Morgunblaðið - 02.05.2003, Page 48
ÍÞRÓTTIR
48 FÖSTUDAGUR 2. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MEIÐSL norska landsliðsmarkvarðarins Espen Johnsen eru
ekki eins alvarleg og í fyrstu voru talin en hann tognaði í lær-
vöðva á æfingu norska landsliðsins á Írlandi s.l. þriðjudag.
Johnsen hefur staðið í marki meistaraliðs Rosenborg í
fyrstu þremur umferðum deildarkeppninnar þar í landi og
haldið íslenska landsliðsmarkverðinum, Árna Gaut Arasyni,
fyrir utan liðið. Læknar og sjúkraþjálfarar Rosenborg segja í
viðtali við staðarblaðið Addressavisen í Þrándheimi að allt
verði gert til þess að Johnsen verði klár í slaginn gegn Aale-
sund í næsta leik liðsins á sunnudag.
Þrátt fyrir að Johnsen hafi í tvígang verið valinn í A-
landslið Norðmanna hefur hann enn ekki leikið með liðinu.
Hann átti að leika gegn landsliði Óman í janúar s.l. en meidd-
ist á landsliðsæfingu og gat ekki leikið og það sama gerðist
fyrir leik Norðmanna gegn Írum í Dublin en Johnsen átti að
fá tækifæri í þeim leik. Norðmenn töpuðu leiknum, 1:0, en
Damien Duff framherji Blackburn skoraði eina mark leiks-
ins.
Árni segir sjálfur í samtali við Addressavisen að vissulega
vilji hann vera í byrjunarliði Rosenborg líkt og undanfarin
fjögur ár, en meiðsl Johnsen séu ekkert sérstakt gleðiefni
fyrir hann.
Árni Gautur áfram
úti í kuldanum
Árni Gautur
BERTI Vogts, landsliðsþjálfari Skota,
óttast ekki að sér verði sagt upp störfum
í kjölfar ósigurs á móti Austurrík-
ismönnum á Hampden Park í fyrrakvöld,
2:0. Skoskir fjölmiðlar fara hörðum orð-
um um frammistöðu liðsins og segja
hana þá langlélegustu frá því Þjóðverj-
inn tók við liðinu af Craig Brown fyrir
einu og hálfu ári síðan.
„Ég á ýmislegt eftir ógert og ég vil
miðla af reynslu minni til landsliðsmann-
anna og eins skoska knattspyrnu-
sambandsins. Það eru eins og við vitum
mörg vandamálin í skoskri knattspyrnu.
Uppistaðan í bestu liðunum í Skotlandi
eru leikmenn utan Skotlands og fáir
skoskir leikmenn leika með bestu lið-
unum á Englandi.
Ég tel að leikurinn við Austurríki hafi
gefið mér mörg svör við spurningum
mínum. Til að mynda tel ég tíma þeirra
leikmanna sem ekki spila reglulega með
sínum félagsliðum vera liðinn og að ég
geti því einbeitt mér að þeim leik-
mönnum sem eru fastamenn með fé-
lögum sínum.
Að sjálfsögðu er ég ekki sáttur við ár-
angur liðsins undir minni stjórn en samt
sem áður eigum við enn möguleika á að
gera ágæta hluti í undankeppni EM,“
sagði Vogts við skoska fjölmiðla í gær.
Mæta Þjóðverjum næst
Skotar eiga mikilvægan leik fyrir
höndum þann 7. júní en þá taka þeir á
móti Þjóðverjum á Hampden Park á
sama tíma og Íslendingar og Færeyingar
eigast við á Laugardalsvelli. Þjóðverjar,
Skotar og Litháar hafa allir 7 stig í riðl-
inum, Þjóðverjar eftir þrjá leiki, Skotar
fjóra og Litháar fimm.
Íslendingar hafa þrjú stig eftir þrjá
leiki og á botninum eru Færeyingar með
eitt stig.
Berti Vogts, þjálfari
Skota, óttast ekki uppsögn
HANDKNATTLEIKUR
ÍBV - Haukar.........................................22:20
Vestmannaeyjar, 1.maí 2003, þriðji úrslita-
leikurinn um Íslandsmeistaratitilinn í
kvennaflokki.
Gangur leiksins: 0:1, 1:1, 3:3, 5:6, 6:8, 8:8,
10:9, 10:11, 10:12, 11:13, 12:14, 13:15, 17:15,
17:17, 18:18, 18:20, 20:20, 22:20.
Mörk ÍBV: Alla Gorkorian 8/2, Ingibjörg
Jónsdóttir 3, Anna Yakova 3, Birgit Engl 3,
Sylvia Strass 3, Edda Eggersdóttir 1, Ana
Perez 1.
Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir 23/3 (þar
af 3 aftur til mótherja.)
Utan vallar: 2 mínútur.
Mörk Hauka: Harpa Melsted 6, Hanna G.
Stefánsdóttir 5/1, Inga F. Tryggvadóttir
4/2, Brynja Steinsen 4, Sonja Jónsdóttir 1.
Varin skot: Lukrecija Bokan 10/1.
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Stefán Arnaldsson og Gunnar
Viðarsson.
Áhorfendur: 970.
KNATTSPYRNA
Deildabikarkeppni KSÍ
8-liða úrslit
ÍA - ÍBV......................................................2:0
Hjörtur Hjartarson 9. (víti), Kári Steinn
Reynisson 72.
Grindvík - Fram....................................... 1:0
Baldur Bjarnason sjálfsmark 70.
KR - Þróttur ............................ e.framl. 11:5
Arnljótur Ástvaldsson 101., 104., 116., 120.,
Veigar Páll Gunnarsson 3. (víti), 64. (víti),
Garðar Jóhannsson 72., 88., Kjartan Finn-
bogason 94., 118., Sigurvin Ólafsson 69. -
Eysteinn Lárusson 47., 89., Sören Her-
mannsen 55., 78., Vignir Sverrisson 7.
Staðan eftir venjulegan leiktíma var 5:5.
Keflavík - Fylkir ...................................... 3:1
Hörður Sveinsson, Hólmar Örn Rúnars-
son, Hafsteinn Rúnarsson - Ólafur Páll
Snorrason vítasp.
Í undanúrslitunum á sunnudag mætast
KR - ÍA, Keflavík - Grindavík.
Vináttuleikir
Chile - Kosta Ríka .................................... 1:0
Kólumbía - Honduras............................... 0:0
Perú - Paragvæ......................................... 0:1
Mexíkó - Brasilía ...................................... 0:0
KÖRFUKNATTLEIKUR
NBA-úrslitakeppni
Scramento - Utah Jazz....................... 111:91
Sacramento sigraði, 4:1.
Portland - Dallas................................. 103:99
Dallas er yfir, 3:2.
Detroit - Orlando .................................. 87:67
Orlando er yfir, 3:2
GOLF
Björgvin Sigurbergsson, atvinnukylfingur
úr GK, er í 30.-60 sæti á Sky Sports Trophy
mótinu, sem hófst á Englandi í gær. Hann
lék á þremur höggum yfir pari, á 74 högg-
um. Besta skor var 4 undir pari.
Alls eru 150 keppendur á mótinu og fá 50
efstu að leika tvo síðustu keppnisdagana.
ÚRSLIT
Ingibjörg hefur áður orðið meistariog þá einnig í Eyjum, þegar ÍBV-
liðið fagnaði sigri á Gróttu/KR í
þriðja leik 2000. Er sigurinn á
Haukum sætari en
þá? „Segir maður
ekki alltaf að sá síð-
asti sé sá ljúfasti?
En ætli þessi verði
ekki sá ljúfasti í minningunni enda
er ég að hætta núna og þetta er
náttúrulega frábær tímapunktur til
þess.“
Svona leikir og svona stemmning
breytir þeirri ákvörðun ekki?
„Nei, veistu það, ég held ekki. Ég
er alveg orðin pakksödd.“
Þið vinnið Haukaliðið þrisvar í
röð. Kom það þér á óvart?
„Nei, ég get ekki sagt við. Við er-
um bara búnar að vera að spila jafn-
ast allra liða í vetur. Við erum með
vana menn, góðan bekk og frábæra
áhorfendur þannig að ég var aldrei í
vafa um að við myndum klára þetta í
kvöld,“ sagði Ingibjörg.
Einhver aukakraftur
hjálpaði okkur í lokin
Vigdís Sigurðardóttir markvörður
ÍBV var án nokkurs vafa maður
leiksins og má segja að hún hafi
haldið liðinu á floti lengi vel í leikn-
um enda varði hún 23 skot í leiknum
og þar af 3 vítaköst.
„Þetta var alveg frábært og rosa-
lega gaman að ná að klára þetta
hérna í kvöld.“
Þrír sigrar í röð, kom það þér á
óvart?
„Já, alveg rosalega. Sérstaklega
þar sem allir leikirnir voru rosalega
spennandi og það er nú yfirleitt ekki
þannig að sama liðið vinni þrjá tví-
sýna leiki í röð.“
Vigdís bætti því við að leikurinn í
Hafnarfirði hafi í raun verið lyk-
illeikur í einvígi liðanna. „ Ég er
nefnilega viss um það að ef þær
hefðu unnið í Hafnarfirði, þá hefðu
þær unnið hérna í kvöld. Það kom
bara einhver aukakraftur þarna í
lokin sem fleytti okkur í gegnum
lokamínúturnar, ég veit ekki hvaðan
hann kom.“
Var þetta síðasti leikur Vigdísar í
marki ÍBV?
„Já, ég er búin að gefa þá yfirlýs-
ingu. Ég er að fara í frekara nám og
þetta er tímafrekt. Maður getur
ekki verið endalaust í þessu,“ sagði
Vigdís að lokum og hljóp ásamt öðr-
um liðsmönnum ÍBV út fyrir
íþróttahúsið þar sem var að byrja
glæsileg flugeldasýning stelpunum
til heiðurs.
Morgunblaðið/Sigfús Gunnar Guðmundsson
Vigdís Sigurðardóttir var hetja ÍBV-liðsins – varði frábærlega.
Hér fagnar hún Íslandsmeistaratitlinum.
„Sá síðasti
alltaf sá
ljúfasti“
INGIBJÖRG Jónsdóttir, fyrirliði Íslandsmeistaraliðs ÍBV, var að von-
um sátt eftir leikinn enda hampaði hún Íslandsmeistaraverðlauna-
gripnum á ný eftir þriggja ára bið – og sagði að leikurinn hefði
þróast eins og áhorfendur vildu. „Fólkið vill spennu og það er okkar
að láta það eftir því. Ég held að við höfum komið upp á réttum tíma í
leiknum og náðum að klára þetta á lokasprettinum, sem var æsi-
spennandi fyrir okkur og áhorfendur,“ sagði Ingibjörg.
Sigursveinn
Þórðarson
skrifar
Á FUNDI félaga í efstu deild karla í
knattspyrnu í gær kynnti Knatt-
spyrnusamband Íslands, KSÍ, nýtt
heiti á efstu deild karla og kvenna
ásamt bikarkeppninni. Efsta deildin
nefnist nú Landsbankadeildin í stað
Símadeildar og Bikarkeppni KSÍ
nefnist nú Visa-bikarinn í stað Coca
Cola bikarkeppni. KSÍ mun kynna
breytingarnar nánar síðar.
KSÍ tilkynnir
ný nöfn
Nú fagnaði
Alla í Eyjum
ALLA Gorkorian varð Íslands-
meistari í fyrsta skipti í gær en
þessi snjalla rússneska
handknattleikskona, sem komin
er með íslenskt ríkisfang, var í
tapliði Gróttu/KR þegar liðið beið
lægri hlut fyrir ÍBV í úrslitaein-
vígi um Íslandsmeistaratitilinn
árið 2000. ÍBV varð þá Íslands-
meistari í fyrsta sinn – sigraði
Gróttu/KR, 3:0, og lyfti bikarnum
í Eyjum frammi fyrir 900 áhorf-
endum föstudaginn 7. apríl. Sig-
björn Óskarsson var þjálfari ÍBV-
liðsins og með liðinu léku Vigdís
Sigurðardóttir, markvörður, og
Ingibjörg Jónsdóttir, fyrirliði,
sem báðar gáfu í skyn eftir leikinn
í gær að þær hygðust leggja skóna
á hilluna.
Viggó stýrði Haukaliðinu
VIGGÓ Sigurðsson, þjálfari karla-
liðs Hauka, var mættur til Vest-
mannaeyja í gær til að stjórna
kvennaliði Haukanna í stað Gúst-
afs Adolfs Björnssonar sem úr-
skurðaður var í þriggja leikja
bann af aganefnd HSÍ eftir annan
úrslitaleik Hauka og ÍBV. Gústaf
þurfti að sætta sig við að sitja á
meðal áhorfenda en Viggó var á
bekknum og stjórnaði Hafn-
arfjarðarliðinu.
UNNUR Sigmarssdóttir, þjálfari
ÍBV, var að stýra liðinu í fyrsta
sinn á þessum vetri og landaði hún
tveimur titlum, þeim stóra í gær
og deildarmeistaratitlinum – hún
var sátt í gærkvöldi, þegar stóri
bikarinn var kominn í höfn. „Já, ég
er mjög sátt við það, ég er með
frábært lið í höndunum, við sýnd-
um mikinn karakter og snerum
leiknum algjörlega okkur í vil á
réttum tímapunkti og kláruðum
þetta bara.“ Unnur bætti því við
að leikurinn hefði boðið upp á allt
það sem góður handknattleiksleik-
ur getur boðið upp á. „Þetta var
mjög spennandi, hreinlega alveg
frábær leikur og það er ekki hægt
að bjóða fólki upp á meiri skemmt-
un en þetta, það er alveg á
hreinu.“ Hún sagðist, aðspurð um
framhaldið, ekkert vera farin að
hugsa um það. „Ég réð mig í eitt
ár, það fer rosalegur tími í þetta,
við erum búnar að spila yfir fimm-
tíu leiki á þessu tímabili, þrefalda
umferð, þannig að maður þarf að
hugsa sig dálítið um áður en eitt-
hvað verður ákveðið með fram-
haldið,“ sagði Unnur.
„Mikil seigla“