Morgunblaðið - 02.05.2003, Side 56
56 FÖSTUDAGUR 2. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 6 og 8. Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 10.
Sýnd kl. 4, 6, og 8.Sýnd kl. 5.50, 8, 10.20. B.i.14 ára.
Heimilda- og Stuttmyndahátíð
Burtur - Hugur - Færeyjar
/ Ruthie & Connie
sýnd kl. 4
Burtur - Hugur - Kúba
sýnd kl. 4
Fyrsta Ferðin
sýnd kl. 6
Við Byggjum / Ruthie & Connie
sýnd kl. 8
Family
sýnd kl. 8
Star Kiss
sýnd kl. 10
Missing Allen
sýnd kl. 10
SV MBL
HK DV
SG Rás 2
Radio X
ÞÞ Frétta-
blaðið
Tvöfaldur
Óskarsverðlaunahafi
Michael Caine
í stórbrotinni
kvikmynd sem
byggð er á sígildri
skáldsögu
Graham Greene.
Michael Caine var
m.a. tilnefndur til
Óskarsverðlauna
fyrir hlutverk sitt í
myndinni.
Frumsýning
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 3.45, 5.50 OG 8. B.I. 16.
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20. B.i. 12 ára.
KEFLAVÍK
kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10. B.i.14. / kl. 5.50, 8 og 10.10. b.I. 14. / kl. 10. B.i. 14. / kl. 8. B.i. 14.
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI / KEFLAVÍK
Heims frumsýning
Sagan heldur áfram. Enn stærri og
magnaðri en fyrri myndin.
Missið ekki af þessari!
UPPTAKA Rásar 2 af laginu
„New York City Cops“ með The
Strokes frá tónleikum sveitarinnar
á Broadway í apríl á síðasta ári
verður á nýrri safnplötu, sem kem-
ur út 3. júní á Wolfgang Morden,
dótturfyrirtæki Vice Records.
Alls verða 15 lög á plötunni með
helstu hjómsveitum New York-
borgar enda kallast platan YES
New York. Interpol er með lagið
„NYC“, Íslandsvinirnir í The
Rapture með „Olio“ og Radio 4
með lagið „Save Your City“ svo
eitthvað sé nefnt.
Upphafslag plötunnar er áður-
nefnt Strokes-lag en síðasta lagið
er órafmögnuð útgáfa af laginu
„Our Time“ með Unitard, hliðar-
verkefni eins heitasta rokkbands-
ins sem stendur, The Yeah Yeah
Yeahs.
„Ég er mjög stoltur af tækni-
mönnum útvarpsins,“ segir Ólafur
Páll Gunnarsson, tónlistarstjóri
Rásar 2, og vísar til góðrar hjóð-
upptöku.
Engir peningar eru þó í spilinu
heldur er einungis um að ræða fag-
mannlega umbun og virðingu fyrir
Ríkisútvarpið. „Þetta er fag-
mennskutákn. Gaman að lítil út-
varpsstöð eigi lag númer eitt á
safnplötu,“ útskýrir Óli Palli, eins
og hann er kallaður.
Þetta eru þó ekki einu upptökur
Rásar 2, sem hafa borist víða því
upptökur af sex lögum frá fyrstu
tónleikum Coldplay á Íslandi hefur
lengi verið að finna á vef sveit-
arinnar. „Strokes og Coldplay hafa
verið ein stærstu nöfnin í rokkinu
síðustu ár og við erum búin að taka
upp tónleika með þeim báðum,“
segir hann.
Rás 2 tók einnig upp tónleika
Nick Cave, sem haldnir voru á
Broadway í desember sl. Óli Palli
segir það hafa verið heiður að fá að
taka upp tónleikana. „Það er mjög
sjaldgæft að hann gefi leyfi fyrir
svona upptökum,“ segir hann og
bætir við að fólk í herbúðum Caves
hafi lýst yfir áhuga á upptökunum.
Einnig tók Rás 2 upp mikið efni
á síðustu Iceland Airwaves-tón-
leikahátíð. „Við tókum upp 25 tón-
leika og erum búin að senda átta
tónleika til EBU,“ segir hann en
EBU, samband evrópskra útvarps-
stöðva sér um að dreifa efninu til
aðildarstöðva. Umræddir lista-
menn eru Leaves, Orgelkvartett-
inn Apparat, Ensími, Hera, Daníel
Ágúst, Jagúar, Vínyll og sænsku
montrassarnir í The Hives.
Efninu er dreift í gegnum gervi-
hnött og stendur aðildarstöðvum
til boða að taka upp viðkomandi
tónleika. Því er líklegt að hróður
íslenskrar tónlistar eigi eftir að
berast enn víðar en nú er vegna
þessa, þó að sjálfsögðu sé ekkert
öruggt í þessum efnum. „Hver
veit? Við erum allavega að senda
okkar lið í Evrópukeppnina en vit-
um ekki hvort við komumst í úrslit.
En ef maður sendir ekkert lið þá
gerist náttúrulega ekki neitt,“ seg-
ir Óli Palli skáldlega.
Morgunblaðið/Jim Smart
Julian Casablancas, söngvari The Strokes, á sviði á Broadway á síðasta ári.
Tónleikaupptökur Rásar 2 berast víða
Íslensk upptaka
Strokes á safnplötu
ÍSLANDSMEISTARI kaffi-
barþjóna, Ása Jelena Pét-
ursdóttir, vann um síðustu
helgi silfurverðlaun á
heimsmeistaramóti kaffi-
barþjóna sem fram fór í
Boston í Bandaríkjunum um
helgina.
Gullið fór til Ástralíu en
fulltrúi Norðmanna lenti í
þriðja sætinu á eftir Ásu
Jelenu. Hægt er að smakka
næstbestu kaffiblöndu í
heimi í Kaffitári þar sem
Ása Jelena starfar.
Kaffibarþjónninn Ása Jelena Pétursdóttir
Morgunblaðið/Júlíus
Vann silfur-
verðlaun á
heimsmeist-
aramóti