Morgunblaðið - 02.05.2003, Síða 46
DAGBÓK
46 FÖSTUDAGUR 2. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Osnabruck og Mána-
foss fara í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Bingó
í dag kl. 14.
Árskógar 4. Kl. 13-
16.30 opin smíða- og
handavinnustofan.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8-16 hárgreiðsla, kl.
8.30-12.30 bað, kl. 9-
16 handavinna, kl. 9-
17 fótaaðgerð, kl. 13-
16 spilað í sal. Bingó,
söngur og ljóðalestur
kl. 13.30.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18-20. Kl. 9 bað,
og opin handa-
vinnustofa.
Félagsstarfið Dal-
braut 27. Kl. 8-16 opin
handavinnustofan, kl.
9-12 applikering, kl.
10-13 opin verslunin.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9-12
bað, kl. 9-16.30 opin
vinnustofa, myndlist,
gifs o.fl., kl. 9.30
gönguhópurinn Gönu-
hlaup leggur af stað,
kaffi á eftir göngunni.
Kl. 14.30 Ragnar Páll
og Hjördís Geirs
skemmta.
Korpúlfar Graf-
arvogi, samtök eldri
borgara.Vatnsleikfimi
er í Grafarvogslaug á
föstudögum kl. 14.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8. bað, kl.
10 hárgreiðsla, kl. 10-
12 verslunin opin, kl.
11 leikfimi, kl. 13 „op-
ið hús“ spilað á spil.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraun-
seli, Flatahrauni 3.
Tréútskurður og brids
kl. 13, biljard 13:30.
Gjábakki, Fannborg
8. Kl. 9.30 málm- og
silfursmíði, kl. 9.15
vefnaður, kl. 13 bók-
band.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 gler-
listahópur, kl. 10
ganga.
Hraunbær 105. Kl. 9
bað, handavinna, út-
skurður, fótaaðgerð
og hárgreiðsla, kl. 11
spurt og spjallað.
Bingó. Sunnudaginn
4. maí og mánudaginn
5. maí verður hand-
verkssýning. Margir
fallegir munir. Sýn-
ingin er opin sunnu-
dag frá kl. 13-17 og
mánudag frá kl. 9-17.
Kaffiveitingar. Allir
velkomnir.
Vesturgata 7. Kl. 9-16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15-14.30
handavinna, kl. 10-11
kántrý dans, kl. 11-12
stepp, kl. 13.30-14.30
Sungið við flygilinn,
kl. 14.30-16 dansað í
aðalsal.
Norðurbrún 1. Kl. 9-
13 tréskurður, kl. 9-
17, hárgreiðsla, kl. 10-
11 boccia.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hár-
greiðsla og myndlist,
kl. 9.30 bókband og
morgunstund, kl. leik-
fimi og 10 fótaðgerð,
kl. 12. 30 leirmótun,
kl. 13.30 páskabingó.
Bridsdeild FEBK
Gjábakka. Brids kl.
13.15 í dag.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað
frá Gjábakka, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13, kl. 10 á laug-
ardögum.
Skaftfellingafélagið í
Reykjavík. Árlegt
kaffiboð aldraðra
Skaftfellinga verður
haldið í Skaftfell-
ingabúð, Laugavegi
178, sunnudaginn 4.
maí kl. 14. Dagskrá
verður með hefð-
bundnum hætti. Söng-
félagið syngur nokkur
lög og stiginn verður
dans við harmonikku-
leik. Aðgangur ókeyp-
is.
Talsímaverðir, há-
degisverðafundur
verður á Loftleiðum í
hádeginu laugardag-
inn 3. maí.
Félag einhleypra.
Fundur á morgun kl.
21 í Konnakoti Hverf-
isgötu 105, Nýir fé-
lagar velkomnir.
Munið gönguna mánu-
og fimmtudaga.
Ungt fólk með ung-
ana sína. Hitt húsið
býður ungum for-
eldrum með börnin
sín á fimmtud. kl.13-
15 á Loftinu í Hinu
húsinu, Pósthússtræti
3-5. Opið hús og kaffi
á könnunni, djús, leik-
föng og dýnur fyrir
börnin.
Félag Snæfellinga og
Hnappdæla. Fjöl-
skyldudagur félagsins
verður í Fella- og
Hólakirkju, sunnu-
daginn 4. maí kl. 15.
Svala S. Thomsen
flytur hugvekju og
Snæfellingakórinn
syngur nokkur lög. Á
eftir verður gestum
boðið kaffi og meðlæti
í safnaðarheimili
kirkjunnar. Aðal-
fundur félagsins verð-
ur í Safnaðarheimili
Fella- og Hólakirkju,
Hólabergi 88, þriðju-
daginn 6. maí kl. 20.
Minningarkort
FAAS, Félag aðstand-
enda alzheimer-
sjúklinga. Minning-
arkort eru afgreidd
alla daga í s. 533-1088
eða í bréfs. 533-1086.
Í dag er föstudagur 2. maí, 122.
dagur ársins 2003. Orð dagsins:
Þolgæðis hafið þér þörf, til þess
að þér gjörið Guðs vilja og öðlist
fyrirheitið.
(Hebr. 10, 36.)
Eyjólfur Eyvindarson,öðru nafni Sesar A,
talar frá Spáni í nýju
blaði ungra vinstri
grænna, sem dreift hefur
verið í hús. Eyjólfur er
harður vinstrimaður og
liggur ekki á skoðunum
sínum, frekar en aðrir í
stjórnmálaflokknum.
Hann skipar 19. sæti á
lista Vinstri – grænna í
Reykjavík suður.
Eyjólfur segir meðalannars: „Málið er það
að forgangsröð hægri-
stefnunnar er ekki fjöld-
anum í hag. Í samkeppni
markaðssamfélagsins
verður alltaf einhver
undir, það græðir enginn
nema annar tapi.“
Þetta er algeng skoðunþeirra sem yst eru á
vinstri væng stjórnmál-
anna, að í frjálsum við-
skiptum hagnist enginn
nema annar tapi. Þetta
er misskilningur. Fólk á
viðskipti af fúsum og
frjálsum vilja og í flest-
um tilfellum hagnast báð-
ir aðilar á viðskiptunum.
Það þekkir sá sem hefur
keypt sér kókómjólk úti í
búð. Kaupmaðurinn fær
pening í kassann og
kaupandinn svalar þorst-
anum fyrir viðráðanlegt
verð.
Samkeppnin, hinnfrjálsi markaður,
gerir að verkum að fólk
er sífellt að leita að ódýr-
ari leið til að þjóna við-
skiptavinum. Ef mönnum
er frjálst að halda af-
rakstri erfiðis síns hafa
þeir hvata til að bjóða
upp á það sem fólk er
tilbúið að greiða fyrir,
með sem lægstum til-
kostnaði og fyrir sem
lægst verð. Annars verða
þeir undir í samkeppn-
inni. Hinn frjálsi mark-
aður knýr verðið niður
miskunnarlaust, öllum til
hagsbóta. Ekki síst hin-
um efnaminni.
Þar sem komið hefur íveg fyrir þessi frjálsu
viðskipti hafa ríkt hung-
ursneyðir og ríkja sums
staðar enn. Hin frjálsu
viðskipti hafa haldið uppi
lífskjörum vestrænna
ríkja á meðan höftin hafa
haldið þeim niðri sums
staðar annars staðar.
Auðvitað eru til und-antekningar; dæmi
þess, að annar aðilinn
hafi hagnast á við-
skiptum, en hinn tapað.
Slík áhætta er fyrir
hendi í viðskiptum. Ein-
hver gæti til dæmis
ákveðið að kaupa hús-
næði við nektarströnd og
stofna sundfataleigu.
Slíkar óskynsamlegar
ákvarðanir er alltaf hægt
að taka.
Fólki verður líka aðvera frjálst að taka
slíkar ákvarðanir. Þann-
ig rekur það sig á og lær-
ir af reynslunni. Út á það
gengur markaðurinn og
þannig virkar hann sem
velferðarkerfi fyrir
fjöldann.
STAKSTEINAR
Tapar alltaf einhver á
frjálsum viðskiptum?
Víkverji skrifar...
VÍKVERJA brá svolítið þegarhann las frétt á mbl.is um að
nú væru vísindamenn við virtar
brezkar rannsóknastofnanir búnir
að komast að þeirri niðurstöðu að
fiskar fyndu sársauka og sýndu
streitueinkenni þegar þeir fyndu til
í vörunum. Rannsóknin var gerð á
vegum Edinborgarháskóla og Rosl-
in-stofnunarinnar (þeirrar hinnar
sömu og klónaði sauðkindina Dolly)
og niðurstöðurnar voru birtar á
vegum Konunglegu vísindastofn-
unarinnar í London. Haft var eftir
talsmanni dýraverndunarsamtaka
að þótt samtökin væru reyndar
ekki ánægð með að fiskarnir hefðu
verið kvaldir í þessum tilraunum,
sem fólust m.a. í því að sprauta í
þá sýru, vonuðust þau til að þegar
fólk sæi niðurstöðurnar myndi það
hugsa sig tvisvar um áður en það
færi næst á stangveiðar.
x x x
ÞAR sat auðvitað öngullinn í Vík-verja, því að hann er einmitt
búinn að vera að græja sig upp
fyrir sumarið til að geta lagt stund
á nýja áhugamálið sitt, stangveiði.
Eitt augnablik hvarflaði að honum
að kannski væri hann algjört ill-
menni að ætla að fara að veiða og
kvelja blessuð saklausu dýrin.
Svo fór hann á BBC-vefinn og
fann þar ummæli vísindaráðgjafa
samtaka brezkra stangveiðimanna,
sem sagði að heilinn í fiskum væri
einfaldlega ekki útbúinn til að
skynja sársauka; það vantaði í
hann tilfinningastöðina. Þá létti
Víkverja svolítið.
x x x
SVO fór hann að hugsa málið ívíðara samhengi. Ef fiskar
finna til í vörunum – finna þeir þá
ekki til annars staðar líka? Hvað
með vesalings milljónirnar af
litlum loðnum, þorskum eða ýsum,
sem festast í netum og deyja?
Kveljast þær ekki og heyja hræði-
legt dauðastríð?
Þegar Víkverji var þarna kominn
í samræðum sínum við sjálfan sig,
sannfærðist hann um að hann ætti
ekki að gera sér nokkra einustu
rellu út af því hvort þessir fáu sil-
ungar og kannski einn eða tveir
laxar, sem hann gæti hugsað sér
að setja í í sumar, finna til í vör-
unum eða ekki þegar þeir bíta á.
Ef allir hugsuðu svoleiðis, væru
sjómennirnir okkar á Reykjanes-
hrygg bara niðri í lúkar að hrylla
sig yfir því hvað karfinn gæti nú
meitt sig í netunum og grundvell-
inum væri kippt undan lífsafkomu
þjóðarinnar.
Víkverji ákvað því að láta þessar
hugrenningar lönd og leið – enda
gengur stangveiðin fyrst og fremst
út á útiveru, félagsskap og rauð-
vínsdrykkju í veiðihúsum, ekki
satt?
Morgunblaðið/Einar Falur
Voru þeir að meið’ann?
Ágætu
frambjóðendur
ÞAÐ hefur verið mikið rætt
um bág kjör öryrkja, ein-
stæðra og fleiri minnihluta-
hópa. En hvað með t.d. hús-
mæður, sem hafa ekki verið
úti á vinnumarkaðnum á síð-
ustu árum? Ef þær veikjast
eru réttindi þeirra hálfir
sjúkradagpeningar, sem
eru nú 410 krónur á dag.
Þær hafa heldur ekki að-
gang að sjúkrasjóðum stétt-
arfélaganna. Þessar dag-
peningagreiðslur geta varað
í allt að eitt ár. Er virkilega
ætlast til að fólk lifi á þess-
um greiðslum? Hver er
hugsunin á bak við þetta?
Er einhver, sem gæti svarað
þessu?
H.B.
Íslenskt
tóbakshorn
FÓLK af færeysku bergi
brotið, búsett í Danmörku, á
í fórum sínum gamalt ís-
lenskt tóbakshorn; þakkar-
gjöf til færeysks Íslands-
skipstjóra, líklega á árum
heimstyjaldarinnar fyrri.
Hornið hefur verið áletrað
fyrir og stendur á því: „1893
– Frá Þuríði Markúsdóttir.
Til Jónasar Jónassonar.“
Nú vill þetta ágæta fólk
koma horninu til skila, allra-
helst á byggðasafn sem
næst heimahögum Þuríðar
og Jónasar, annars eða
beggja. Því eru þeir sem
kunna að þekkja til þeirra,
og kannski sögu hornsins,
vinsamlegast beðnir um að
koma upplýsingum til mín.
Virðingarfyllst,
Úlfur Hjörvar
Heygskróki 18
FO-100 Tórshavn
Netfang:
lupus@post.olivant.fo
Tapað/fundið
Armband tapaðist
HLEKKJAARMBAND
tapaðist í Smáralind.
Nokkrir hlekkir með Nom-
inationmerkinu, nokkrir
með hjarta á og stöfunum
Þ.E., einn hlekkur með
ljónamerki og einn með fót-
boltaskó. Finnandi vinsam-
lega hringi í síma 695-7697.
Gullkross tapaðist
HAMRAÐUR gullkross
u.þ.b. 3 cm á hæð með gull-
litaðri keðju, tapaðist í Ás-
búð eða í Lækjarási í Garða-
bæ fyrir stuttu. Skilvís
finnandi er vinsamlegast
beðinn að hafa samband í
síma 557-1714, 695-2930 eða
699-5532.
Dýrahald
Lítil læða á þvælingi
LÍTIL á að giska 6 mánaða
læða hefur verið að væflast
um í Frostaskjólinu í nokk-
urn tíma. Hún er guleyg,
svört með hvítar loppur og
svarta þófa og hvítan blett á
bringunni sem nær aðeins
upp á efri varir. Ef einhver
kannast við hana, vinsam-
legast hafið samband við
Freyju í síma 694-9258 eftir
kl. 17:30.
Tanja er týnd
TANJA er fjögurra ára
læða, gulbrún, hvít og svört
yrjótt. Hún hvarf frá
Bakkastöðum í Grafarvogi
rétt fyrir páska. Hennar er
sárt saknað. Ef einhver get-
ur gefið einhverjar upplýs-
ingar um ferðir hennar, vin-
samlegast hafið samband í
síma 567-7358.
Hefur þú séð Kalla?
KALLI er svartur persn-
eskur köttur sem týndist 29.
apríl sl. Hann hefur aldrei
áður farið út þannig að lík-
lega hefur hann komið sér
inn einhvers staðar. Ef þú
átt heima nálægt okkur (við
eigum heima á Lokastíg 21)
þá er hann kannski einhvers
staðar í húsinu þínu eða í
skjóli í garðinum. Viltu leita
fyrir okkur?
Fundarlaun.
Ef þú veist um Kalla, eða
heldur að þú hafir séð hann,
hafðu þá samband við okk-
ur.
Þorleifur Gunnlaugsson
s. 896-2181 eða
Hjálmdís Hafsteinsdóttir
s. 863-0386
Lokastíg 21, 101 Rvík.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Hjólað eftir Norðurströndinni á Nesinu.
LÁRÉTT
1 hraustmenni, 8 útgerð,
9 skjálfa, 10 forskeyti, 11
tígrisdýr, 13 líkamshlut-
ann, 15 karlfugl, 18 ólm-
ur, 21 blóm, 22 andvarps,
23 gleðin, 24 álf.
LÓÐRÉTT
2 alfarið, 3 eldar, 4 stóð
við, 5 notaði, 6 ójafna, 7
skora á, 12 ekki gömul,
14 aðstoð, 15 sæti, 16
voru í vafa, 17 grasflöt,
18 biðjum um, 19 rak-
lendið, 20 bráðum.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 hnáta, 4 hnupl, 7 ýlfur, 8 afnám, 9 ill, 11 ilma,
13 erja, 14 súpum, 15 hopi, 17 meis, 20 ósk, 22 úðinn, 23
refur, 24 ansar, 25 tuðra.
Lóðrétt: 1 hlýri, 2 álfum, 3 akri, 4 hjal, 5 unnur, 6 lemja,
10 lepps, 12 asi, 13 emm, 15 hnúta, 16 prins, 18 erfið, 19
sárna, 20 ónar, 21 kryt.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16