Morgunblaðið - 08.05.2003, Side 1
STOFNAÐ 1913 123. TBL. 91. ÁRG. FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Dansflokk-
urinn ljómar
Nýtt verk í tilefni af 30 ára
afmælisveislu Listir 34
Atvinna í
einn dag
Nemar í MS styrkja skólastarf í
Kambódíu Höfuðborg 18
Mikill
happafengur
Guðni Bergsson heiðraður með
viðhöfn í Bolton Íþróttir 67
Velferð
BIRGIR Ísleifur Gunnarsson
seðlabankastjóri segir að hátt
gengi íslensku krónunnar skýrist
fyrst og fremst af væntingum um
mikið innstreymi gjaldeyris í
tengslum við stóriðjuframkvæmd-
ir. Seðlabankinn hafi engin ráð til
að bregðast við þessari þróun.
Gengi krónunnar hefur ekki ver-
ið hærra síðan í nóvember árið
2000. Samhliða styrkingu krónunn-
ar hefur dollari veikst gagnvart
evru. Gengi dollara er nú 73,5 krón-
ur og hefur ekki verið lægra síðan í
lok apríl 2000.
Talsverð spákaupmennska
„Gengi krónunnar ræðst á mark-
aðnum af framboði og eftirspurn.
Menn sjá fyrir sér að það komi
mikill gjaldeyrir inn í landið í
tengslum við þessar framkvæmdir,
bæði beinar erlendar fjárfestingar
og erlent lánsfé vegna virkjana-
framkvæmda,“ segir Birgir. Nú
kaupi menn krónur fyrir erlenda
gjaldmiðla og veðja á að gengið
muni hækka. „Og í því er þessi spá-
kaupmennska fólgin sem við sjáum
að er töluvert í gangi núna,“ segir
Birgir Ísleifur.
Þetta álit sitt byggir Birgir Ís-
leifur á samtölum starfsmanna
Seðlabankans við aðila á gjaldeyr-
ismarkaði, aðrar upplýsingar liggja
ekki fyrir. „Þetta er sú tilfinning
sem við höfum. Þannig að það er
fyrst og fremst þetta sem menn
veðja á núna en ekki vaxtamunur-
inn milli Íslands og annarra landa.“
Húsbréfakaup erlendra aðila skipti
ekki máli í þessu samhengi enda
séu þau viðskipti án gengisáhættu.
Aðspurður segir hann að Seðla-
bankinn geti haft mjög lítil áhrif á
þessa framvindu. „Við teljum að við
búum ekki yfir neinum ráðum sem
geta snúið þessari þróun við,“ segir
Birgir Ísleifur Gunnarsson.
Greiningardeild Íslandsbanka
spáir því að krónan muni enn
styrkjast á næstunni. Framvindan
markist þó að verulegu leyti af nið-
urstöðum alþingiskosninganna.
Greiningardeild Kaupþings segir
að margir telji krónuna of sterka
og að samkeppnisstaða innlendra
fyrirtækja sé orðin verulega slæm.
Það sé þó erfitt að fullyrða um
hvort raungengið sé of sterkt að
mati greiningardeildar Kaupþings.
Seðlabankastjóri um hæsta gengi krónunnar frá nóvember 2000
Væntingar vegna stór-
iðju skýra hátt gengi
Sterkasta króna/B1
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin,
WHO, varaði í gær við kólerufaraldri
í Suður-Írak og fleiri sjúkdómum
sem geta breiðst út með skolpmeng-
uðu vatni.
„Við búumst við kólerufaraldri í
sunnanverðu landinu og óttumst að
hundruð tilfella komi upp,“ sagði
talsmaður stofnunarinnar, Fadila
Shaib. Vitað er um sautján kólerutil-
felli í tveimur sjúkrahúsum en Denis
Coulombier, faraldurssérfræðingur
WHO, telur að tíu sinnum fleiri hafi
þegar veikst af sjúkdómnum.
Talsmaður stofnunarinnar sagði
að sjúkdómurinn hefði komið upp
vegna skolpmengaðs vatns og sorps
sem hlaðist hefði upp í borginni
Basra þar sem sorphreinsun hefði
legið niðri frá því að stríðið í Írak
hófst. Sjúkrahúsin væru illa í stakk
búin að takast á við slík vandamál nú
þar sem þau hefðu þurft að einbeita
sér að aðhlynningu fólks sem særðist
í stríðinu.
Reuters
Kona heldur á barni sínu, sem þjáist af alvarlegri vessaþurrð, á sjúkrahúsi í borginni Basra í Suður-Írak.
Óttast kól-
erufaraldur
í S-Írak
Basra. AFP.
DÆMI eru um að börn, allt niður í
ellefu ára, hafi hringt í nýja neyð-
arlínu fyrir spilafíkla í Noregi, að
því er fram kom á fréttavef norska
dagblaðsins Aftenposten í gær.
Nokkur barnanna segjast hafa eytt
andvirði 40.000–50.000 íslenskra
króna á mánuði í spilakassa.
Neyðarlínan var opnuð fyrir viku
og að jafnaði eru samtölin um 20–
30 á dag. Flestir þeirra sem hringja
eru fullorðnir karlmenn en mörg
dæmi eru um að börn undir þrettán
ára aldri notfæri sér símaþjón-
ustuna, að sögn fréttavefjarins.
3,2% haldin spilafíkn
„Þau lýsa angist sinni og þung-
lyndi og segjast alltaf vera blönk,“
sagði Thore Paulsen, sem hefur
umsjón með símaþjónustunni. „Þau
einangrast vegna spilafíknarinnar
og hringja í laumi til að foreldr-
arnir komist ekki að þessu.“
Atle Hamar, framkvæmdastjóri
eftirlitsstofnunar sem stendur fyrir
símaþjónustunni, segir að rann-
sóknir hafi leitt í ljós að 3,2% Norð-
manna á aldrinum 11–19 ára séu
haldin spilafíkn.
Ellefu ára börn í Noregi leita
hjálpar vegna spilafíknar
BIRT var í gær opið bréf frá meirihluta
fulltrúanna á þingi Írans þar sem hvatt var
til þess að samskiptum landsins við önnur
ríki yrði komið í eðlilegt horf og komið á
umbótum til að bægja frá „erlendri ógn“.
153 þingmenn af 290 undirrituðu bréfið
og var þar varað við því að ástandið í land-
inu væri svo slæmt að hætta væri á „hörm-
ungum sem engir vilja“. „Flestir Íranar
bíða eftir umbótum en hafa komist að
þeirri niðurstöðu að atkvæði þeirra séu til-
gangslaus,“ sagði í bréfinu og skírskotað
var til lítillar kjörsóknar í sveitarstjórn-
arkosningum í febrúar.
„Hættan komin að
landamærum okkar“
Þingmennirnir bentu ennfremur á að
„íraska þjóðin stóð aðgerðalaus hjá þegar
land hennar var hernumið“ og sögðu það
til marks um að gjá hefði myndast milli
þjóðarinnar og ráðamannanna. „Eftir
hernaðinn í Afganistan og hernám Íraks er
hættan komin að landamærum okkar,“
skrifuðu þingmennirnir og bættu við að
nauðsynlegt væri að „brúa bilið milli þjóð-
arinnar og ráðamannanna“. „Til að hægt
verði að bægja frá erlendri ógn þarf þjóðin
að styðja ráðamennina.“
Þingmennirnir sögðu að til að leysa
vandann þyrftu Íranar að koma á umbót-
um heima fyrir og færa samskiptin við
önnur ríki í eðlilegt horf. Þeir skírskotuðu
einkum til Bandaríkjanna, sem rufu
tengslin við Íran eftir íslömsku byltinguna
1979.
Þingmenn
í Íran vara
við „er-
lendri ógn“
Teheran. AFP.
ÞÓTT Mongólía sé landlukt geta nú
skipafélög skráð skip sín þar í landi
og látið þau sigla um höfin undir
mongólskum hentifána.
Stjórnvöld í Mongólíu hafa boðið
skipafélögum mikla afslætti skrái
þau skip sín í landinu og um 20 rúss-
nesk flutningaskip hafa þegar sótt
um skráningu, að sögn samtaka rúss-
neskra farmanna. Mongólar hafa
komið sér upp skráningarskrifstofu í
Singapúr og vonast til þess að hún
verði drjúg gjaldeyristekjulind.
Landlukt
hentifánaríki
Vladivostok. AFP.