverra hluta
vegna stoppaði málið hjá Umferð-
arráði og eftir því sem ég hef fregn-
að virðist það vera vegna ósamstöðu
innan ráðsins,“ segir Steinn. „Við
álítum það vera vegna þrýstings á
ráðið og teljum óeðlilegt að ráðið
starfi þannig.“
Aðalfundurinn samþykkti einnig
ályktun þess efnis að skora á stjórn-
völd að samræma löggjöf um þunga-
skatt og löggjöf um fólksflutninga
þannig að ekki verði heimilt að fá
undanþágu frá ríkisskattstjóra til að
nota almenningsvagna í hópferðir í
samkeppni við hópferðabíla.
Hópferðaleyfishafar hafa áhyggjur af ökuleiðsögn
Vilja fá löggjöf um
ökuleiðsögumenn
UM 20 þúsund gestir komu á siglingasýn-
inguna Vatnaveröld í Smáralindinni um
helgina á vegum Siglingasambands Íslands,
þar sem gaf að líta margs konar báta og búnað í
vatna- og sjósporti. Siglingafélögin kynntu
starfsemi sína auk Kajakklúbbssins og Sport-
kafarafélagsins. Einnig voru sýndar kvik-
myndir úr heimi vatnasportsins og fólki boðið
að setjast í bátana. Það nýjasta sem boðið er
upp á í ferðaþjónustu í tengslum við vatnasport
eru þotubátar til siglinga á ám, en það eru
hraðbátar með þotudrifi í stað skrúfu. Þeir eru
smíðaðir úr áli og er hægt að fara í flúðasigl-
ingar á þeim. Fyrirtækið Arctic Rafting sýndi
einn fimm manna þotubát sem nær 130 km
hraða.
Einnig voru sýndar tvær 26 feta seglskútur,
einn 28 feta hraðbátur, kænur og kajakar og
margt fleira.
Vatnasport á vaxandi vinsældum að fagna
hérlendis að sögn Birgis Ara Hilmarssonar,
ritara Siglingasambands Íslands, en fyrsta
sýning þessarar gerðar var haldin í fyrra. Sigl-
ingatímabilið hefst í byrjun maí.
Morgunblaðið/Sverrir
20 þúsund
gestir sóttu
Vatnaveröld
MIKILL fögnuður braust út meðal leikmanna
ÍR og stuðningsmanna þess þegar ÍR-ingar
lögðu Valsmenn, 26:25, í æsispennandi leik í
undanúrslitum Íslandsmóts karla í handknatt-
leik í Austurbergi í gærkvöldi.
Ólafur Sigurjónsson var hetja Breiðhyltinga
en hann skoraði sigurmark ÍR-inga á lokasek-
úndum leiksins með lúmsku skoti sem lands-
liðsmarkvörðurinn Roland Eradze í liði Vals
móti Haukum í framlengdum leik í Háloga-
landi.
Haukar komust í úrslitin í gær með því að
slá út Íslandsmeistara KA á Akureyri í fram-
lengdum leik en fyrsti úrslitaleikur Hauka og
ÍR fer fram 6. maí. Þrjá leiki þarf að vinna til
að hampa titlinum.
réð ekki við. Leikmenn ÍR-inga stigu stríðs-
dans á gólfi íþróttahússins í Austurbergi í
leikslok en með sigrinum tryggðu þeir sér far-
seðilinn í úrslitaleikina um Íslandsmeistaratit-
ilinn sem ÍR-ingar unnu síðast og í eina skiptið
í sögu félagsins árið 1946 eða fyrir 57 árum.
ÍR-ingar mæta Haukum í úrslitaleikjunum
en svo skemmtilega vill til að þegar ÍR varð Ís-
landsmeistari árið 1946 höfðu þeir betur á
Morgunblaðið/Árni Torfason
Júlíus Jónasson, þjálfari og leikmaður ÍR-inga og fyrrum Valsmaður, umkringdur stuðningsmönnum ÍR eftir sigurinn á Val í gær. Með sigr-
inum komust ÍR-ingar í úrslit Íslandsmeistaramótsins þar sem þeir mæta Haukum. Fyrsti leikurinn verður í Hafnarfirði annan þriðjudag.
ÍR-ingar í úrslit gegn Haukum
ÍR náði/Íþróttir 2/6
ÓLI H. Þórðarson formaður Um-
ferðarráðs segir ráðið hafa áhyggj-
ur af því að ökuleiðsögn fari al-
mennt fram, en segir ráðið þó ekki
treysta sér til að mæla gegn henni í
litlum bílum. Ekki sé þó búið að
skilgreina hvað átt sé við með
„litlum bílum“, þ.e. hve marga far-
þega ökuleiðsögumaður megi taka.
Segir Umferðarráð
hafa áhyggjur