Morgunblaðið - 08.05.2003, Page 24
SUÐURNES
24 FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ á að skýrast um næstu mánaðamót hvort haldið
verður áfram vinnu við sameiningu Hitaveitu Suð-
urnesja, Selfossveitna og þriggja hitaveitna á Suður-
landi. Þá verður gengið frá viljayfirlýsingu um sam-
einingu, ef þær athuganir sem fyrirtækin vinna nú
að hvert fyrir sig, leiða til þess að þau vilja samein-
ast.
Forsvarsmenn Hitaveitu Suðurnesja hf., Selfos-
sveitna, Hitaveitu Hveragerðis, Hitaveitu Flúða og
Hitaveitu Rangæinga hafa rætt saman í vetur um
möguleika á sameiningu. Júlíus Jónsson, forstjóri
Hitaveitu Suðurnesja, segir að með sameiningu
skapist möguleikar til hagræðingar og betri reksturs
auk þess sem ný sóknarfæri geti skapast.
Næsta skref í málinu er að ganga frá formlegri
viljayfirlýsingu um sameiningu og hefja vinnu við
mat á skiptahlutföllum eigenda í nýju fyrirtæki. Júl-
íus segir að fyrirtækin séu að fara yfir sín mál, til að
athuga hvort vilji sé að stíga þetta skref. Segir hann
stefnt að niðurstöðu um næstu mánaðamót.
Vilja Rarik með
Júlíus segir að áhugi sé á að nýtt fyrirtæki taki yf-
ir starfsemi Rafmagnsveitna ríkisins á Suðurlandi.
Núverandi iðnaðarráðherra hafnaði þeirri hugmynd
þegar viðræður fóru fram um sameiningu Selfoss-
veitna, Bæjarveitna Vestmannaeyja og Hitaveitu
Suðurnesja á sínum tíma. Júlíus segir að málið verði
tekið upp við nýja ríkisstjórn og vonast til að erindið
verði tekið til jákvæðrar umfjöllunar.
Sameining orkufyrirtækja á Suðurnesjum og Suðurlandi
Stefnt að niðurstöðu
í lok mánaðarins
Morgunblaðið/RAX
Suðurnes/Suðurland
UNNIÐ er að breytingum á deili-
skipulagi iðnaðar- og hafnasvæð-
isins við Helguvík. Atvinnu- og
hafnarráð hefur samþykkt drög að
skipulagi sem Guðmundur Jóns-
son, arkitekt í Noregi, gerði.
Pétur Jóhannsson hafnarstjóri
segir að iðnaðarsvæðið við Helgu-
vík hafi verið stækkað mikið og því
hafi verið þörf á breytingum á
deiliskipulagi. Iðnaðarsvæðið er nú
55 hektarar að stærð og nær alveg
að Garðvegi.
Segir Pétur að í þeim tillögum
sem nú er verið að vinna að séu
nýjar hugmyndir um aðgreiningu
þjónustuumferðar og almennrar
umferðar að húsum á svæðinu.
Þannig muni gámaflutningar frá
höfninni ekki fara um sömu vegi
og viðskiptavinir fyrirtækjanna.
Segir hann að þessi hugmynd hafi
mælst vel fyrir.
Nú er verið að sprengja og
flytja í burtu grjót af lóð fyrirhug-
aðrar stálröraverksmiðju við höfn-
ina.
Grjótið er notað í sjóvarnir en
fínefnið er meðal annars notað til
að grjófjafna lóðir á iðnaðarsvæð-
inu við Helguvík. Segir Pétur að
lóðir á öllu svæðinu verði gerðar
tilbúnar til úthlutunar með veg-
tengingum.
Vonast hann til að það geri lóð-
irnar ódýrari og áhugaverðari fyr-
ir fyrirtæki sem eru að leita sér að
samastað.
Fjöldi lóða gerður
byggingarhæfur
Helguvík
LEIKSKÓLINN við Krók í Grinda-
vík hafði opið hús á dögunum til
að kynna starfsemi sína. Fjöldinn
allur af fólki lagði leið sína í leik-
skólann sem er einkarekinn leik-
skóli fyrir 100 heilsdagspláss.
Í dag nýtist leikskólinn 80% og
því auðvelt að fá leikskólapláss í
Grindavík.
Yngstu börnin eru 18 mánaða
en þau elstu, eins og annars stað-
ar, orðin sex ára eða verða það á
árinu.
Boðið er upp á sveigjanlegan
vistunartíma frá 4 til 9 stundum
en auk þess er hægt að kaupa
„opnun“ og „lokun“, sem eru 15
mínútur til viðbótar. Hulda Jó-
hannsdóttir er leikskólastjóri og
hefur verið frá opnun skólans 5.
febrúar 2001.
„Já það er stórkostlegt að fá að
móta leikskólastarfið frá byrjun.
Leikurinn er aðalnámsleið leik-
skólans og leggjum við ríka
áherslu á frjálsa leikinn. Við höf-
um einnig hug á að sækja um að
verða heilsuleikskóli og erum að
skipuleggja það þessa dagana. Að-
almarkmið heilsustefnunnar er að
auka gleði og vellíðan barnanna
með áherslu á hreyfingu, næringu
og listsköpun í leik og starfi. Við
segjum að ef barnið fær næga
hreyfingu og góða næringu þá
sprettur fram listsköpunarþörf.
Húsnæði og aðstaða leikskólans,
bæði fyrir börn og starfsfólk, er
eins og það gerist best og gefur
marga möguleika.
Hér er svokallað miðjurými,
sem við erum duglegar að nýta, og
einnig matsalur, þannig að mikið
leikrými er á deildum. Við erum
stoltar af þessari sýningu og þeir
sem hafa heimsótt okkur í dag eru
fróðari um leikskólastarfið og
leikskólann,“ sagði Hulda.
Það er óhætt að segja að þetta
opna hús hafi tekist vel og þeir
sem fréttaritari heyrði í voru
virkilega ánægðir. Sennilega eru
orð eins gestanna best til að lýsa
aðstöðunni og andrúmsloftinu:
„Þið getið verið ánægð með hve
vel hefur tekist til að gera skólann
að hlýlegri menntastofnun, ég gef
ykkur tíu í einkunn.“
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Nokkrir áhugasamir gestir við hrísgrjónavélina ásamt Huldu Jóhannsdóttur leikskólastjóra. Starfsemin var kynnt
á opnu húsi á dögunum.
Vilja gera Krók
að heilsuleikskóla
Grindavík
TVÆR góðar, málverk eftir Guðrúnu
J. Karlsdóttur, er ný mynd mánaðar-
ins í Kjarna, Hafnargötu 57 í Kefla-
vík.
Mynd mánaðarins er kynning á
myndlistarmönnum í Félagi mynd-
listarmanna í Reykjanesbæ á vegum
Listasafns Reykjanesbæjar. Mynd
mánaðarins er í Kjarna út maímánuð.
Guðrún J. Karlsdóttir fæddist í
Vestmannaeyjum 7. september 1951.
Hún bjó í Hafnarfirði öll sín skólaár
en flutti til Reykjanesbæjar árið 1970
og hefur búið þar síðan. Guðrún fékk
snemma áhuga á myndlist, segir í til-
kynningu frá menningarfulltrúa
Reykjanesbæjar, og fyrstu skrefin á
myndlistarbrautinni tók hún undir
handleiðslu Bjarna Jónssonar í
Flensborg í Hafnarfirði. Hún hefur
stundað myndlistarnámskeið á veg-
um Baðstofunnar í áratugi og er nú
formaður félagsins.
Guðrún hefur haldið þrjár einka-
sýningar, síðast í Betri stofunni í Bú-
stoð í september árið 2002. Hún hef-
ur einnig tekið þátt í mörgum
samsýningum í Reykjanesbæ á veg-
um Baðstofunnar. Guðrún sýnir
þessa dagana verk sín í skrifstofu-
húsnæði Hitaveitu Suðurnesja á
Brekkustíg 36 í Njarðvík og er sýn-
ingin opin virka daga frá klukkan 10
til 16.
Guðrún við myndina sem sett hefur verið upp í Kjarna.
Tvær góðar er
mynd mánaðarins
Reykjanesbær