Morgunblaðið - 02.05.2003, Page 44
44 FÖSTUDAGUR 2. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
FYRIR skömmu hélt Svæðisráð
Bindindissamtakanna IOGT í
Reykjavík opinn fund í Iðnó, Gúttó-
fund eins og það
var orðað í aug-
lýsingu .
Þar gjörði for-
maður Bindindis-
samtakanna á Ís-
landi, Gunnar
Þorláksson,
glögga grein fyrir
þeim breytingum
sem urðu þegar
regluforminu var
breytt yfir í félagsform, þó þannig að
enn geta stúkur starfað innan hreyf-
ingarinnar með sínum sérstöku sið-
um. Hann minnti á þá staðreynd að
stafróf fíkniefnanna byrjaði á Á, þ.e.
á áfengisneyzlu, svo sem vandaðar
rannsóknir í Bandaríkjunum sýna og
sanna. Þar koma fram þær athygl-
isverðu staðreyndir að í 97 % tilvika
hefur undanfari annarrar fíkni-efna-
neyzlu verið neyzla áfengis.
Tveir valinkunnir bindindismenn
fluttu þarna afar umhugsunarverð
ávörp og aðeins vikið hér að nokkr-
um punktum úr ræðum þeirra, en
þetta eru þeir Grétar Þorsteinsson
forseti ASÍ og Sveinn H. Skúlason
forstjóri Hrafnistu.
Grétar fór yfir á starfsvettvang
sinn og sagði: „Ég held að það sé
ekki ofsagt og ekki á neinn hallað, þó
ég haldi því fram að margir þeir sem
gengu fram fyrir skjöldu og beittu
sér fyrir stofnun verkalýðsfélaga
hafi fengið félagslegt uppeldi og
reynslu af félagsstörfum í bindind-
ishreyfingunni“. Grétar fagnaði
þeirri breytingu hreyfingarinnar
sem Gunnar rakti og sagði: „Fé-
lagsskapur sem vill ná til fjöldans
þarf að laga sig að breyttum aðstæð-
um í þjóðfélaginu“ og sagði svo: „Ég
vona svo sannarlega að það verði ný
vakning samhliða og í kjölfarið því
það veitir ekki af. Við horfum svo að
segja daglega upp á margskyns
heilsutjón og harmleiki sem beint má
rekja til áfengisneyslu. Þó er ótalið
það sem við sjáum ekki“. Grétar
sagði m.a. einnig: „Þó svo áfengi setji
alltof mikinn svip á íslenskt þjóð-
félag og því fylgi margvíslegur vandi,
hættur og fjölskylduharmleikir, þá
hefur víndrykkja ekki verið mikið
vandamál á íslenskum vinnustöðum
eins og víða þekkist erlendis. Það
þarf þó að vera vel á verði í því sam-
bandi. Ég vil sérstaklega benda á
hættuna sem skapaðist ef farið væri
að selja áfengi í matvöruverslunum“.
Sveinn H. Skúlason vék að þjóð-
félagsmyndinni fyrr og nú í sam-
bandi við starfsvettvang sinn og
sagði m.a. um þjóðfélagið áður: „Að
sjálfsögðu var þetta ekki gallalaust
þjóðfélag, því fer fjarri, en ég held að
einstaklingurinn og það sem hann
hafði fram að færa hafi verið í meiri
metum í þá gömlu góðu daga. Sam-
hjálpin innan fjölskyldna og meðal
vina var sterkari en í dag, einstak-
lingurinn týndist síður. Ef talað er
um hvaða vandamál hafi verið
stærst, þá tengdust þau áfenginu.“
Einnig sagði Sveinn: „Það sem er
farsælast hverjum og einum er að
velja sér heilbrigt líferni þar sem
jafnlyndi og hófsemi ræður ríkjum
og ekki er verra ef bindindi er með í
för,“ og segir svo: „Við eigum að
sameinast í því að byggja upp nýja
hugsun með þjóðinni. Endurvekja
fornu gildin um nægjusemi, hófsemi
og reglusemi í lifnaðarháttum.“
Og svo víkur Sveinn að sjálfum
sér: „Þegar maður á mínum aldri lít-
ur til baka og veltir fyrir sér hvað
það hafi verið sem hafi haft mestu
áhrif á þann farveg sem lífið féll í, er
svar mitt einfalt. Það er að mínu mati
sú meðvitaða eða ómeðvitaða
ákvörðun mín að neyta ekki áfengis.“
Lokaorð Sveins voru: „Bindindis-
hreyfingin hefur svo sannanlega enn
verk að vinna. Það er einlæg ósk mín
að aftur takist að endurvekja þann
kraft sem áður var til staðar hjá
hreyfingunni, landi og þjóð til
heilla.“
Og lokaorð Grétars voru: „Tæki-
færin eru til staðar. Þess vegna er yf-
irskrift þessa fundar – Breyttar
áherslur – betra líf – vel til fundin.
Ef hún er látin vísa veginn í starf-
inu í framtíðinni – þá er ég sann-
færður um að árangurinn lætur ekki
á sér standa.“
Formaður svæðisráðsins, Einar
Hannesson, þakkaði þeim félögum
orð þeirra í tíma töluð og höfundi
þessarar samantektar þótti rétt að
koma þessum orðum þeirra á fram-
færi við fleiri en þarna voru, svo þörf
sem þau eru.
HELGI SELJAN,
form. fjölmiðlanefndar IOGT.
Breyttar áherzlur
– Betra líf
Frá Helga Seljan:
Helgi Seljan
Mörkinni 3, sími 588 0640.
Opið mán-fös kl.11-18 - lau kl. 11-15
Brúðkaupsgjafir
Br
úð
ar
gj
af
al
is
ta
r
Bómullar-satín
og
silki-damask
rúmföt
Skólavörðustíg 21,
sími 551 4050
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111