Morgunblaðið - 02.05.2003, Qupperneq 20
DAGLEGT LÍF
20 FÖSTUDAGUR 2. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Ólívu lauf
FRÁ
Ertu með kvef
eða flensu?
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
Nýr ilmur frá Blumarine
TÍSKAN teymir fólk út í lífs-hætti af ýmsum toga ogsumir fylgihlutir hafa
beinni áhrif á skrokkinn en aðrir.
Flestum er til dæmis kunnugt um
stíf magabelti, víruð brjóstahöld
og strokkþröng pils, sem óneit-
anlega hafa áhrif á eðlilegar
hreyfingar í daglegu lífi. Háir
hælar og támjóir skór eru gjarn-
an nefndir í sömu andrá – jafnvel
taldir geta
unnið lík-
amanum
óbætanlegt
tjón. Í vefútgáfu
Evening Standard var nýlega far-
ið yfir þetta vinsæla álitamál og –
öllum að óvörum – dregnir fram
óvæntir kostir þess að ganga á
háum hælum.
Teygt á kálfvöðvum
Háum hælum er það helst talið
til tekna að þeir styrkja kálf- og
lærvöðva. Þegar gengið er á
háum skóm færist þyngd-
arpunktur líkamans til sem kallar
á virkni vöðva sem að öðrum
kosti hvíldust. „Að ganga á háum
hælum jafngildir í raun dag-
skammti af kálfateygjum, sem
og sársauka. Í þessum til-
fellum geta hælaháir skór
kallað fram þessa sveigju á
ný og linað spennuna,“ er haft
eftir Jan Fielding, nuddara.
Sljórri hugsun
á hælum
Hinir vantrúuðu munu
án efa halda áfram að
spara háu hælana nema
við sérstök tilefni. Ofnotk-
un þeirra getur nefnilega
aukið álagið á hnén og gert
þau viðkvæmari fyrir gigt-
areinkennum, ef marka má
rannsóknir Harvard-vísinda-
manna sem birtar hafa verið í rit-
inu The Lancet. Er þá að vísu
gert ráð fyrir því að hælarnir séu
yfir sjö sentimetra háir, sem hlýt-
ur að flokkast til ofurhárra hæla
sem fáar konur þramma á dag-
lega.
Fyrrnefndur Gavin Burt bendir
einnig á að þótt hóflegir hælar
örvi blóðflæði, geti of háir hælar
dregið úr því sama flæði. „Ef
maður stendur mjög lengi á háum
hælum getur það dregið úr súr-
efnisflæði til heilans, þannig að
yfir mann færist þreyta.“ Þetta
kveður hann gerast vegna þess að
ofurhælarnir auki á vöðvaspennu
um allan líkamann með þeim af-
leiðingum að leið blóðsins verður
þrengri um ákveðnar æðar.
Burt mælir og með því að hæla-
skór séu notaðir til skiptis við
lágbotna skó, enda geti bakverkir
stafað af stöðugri notkun. Á þetta
einna helst við konur með fattan
hrygg; hælanotkun getur að sögn
þjappað hryggsúlunni enn meira
saman með tímanum, sem valdið
getur þrýstingi á taugar.
Eru þá ónefnd fótavandamálin
sem háir hælar eru vísir með að
valda; aflögun á tábergslið og
sársauki í framristarbeini. Þá er
HÁSKIeðaheilsubót
Hvaða
áhrif hafa
háir hælar?
skerpir lögun fótleggjanna,“ er
haft eftir Jason Henry, líkams-
ræktarþjálfara í London. „Hins
vegar getur ganga á slíkum skóm
í óhófi stytt kálfavöðvana til lang-
frama, þannig að ekki skyldi
ganga meira en þrjá kílómetra í
einu á háum hælum. Hæð þeirra
skyldi heldur ekki vera yfir fimm
sentimetrum.“
Þá er bent á að hælaskór geti
örvað blóðrás milli fóta og efri
hluta líkamans. Ef gengið sé á
hófstilltum hælum, t.d. 2–3 senti-
metrum, megi jafnvel draga úr
bólgnum ökklum. „Blóð er flutt til
hjartans í gegnum æðar sem fá
örvun frá alltumlykjandi vöðvum.
Hælaskór geta liðkað fyrir þessu
flæði því þeir strekkja á vöðvum í
fótleggjum sem getur komið sér
vel, stríði fólk við slappa blóð-
rás,“ segir Gavin Burt, sérfræð-
ingur í skekkjulækningum. Nudd-
fræðingar bæta því við að háir
hælar í hófi geti í sumum til-
fellum minnkað hættuna á bak-
verkjum. „Sumir eru með hryggj-
arsúlu sem er bókstaflega of bein.
Þá skortir hina náttúrulegu
sveigju sem á að vera í mjóbakinu
og getur það valdið vöðvaspennu
SAMVINNA hjúkrunarfræð-inga Heilsugæslunnar íÁrbæ hefur getið af sér nám-
skeið fyrir foreldra sem eiga ung-
ling í vændum. Námskeiðið verður
haldið næsta þriðjudagskvöld og
hefur það markmið að styrkja for-
eldra í foreldrahlutverkinu.
Margrét Héðinsdóttir, deildar-
stjóri í skólahjúkrun á Heilsugæsl-
unni Árbæ, segir að hugmyndin að
námskeiðinu hafi vaknað vegna
þess að hjúkrunarfræðingar verða
varir við áhyggjur margra foreldra
og þörf þeirra fyrir fræðslu um
hvað er í vændum þegar barnið
þeirra verður unglingur. „Við höf-
um fengið símtöl frá foreldrum þar
sem þeir láta í ljósi áhyggjur sínar
yfir ýmsu því sem tengist unglings-
árunum. Það er greinilegt að for-
eldrar sækjast eftir fræðslu um
hvað eru eðlileg þroskaviðfangsefni
unglinganna og hvernig þeir geti
stutt við bakið á unglingunum á
þessu tímabili.“
Námskeiðið á þriðjudaginn er
ætlað foreldrum barna á þrettánda
ári, þ.e. fædd árið 1990. Þar munu
fjórir skólahjúkrunarfræðingar
Heilsugæslunnar flytja erindi. Mar-
grét fjallar um þroskabreytingar
unglingsáranna, Stefanía B. Arn-
ardóttir í Ártúnsskóla fjallar um
uppbyggilegar uppeldisaðferðir,
Ragnheiður Guðmundsdóttir í Ár-
bæjarskóla fjallar um hvernig for-
eldrar geta komið til móts við þarf-
ir barna sinna og Guðlaug
Björgvinsdóttir í Ingunnarskóla
fjallar um ýmislegt sem kemur að
góðum notum í uppeldinu og hvar
hjálp er að fá.
Margrét segir að innan Heilsu-
gæslunnar í Árbæ vinni samhentur
hópur tíu hjúkrunarfræðinga sem
sjái um skólahjúkrun og ung- og
smábarnavernd. Hún segir að
hjúkrunarfræðingahópurinn sé
frjór og skemmtilegur og með sam-
vinnu hafi hugmyndir orðið að
veruleika.
„Hjúkrunarfræðingar hafa mik-
inn metnað en það er ýmislegt sem
er takmarkandi. Til dæmis þurfa að
vera 800 nemendur á bak við fulla
stöðu skólahjúkrunarfræðings og
það er mikið álag. Það er sýnt að
forvarnarstarf skilar góðum árangri
og þar eru skólahjúkrunarfræðing-
ar mjög mikilvægir,“ segir Mar-
grét.
Á fyrstu tveimur árum barnsins
er eftirlit heilsugæslunnar mjög
þétt en svo dregur úr. Hjúkrunar-
fræðingunum í Árbænum fannst
mikilvægt að bæta úr því og héldu
námskeið fyrir foreldra eins árs
barna fyrir tveimur árum. „Nú
höldum við námskeið fyrir foreldra
sem eiga ungling í vændum og
næsta haust er ætlunin að halda
námskeið fyrir foreldra barna sem
eru að byrja í skóla. Stefnan er að
þetta verði ákveðið ferli. Foreldrum
gefist kostur á að sækja aukna
fræðslu og markviss námskeið þeg-
ar börnin eru tveggja ára, sex ára
og tólf ára en þetta eru aldursskeið
þar sem miklar breytingar eiga sér
stað eða eru í vændum,“ segir Mar-
grét.
Námskeiðshugmyndin hefur ver-
ið styrkt af Forvarnarsjóði og Mar-
grét segist vonast til þess að hug-
myndin verði tekin upp hjá fleiri
heilsugæslustöðvum.
Morgunblaðið/Golli
Hjúkrunarfræðingar Heilsu-
gæslunnar Árbæ. Ingunn Stein-
þórsdóttir, Guðrún Alberts-
dóttir, Hrönn Kristjánsdóttir,
Stefanía Arnardóttir, Ingibjörg
Sigmundsdóttir, Ragnheiður
Guðmundsdóttir, Guðlaug Björg-
vinsdóttir, Margrét Héðinsdóttir,
Margrét Gunnarsdóttir og
Jóhanna Eiríksdóttir.
Unglingur
í vændum
Samhentir
hjúkrunarfræðingar
í Árbæ
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111