Morgunblaðið - 02.05.2003, Qupperneq 12
12 C FÖSTUDAGUR 2. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
RÉTT við sjávarkambinn áEyrarbakka stendur Rauðahúsið þar sem einn af þekkt-
ari veitingastöðum landsins er til
húsa. Rauða húsið, áður þekkt
sem Gunnarshús, hefur verið rekið
af Inga Þór Jónssyni frá því
snemma árs 2001. „Ég tók húsið á
leigu 1. janúar 2001,“ segir hann,
„en þá hafði enginn rekstur verið í
húsinu í rúmt ár. Síðan opnaði ég
aftur 27. apríl, eftir að hafa tekið
það allt í gegn. Við endurnýjuðum
húsið í eins upprunalegri mynd og
hægt var og ég er mjög ánægður
með hvernig til tókst.“
Eins og er, er reksturinn í Rauða
húsinu á tveimur hæðum. Á efri
hæðinni er matsalur sem rúmar 36
manns í sæti. Á neðri hæðinni er
einnig matsalur sem rúmar 36 í
sæti, en þar er einnig bar og lítill
salur fyrir minni hópa. Í ekkert svo
mjög fjarlægri framtíð er svo mein-
ingin að opna koníaksstofu í risi
hússins.“
Veitingahúsið Rauða húsið sér-
hæfir sig í matreiðslu á sjávarfangi
og hefur á boðstólum girnilegan
humar, sjávarréttasúpu, saltfisk og
ýmsa fiskrétti, auk kjötrétta og
grænmetisrétta og segir Ingi Þór
sjávarréttasúpuna vinsælasta rétt
hússins. „En við bjóðum reyndar upp
á alla mögulega rétti, auk þeirra
sem eru á matseðlinum okkar,“ seg-
ir hann. „Við erum með samlokur og
hamborgara – og fólk getur fengið
soðna ýsu ef það vill. Við berum líka
fram hummus með brauðinu og það
hefur reynst mjög svo vinsælt. Hing-
að kemur fólk vikulega til þess að
kaupa af okkur brauð og hummus og
það má segja að það sé vinsælasti
rétturinn okkar, ásamt sjávarrétta-
súpunni – sem er full af sjávarfangi.“
Allt brauð og bakkelsi er bakað á
staðnum og segir Ingi Þór að allan
daginn sé hægt að kaupa kaffi og
meðlæti. Á boðstólum sé smurt
brauð, vöfflur, kökur og tertur og á
góðviðrisdögum er notalegt að sitja
fyrir utan húsið og njóta góðra veit-
inga.
Rauða húsið var byggt árið 1880
fyrir barnaskólann á Eyrarbakka,
sem starfað hafði frá 1952. Skólinn
starfaði í húsinu til 1913 en eftir
það var húsið í einkaeign og rekið
sem gistihús og greiðasala fram eft-
ir öldinni og um tíma stóð það autt,
eða allt til 1992, þegar veit-
ingarekstur hófst þar. „Þetta er hús
með fjölbreytta og magnaða sögu,“
segir Ingi Þór og viðurkennir að þar
sé einnig reimt. Hins vegar sé þar
góð sál á ferð og enginn þurfi að ótt-
ast að vinna einn í húsinu um nætur.
En hvað gerir fólk á Eyrarbakka
fyrir utan að fá sér gott að borða?
„Hér er mikið af gömlum húsum
sem eru hluti af sögu okkar, ekki
síst verslunarsögu,“ segir Ingi Þór.
„Þeim hefur verið vel við haldið og
þeir sem hafa áhuga á sagnfræði,
koma hingað til þess að skoða
hvernig gamli tíminn hefur litið út,
einkum vegna þess að í safninu okk-
ar, sem ber heitið „Húsið“ hefur mik-
ið af munum og minjum um atvinnu-
og búskaparhætti verið varðveitt.
Auk þess er alkunna hversu hress-
andi er að ganga uppi á varnar-
veggnum meðfram sjónum og hérna
rétt fyrir norðan er mikið fuglafrið-
land sem er mjög vinsælt meðal
fuglaskoðara. Á Eyrarbakka og
Stokkseyri býr mikið af listamönn-
um og við erum stöðugt með sýn-
ingar á verkum þeirra hér í Rauða
húsinu. Svo er hægt að bregða sér
yfir á Stokkseyri, þar sem innan tíð-
ar verður opnað draugasafn, auk
þess sem þar verður sýningarsalur
fyrir myndlist – eða bregða sér í
vatna- eða sjóferð hjá Kajak-
ferðum.“
Sjávarréttir við
fjörukambinn
Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson
Rauða húsið var byggt árið 1880 yfir barnaskólann á Eyrarbakka.
Morgunblaðið/Súsanna
Ingi Þór Jónsson, veitingamaður í Rauða húsinu.
A
RCANUM ehf. ferðaþjón-
usta sérhæfir sig í vél-
sleðaferðum (eða snjó-
ferðum) á hálendinu og
Mýrdalsjökli. Benedikt
Bragason, eigandi fyrirtækisins segir
ferðirnar sem í boði eru hjá fyrirtæk-
inu vera nokkuð árstíðabundnar. „Á
veturna höldum við okkur nær
Reykjavík, þar sem við komumst í
snjó. En okkar megináhersla er á
Mýrdalssvæði og Fjallabakssvæði –
sem er okkar annað heimili, ef svo
má segja. Við byrjum síðasta lagi 1.
maí á jöklinum og erum að keyra þar
framundir jól.“
Hvernig ferðir eruð þið að bjóða
upp á?
„Yfir sumarið bjóðum við allt frá
klukkutímaferðum upp í sjö tíma
ferðir, og erum í þeim tilfellum að
bjóða upp á ferðir þar sem farið er yf-
ir á Eyjafjallajökul. Yfir vetrartímann
bjóðum við upp á ferðir inn á hálend-
ið, í Landmannalaugar og það
svæði.
Við erum með um hundrað fer-
metra skála uppi við jökulröndina á
Mýrdalsjökli. Hann er mjög vel útbú-
inn, með vatnssalerni, eldhúsi með
öllum græjum og matsal fyrir fimm-
tíu manns. Þar geymum við alla
galla, hjálma og annan útbúnað.“
Bjóðið þið ekki upp á neina
tilboðspakka?
„Jú. Nú eru til dæmis vorferðirnar
hafnar hjá okkur. Þá leggjum við af
stað frá skálanum á Mýrdalsjökli um
kl.15.00, förum inn í Skófluklif þar
sem er skáli, hendum af okkur far-
angri, dengjum okkur í bað í Strúts-
laug og njótum þess að vera til. Síð-
an höldum við til baka í skálann, þar
sem við grillum og höldum kvöld-
vöku.
Við leggjum síðan af stað heim
aftur yfir jökulinn snemma næsta
morgunn og erum komin í skálann
okkar um klukkan 11.00 fyrir há-
degi. Þetta eru þokkalega ódýrar
ferðir og ekkert vandamál að taka
börn með sér. Þetta er mjög þægileg
leið til þess að fara með krakka.“
Hvað eruð þið með marga sleða?
„Við erum með tuttugu og fimm
sleða í dag og okkar stefna er að
halda því. Svo eigum við feiknarlega
öflugan jöklatrukk, fjögurra öxla MAN
og hann er mikið notaður. Á vorin er
talsvert um að hingað komi krakkar í
skólaferðalag og við keyrum þá á jök-
ulinn þar sem þeir hamast á snjó-
brettum, skíðum og snjóþotum á
meðan við grillum fyrir þá og reynum
að búa til skemmtilega stemmningu
handa þeim.
Auk þess fáum við mörg hundruð
bresk skólabörn á hverju sumri, för-
um með þau á jökulinn þar sem þau
fá smájarðfræðikennslu. Það kom-
ast tuttugu og fimm í trukkinn eins
og er en stefnan er sett á fjörtutíu.
Við ætlum að láta stækka hann og
laga hann aðeins til. Síðan erum við
með snjótroðara sem tekur annað
eins af fólki. Enda er stundum
handagangur í öskjunni, þegar koma
stórir skólahópar.“
Jöklaferðir af
öllum gerðum
Arcanum-ferðaþjónustan hefur yfir 25 vélsleðum að ráða og einum fjallatrukki.
Heit böð í faðmi náttúrunnar eru ómissandi í hálendisferðum.
Sérkennilegar hellamyndanir eru víða á hálendi og í jöklum. Sólheimaskálinn, hús Arcanum við jökulrönd Mýrdalsjökuls.
Vélsleðar og fjögurra öxla
jöklatrukkur eru meðal þeirra
farartækja sem Arcanum ehf.
notar til ferða á Mýrdalsjökli
og á hálendinu.