Morgunblaðið - 30.04.2003, Blaðsíða 24
SUÐURNES
24 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FULLTRÚAR allra sveitarfélag-
anna á Suðurnesjum og samtakanna
Gróður fyrir fólk í Landnámi Ingólfs
(GFF) hafa gert samning um verk-
efnið Land-nám á Suðurnesjum.
Munu 60–70 ungmenni vinna í sumar
við trjárækt og aðra uppgræðslu í ná-
munda við bæina.
Landnám er samheiti á verkefnum
sem GFF vinnur í samvinnu við
mennta- og uppeldisstofnanir víða í
landnámi Ingólfs. Nú hafa öll sveit-
arfélögin á Suðurnesjum bæst við og
segir Björn Guðbrandur Jónsson
framkvæmdastjóri samtakanna það
sérstakt gleðiefni að öll sveitarfélögin
fimm hafi sameinast um verkefnið,
það gefi því enn meira gildi en ella.
„Vissulega er þetta ögrandi verk-
efni því trjávöxtur er ekki það fyrsta
sem fólki dettur í hug þegar rætt er
um Reykjanesið,“ segir Björn Guð-
brandur. Ungmenni úr vinnuskólum
eða átaksverkefnum sveitarfélaganna
planta um 15 þúsund trjám og njóta
við það vísindalegrar leiðsagnar sem
á að geta gagnast þeim í námi og
starfi í framtíðinni. Jafnframt munu
þau mæla og skrá framvindu, vöxt og
viðgang trjágróðurs við mismunandi
aðstæður á svæðinu. Björn Guð-
brandur segir að ungmennin muni fá
aðgang að tölvuverum grunnskólanna
í sinni heimabyggð til þess að skrá
þessar upplýsingar og fylgjast með
þeim áfram. Þótt gerður hafi verið
samningur til eins árs í upphafi er fyr-
irhugað að verkefnið haldi áfram.
Kostnaður er áætlaður 10–12 millj-
ónir. Sveitarfélögin greiða laun ung-
mennanna, Suðurlandsskógar leggja
til trjáplönturnar og Nýsköpunar-
sjóður námsmanna styrkir verkefni
með því að leggja til nemanda úr
Kennaraháskóla Íslands til að stýra
fræðilegum þætti þess.
Sveitarfélögin sameinast um Land-námsverkefni í sumar
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Fulltrúar sveitarfélaganna og formaður GFF undirrituðu samning um Land-nám, f.v. Hörður Guðbrandsson, Jó-
hanna Reynisdóttir, Sigurður Jónsson, Þórður H. Ólafsson, Sigurður Valur Ásbjarnarson og Árni Sigfússon.
Börnin planta 15 þúsund trjám
Suðurnes
KVENNAKÓR Suðurnesja held-
ur vortónleika í Ytri-Njarðvíkur-
kirkju fimmtudaginn 1. maí og
þriðjudaginn 6. maí nk. Tónleik-
arnir hefjast kl. 20.30 bæði kvöld-
in. Einnig mun kórinn verða með
tónleika ásamt Lögreglukórnum í
Árbæjarkirkju í Reykjavík laug-
ardaginn 3. maí kl. 17.
Kórinn var stofnaður 22. febr-
úar 1968, og fagnar því 35 ára af-
mæli sínu þetta árið, en Kvenna-
kór Suðurnesja er elsti starfandi
kvennakór landsins.
Kórinn fékk í haust til sín nýjan
og stjórnanda, Krisztinu Kalló
Szklenárné. Um píanóundirleik á
tónleikunum sér Geirþrúður
Fanney Bogadóttir, og Sigrún
Ósk Ingadóttir syngur einsöng.
Efnisskrá tónleikanna er fjöl-
breytt, þar er að finna bæði erlend
og íslensk sönglög, klassísk verk
meistaranna, negrasálma og
söngleikjalög, og ættu flestir að
finna eitthvað við sitt hæfi, að því
er segir í fréttatilkynningu.
Miðaverð á tónleikana er 1.500
kr., en fyrir eldri borgara kr.
1.000. Frítt inn fyrir 12 ára og
yngri. Miðasala verður við inn-
ganginn.
Vortónleikar
Kvennakórsins
„VIÐ erum búin að vera lengi í
þessu og erum búin að fá nóg,“ seg-
ir Lydia Egilsdóttir ein af eigendum
verslunarinnar Öldunnar í Sand-
gerði sem staðið hafa að rekstr-
inum í rúm 32 ár. Eigendaskipti
hafa nú orðið að versluninni.
Tvenn hjón stofnuðu verslunina
Ölduna fyrir rúmum 32 árum. Það
voru Lydia og Björn Maronsson í
Sandgerði og Óli B. Bjarnason og
Gunnþórunn Gunnarsdóttir sem bú-
sett eru í Keflavík. „Björn og Óli
voru að vinna saman í múrverki og
við Gunnþórunn erum æsku-
vinkonur. Datt okkur í hug að prófa
þegar við sáum verslun auglýsta til
sölu,“ segir Lydina.
Þau keyptu Axelsbúð og byggðu
myndarlega verslun við Tjarnar-
götu. Þar var fjölbreytt vöruúrval,
meðal annars fatnaður, skór, gjafa-
vörur og sælgæti. Umsvifin voru
veruleg og langur afgreiðslutími.
„Hér var mikið um að vera við höfn-
ina, sérstaklega á vertíðum. Það
var oft skrautlegt á vertíðinni. Nú
er þetta orðið allt annað. Kvótinn
hefur minnkað svo mikið,“ segir
Lydia.
Þau keyptu aðra verslun og
breyttu henni í söluskála og það er
sá hluti starfseminnar sem þau hafa
rekið fram á þennan dag en aðal-
versluninni var lokað fyrir nokkr-
um árum.
Þau hafa selt Guðrúnu Arthúrs-
dóttur og Eggert Andréssyni rekst-
urinn og hafa þau tekið við rekstr-
inum. Guðrún segir að þau hafi
unnið mikið sjálf í búðinni og frí-
dagarnir verið fáir. Þau hafi því
verið orðin þreytt á starfinu og
ákveðið að selja þegar tækifæri
gafst til þess. Hún segir allt óráðið
um hvað taki við.
Á bak við búðarborðið í 32 ár
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Síðasti dagurinn í búðinni, f.v. Björn, Óli, Lydia og Gunnþórunn.
„Oft skrautlegt
á vertíðum“
Sandgerði
HLAUPIÐ er svokallað víða-
vangshlaup á götum Grindavíkur
á sumardaginn fyrsta. Er hlaupið
orðið að árlegum viðburði.
Fyrst hlaupa strákar í 1.–4.
bekk grunnskólans en síðan stelp-
ur á sama aldri. Þá hlaupa krakk-
arnir á miðstigi og að lokum
unglingastigið. Þátttakan er allt-
af góð og er keppt um sérstakan
mætingarbikar í bekkjarkeppni
um það hvaða bekkur er hlutfalls-
lega duglegastur að mæta.
María Jóhannesdóttir er ein af
íþróttakennurunum sem sáu um
undirbúninginn fyrir hlaupið og
hafði þetta að segja: „Það er eins
og venjulega mjög góð þátttaka
hjá yngsta stiginu og miðstigi en
lakari hjá þeim elstu. Sigurvegari
í bekkjarkeppninni var 3. L. og
er það lýsandi fyrir þátttökuna
að sá bekkur sigraði með minnsta
mun eða 90% þátttöku bekkjar-
ins.“
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Mikill kraftur er í þessum hópi sem er að leggja af stað í víðavangshlaup. Hlaupið er orðið að árlegum atburði.
90% nem-
enda
bekkjar-
ins hlupu
Grindavík
SÖNGDEILD Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar heldur tónleika í
sýningarsal Listasafns Reykjanes-
bæjar, Duus-húsum, í dag, miðviku-
dag, og hefjast þeir kl. 19.30.
Fram koma nemendur í einsöngs-
og samsöngsatriðum auk kórs söng-
deildarinnar. Flutt verður tónlist úr
þekktum söngleikjum.
Kennarar söngdeildar eru Hjördís
Einarsdóttir og Dagný Þórunn Jóns-
dóttir. Meðleikari á píanó er Ragn-
heiður Skúladóttir og mun hún leika
á nýjan flygil Listasafnsins.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
Tónleikar
söngdeildar
Reykjanesbær
BAÐSTOFAN heldur sína árlegu
vorsýningu í Svart-pakkhúsinu í
Keflavík fimmtudaginn 1. maí næst-
komandi. Að þessu sinni verður sýn-
ingin aðeins opin þennan eina dag.
Sýningin er opin frá klukkan 14 til
20. Suðurnesjamenn eru hvattir til
að koma og skoða afrakstur vetrar-
ins hjá Baðstofufólkinu, segir í
fréttatilkynningu.
Vorsýning
Baðstofunnar
Keflavík
BÆJARSTJÓRINN í Grindavík,
Ólafur Örn Ólafsson, hefur óskað
eftir viðræðum við heilbrigðisráðu-
neytið um að Grindavíkurbær fái
þjónustusamning um rekstur heilsu-
gæslunnar í Grindavík. Svör hafa
ekki borist, að sögn Ólafs.
Yfirtaka Grindavíkurbæjar á
rekstri heilsugæslunnar var á
stefnuskrá Samfylkingarinnar fyrir
bæjarstjórnarkosningarnar í
Grindavík á síðasta ári og ákvæði
þess efnis er í málefnasamningi nú-
verandi meirihluta. Hörður Guð-
brandsson, forseti bæjarstjórnar,
segir að unnið hafi verið að þessu
máli frá því fljótlega eftir kosningar
og fundað hafi verið með ráðuneyt-
inu í haust. Tekið hafi verið frekar
jákvætt í málið þótt ráðuneytið hafi
raunar frekar viljað að Grindavíkur-
bær gerði þjónustusamning við Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja sem nú
annast heilsugæsluna. Hörður segir
að bærinn vilji semja beint við rík-
isvaldið, líkt og Akureyrarbær og
Hornafjarðarbær sem hafi slíka
þjónustusamninga.
Hörður segir að málið hafi legið
niðri um tíma vegna þess að menn
hafi viljað forðast það að skemma
fyrir möguleikum á lausn læknadeil-
unnar. Nú hafi bæjarráð hins vegar
ákveðið að taka málið upp á ný.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
var með eitt og hálft stöðugildi
lækna við heilsugæslustöðina í
Grindavík áður en læknarnir sögðu
upp á sínum tíma. Nú er þar einn
læknir sem sinnir einnig störfum í
Keflavík að einhverju leyti. Hörður
telur nauðsynlegt að hafa lækna í að
minnsta kosti einu og hálfu stöðu-
gildi og ef rekstur hjúkrunarheim-
ilisins Víðihlíðar yrði hluti af þjón-
ustusamningi gæti skapast
grundvöllur fyrir tvo lækna í fullu
starfi til að sinna störfum á heilsu-
gæslustöðinni og á hjúkrunarheim-
ilinu. Segir Hörður að stjórnendur
Grindavíkurbæjar séu opnir fyrir því
að hafa Víðihlíð með í samningi um
heilsugæsluna en telji það þó ekki
nauðsynlegt.
Óánægja með þjónustuna
Hörður segir að óánægja hafi
lengi verið með þjónustuna á heilsu-
gæslustöðinni en er ekki í vafa um að
þjónustan myndi batna ef Grinda-
víkurbær tæki yfir rekstur heilsu-
gæslunnar. Vísar hann í því efni til
reynslunnar á Akureyri og í Horna-
firði, þar séu allir ánægðir, jafnt íbú-
arnir, sveitarstjórnin og fulltrúar
ríkisvaldsins. Þá telur hann öruggt
að unnt yrði að fá lækna til starfa ef
ábyrgðin færðist á heimamenn.
Í bókun meirihluta Samfylkingar
og Sjálfstæðisflokks, þar sem ákveð-
ið var að óska eftir viðræðum við
ráðuneytið, er talið æskilegt að
hraða viðræðum eins og kostur er í
ljósi stöðu mála.
Vilja þjónustusamning
um heilsugæsluna
Grindavík
♦ ♦ ♦