Morgunblaðið - 02.05.2003, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MAÍ 2003 31
FÁTT virðist fara jafn mikið í taug-
arnar á talsmönnum Samfylking-
arinnar í þessari kosningabaráttu og
vangaveltur um þriggja flokka stjórn
núverandi stjórnarandstöðuflokka.
Skoðanakannanir hafa af og til bent til
þess að sú staða gæti komið upp í
kosningunum, að núverandi stjórn-
arflokkar héldu ekki þingmeirihluta
sínum og að Samfylkingin, Vinstri-
grænir og Frjálslyndi flokkurinn ættu
möguleika á að taka við völdum. Þegar
bent er á þetta í opinberum umræðum
bregðast talsmenn Samfylkingarinnar
jafnan ókvæða við og keppast við að
sverja af sér öll áform um slíkt stjórn-
armynstur. Er þetta mjög ólíkt við-
brögðum hinna stjórnarandstöðuflokk-
anna, sem báðir hafa lýst yfir áhuga á
samstarfi af því tagi.
Ekki má nefna þriggja
flokka stjórn
Umræða um þetta varð áberandi í
kjölfar umræðuþáttar leiðtoga flokk-
anna í sjónvarpinu fyrr í apríl. Þar
lýstu formenn Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks því viðhorfi, að ef
ríkisstjórnin héldi ekki þingmeirihluta
mætti búast við að stjórnarandstaðan
tæki við. Þessi ummæli urðu til þess
að aðaltalsmaður Samfylkingarinnar
kom í viðtal í sjónvarpsfréttum kvöldið
eftir og lýsti þessu sem hræðsluáróðri.
Talsmaðurinn taldi með öðrum orðum
það sérstakan hræðsluáróður, að
benda á þetta þriggja flokka stjórn-
armynstur sem eðlilega afleiðingu af
því að stjórnarandstaðan næði að fella
ríkisstjórnina! Talsmanninum láðist
hins vegar að útskýra eða geta þess
hvers vegna þetta væri hræðsluáróður,
enda er Samfylkingarfólki þvert um
geð að landsmenn rifji upp reynsluna
af þriggja flokka vinstristjórnum.
Svipað viðhorf kemur fram í grein
Jóhanns Ársælssonar, alþingismanns
Samfylkingarinnar, í Morgunblaðinu
28. apríl. Hann gengur jafnvel lengra
og ásakar formenn ríkisstjórnarflokk-
anna um hroka gagnvart kjósendum
og óvirðingu við lýðræðið þegar þeir
bentu á þetta mögulega stjórn-
armynstur ef stjórnarflokkarnir misstu
meirihluta sinn. Þessi harkalegu við-
brögð Jóhanns eru auðvitað full-
komlega órökrétt og dæma sig sjálf.
Hann kemur hins vegar upp um raun-
verulegan ótta Samfylkingarinnar þeg-
ar hann bætir við, að með ummælum
sínum séu formenn Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks að hóta stjórn-
arkreppu nái ríkisstjórnin ekki að
halda velli í kosningunum. Með þessu
er Jóhann Ársælsson raunverulega að
lýsa því stöðumati sínu, að verði
stjórnarandstöðuflokkarnir ofan á í
kosningunum 10. maí verði stjórn-
arkreppa í landinu.
Viðskilnaður vinstristjórna
hræðir
Ég verð að játa, að ég hef svipaðar
áhyggjur og Jóhann, þ.e. að hætta sé á
löngum og erfiðum stjórnarmynd-
unarviðræðum ef ríkisstjórnarflokk-
arnir missa fylgi og stjórnarandstaðan
vinnur á. Ég átti hins vegar ekki von á
því að þingmaður stærsta stjórnarand-
stöðuflokksins tæki af mér ómakið og
segði þetta berum orðum í blaðagrein.
Þessar áhyggjur okkar Jóhanns eru
hins vegar raunverulegar í ljósi sög-
unnar, enda hefur jafnan reynst sein-
legt og erfitt að koma saman þriggja
eða fjögurra flokka vinstristjórnum í
landinu. Raunar má segja að allur
valdatími þessara ríkisstjórna hafi ein-
kennst af stöðugum stjórnarmynd-
unarviðræðum með tilheyrandi samn-
ingamakki, hrossakaupum og
tilraunum til málamiðlana, sem oftar
en ekki hafa leitt til þess að ekki var
samstaða um að gera neitt sem máli
skipti við stjórn landsins eða taka á
vandamálum sem upp komu við lands-
stjórnina. Þessar ríkisstjórnir eiga það
líka sammerkt að þær hafa ávallt verið
skammlífar og skilið við stjórn efna-
hagsmála í upplausn. Auðvitað er það
vitneskjan um þann viðskilnað sem að-
altalsmaður Samfylkingarinnar vísar
til þegar hún talar um hræðsluáróður,
þótt það henti henni ekki að segja það
berum orðum.
Nú er það auðvitað svo, að stjórn-
málaflokkarnir ganga óbundnir til
kosninga og munu eins og alltaf meta
stöðuna þegar talið hefur verið upp úr
kjörkössunum og taka mið af kosn-
ingaúrslitum og málefnastöðu við
myndun nýrrar ríkisstjórnar. Það er
hins vegar ekki nema eðlilegt að vakin
sé athygli á því í aðdraganda kosninga,
að ef þeir flokkar sem nú eru í stjórn-
arandstöðu ná meirihluta þingmanna
er raunveruleg hætta á að þeir myndi
saman ríkisstjórn. Talsmenn Samfylk-
ingarinnar eru hins vegar ekki hrifnir
af því að landsmenn skoði stöðuna í
því ljósi, enda er hætt við að afar
mörgum kjósendum hrjósi hugur við
þeirri tilhugsun að standa frammi fyrir
slíkri útkomu að kosningum loknum.
Hræðsluáróður
Samfylkingarinnar
Eftir Birgi
Ármannsson „Með þessu er Jóhann Ársælsson
raunverulega að lýsa því stöðumati
sínu, að verði stjórnarandstöðuflokk-
arnir ofan á í kosningunum 10. maí
verði stjórnarkreppa í landinu.“
Höfundur er lögfræðingur og
frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavíkurkjördæmi suður.
Á UNDANFÖRNUM vikum hef ég
tvívegis mætt frambjóðendum Frjáls-
lynda flokksins í stjórnmálaumræðum
vegna komandi alþingiskosninga, en
eins og kunnugt er leggur sá flokkur
höfuðáherslu á eitt mál fyrir þessar
kosningar, fyrirkomulag fisk-
veiðistjórnunar á Íslandi, en lætur sér
önnur málefni í léttu rúmi liggja. Í
bæði skiptin hafa frambjóðendur
flokksins sem tekið hafa þátt í um-
ræðum komið mér verulega á óvart
fyrir að þekkja ekki sjávarútvegs-
stefnu flokksins sem þau eru í fram-
boði fyrir.
Opinn fundur
Í fyrra skiptið mættu ég og aðrir
fulltrúar stjórnmálaflokkanna Krist-
ínu Maríu Birgisdóttur sem skipar 6.
sætið á lista Frjálslynda flokksins í
suðurkjördæmi á framboðsfundi Hins
hússins og JC hinn 15. apríl sl. Fund-
armenn beindu fjölmörgum spurn-
ingum til fulltrúa Frjálslynda flokks-
ins um stefnu flokksins í
sjávarútvegsmálum. Frambjóðandinn
lét þeim ósvarað en vísaði ítrekað til
umfjöllunar um sjávarútvegsstefnuna
á heimasíðu flokksins og almennt til
ummæla helstu sérfræðinga flokksins
í sjávarútvegsmálum, þeirra Guðjóns
A. Kristjánssonar og Magnúsar Þórs
Hafsteinssonar, sem voru fjarstaddir
á fundinum. Jafnframt vísaði fram-
bjóðandinn spurningum fundarmanna
áfram til annarra frambjóðenda sem
þar voru staddir. Frambjóðandi
Frjálslynda flokksins þekkti greini-
lega ekki stefnu flokksins og var í
ljósi þess með öllu ófær um að túlka
hana.
Í síðara skiptið mætti ég Steinunni
Kristínu Pétursdóttur, sem skipar 3.
sæti á lista Frjálslynda flokksins í
Norðvesturkjördæmi, í Kastljóssþætti
Sjónvarpsins hinn 22. apríl sl. Í þætt-
inum sátu fyrir svörum frambjóð-
endur stjórnmálaflokkanna af yngri
kynslóðinni. Áhorfendur, þátt-
arstjórnendur og þátttakendur í um-
ræðunum komu að tómum kofunum
hjá frambjóðanda Frjálslynda flokks-
ins þegar rætt var um sjávarútvegs-
mál. Enn var vísað til umfjöllunar um
stefnu flokksins á heimasíðu hans og
ummæla sérfræðinga flokksins í sjáv-
arútvegsmálum, sem eðli málsins
samkvæmt voru ekki þátttakendur í
umræðunum. Létu stjórnendur Kast-
ljóssins þar við sitja og gengu ekki
eftir nánari útskýringum frambjóð-
andans á stefnunni.
Krafa um svör
Eins og áður segir leggur Frjáls-
lyndi flokkurinn megináherslu á eitt
mál í þessum kosningum, þ.e. stjórn
fiskveiða á Íslandi, og treystir flokk-
urinn í atkvæðaveiðum sínum fyrst og
fremst á óánægju kjósenda með nú-
verandi kvótakerfi í sjávarútvegi. Það
er því með ólíkindum að frambjóð-
endur Frjálslynda flokksins sem
koma fram í opinberum umræðum um
sjávarútvegsmál þekki hvorki haus né
sporð á stefnu eigin flokks í mála-
flokknum og vísi þess í stað aðspurð
ítrekað til almennra ummæla forystu-
manna sinna og umfjöllunar á heima-
síðu flokksins! Það er mjög mikilvægt
að fjölmiðlamenn og kjósendur láti
frambjóðendur Frjálslynda flokksins
ekki komast upp með slíka moðsuðu í
umræðum um stefnu flokksins. Það
skiptir kjósendur máli ef flokkur sem
býður fram til Alþingis í öllum kjör-
dæmum landsins á grundvelli eins
málefnis hefur aðeins á að skipa örfá-
um einstaklingum sem þekkja stefnu
flokksins í því máli.
Ummæli oddvita frjálslyndra
Nýjasta dæmið um það hversu
ósannfærandi málflutningur forystu-
manna Frjálslynda flokksins er í sjáv-
arútvegsmálum er frétt DV hinn 25.
apríl sl. Þar rifjaði blaðamaður upp
ummæli Gunnars Örlygssonar, odd-
vita flokksins í Suðvesturkjördæmi,
sem frambjóðandinn lét falla í viðtali
við Morgunblaðið 4. ágúst 1999. Þar
sagði Gunnar m.a.: „Það er pláss í
þessu kerfi, eins og öllum kerfum, fyr-
ir duglega menn og þeir munu komast
áfram. Það er það eina sem ég hugsa
um.“ Aðspurður hvort hann teldi
kvótakerfið réttlátt sagði Gunnar:
„Það má endalaust deila um það, en
ég fæ ekki salt í grautinn fyrir að
væla yfir óréttlæti.“ Athyglisvert
verður að fylgjast með hvort aðrir
frambjóðendur Frjálslynda flokksins
muni fram að kosningum vísa til þess-
ara ummæla Gunnars Örlygssonar.
Að þekkja ekki eigin stefnu
Eftir Sigurð Kára
Kristjánsson
„Það skiptir kjósendur máli ef flokkur sem
býður fram til Alþingis í öllum kjördæmum
landsins á grundvelli eins málefnis hefur að-
eins á að skipa örfáum einstaklingum sem
þekkja stefnu flokksins í því máli.“
Höfundur skipar 4. sæti á lista Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður.
ma hafa bætur almannatrygg-
50% minna en almenn laun
smörk engan veginn fylgt
ðlagsþróun. Skattleysismörk
um 100 þús. kr. en ekki 70
u hefðu fylgt verðþróun.
verið gengið á hlut okkar
ðra og systra. Fátækt er orð-
g, yfir 20 þúsund manns býr
eir sem hafa yfir 70 þús. kr. á
a að greiða um 40% skatt af
am er á sama tíma og eigna-
m nefndir eru hér að ofan
m ekkert af milljörðum sín-
urnar eru rangar, það er vit-
öggjafinn og ríkisstjórn hafa
ng forgangsröðun
íða eftir þjónustu á sjúkra-
ruð aldraðra eftir hjúkr-
klingar liggja á göngum,
æðingar við heimahjúkrun
segja upp vegna deilna um samninga sem
hafa verið mörg ár í gildi, Skógarbær legg-
ur af iðjuþjálfun fyrir gamla fólkið vegna
fjárskorts, fíkniefnalögreglan getur ekki
unnið yfirvinnu vegna fjárskorts o.s.frv.
Á sama tíma ráðumst við í jarð-
gangagerð norður í landi fyrir 8 þúsund
milljónir og verðum að gera þau á sama
tíma og jarðgöng eru gerð fyrir austan
fyrir 3–4 milljarða. Við erum að sendiráða-
væða heiminn, á fáeinum árum sendiráð í
Japan, Helsinki, Vín, Mósambik og Kan-
ada og reisum stórbyggingar í Berlín eins
og þjóð sem veit ekkert hvað hún á að gera
við peningana. Vegabréfavarsla fyrir Evr-
ópubandalagið fyrir þúsundir milljóna.
Þannig mætti lengi telja.
Firring
Þeir menn sem þannig vinna eru komnir
úr tengslum við þjóðina, þarfir hennar og
líf.
Nýtt afl vill breyta þessu. Við segjum:
Burt með fátækt. Nýtt afl er að fást við
grundvallarbreytingar á þjóðfélaginu en
flestir aðrir stjórnmálaflokkar eru að fást
við lítilsháttar lagfæringar, fáein % í
skattabreytingum, nokkrum þúsundum
tonna meiri þorskveiði o.s.frv. Vandinn
liggur dýpra. Hér þarf hugarfarsbreyt-
ingu, breyttar áherslur. Rödd Nýs afls
þarf að heyrast í þjóðfélaginu, þjóðfélagi
þar sem markaðurinn segir: Ég er drott-
inn guð þinn, þú skalt ekki aðra guði hafa
og viðhorfið verður í vaxandi mæli: Ef ég
hef gert á hluta þinn, þá er það ekki mér
að kenna. Það er þér að kenna, þú gættir
þín ekki. Opnið augun, er þetta ekki rétt
sem við erum að segja?
Ef við eigum samleið, þá munið x-N á
kjördag.
ersl-
ndvall-
u en
kar eru
ær-
Höfundur er formaður Nýs afls.
gagngerar endurbætur á
nu.
áætlun Samfylkingarinnar
hennar stjórn verður 12 nýj-
m bætt við fjárveitingar til
á næsta kjörtímabili. Þar af
g til framhaldsskólastigsins
milljarða að raungildi. Af þeim
milljarður sérstaklega eyrna-
og verknámi, en verknámið
ga setið á hakanum í tíð Sjálf-
ns. Við munum jafnframt
ngar til háskólastigsins um 4
örtímabilinu, og þar af verða
nnsókna og kennslu sér-
n um 3 milljarða. Í þeirri
num við ekki gleyma ungum,
rfandi fræðimönnum, og mun-
m möguleika á fjármagni til
sóknum sínum.
gin mun beita sér fyrir alhliða
menntakerfinu. Eitt, sem sér-
að ráðast í, er framleiðsla á
malegra námsefni. Það er ein
íslensk skólabörn standa
s jafnöldrum sínum í þeim
grannlöndum, þar sem menntakerfið er
best. Hluti af umbótum Samfylkingarinnar
verður að lækka útskriftaraldur í fram-
haldsskólum um eitt ár á næsta kjör-
tímabili. Sömuleiðis er það hluti af stefnu
okkar að síðasta ár leikskólans verði gjald-
frjálst með sama hætti og fyrstu ár grunn-
skólans.
Snar þáttur af markvissri menntasókn
Samfylkingarinnar er að byggja upp
menntun á landsbyggðinni. Á næsta kjör-
tímabili stefnum við að því að stofna eins til
tveggja ára framhaldsskólabrautir í byggð-
um landsins. Það mun skipta miklu máli
fyrir líf og þrótt byggðanna að hafa ung-
lingana sína lengur heima, og dregur úr lík-
um á því að foreldrarnir þurfi að fylgja
þeim ef þeir halda til frekara náms utan
heimabæjar.
Raunhæf markmið
Markmið Samfylkingarinnar er tvíþætt:
Í fyrsta lagi að fjölga um 25% þeim sem út-
skrifast með framhaldsskólapróf úr hverj-
um árgangi, og í öðru lagi að fjölga þeim
sem útskrifast með háskólapróf úr hverj-
um árgangi sömuleiðis um 25%. Menntun
er lykill að bættum lífskjörum. Þeir, sem
hafa betri menntun, fá hærri laun. Aukið
framlag til menntamála eykur framleiðni í
hagkerfinu og landsframleiðslu. Reynslan
hefur leitt í ljós, að þær þjóðir, sem verja
meiru í menntamál, þær hafa hærri lands-
framleiðslu.
Þessar aðgerðir Samfylkingarinnar
munu að lokum leiða til 3–6% aukningar í
landsframleiðslu. Á næstu átta árum má
búast við því að vöxturinn nemi tæplega
1%, eða næstum því jafn miklum var-
anlegum hagvexti og við munum njóta af
álveri við Reyðarfjörð og virkjun við Kára-
hnjúka. Hugvitið er mesta auðlindin. Fjár-
festing í því er ávísun á velsæld í framtíð-
inni.
rk-
ram, að áætlun
aðarfyllsta og
kkur íslenskur
t fram um gagn-
kerfinu.“
Höfundur er formaður Samfylkingarinnar.
enni með því að lægstu laun
ð verulega og sköttum létt
viljum reisa velferðarkerfið
braut einkavinavæðingar og
í að Íslendingar eigi besta
fi í heimi, í öllum skilningi.
gasta skrefið í þá átt, fyrir
étta launamun kynjanna, er
r leikskólagjöldin. Leikskól-
skólastigið og á vitaskuld
dfrjáls eins og grunnskól-
jálfsagður réttur hvers
ta leikskólamenntunar en
að ræða gríðarlega kjara-
mur um 300.000 krónum á
rt barn í leikskóla.
m klámvæðingunni stríð á
ndanbragða og viljum gera
kaup á vændi refsiverð. Kvenfrelsi er
ekki bara einn af hornsteinum stefnu
Vinstrihreyfingarinnar – græns fram-
boðs, heldur er kvenfrelsi haft að leið-
arljósi í öllum málaflokkum. Kvenfrels-
ismál eru ekki mál sem eru tekin upp
skömmu fyrir kosningar í flennistórum
auglýsingum til að veiða atkvæði. Kven-
frelsi er samtvinnað allri pólitík og líf-
inu sjálfu. Aðlögunartíminn er löngu lið-
inn og nóg komið af könnunum,
skýrslum og nefndarálitum. Við erum
tilbúin að taka til höndunum og útrýma
mismunun. Það er spurning um rétt-
læti.
nfrelsi og réttlæti
Höfundur skipar 1. sæti U-listans í
Suðvesturkjördæmi.