Morgunblaðið - 06.05.2003, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2003 9
ALDÍS Rún Lárusdóttir varð
nýlegaReykjavíkurmeistari í
borðtennis og vann að auki
lokamót Grand Prix-mótarað-
arinnar í borðtennis. Aldís er
ekki aðeins hæfileikarík á þessu
sviði því auk þess að vera borð-
tennismeistari er hún í landsliði
kvenna í skák, þrátt fyrir að
vera aðeins 19 ára gömul.
„Það er stundum svolítið erf-
itt að samræma þetta. Helg-
arnar verða stundum erfiðar
vegna móta á báðum stöðum.
Það kemur fyrir að ég þurfi að
meta það hvort ég geri ef það
eru mót og æfingar í báðum
greinum um helgar,“ sagði Al-
dís sem tók þátt í ólympíu-
mótinu í skák sem fram fór í
Slóveníu í október og nóvember
á síðasta ári. „Á sama tíma og
ólympíumótið fór fram var líka
svokallað Norður-Evrópumót í
borðtennis. Þá valdi ég ólymp-
íumótið því það var stærra
mót.“
Spilaði borðtennis í Svíþjóð
Aldís útskrifaðist af eðlisfræðibraut úr Mennta-
skólanum í Hamrahlíð sl. áramót, hálfu ári á undan
flestum jafnöldrum sínum.
Hún söðlaði svo um og skellti sér til Svíþjóðar eftir
útskrift. „Ég bjó þar í þrjá mánuði. Þá var ég bara að
æfa og spila borðtennis svo ég hvíldi mig aðeins á
skákinni. Núna er ég komin heim og ætla að vinna
hérna í sumar og svo er hugsanlegt að ég fari aftur út í
haust,“ sagði Aldís.
Hún lærði nokkuð í sænsku í Svíþjóð þrátt fyrir að
mestur hluti dagsins færi í að stunda borðtennis.
„Ég hef alltaf verið að æfa og þjálfa beint eftir skóla
svo það var rosalega gaman að prófa þetta. Þarna voru
heldur engir árekstrar með skák og borðtennis um
helgar.“
Aldís sagði að sér hefði gengið vel úti og hún hefði
bætt sig töluvert. „Það er mikill klassamunur á Íslandi
og Svíþjóð í borðtennis, en það var frábært að fá nýja
andstæðinga á hverju móti. Hérna eru þetta alltaf
sömu andstæðingarnir,“ sagði
Aldís sem gat þó ekki alveg
sleppt hendinni af skákinni.
„Ég var með fartölvu og skák-
forrit úti og tefldi pínu þar.
Svo bjó ég hjá fjölskyldu og
kenndi litlu krökkunum á
heimilinu að tefla, en það var
meira að gamni gert.“
Norðurlanda-
meistari í skák
Þrátt fyrir ungan aldur hef-
ur Aldís náð góðum árangri í
báðum greinum. Skáksveit MH
varð til að mynda Norður-
landameistari með Aldísi inn-
anborðs í fyrra. „Það var frá-
bært. Það voru tveir strákar og
tvær stelpur í liðinu, sem er
áreiðanlega í fyrsta skiptið sem
það gerist. Við jöfnuðum þar
Norðurlandamótsmet með því
að vinna með hvað mestum
mun. Í unglingaflokki varð ég
einu sinni þrefaldur meistari í
borðtennis. Stærsti titillinn er
þó líklega að verða Norðurlandameistari framhalds-
skóla í skák,“ sagði Aldís sem var hógværðin upp-
máluð.
Þrátt fyrir hógværðina stefnir Aldís hátt. „Í borð-
tennis stefni ég á að komast á heimslistann og fara út
að keppa og ná nokkuð góðum árangri. Það er rosalega
erfitt að komast alveg á toppinn því í kvenborðtennis
hefur Asía algera yfirburði. Ég er síðan komin á al-
þjóðlegan stigalista í skák með rúm 2.000 stig. Ég hef
þó ekki kíkt nýlega á hvar ég sit í röðinni. Síðan stefni
ég bara á að verða betri í skákinni,“ sagði Aldís, sem
ætlar að vinna í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í
sumar.
„Það er tvísýnt að ég geti stundað þetta hvort
tveggja. Akkúrat eins og staðan er núna er ég meira í
borðtennis, en ég er að vona að ég geti síðan komið
aftur sterk inn í skákina eftir smátíma.“
Aldís stefnir á verkfræðinám í Háskóla Íslands ann-
aðhvort í haust eða eftir áramót. „Ég er dálítið að
hugsa um að vera í Svíþjóð fram að jólum og fara í há-
skólann eftir áramót,“ sagði þessi fjölhæfa stúlka.
Aldís Rún Lárusdóttir er bæði Reykjavíkurmeistari
í borðtennis og í skáklandsliði Íslands
Stefnir á heimslistann
Aldís Rún Lárusdóttir við taflborðið.
Nýr listi
www.freemans.is
ÁHÖFN á TF-LÍF þyrlu Landhelg-
isgæslunnar fór tvær ferðir í sjúkra-
flug á Reykjaneshrygg fyrir og um
helgina til að sækja slasaða eða veika
sjómenn á erlendum fiskiskipum,
sem voru á karfaveiðum rétt utan
landhelginnar.
Þyrlan var fyrst kölluð út á
fimmtudagskvöld vegna sjómanns
sem veikst hafði um borð í norska
togaranum Langvin. Togarinn sigldi
inn í landhelgina, í fullu leyfi þegar
svona stendur á, og kom á móti þyrl-
unni, sem hitti skipið fyrir kl. 5.30 á
föstudagsmorgun. Sjúklingurinn var
hífður um borð og var lent með hann
í Reykjavík laust fyrir kl. 8 þá um
morguninn.
Þyrlan var síðan kölluð út að nýju
á sunnudagskvöld vegna skipverja
sem slasaðist um borð í þýska togar-
anum Atlantic Peace. Kom þyrlan að
togaranum kl. 22.45 eftir tæplega
tveggja klst. flug, hífði sjúklinginn
um borð og kom honum á Landspít-
alann kl. rúmlega hálfeitt eftir mið-
nætti aðfaranótt mánudags.
Landhelgisgæslan annast sjúkra-
flug af þessum toga viðkomandi út-
gerðum að kostnaðarlausu enda er
það eitt af hlutverkum Gæslunnar að
annast aðkallandi sjúkraflutninga,
samkvæmt lögum frá 1967.
?%$!+/5 !+
5""!+ 1+5""
17"!<
!+/5 !+
5""!+ 1+5""
*!<
;<=>:
?;"@"
A;<=
B+;C
<
!Tvær ferðir í sjúkra-
flug á karfamiðin
Mán. 5/5: Ítalskur sumarréttur m. fersku
salati, hrísgrjónum og meðlæti.
Þri. 6/5: Fylltar paprikur með cous-cus,
fersku salati, hrísgrjónum og
meðlæti.
Mið. 7/5: Suðrænn sólskinspottur m. fersku
salati, hrísgrjónum og meðlæti.
Fim. 8/5 Pizza með fullt af góðgæti m.
fersku salati, hrísgrjónum og
meðlæti.
Fös. 9/5: Ofnbakaðar kartöflur, fylltar með
eggaldinmauki o.fl. m. fersku salati,
hrísgrjónum og meðlæti.
Helgin 10.-11/5: Indverskar kræsingar m.
fersku salati, hrísgrjónum og meðlæti.
Mán. 12/5: SPÍNATLASAGNA m. fersku
salati, hrísgrjónum og meðlæti.
Matseðill
www.graennkostur.is
Bankastr ti 14, s mi 552 1555
Úrval af fallegum
kvenfatnaði
Opið virka daga frá kl. 10-18,
laugardaga frá kl. 11-16
Síðbuxur - kvartbuxur
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00.
Álfheimum 74, Glæsibæ, Reykjavík, s. 553 2347
Rúskinnsjakkar - Rúskinnspils
Rúskinnsvesti
Einnig leðurjakkar
margar gerðir - gott verð
Fataprýði
Verið velkomnar
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið mán-fös. frá kl. 10-18Laugard. frá kl. 10-14
Bolir peysur blússur
15% afsláttur
Úrval af stúdendadrögtum
Elegant
Bæjarlind 12 • 201 Kópavogur.
Sími 512 2200
Vönduð
garðhúsgögn sem
koma á óvart!
Stuttfrakkar
Frábært verð
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—16
Glæsilegt úrval af
fatnaði á alla
fjölskylduna.
Minnum á So bin ich
listann Flott föt
í stærðum 40-58
Allir listarnir fást í Bókabúðinni Grímu
Garðatorgi, Bókabúð Máls og Menningar Mjódd
og Pennanum Keflavík.
VÖRULISTARNIR SÍMI/FAX 565 9991 - WWW.OTTO.IS
Jakkar, bolir,
skyrtur
Ný sending