Morgunblaðið - 30.04.2003, Qupperneq 1
Dáið þér
Brahms?
Gunnar Kvaran og Jónas Ingimundarson
í sónötuham í Salnum Listir 26
Glæsikerra
síns tíma
Lincoln árgerð 1930 fluttur til
landsins og gerður upp Bílar C14
Líf gegnum
linsuna
Heimilda- og stuttmyndahátíð
í Háskólabíói Fólk 52
NEMENDUR og starfsmenn við Há-
skólann í Singapore hafa ekki farið
varhluta af öryggisráðstöfunum
vegna HABL veirunnar. Sigurður
Thoroddsen, sem er prófessor í véla-
verkfræði við skólann, segir að
kennarar og starfsfólk gangi með
grímur og hitastig sé mælt hjá öllum
nemendum þegar þeir mæti í skól-
ann en nú standa þar yfir vorpróf.
„Þeir nemendur sem eru með 37,5
stiga hita eða meira þurfa að taka
prófin í sérstökum einangrunar-
herbergjum,“ segir Sigurður Thor-
oddsen.
Hann segir að skólayfirvöld hafi
ákveðið að auka enn á öryggis-
ráðstafanir, meðal annars með því
að mæla hitastig hjá öllu starfsfólki
skólans tvisvar á dag, jafnframt
verði öryggiskerfi skólans nýtt til að
fylgjast með hvar starfsfólk og nem-
endur haldi sig. „Maður þarf að setja
kortið sitt í lesara hvert sem farið er
og þannig eru ferðir manns skráðar.
Ef smit kemur upp er vitað hvar í
skólanum sá smitaði hefur verið og
hægt er að gera ráðstafanir sam-
kvæmt því,“ segir Sigurður. Út-
breiðsla veirunnar hafi sett svip sinn
á mannlífið í Singapore en um 200
smit hafa komið upp í landinu og á
þriðja tug manna hefur látist af
völdum veirunnar. „ Það eru fáir á
ferli og maður fer ekkert að óþörfu.
Ég er til dæmis hálfhræddur við að
fara í lestina,“ segir Sigurður. Öllum
skólum hafi verið lokað í tvær vikur
en nú hafi þeir verið opnaðir aftur.
Sigurður Thoroddsen, prófessor við Háskólann í Singapore, prófar nemendur sína.
Próf í einangrunarherbergjum
„EF VEL tekst til munum við sjá áður óþekktar
kjarabætur ganga til fólksins í landinu og trausta
afkomu fyrirtækja,“ sagði Davíð Oddsson for-
sætisráðherra í ræðu á aðalfundi Samtaka at-
vinnulífsins í gær er hann ræddi framtíðarhorfur í
efnahags- og atvinnumálum en ráðherrann bætti
við:
„Ef illa verður á málum haldið verður þjóðin öll í
varnarbaráttu á skeiði, sem átti að færa henni
mesta efnahagsávinning í áratugi.“
Gríðarlegur árangur
Davíð Oddsson sagði í ræðu sinni, að árangur í
efnahagsmálum á Íslandi sl. áratug hefði verið
gríðarlega mikill. Víðtækar umbætur í hagkerfinu
með afnámi hafta og auknu frjálsræði ættu sinn
þátt í því en forsætisráðherra nefndi einnig gjör-
breytt vinnubrögð aðila vinnumarkaðarins, sem
haft hefðu mikla þýðingu. Nú væri horft til fram-
sækinna kjarasamninga, þar sem samspil launa,
skatta og framganga ríkis og löggjafarvalds geti
haft mikla þýðingu.
Davíð Oddsson sagði að þrátt fyrir fjölbreyttari
efnahagsstarfsemi væri sjávarútvegurinn enn sem
fyrr bakbeinið í efnahagslífinu og grundvöllurinn
undir byggðir landsins. Hann lýsti vonbrigðum yfir
því, að þrátt fyrir þá sátt, sem tekizt hefði í auð-
lindanefnd um hóflegt gjald á sjávarútveginn
hefðu stjórnarandstöðuflokkarnir rofið þá sátt í að-
draganda kosninga. Tillögur þeirra yrðu rothögg
fyrir sjávarútveginn, alvarleg atlaga að byggðum
landsins og hreint tilræði við íslenzkt efnahagslíf.
Mesta hagvaxtarskeið í áratugi
Forsætisráðherra ræddi nokkuð um afstöðu
Breta til evrunnar og benti á, að Íslendingar væru
nú að ganga inn í eitt mesta hagvaxtarskeið síðustu
áratuga. Í Bandaríkjunum, Evrópu og Japan væru
þær áhyggjur helztar að hagvöxtur á næstu árum
yrði minni og sums staðar verulega minni en við-
unandi gæti talizt. Viðfangsefni hagstjórnar væru
því allt önnur hér en hvar sem væri í Evrópu eða
öðrum OECD-ríkjum. Við yrðum því að hafa fullt
forræði yfir hagstjórnartækjum okkar.
Davíð Oddsson forsætisráðherra í ræðu á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins
Tækifæri til mesta efna-
hagsávinnings í áratugi
Mikið hagvaxtarskeið
fyrirsjáanlega framundan
Morgunblaðið/Sverrir
Davíð Oddsson og Ingimundur Sigurpálsson, ný-
kjörinn formaður Samtaka atvinnulífsins.
STOFNAÐ 1913 115. TBL. 91. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
PALESTÍNSKA þingið samþykkti í
gær með miklum meirihluta nýja
stjórn Mahmuds Abbas, fyrsta for-
sætisráðherra Palestínumanna, og
vekur það á ný vonir um að árangur
náist í friðarumleitunum fyrir botni
Miðjarðarhafs. Hlaut stjórnin stuðn-
ing 51 þingmanns gegn 18.
Á alþjóðavettvangi er samþykkt
þingsins talin mikilvægur liður í að
ýta Yasser Arafat, leiðtoga Palest-
ínumanna, til hliðar, en Ísraelar saka
hann um að kynda undir hryðju-
verkastarfsemi. Lykilmenn í forystu
Palestínumanna ítrekuðu þó, að
hann væri enn við stjórnvölinn.
„Ég er afskaplega ánægður með
þessa lýðræðislegu [samþykkt],“
sagði Abbas, sem einnig gengur und-
ir nafninu Abu Mazen. „Ég vona að
stjórnin uppfylli væntingar allra.“
Bandaríska forsetaembættið lýsti
þegar yfir ánægju með staðfest-
inguna á stjórn Abbas og endurtók
loforð sitt um að birta innan tíðar
svokallaðan vegvísi að friði í Mið-
austurlöndum, þriggja þrepa áætlun
sem samin var af svonefndum „frið-
arkvartett“, Bandaríkjamönnum,
Rússum, Evrópusambandinu og
Sameinuðu þjóðunum.
Haft var eftir háttsettum, banda-
rískum embættismönnum í gær-
kvöldi að líklega yrði vegvísirinn
lagður fyrir Palestínumenn og Ísr-
aela á morgun, eða jafnvel í dag, en
það yrði ekki gert með neinni við-
höfn. Áhersla yrði síðan lögð á að
honum yrði framfylgt.
Ísraelar tóku orðum Abbas í gær
af varkárni. „Gjörðir hans eru hinn
eiginlegi prófsteinn, ekki orð hans,“
sagði Raanan Gissin, talsmaður
Ariels Sharons, forsætisráðherra
Ísraels. Sharon hefur neitað að hefja
friðarumleitanir fyrr en Palestínu-
menn bindi enda á allt ofbeldi og
hryðjuverk. Segja fréttaskýrendur
að ef Sharon hviki ekki frá þessari
kröfu sé hætt við að vegvísirinn sé
andvana fæddur.
Stjórn Abbas
hlýtur samþykki
Ramallah, Washington. AFP.
Vonarneisti kviknar/20
MIKIL sprenging varð við
veitingastað í Tel Aviv í Ísrael
skömmu eftir miðnætti í nótt að
staðartíma. A.m.k. þrír létust,
að því er fregnir hermdu. Tugir
voru sagðir hafa slasast, margir
lífshættulega. Talsmaður lög-
reglunnar í borginni sagði að
þetta væri hryðjuverk unnið af
sjálfsmorðstilræðismanni.
Haft var eftir sjónarvotti að
öryggisvörður við veitingastað-
inn, sem er við fjölfarna götu
skammt frá bandaríska sendi-
ráðinu, hefði komið í veg fyrir
að tilræðismaðurinn færi inn á
veitingastaðinn.
Í gærkvöld hafði enginn lýst
ábyrgð á hendur sér, en Ham-
as-samtök herskárra Palest-
ínumanna hafa hótað að halda
áfram sjálfsmorðstilræðum
gegn Ísraelum, þrátt fyrir að
nýskipaður forsætisráðherra
Palestínumanna, Mahmoud
Abbas, hafi síðast í gær for-
dæmt hryðjuverk og heitið því
að berjast gegn þeim.
Sprengju-
tilræði í
Tel Aviv
Tel Aviv. AP.