Morgunblaðið - 02.05.2003, Side 49
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MAÍ 2003 49
Gústaf Adolf Björnsson þjálfariHauka var í leikbanni og vakti
það talsverða athygli hver leysti
hann af hólmi en
Viggó Sigurðsson
þjálfari karlaliðs
Hauka sá um það.
Sterkur varnarleik-
ur einkenndi fyrstu mínútur leiksins
og fyrsta markið kom ekki fyrr en
eftir fimm mínútur og voru það gest-
irnir sem skoruðu. Haukar, líkt og í
fyrstu viðureign liðanna í Eyjum sl.
laugardag, héldu forystunni framan
af og virtust vera meira tilbúnar í
slaginn en heimaliðið. Munurinn
varð þó aldrei meira en tvö mörk og
þegar flautað var til leikhlés höfðu
Haukar betur með einu marki,
10:11.
Sama var upp á teningnum í upp-
hafi síðari hálfleiks og náðu gestirnir
þriggja marka forystu í upphafi
seinni hálfleiks. Þá kom Alla Gork-
orian aftur til leiks en hún var tekin
út af um miðjan fyrri hálfleik og var
greinilega ekki sátt við það. Hún
sýndi hversu mikilvæg hún er Eyja-
liðinu á þessum kafla, átti glæsilegar
sendingar þvert yfir völlinn í hraða-
upphlaupum ÍBV, stal boltanum af
Haukum og skoraði glæsileg mörk.
Áður en hennar kafli var búinn var
ÍBV komið yfir 16:15 og gríðarleg
stemmning í húsinu.
Nú tók við mikill darraðardans
þar sem liðin skiptust á að ná for-
ystu. Haukar komust tveimur mörk-
um yfir þegar fimm mínútur voru til
leiksloka 18:20 og virtust hafa þetta í
hendi sér. Eyjakonur skoruðu næstu
tvö mörk leiksins og staðan var jöfn.
Aftur fengu Haukar tækifæri á að
komast yfir þegar rúmar tvær mín-
útur voru eftir. Þær náðu að galopna
vörn ÍBV en Nína K. Björnsdóttir
skaut í gólfið og hátt yfir úr dauða-
færi. ÍBV-liðið brunaði fram og af
miklu harðfylgi skoraði Birgit Engl
tuttugasta og fyrsta mark ÍBV. Og
allt ætlaði um koll að keyra á áhorf-
endabekkjunum í Eyjum.
Haukaliðið hafði því einn mögu-
leika enn og nú að knýja fram fram-
lengingu en hrikaleg sending Nínu
hafnaði beint í höndunum á Öllu
Gorkorian sem brunaði fram ásamt
samherjum sínum og skoraði svo
sjálf tuttugasta og annað mark ÍBV
sem jafnframt var lokamark Ís-
landsmótsins þetta tímabilið. Gríð-
arleg fagnaðarlæti brutust út í hús-
inu. Það var enginn vafi hver var
maður leiksins. Vigdís Sigurðardótt-
ir átti sannkallaðan stórleik og er
það ekki í fyrsta skiptið sem hún
dregur vagninn þegar ÍBV er ann-
ars vegar, þrjú vítaköst varði hún og
samtals 23 skot í leiknum og verður
gríðarlegur sjónarsviptir af henni í
marki Eyjaliðsins en hún hefur
ásamt fyrirliða ÍBV, Ingibjörgu
Jónsdóttur gefið það út að hún
hyggist leggja skóna á hilluna eftir
þetta tímabil.
Alla Gorkorian var markahæst
þrátt fyrir að hafa aðeins spilað um
helming leiksins, skoraði átta mörk
og átti stórleik í seinni hálfleik.
Haukar gengu vonsviknir af leikvelli
og vita sem skyldi að þær eiga að
geta miklu betur en þær gerðu í
þessari úrslitarimmu.
Harpa Melsted átti góðan leik,
skoraði sex mörk og spilaði fasta en
aldrei grófa vörn. Hanna G. Stef-
ánsdóttir átti einnig ágætis leik.
Morgunblaðið/Sigfús Gunnar Guðmundsson
Unnur Sigmarsdóttir, þjálfari ÍBV, fagnar Íslandsmeistaratitlinum ásamt sínum mönnum á bekknum.
ÞAÐ var sannarlega mikil dramatík í Eyjum í gærkvöldi þegar
kvennalið ÍBV tók á móti Haukum í þriðja úrslitaleik liðanna um Ís-
landsmeistaratitilinn í handknattleik. ÍBV hafði unnið fyrstu tvær
viðureignirnar og gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Haukana í miklum
baráttuleik, 22:20, og tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í þremur
leikjum. Það var gríðarleg stemmning í íþróttahúsinu í Eyjum og
voru áhorfendur hátt í þúsund og létu vel í sér heyra.
Alla og Vigdís í
aðalhlutverkunum
Sigursveinn
Þórðarson
skrifar
ÍSLANDSMEISTARAR KR skor-
uðu 11 mörk gegn Þrótti í 8-liða úr-
slitum Deildabikarkeppni KSÍ í gær.
Staðan eftir venjulegan leiktíma var
5:5, en í framlengunni var aðeins eitt
lið á vellinum og bættu KR-ingar við
sex mörkum. Arnljótur Ástvaldsson
var KR-inga iðnastur við að skora en
hann skoraði fjögur mörk, öll í fram-
lengingunni, en Þróttarar voru manni
færri alla framlenginguna eftir að
Jens Sævarssyni var vikið af velli á
89. mínútu.
Góður sigur Keflvíkinga
Fyrstu deildar lið Keflvíkinga hafði
betur á móti úrvalsdeildarliði Fylkis á
grasvellinum á Iðavöllum í Keflavík.
Hörður Sveinsson kom Keflvíkingum
yfir á 36. mínútu en Ólafur Páll
Snorrason jafnaði metin fyrir Fylki
úr vítaspyrnu skömmu fyrir leikhlé.
Snemma í síðari hálfleik var Fylkis-
maðurinn Valur Fannar Gíslason rek-
inn af leikvelli og það færðu heima-
menn sér í vil. Hólmar Örn
Rúnarsson og Hafsteinn Rúnarsson
bættu tveimur mörkum við fyrir Kefl-
víkinga. Finnur Kolbeinsson, fyrirliði
Fylkis og leikmaður ársins á síðustu
leiktíð, lék sinn fyrsta leik fyrir Ár-
bæjarliðið eftir meiðsli.
Sjálfsmark í Grindavík
Á Grindavíkurvelli höfðu Grindvík-
ingar betur gegn afmælisbörnunum í
Fram, 1:0, en Fram hélt upp á 95 ára
afmæli sitt í gær. Sigurmarkið var
sjálfsmark Framara en eftir fyrirgjöf
Óla Stefáns Flóventssonar fór boltinn
af einum leikmanna Fram og í netið.
Leikurinn var spilaður á grasvellin-
um og þótti ágætlega leikinn
Sanngjarn sigur Skagamanna
ÍA hafði betur gegn ÍBV, 2:0, á
grasvelli Skagamanna þar sem liðin
sýndu ágæt tilþrif. Hjörtur Hjartar-
son skoraði fyrra mark ÍA á 9. mínútu
úr vítaspyrnu. Skagamenn áttu fleiri
færi í leiknum og náðu að bæta við
marki í síðari hálfleik er Kári Steinn
Reynisson skoraði með skalla. Skaga-
menn áttu tvö góð færi til viðbótar í
síðari hálfleik er tvö skot rötuðu í
markstangir ÍBV-marksins.
KR skoraði
11 mörk
HEIMIR Örn Árnason, handknatt-
leiksmaður, hefur ákveðið að ganga
til liðs við Val. Heimir lék í vetur með
norska 2. deildarliðinu Haslum en var
áður í herbúðum KA og einn af lyk-
ilmönnum þess þegar það innbyrti Ís-
landsmeistaratitilinn á síðustu leiktíð.
SKOVBAKKEN/Brabrand, hand-
knattleiksliðinu danska sem Kristján
Halldórsson þjálfar á næstu leiktíð,
tókst með naumindum að halda sæti
sínu í dönsku úrvalsdeildinni í hand-
knattleik kvenna. Skovbakken/Bra-
brand vann Esbjerg í oddaleik, 30:25,
í Árósum í fyrrakvöld í leik um hvort
liðið héldi sæti sínu í deildinni. Áður
höfðu liðin unnið sinn leikinn hvort.
LOGI Gunnarsson skoraði 22 stig
og var stigahæstur í liði Ulm sem
sigraði Bayreuth, 92:81, í þýsku 2.
deildinni í körfuknattleik í fyrra-
kvöld.
DUNCAN Ferguson framherji
Everton á yfir höfði sér þriggja leikja
bann fyrir að gefa Jóhannesi Karli
Guðjónssyni olnbogaskot í leik Ever-
ton á móti Aston Villa um síðustu
helgi. Aganefnd enska knattspyrnu-
sambandsins hefur ákveðið að skoða
sjónvarpsupptöku af leiknum og í
kjölfarið mun hún kveða upp dóm
sinn.
GARY Neville leikmaður Man-
chester United og enska landsliðsins
leikur ekki meira með á þessari leik-
tíð en hann gekkst undir aðgerð á
vinstri fæti í gær og verður frá keppni
og æfingum næstu þrjá mánuðina.
KYLFINGURINN Ernie Els frá S-
Afríku hefur ákveðið að keppa ekki á
næstu tveimur atvinnumótum kylf-
inga og ætlar hann þess í stað að æfa
stutta spilið hjá sér. Els er í öðru sæti
á styrkleikalista heimsins en hefur
aðeins náð 10. og 17. sæti á s.l. tveim-
ur mótum eftir frábæra byrjun á
keppnistímabilinu þar sem hann sigr-
aði á fjórum af fyrstu fimm mótunum.
ÞETTA var góður leikur og bæði
liðin léku eins vel og þau gátu,“ var
það eina sem Rasheed Wallace fram-
herji Portland Trailblazers sagði á
blaðamannafundi eftir að liðið hafði
lagt Dallas að velli í átta liða úrslitum
vesturstrandarinnar í NBA-deildinni.
Forráðamönnum NBA-deildarinnar
þóttu svör Wallace ekki spaugileg og
hafa sektað kappann um 780.000 ísl.
kr. Wallace fékk aðra sekt í kjölfarið
og var hún helmingi hærri þar sem
hann lét öllum illum látum við blaða-
menn sem reyndu að fá hann til að tjá
sig um gang mála í rimmu liðsins
gegn Dallas.
ENSKA knattspyrnusambandið,
FA, hefur staðfest að það sé ólíklegt
að stuðningsmenn enska landsliðsins
fái að kaupa miða á leik liðsins á úti-
velli gegn Tyrkjum í undankeppni
Evrópumóts landsliða. Allt að 6000
stuðningsmenn liðsins hafa áhuga á
að ferðast á leikinn en forráðamenn
FA telja miklar líkur á því að enskir
og tyrkneskir stuðningsmenn lendi í
áflogum með ófyrirsjáanlegum afleið-
ingum.
FÓLK