Morgunblaðið - 06.05.2003, Blaðsíða 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10.
400
kr
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14.
Miðasala opnar kl. 15.30
HL MBL
HK DV
Kvikmyndir.com
X-97,7
kl. 6 og 9.
Sýnd kl. 4 og 6. ísl. tal. 400 kr.Sýnd kl. 5, 8 og 10.40. B.i. 12
...Þetta er fyrsta stóra
hasarmynd sumarsins
2003 og gæti hæglega
endað sem ein sú besta ...
Kvikmyndir.com
... tt r fyr t t r
r y r i
ti l
i t ...
vik y ir.c
Kvikmyndir.isvik y ir.is
X-men 2 er mynd
með boðskap,
brellur og brjálaðan
hasar...
Hvað viltu meira?
- r
,
r ll r rj l
r...
il ir
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14.
"X2 er
æsispennandi,
linnulaus darraðar-
dans frá fyrstu
mínútu til þeirrar
síðustu, æsileg
skemmtun fyrir
alla hasarmynd-
aunnendur og
jafnvel
ennbreiðari hóp."
SV MBL
" r
sis i,
li l s rr r-
s fr fyrst
í t til irr r
sí st , sil
s t fyrir
ll s r y -
r
j f v l
r i ri ."
1/2
Sýnd kl 4 og 6. B.i. 12
Sýnd kl. 6. Tilboð 400 kr.
400
kr
Sýnd kl. 10. B.i. 14.Sýnd kl. 8.
Þetta var hin
fullkomna
brúðkaupsferð
... þangað til
hún byrjaði!
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 12
...Þetta er fyrsta stóra
hasarmynd sumarsins
2003 og gæti hæglega
endað sem ein sú besta ...
Kvikmyndir.com
... tt r fyr t t r
r y r i
ti l
i t ...
vik y ir.c
Kvikmyndir.is
X-men 2 er mynd
með boðskap, brellur
og brjálaðan hasar...
Hvað viltu meira?
- r
, r ll r
rj l r...
il ir
"X2 er æsispennandi, linnulaus
darraðardans frá fyrstu mínútu til
þeirrar síðustu, æsileg skemmtun
fyrir alla hasarmyndaunnendur og
jafnvel ennbreiðari hóp."
SV MBL
" r sis i, li l s
rr r s fr fyrst í t til
irr r sí st , sil s t
fyrir ll s r y r
j f v l r i ri ."
1/2
KVIKMYNDAHÓPURINN Bíó
Reykjavík stendur fyrir opnu bíói í
salarkynnum MÍR, Vatnsstíg 10a, í
kvöld kl. 19. Er þetta í 13. sinn sem
þess lags kvöld er haldið.
Opin bíó hafa ávallt verið haldin
fyrsta þriðjudag hvers mánaðar. Á
þeim getur hver sem er komið með
stuttmynd til sýninga, að því gefnu
að aðstandandi kynni myndina og
svari nokkrum spurningum frá
áhorfendum að sýningu lokinni.
Áhorfendur munu svo kjósa bestu
myndina og DJ Kári mun jafnframt
leika.
Hitað verður upp í kvöld fyrir vís-
indaskáldsögumaraþon sem haldið
verður næstu helgi á sama stað. Hin
sígilda King Kong frá 1933 verður
sýnd í því markmiði.
Aðgangur er að vanda ókeypis.
Morgunblaðið/Ásdís
Gio Sampogna er einn af driffjöðrum Bíós Reykjavíkur.
King Kong er kafloðinn.
Opið bíó
í 13. sinn
TENGLAR
.....................................................
www.bioreykjavik.com
BOTNLEÐJA er sigld hljómsveit.
Og það í orðsins fyllstu merkingu.
Ekki einasta er hún eldri en tvævetra
heldur hefur hún líka haldið í víking
með allgóðum árangri.
Icelandi National Park ber því
glöggt vitni. Hún
er plata sveitar
sem hefur marga
fjöruna sopið,
migið í saltan sæ
og kallar ekki allt
ömmu sína.
Hún er plata sveitar sem búin er að
skoða heiminn og komast í kast við
kynstrin öll af kræsingum en hefur
um leið áttað sig á að fjarlægðin geri
gjarnan fjöllin blá, að hlíðin sé fögur,
þrátt fyrir alla útþrána. Þótt það geti
verið svolítið háskalegt að draga of
miklar ályktanir þá leyfi mér að halda
að þeir hafi aldrei verið sáttari, Botn-
leðjudrengir, sáttari við sig, sveitina
og þá tónlist sem þeir eru að búa til.
Eftir skeið nokkurra ára þreifinga
virðast þeir búnir að gera upp við sig
hvernig þeir vilja sjá sveitina vaxa úr
grasi, í hvaða áttir þeir vilja sjá af-
kvæmi sitt þroskast. Og svo virðast
þeir einnig búnir að fókusa útþrána,
tekið þann réttmæta pól í hæðina að
hætta að stressa sig og hafa þetta
núna eins og alltaf stóð til í upphafi,
líf og fjör, eitthvað til að gamna sér
yfir með félögunum, um leið og sköp-
unargleðinni er svalað. Allavega er
það stærsti plúsinn við Iceland
National Park, að eftir fremur lúna,
stefnulitla og staðnaða síðustu plötu,
Douglas Dakota, þá hefur spilagleðin
og galsinn sem einkenndi sveitina í
árdaga hennar á ný tekið völdin.
Vissulega búa þessi 13 hressilegu og
hráu lög ekki yfir sömu dýpt og þau
sem prýddu þriðju plötuna Magnýl,
en það skiptir bara engu, því plöt-
urnar eru svart og hvítt, illsambæri-
legar.
Glímt við þjóðgarðinn
Ljósmynd/Brian Sweeney
Á Iceland National Park er að finna „hreinræktað Botnleðjurokk, al-
íslenskt og alveg ekta“, eins og segir í umsögn.
En þótt lögin á nýju plötunni séu
kröftug og hressileg þýðir það ekki
að þau séu eitthvað einföld eða ódýr.
Nei, ef eitthvað má greina meiri til-
raunamennsku nú en nokkru sinni
áður, rokkrödd Heiðars orðin all-
svakalega fjölskrúðug, fiktið við önn-
ur hljófæri en gítar, bassa og tromm-
ur er smekklegra en brasstilþrifin á
Dakota-plötunni, þreifingar eru
áframhaldandi með taktskipti – að-
alsmerki sveitarinnar frá upphafi –
og það sem mest er um vert þá eru
lögin fjölbreyttari en oftast áður.
Kunna sumir að líta á það sem mín-
us að galsafullir, smellnir en annars
fremur innihaldsrýrir textarnir skuli
sungnir á ensku. Vissulega hefði ver-
ið skemmtilegra að fá íslenska útgáfu
af svo íslenskri sveit, sérstaklega í
ljósi þess að þetta er um margt ís-
lenskasta plata sveitarinnar. Botn-
leðjurokkið hefur aldrei verið svo
greinilega getið í einhverjum íslensk-
um þjóðgarði og það er gaman að
leika sér að því að greina við hvaða
eldri þjóðgarðsverði drengirnir eru
að glíma. Platan – lagið „Isk A Day“
byrjar á ekta íslensku þjóðvegarokki
runnu undan rifjum S.H. Draums,
greina má svolítið Purk í „Country
and Western“ og öskurinnlegg Halla
trommara minnir ósjaldan á söngstíl
Óttarrs nokkurs Proppé og jafnvel
Einars Arnar á stundum. En alltaf er
þetta samt hreinræktað Botnleðju-
rokk, alíslenskt og alveg ekta.
Helsti veikleiki annars alveg stór-
skemmtilegrar plötu er að þótt nær
öll lögin – utan flipplagsins „Wife
Check“ sem fellur ekki í frjóan svörð
undirritaðs – hafi eitthvað við sig, ein-
hvern brodd sem stingur fastar við
hverja hlustun, þá er eins og herslu-
muninn vanti upp á snilldina. Næst
komast þeir í þremur lögum; áður-
nefndu upphafslagi, hinu Interpol-
skotna „Lay Your Body Down“ og
lokalaginu, hinu undurblíða og ofur-
einfalda „Hotspot“, sem í sinni smit-
andi sveitasveiflu, með aðstoð félaga
úr kór Flensborgarskóla, kemst
kannski alveg óvart næst snilldinni,
snilldinni sem þeir þjóðgarðsverðir í
Botnleðju hafa sannarlega í sér.
Botnleðja
Iceland National Park
Trust Me Records
Hljómplata hljómsveitarinnar Botnleðju
sem heitir Iceland National Park. Sveit-
ina skipa Heiðar, Raggi og Halli. Upp-
tökur fóru fram í The Rvk Lighthouse
hljómverinu í Genf í Sviss og Stúdíó Sýr-
landi. Upptökum stjórnaði S Mellah. Gef-
ið út af bandarísku útgáfunni Trust Me
Records.
Skarphéðinn Guðmundsson
Morgunblaðið/Jim Smart
Eitt verkanna á sýningunni þar sem
leikið er með skugga.ÞAU Pétur Magnússon og Guðrún
Hrönn Ragnarsdóttir opnuðu á
laugardag sýningu í Galleríi
Skugga. Sýningin er tvískipt. Ann-
ars vegar er Guðrún Hrönn með
innsetningu í forsal gallerísins þar
sem hún beitir gluggatjöldum og
lakki til að umbreyta veggjum og
gluggum salarins. Hins vegar sýn-
Leikið með skugga í ljósmyndum og innsetningu í Galleríi Skugga
Ljósmyndir og nælon
Eggert Páll Ólason, Hjördís Óskarsdóttir og Nils Kjartan Guðmundsson
komu á opnunina, skimuðu um salarkynnin og mændu á myndirnar.
ir Pétur verk sín sem gerð eru
meðal annars úr ljósmyndum og
skornum stálplötum. Í verkum
Péturs er ljósmynd af fleti skyggð
með ljósmyndunarbrellum og með
samtvinnun með stálplötur náð
fram þrívíðum sjónhrifum.
Pétur hefur starfað í Hollandi í
hartnær tvo áratugi en er nú snú-
inn aftur til Íslands, en Guðrún
býr og starfar í Helsinki í Finn-
landi.
Sýningin stendur til 18. maí og er op-
in þriðjudaga til sunnudaga frá 13 til
17. Aðgangur er ókeypis.