Morgunblaðið - 02.05.2003, Page 41
ALDARMINNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MAÍ 2003 41
FÉLAGSSTARF
Garðbæingar
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisfélags
Garðabæjar er opin:
virka daga frá kl. 17—20
laugardaga frá kl. 10—14
sunnudaga frá kl. 14—17
Laugardaginn 3. maí munu eftir-
farandi frambjóðendur verða á
staðnum:
Davíð Oddsson kl. 11
Geir H. Haarde kl. 13
Fara þeir á bláa „Kassann“?
Kaffi og meðlæti.
VERUM BLÁTT - ÁFRAM
Stjórn Sjálfstæðisfélags Garðabæjar.
Konukvöld
Konukvöld verður föstudaginn 2. maí
nk. kl. 20 í kosningamiðstöð sjálfstæð-
ismanna í Glæsibæ.
Það verður ýmislegt skemmtilegt á dagskrá m.a.
Skemmtilegar kynningar
Tískusýning
Happdrætti
Lárusardætur mæta með trompetana
Frambjóðendur verða á staðnum
Léttar veitingar í boði
Komdu og njóttu kvöldsins með okkur og
taktu vinkonurnar með.
Strákarnir á skrifstofunni sjá um veitingarnar.
Kíktu í Glæsibæ
RAÐAUGLÝSINGAR
fastur á Hofi, organisti er Kristján
Davíðsson og formaður sóknar-
nefndar, Ólafur Valgeirsson.
Kirkjudagur
Kálfatjarnarkirkju
HINN árlegi kirkjudagur Kálfa-
tjarnarkirkju verður sunnudaginn
4. maí. Þá verður þess minnst á
ýmsan hátt að 110 ár eru frá vígslu
kirkjunnar en hún var vígð 11. júní
1893.
Kirkjudagurinn byrjar með
messu í Kálfatjarnarkirkju klukkan
14:00. Sérstakir boðsgestir eru þau
sem eiga 50 ára fermingarafmæli
frá kirkjunni í ár auk formanna
sóknarnefnda á suðurnesjum og
Garðaprestakalls og Ástjarnar-
sóknar.
Ræðumaður dagsins verður
Kristín Á. Ólafsdóttir söng- og leik-
kona, sr. Carlos A. Ferrer sóknar-
prestur þjónar fyrir altari, kirkju-
kórinn ásamt einleikara og ein-
söngvurum syngur undir stjórn
Frank Herlufsen.
Að lokinni athöfn í kirkjunni
verður kvenfélagið Fjóla með kaffi-
sölu í Glaðheimum, félagsheimilinu
í Vogum og rennur allur ágóði af
henni í kirkjusjóð félagsins.
Vorhátíð
Landakirkju
VORHÁTÍÐ barnastarfsins
verður í Landakirkju 4.
maí kl. 13:00. Byrjað verð-
ur á helgistund í kirkjunni
þar sem Litlir lærisveinar
munu syngja ásamt Skóla-
kór Kársness sem kemur í
heimsókn. Prestur og
barnafræðarar leiða stund-
ina. Stjórnendur kóranna
eru þau Sigurlína Guðjóns-
dóttir og Þórunn Björns-
dóttir. Undirleikari er Mar-
teinn H. Friðriksson.
Eftir helgistundina verð-
ur vorgleði á kirkjulóðinni
þar sem grillaðar verða
pylsur, farið í leiki, reipitog og
margt fleira. Leiðtogar í kirkju-
starfinu halda utan um leiki og
sprell.
Kirkjuprakkarar, krakkar úr
TTT starfi kirkjunnar, æskulýðs-
félögin, krakkar úr sunnudagaskól-
anum, foreldrar, ömmu og afar,
frænkur og frændur, eru velkomn-
ir.
Sól í heiði og sól í hjarta. Nú
fögnum við sumri og höldum upp-
skeruhátíð eftir kröftugt barna- og
unglingastarf í vetur.
Landakirkja.
Barnamessuferð
til Grindavíkur
LAGT verður af stað frá Grafar-
vogskirkju laugardaginn 3. maí. kl.
10:00. Barnamessa verður í Grinda-
víkurkirkju þar sem sóknarprest-
urinn séra Jóna Kristín Þorvalds-
dóttir mun ávarpa. Krakkakór
Grafarvogskirkju syngur nokkur
lög, stjórnandi Oddný J. Þorsteins-
dóttir.
Borðið verður upp á grillaðar
pylsur og gos.
Komið verður til baka kl. 14:00.
Allir velkomnir.
Prestar Grafarvogskirkju.
Vopnafjarðarkirkja
Kirkjustarf
Dr. med. Sigurður
Gísli Sigurðsson berkla-
yfirlæknir og landlækn-
ir fæddist 2. maí 1903,
hann lést 5. apríl 1986.
Í dag, 2. maí, eru liðin
100 ár frá fæðingu Sig-
urðar Sigurðssonar
berklayfirlæknis og
landlæknis. Með grein-
arstúf þessum vil ég
heiðra minningu hans
og rekja að nokkru far-
sælan starfsferil hans í
þágu íslenskra heil-
brigðismála.
Sigurður fæddist að
Húnsstöðum á Ásum í Austur-Húna-
vatnssýslu. Foreldrar hans voru hjón-
in Sigurbjörg Gísladóttir og Sigurður
Jóhann Sigurðsson. Ólst Sigurður
upp hjá foreldrum sínum þar til faðir
hans lést er Sigurður var 7 ára gam-
all. Sigurbjörg giftist síðar Jóni Bene-
diktssyni og ólst Sigurður upp hjá
þeim á Húnsstöðum uns við tók skóla-
ganga utan héraðs.
Leiðin lá fyrst í Gagnfræðaskólann
á Akureyri og lauk hann þar gagn-
fræðaprófi vorið 1920. Á Akureyri
kynntist hann verðandi lífsförunaut
sínum, Ragnheiði Bryndísi Ásgeirs-
dóttur, en hún var dóttir hjónanna
Guðrúnar Maríu Halldórsdóttur og
Ásgeirs Péturssonar útgerðarmanns.
Sigurður varð stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík árið 1923 og hóf
þá nám í læknadeild Háskóla Íslands.
Lauk hann þaðan embættisprófi sum-
arið 1929 og fór fljótlega utan til
framhaldsnáms í Danmörku þar sem
hann tók danskt læknapróf. Síðar
nam hann í Þýskalandi á styrk frá
stofnun Alexanders von Humboldt.
Lagði hann stund á lyflækningar með
megináherslu á lungna- og hjarta-
lækningar.
Þegar Sigurður kom heim til Ís-
lands í ársbyrjun 1934 hóf hann störf
á lyflækningadeild
Landspítalans og opn-
aði jafnframt lækninga-
stofu í Reykjavík.
Í apríl 1935 tók Sig-
urður við nýstofnuðu
embætti berklayfir-
læknis og gegndi því
starfi í 38 ár. Sennilega
eru störf hans sem
berklayfirlæknis kunn-
ust þjóðinni. Um þær
mundir sem hann tók
við embætti hafði
berklaveikin um skeið
verið helsta dánarorsök
Íslendinga. Þeirri bar-
áttu sem Sigurður og vaskir sam-
starfsmenn hans háðu við þennan vá-
gest lauk með nær fullum sigri.
Dauðsföll af völdum berkla höfðu
náð hámarki árið 1925 og voru þá 217
miðað við 100.000 íbúa. Árið 1935 voru
dauðsföll af völdum berkla 129, en á
árunum 1961-1970 voru þau 1-3 ár-
lega allt miðað við 100.000 íbúa.
Baráttan var margþætt. Megin-
áhersla var lögð á að leita uppi berkla-
smitaða einstaklinga og koma þeim til
meðferðar á berklasjúkrahúsum
landsins sem veittu bestu meðferð er
þá þekktist. Með þessu var jafnframt
komist fyrir smituppsprettur. Komið
var upp berklavarnastöðvum í helstu
kaupstöðum landsins. Þá voru gerðar
stórar hópskoðanir víða um land. Árið
1945 voru t.d. yfir 99% íbúa Reykja-
víkur rannsakaðir í leit að berkla-
smiti.
Í leitinni að berklasmituðum víðs-
vegar um landið var Sigurður í far-
arbroddi. Hann og samverkamenn
hans lögðu á sig mikil og erfið ferða-
lög á hvers kyns farartækjum með
röntgentæki sín og skoðuðu oft fólk
við hin frumstæðustu skilyrði. Geta
má nærri hve erfitt það var að þurfa
að rífa sýkt fólk úr faðmi fjölskyld-
unnar, en slíkt var þó forsenda þess
að leitarstarfið bæri árangur. Sigurð-
ur bar einnig mjög fyrir brjósti end-
urhæfingu þeirra sem læknuðust af
berklum. Hann studdi dyggilega við
bakið á SÍBS við að reisa vinnuheim-
ilið að Reykjalundi sem tekið var í
notkun nokkrum vikum fyrir Reykja-
víkurskoðunina miklu 1945. Sigurður
var gerður að heiðursfélaga SÍBS ár-
ið 1956.
Smám saman léttist baráttan.
Berklasmituðum fækkaði vegna hinn-
ar víðtæku leitar en jafnframt fóru
lífskjör og aðbúnaður landsmanna
batnandi og þar með almennt heil-
brigði. Með tilkomu áhrifamikilla
berklalyfja á 5. og 6. áratugnum varð
unnt að veita flestum heilsu á ný sem
ella hefðu orðið hinum hvíta dauða að
bráð.
Doktorsritgerð Sigurðar, Tubercu-
losis in Iceland – Epidemological Stu-
dies, var gefin út á kostnað Banda-
ríkjastjórnar 1950. Hún lýsir ítarlega
sögu berklaveiki á Íslandi og þeirri
baráttu sem Sigurður leiddi. Mun hún
víða um heim hafa verið notuð sem
kennslubók í faraldsfræði berkla. Að
sögn Ólafs Ólafssonar fv. landlæknis
urðu aðferðir við berklaleitina löngu
síðar fyrirmynd hóprannsókna á
krabbameini og hjarta- og æðasjúk-
dómum hér á landi.
Þótt glæstum árangri væri náð var-
aði Sigurður menn ætíð við að sofna á
verðinum. Hann benti m.a. oft á hve
bættar samgöngur ykju hættuna á að
smitsjúkdómar bærust milli landa og
hann hefur reynst sannspár.
Árið 1960 var Sigurður skipaður
landlæknir og gegndi því starfi til
1972 er hann lét af því embætti sakir
aldurs. Þótt hér verði ekki reynt að
rekja feril hans í því erilsama og
ábyrgðarmikla starfi má þó nefna
fjölda lagabreytinga sem hann tók
ríkan þátt í að semja og má þar sér-
staklega nefna ný lyfsölulög. Hann
lagði áherslu á þróun heilsugæslu og í
hans tíð var fyrsta heilsugæslustöðin
tekin í notkun á landsbyggðinni. Þá
var Sigurður formaður stjórnar-
nefndar Ríkisspítalanna og formaður
byggingarnefndar Landspítalans
meðan hann var landlæknir. Hann
var aðalfulltrúi Íslands á aðalþingum
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinn-
ar alla sína landlæknistíð, þar af tvö
ár í framkvæmdaráði stofnunarinnar.
Benedikt Tómasson læknir var
helsti samstarfsmaður Sigurðar öll
þau ár sem hann var landlæknir. Í
minningargrein gefur hann Sigurði
þennan vitnisburð: „Sigurður Sig-
urðsson var allra manna samvisku-
samastur, allra manna vandaðastur,
allra manna sanngjarnastur, maður
vammi firrtur.“ Of langt yrði upp að
telja öll þau félags- og trúnaðarstörf
sem Sigurður gegndi um dagana en
nokkurra skal þó getið.
Hann var í stjórn Rauða kross Ís-
lands 1935-1951 og formaður 1942-
1947. Var það býsna erilsamt starf á
stríðsárunum enda var hann samtím-
is formaður loftvarnanefndar og
krafðist það mikilla samskipta við það
herlið sem hér var á þeim árum.
Sigurður var ráðunautur heilbrigð-
isstjórnar Bandaríkjanna um berkla-
varnamál um árabil og veitti Alþjóða-
heilbrigðisstofnuninni ráðgjöf um
sömu mál.
Sigurður var einlægur sjálfstæðis-
maður og sat í bæjarstjórn Reykja-
víkur 1946-1958 og sem varabæjar-
fulltrúi til 1962. Vel var þar af honum
látið, ekki síður af pólitískum and-
stæðingum en samherjum. Hann lét
að sjálfsögðu heilbrigðismál borgar-
innar mjög til sín taka, var í forystu
um byggingu Heilsuverndarstöðvar-
innar við Barónsstíg og formaður
byggingarnefndar Borgarsjúkra-
hússins í Fossvogi.
Sigurður var einn af aðalhvata-
mönnum að myndun Þjóðskrár og sat
í stjórn hennar og Skýrsluvéla ríkis-
ins og Reykjavíkurborgar um 10 ára
skeið.
Þannig mætti lengi telja og er
starfsþrek þessa manns oft undrun-
arefni. Undirritaður getur þó borið
um að Sigurður Sigurðsson vann afar
skipulega og af kostgæfni og aldrei
kastaði hann höndunum til afgreiðslu
nokkurs máls.
Þau Sigurður og Bryndís gengu í
hjónaband í Danmörku 1932 meðan
bæði voru við nám ytra. Þau eignuð-
ust þrjár dætur: 1) Sigrún Erla kenn-
ari sem gift er Páli Ásmundssyni
lækni. Börn þeirra eru Áslaug Heiða
læknir, gift Gunnari Brynjólfi Gunn-
arssyni lækni, Bryndís fiðluleikari
sem gift er Jóhanni G. Jóhannssyni
tónlistarstjóra og Sigurður málfræð-
ingur og kerfisfræðingur, í sambúð
með Írisi Hrönn Guðjónsdóttur flug-
manni. 2) Svanhildur Ása kennari
sem gift er Birni Björnssyni guð-
fræðiprófessor. Börn þeirra eru Sig-
urður fulltrúi, kvæntur Kristínu Mar-
gréti Bjarnadóttur bankastarfsmanni
og Ingibjörg Elsa umhverfisfræðing-
ur. 3) Guðrún menntaskólakennari
sem giftist Birni Jónassyni rafvirkja.
Þau skildu. Börn þeirra eru Jónas
Páll viðskiptafræðingur, í sambúð
með Soumiu Islami háskólanema og
Bryndís viðskiptafræðinemi.
Barnabarnabörn Sigurðar og
Bryndísar eru sjö. Bryndís Ásgeirs-
dóttir lést 3. júlí 1980. Sigurður var
einkar farsæll í einkalífi sínu. Þrátt
fyrir öll skyldustörfin gaf hann sér þó
ætíð tíma til að sinna fjölskyldu sinni
og vinum af alúð og ástríki. Þau hjón
áttu marga og trygga vini og var oft
glatt á hjalla á heimili þeirra því þau
voru bæði afar gestrisin. Þau unnu
fögrum listum, ekki síst myndlist og
tónlist. Bryndís var afbragðs píanó-
leikari og Sigurður tók virkan þátt í
að hlúa að tónlistarlífi í Reykjavík.
Var hann m.a. um langt skeið í stjórn
Tónlistarskólans í Reykjavík. Hann
var einstakur fjölskyldufaðir og verð-
ur undirrituðum æ í minni hvernig
hann tók kærasta dóttur sinnar, þá
nýlega foreldralausan, undir sinn
verndarvæng og reyndist honum sem
faðir.
Þessi fátæklegu orð gera lífshlaupi
Sigurðar Sigurðssonar engan veginn
tæmandi skil enda til þess rituð að
minnast hans á merkisafmæli. Það er
von mín að saga hans verði færð ít-
arlega í letur síðar. Hann sómir sér
prýðilega meðal þeirra sem helgað
hafa líf sitt framförum og heill þjóðar
sinnar og skilað góðu dagsverki.
Blessuð verður jafnan minning
góðs manns.
Páll Ásmundsson.
SIGURÐUR
SIGURÐSSON
Hallgrímskirkja: Eldriborgarastarf í dag kl.
13. Leikfimi, æfingar við allra hæfi, undir
stjórn Jóhönnu Sigríðar. Súpa, kaffi og
spjall. Allir velkomnir.
Laugarneskirkja: Mömmumorgunn kl. 10.
Kaffispjall fyrir mæður. Góð upplifun fyrir
börn. Sönghópurinn Sólarmegin leggur í
hann kl. 10.30 alla miðvikudaga og föstu-
daga næstu vikur. (Sjá síðu 650 í Texta-
varpi.)
Breiðholtskirkja. Mömmumorgnar kl. 10–
12. Kaffi og spjall.
Lindakirkja í Kópavogi. Kl. 15 LLL –
KFUM&K í safnaðarheimilinu, Uppsölum 3.
Boðunarkirkjan, Hlíðasmára 9. Samkomur
alla laugardaga kl. 11. Bænastund alla
þriðjudaga kl. 20. Biblíufræðsla allan sólar-
hringinn á Útvarpi Boðun FM 105,5. Allir
alltaf velkomnir.
Fríkirkjan Kefas. Í dag er 11–13 ára starf
kl. 19.30. Allir 11–13 ára eru hjartanlega
velkomnir.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 13 Litl-
ir lærisveinar, æfing hjá báðum hópum.
Sigurlína Guðjónsdóttir kórstjóri. Síðasta
æfing fyrir vorhátíð
Hvítasunnukirkjan á Akureyri. Unglinga-
samkoma kl. 21.
Hjálpræðisherinn á Akureyri. Flóamarkað-
ur frá kl. 10–18 í dag.
Kirkja sjöunda dags aðventista.
Samkomur laugardag:
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti 19. Biblíu-
fræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11.
Ræðumaður Maxwell Ditta.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnarfirði.
Biblíufræðsla/guðsþjónusta kl. 11. Ræðu-
maður Brynjar Ólafsson. Biblíurannsókn og
bænastund á fimmtudögum kl. 20.
Safnaðarheimili aðventista, Blikabraut 2,
Keflavík: Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðs-
þjónusta kl. 11. Ræðumaður: Brynjar
Ólafsson. Biblíurannsókn og bænastund á
föstudögum kl. 20.
Safnaðarheimili aðventista, Gagnheiði
40, Selfossi. Biblíufræðsla kl. 10. Guðs-
þjónusta kl. 11. Ræðumaður Eric Guð-
mundsson.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vestmanna-
eyjum. Biblíufræðsla kl. 10.30. Biblíurann-
sókn og bænastund á sunnudögum kl. 14.
HRÍSEYJARKIRKJA: Messa og ferming
verður laugardaginn 3. maí kl. 11.
Fermdar verða:
Elísabet Bjarnadóttir,
Miðbraut 4a,
Maj-Britt Kolbrún Snorradóttir,
Norðurvegi 1 og
Unnur Inga Kristinsdóttir,
Austurvegi 8.
Safnaðarstarf