Morgunblaðið - 08.05.2003, Síða 13

Morgunblaðið - 08.05.2003, Síða 13
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2003 13 MILLJÓNIR kínverskra farand- verkamanna hafa virt að vettugi við- varanir stjórnvalda við því að snúa aftur til síns heima frá svæðum þar sem heilkenna alvarlegrar og bráðr- ar lungnabólgu (HABL) hefur orðið vart. Þetta kom fram í máli Wens Jiabaos forsætisráðherra í gær, og sagði hann að hætta væri á alvar- legum HABL-faraldri í dreifbýlinu í Kína. Rúmlega 800.000 farandverka- menn hafa á undanförnum vikum haldið heimleiðis til miðhluta Henan- héraðs, sem er eitt fjölmennasta svæði landsins, og um ein milljón hefur snúið til síns heima í nágranna- héraðinu Anhui, að því er embætt- ismenn og fjölmiðlar hafa greint frá. Á símafundi með æðstu embætt- ismönnum allra héraða landsins á þriðjudaginn sagði Wen að Kínverj- ar stæðu frammi fyrir erfiðu verk- efni við að hefta útbreiðslu HABL í dreifbýlinu. Það væri lykilatriðið í að ná tökum á faraldrinum í landinu. Wen ítrekaði, að því er virðist án ár- angurs, hvatningu sína til farand- verkafólks um að snúa ekki til heimahéraða sinna. „Mjög erfitt hefur reynst að koma þeim skilaboðum til farandverka- fólks á svæðum sem faraldurinn hef- ur náð til að það snúi ekki heim,“ sagði í frétt Kínversku fréttastof- unnar, er greindi frá tilraunum yf- irvalda í Henan til að hafa hemil á farandverkafólkinu. „Ástandið í HABL-sóttvörnum hvarvetna í Henan er mjög alvar- legt,“ sagði í fréttinni. Talið er að um 75 af hundraði þeirra 290.000 farandverkamanna sem héldu heimleiðis til Henan dag- ana 1. til 4. maí hafi komið frá svæð- um sem faraldurinn hefur náð til. Íbúar Henan eru um 91 milljón, svo að segja allt í dreifbýli, þar af um fimm milljónir farandverkafólks sem farið hefur til þéttbýlisstaða í leit að betra viðurværi. Margir þeirra hafa þó misst vinnu sína, s.s. fólk sem unnið hefur á veitingahúsum og hót- elum þar sem viðskipti hafa minnkað vegna faraldursins. Svipaða sögu er að segja frá ná- grannahéraðinu Anhui, þar sem íbú- ar eru um 63 milljónir, þ.á m. um fimm milljónir farandverkamanna. Enn sem komið er hefur einungis verið greint frá 15 HABL-tilfellum og 15 meintum, og í Anhui voru stað- fest tilfelli í gær orðin níu og meint ellefu. Dánartíðnin sögð hærri Um það bil helmingur þeirra sem fá sjúkdóminn og orðnir eru sextugir deyja að öllum líkindum af völdum hans, samkvæmt niðurstöðum um- fangsmestu faraldurfræðirannsókn- ar sem hingað til hefur verið gerð á sjúkdómnum. Niðurstöðurnar voru birtar síð- degis á þriðjudaginn á vefsíðu breska læknaritsins The Lancet, og eru byggðar á 1.425 tilfellum HABL í Hong Kong til 28. apríl. Dánartíðni sjúklinga eldri en 60 ára er voru lagðir á spítala var á bilinu 43,3% til 55%. Til samanburðar er dánartíðni þeirra sem veikjast og eru innan við sextugt einungis 6,8–13,2%. Einn höfunda rannsóknarinnar, Christl Donnely, prófessor í smit- sjúkdómafaraldursfræði við Imper- ial College í London, sagði að dán- artíðnin af völdum HABL væri „hærri en hingað til hefur verið tal- ið“. Á vefsíðum Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunarinnar (WHO) og Sótt- varnamiðstöðvar Bandaríkjanna (CDC) er tíðnin sögð vera um á bilinu fimm til sex af hundraði. Óttast mikla útbreiðslu HABL í dreifbýli í Kína Dánartíðni eldri sjúklinga hærri en talið hafði verið Peking, París. AFP. TALSMAÐUR Alþjóðakjarn- orkumálastofnunarinnar, IAEA, í Vín, Melissa Fleming, segir að stofnunin hafi áhyggjur af því að geislavirkum efnum á íröskum kjarnorkurannsóknarstöðvum verði stolið. Hún sagði í gær að í þekktustu stöðinni, al-Tuwaitha, sunnan við Bagdad, hefðu þjófar látið greipar sópa. Íbúarnir kvarta undan því að hernámslið Bandaríkjamanna hafi ekki tryggt öryggi staðarins. Fleming sagði að þar og víða annars staðar í Írak væru efni sem hægt væri að nota í svo- nefndar geislasprengjur en þá er hefðbundið sprengiefni notað til að dreifa geislavirku efni yfir stórt svæði og gera það óbyggi- legt um langt skeið. Hún sagði að umræddir staðir væru um eitt þúsund og hefðu Bandaríkjamenn fengið lista yfir þá. Í sumum tilvikum væri um að ræða efni sem notuð væru í tæki á sjúkrahúsum en bætti við að IAEA hefði ekki upplýsingar um að slíkum efnum hefði þegar ver- ið stolið. Vitað væri að í al-Tuw- aitha væru „nokkur tonn af nátt- úrulegu úrani“ en það væri hins vegar ekki nothæft í geisla- sprengjur sem einnig eru nefndar „skítugar sprengjur“. Vopnaeft- irlitsmenn IAEA hefðu á hinn bóginn gert upptækt eða látið eyða svonefndu auðguðu úrani áður en þeir voru reknir frá Írak 1998 en slíkt úran er notað í kjarnorkusprengjur. IAEA vill að alþjóðlegum eft- irlitsmönnum stofnunarinnar verði aftur hleypt inn í landið til að fylgjast með umræddum stöð- um. En Richard Boucher, tals- maður utanríkisráðuneytisins í Washington, sagði á mánudag að Bandaríkjamenn hefðu ekki enn ákveðið hvort þeir samþykktu til- mælin. Annar talsmaður IAEA, Mark Gwozdecky, sagði í vikunni að Mohamed ElBaradei, yfirmað- ur IAEA, hefði í lok apríl sent Bandaríkjastjórn bréf þar sem hann hvatti hana til að leyfa fulltrúum stofnunarinnar að fara og kanna aðstæður í al-Tuwaitha vegna „ískyggilegra frétta“ af því að ræningjar hefðu stolið þar ýmsum búnaði. „Við teljum ekki endilega að hætta sé á að kjarnorkuvopn lendi í röngum höndum en frem- ur að heilsu fólks og öryggi geti verið stefnt í hættu og umhverfið gæti mengast,“ sagði Gwozdecky. Bandarísk dagblöð sögðu á sunnudag að eftirlitsmenn á veg- um varnarmálaráðuneytisins, Pentagon, hefðu skoðað aðstæður í al-Tuwaitha. Niðurstaðan hefði verið að svo miklu væri búið að stela á staðnum að útilokað væri að segja nokkuð um það hvort geislavirkum efnum hefði verið stolið. Íbúar dauðhræddir við ræningjana Íbúar í al-Tuwaitha segjast vera dauðhræddir við ræningjana og framferði þeirra. „Hvers vegna leyfðu Bandaríkjamenn þessum mönnum að fara hingað?“ spurði Bilal Abdallah, rúmlega þrítugur karlmaður sem starfaði við rannsóknastöðina. Hópar ungra drengja reikuðu um svæð- ið, grófu upp slöngur, járnplötur og rafmótora. Aldraður fjárhirðir var með fé sitt rétt við haug þar sem ljóst var að nýlega hafði eitthvað verið grafið. Bandarískur hermaður, sem átti leið fram hjá í bíl sínum stansaði til að vísa fjárhirðinum burt. Íraskur bílstjóri sagði að þrír menn hefði dáið fyrir skömmu í al-Tuwaitha eftir að hafa fengið í sig eitur úr einhverju sem stolið var úr stöðinni. Borgarbúar sögðu að fáir hefðu gert sér grein fyrir hættunni enda leynd ríkt um það sem fram fór í stöðinni. „Sérfræðingur kom og sagði okkur að það væri mjög hættulegt að taka nokkuð á staðnum. Hún sagði að fólk hefði stolið gámum með [varasömum] efnum og einnig verið að grafa á stað með geislavirkum úrgangi,“ sagði íbúi sem ekki þorði að gefa upp nafn sitt. Hann sagðist halda að konan hefði verið Rihab Taha, sýklavopnasérfræðingur sem uppnefnd var „Doktor Sýkill“. Komust íraskir ræningjar yfir geislavirk efni? Alþjóðakjarnorkumálastofnunin varar við hættunni á að stolin efni verði notuð í geislasprengjur Reuters Liðsmenn vopnaleitarsveitar Bandaríkjahers skoða íraskan tengivagn sem grunur leikur á að hafi verið notaður sem færanleg efnavopnaverk- smiðja. Bandaríska hernámsliðið hefur sætt gagnrýni fyrir að aðhafast lítið til að gæta kjarnorkurannsóknarstöðva í Írak. Vín, al-Tuwaitha í Írak. AFP ÁSTRALSKA dagblaðið The Sydney Morning Herald hefur fengið í hendurnar segulband sem sagt er innihalda ávarp frá Sadd- am Hussein, fyrrverandi Íraks- forseta. Í ávarpinu hvetur Saddam Íraka til uppreisnar gegn her- sveitum Bandaríkjamanna sem nú eru í landinu. Greint var frá því í The Sydney Morning Herald í gær að tveir menn hafi afhent blaðamanni blaðsins í Bagdad segulbandið sl. mánudag eftir að þeir gáfust upp á tilraunum til að koma því í hend- ur fréttamanna arabísku sjón- varpsstöðvanna al-Jazeera eða al- Arabiya. Héldu mennirnir því fram að ávarpið hefði verið tekið upp á band þann sama dag. Ávarpið er fimmtán mínútna langt. Þar hvetur rödd, sem eign- uð er Saddam, alla Íraka til að sameinast í skæruhernaði gegn Bandaríkjaher. „Með þessum leynilega hætti tala ég til ykkar frá hinu stórkostlega Írak og ég segi við ykkur að höfuðverkefni ykkar, araba sem Kúrda, sjíta sem súnníta, múslima sem kristinna manna – allrar írösku þjóðarinnar, úr hvaða trúdeild sem menn koma – er að sparka óvininum úr landi okkar,“ segir Saddam. Forsvarsmenn ástralska dag- blaðsins sögðust ætla að afhenda Bandaríkjamönnum segulbandið svo rannsaka mætti það frekar. Sagði Ari Fleischer, talsmaður Bandaríkjaforseta, seinna um dag- inn að segulbandið yrði rannsakað ítarlega. Ítrekaði hann að Banda- ríkjastjórn vissi einfaldlega ekki hvort Saddam væri lífs eða liðinn. Telja Saddam hér á ferðinni Í frétt The Sydney Morning Herald sagði að svo virðist sem ávarpið væri nýlegt, enda er þar m.a. vísað til afmælis Saddams, sem var 28. apríl sl. Þá er fullyrt í blaðinu að þrettán Írakar, þ.á m. gamall kunningi Saddams, hafi talið að um rödd forsetans fyrr- verandi væri að ræða, þegar ávarpið var spilað fyrir þá. Ræðu- maður noti svipuð orð og Saddam hafi gert og að röddin líkist hans mjög eindregið. Saddam Hussein Hvetur til uppreisnar í nýrri hljóð- upptöku Sydney, Washington. AFP. er Saddam. Ekki var ljóst hvort Ubaydi hefði gefið sig fram eða handsamaður af hermönnum banda- manna í Írak. Alls 20 af 55-manna- listanum fundnir Reynist það rétt sem bandaríska dagblaðið The Washington Post hef- ur sagt að Mizban Khidir Hadi, fyrr- BANDARÍKJAMENN hafa nú í haldi Írakann Ghazi Hammud al- Ubaydi, sem var einn af æðstu mönnum Baath-flokks Saddams Husseins og yfirmaður vopnaðra sveita í Wasit-héraði þar sem helsta borgin er al-Kut. Ubaydi var númer 32 á lista yfir 55 ráðamenn sem bandamenn leggja mesta áherslu á að klófesta en efstur verandi félagi í byltingarráði Íraks, sé einnig í haldi er búið að handsama 20 af mönnunum 55. Sé Ali Hasan Majid, sem var einn æðsti ráðgjafi Saddams forseta og kallaður „efnavopna-Ali“, látinn eins og bandamenn telja, er heildartalan yfir menn af 55-manna-listanum, sem ekki þarf lengur að leita, komin í 21. Háttsettur Íraki handtekinn Bagdad. AFP.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.