Morgunblaðið - 08.05.2003, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 08.05.2003, Blaðsíða 26
LANGÞRÁÐ sundlaug við Framhaldsskólann á Laugum í Þingeyjarsveit er nú að verða að veruleika því að fyrir skömmu undirrituðu þeir Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra og Jó- hann Guðni Reynisson sveitarstjóri samning um byggingu sundlaugar í tengslum við íþróttahús skólans. Sundlaugin verður við suðurhlið íþrótta- hússins og verður hún 25 metra löng. Það var Arkitektastofan Form ehf. á Akureyri sem annaðist teikningar af mannvirkinu og búast má við að byggingarkostnaður verði um 110 milljónir kr. Þar greiðir ríkissjóður 60% af kostnaðarverði og sveitarfélagið 40% sem mun auk þess sjá um umsjón og rekstur laugarinnar til framtíðar. Gamla innisundlaugin á Laugum, sú elsta sinnar tegundar á landinu, var byggð 1925 og hefur gegnt mikilvægu hlutverki í nærfellt áttatíu ár en er úr sér gengin fyrir löngu. Í mörg ár hefur verið unnið að því að koma upp nýju nútímalegra sundlaugarmannvirki en málið hefur gengið mjög hægt fram að þessu og því var það sérstakt fagnaðarefni heimamanna að fá menntamálaráðherra í heimsókn til þess að skrifa undir samninginn og sjá þar með fram á að sundlaugin væri að verða að veruleika. Í tilefni dagsins voru flutt ávörp í íþróttahúsinu þar sem undirritunin fór fram og að því loknu var gestum boðið upp á veislukaffi. Sundlaug á Laugum Morgunblaðið/Atli Vigfússon Frá undirritun samningsins í íþróttahúsinu á Laugum, f.v. Valgerður Gunnarsdóttir skóla- meistari, Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra, Jóhann Guðni Reynisson sveitarstjóri og Unnsteinn Ingason, formaður byggingarnefndar sundlaugarinnar. Laxamýri LANDIÐ 26 FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ TUTTUGU og tveir danskir ung- lingar frá Vallekilde-Hövre Fri- skole voru í heimsókn í Borgarnesi nýlega. Ásamt þeim voru tveir kennarar, foreldrafulltrúi og leið- sögumaður. Hópurinn var í boði 9. bekkjar Grunnskóla Borgarness en Vallekilde-Hövre er vinabær Borg- arness í Danmörku. Dönsku gest- irnir dvöldu á einkaheimilum auk þess að njóta aðstöðu í Grunnskól- anum. Heimsóknin stóð í tæpa viku. Nemendur 9. bekkjar tók þátt í dagskrá með gestunum sem var fjölbreytt og samanstóð af kynn- isferðum og samverustundum. End- að var á kveðjuhófi í boði Borg- arbyggðar sem haldið var á Hótel Borgarnesi fyrir gestina og gest- gjafana. Danir sóttu Borg- nesinga heim Borgarnes Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir Sameiginleg kvöldmáltíð íslenskra og danskra unglinga í Borgarnesi. HIN árlega héraðsvaka Rangæinga var hald- in að Laugalandi í Holtum á laugardaginn var. Áætlað er að nálægt þrjú hundruð gestir hafi sótt vökuna enda fjöldi áhugaverðra dagskrárliða. Hátíðardagskrá héraðsvökunnar var til- einkuð Guðmundi Guðmundssyni skólaskáldi sem fæddist í Hrólfsstaðahelli í Landsveit. Að sögn Jóns Þórðarsonar, formanns hér- aðsvökunefndar, var markmiðið einkum það að viðhalda þekkingu fólks á þessu stór- skáldi. Séra Halldóra J. Þorvarðardóttir, prófastur í Fellsmúla, flutti æviágrip hans, barnakór undir stjórn Nínu Maríu Morávek og einsöngvarar fluttu lög við ljóð Guð- mundar við undirleik Halldórs Óskarssonar. Börn úr Þykkvabæjarskóla lásu einnig nokk- ur ljóða hans. Fyrir hönd Rótarýklúbbs Rangæinga veitti Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri viðurkenningu. Hana hlaut Glerverksmiðjan Samverk ehf. á Hellu fyrir framúrskarandi árangur á liðnum þrjátíu árum, brautryðj- endastarf, þrautseigju og framsýni. Við við- urkenningunni, sem er málverk eftir Jónda í Lambey, tók Ragnar Pálsson, fram- kvæmdastjóri Samverks, en faðir hans, Páll G. Björnsson, gegndi því starfi nánast frá stofnun 1969 til ársins 1995. Íþróttamaður Rangæinga var einnig til- nefndur og hlaut þann titil hestamaðurinn Sigurður Sæmundsson í Holtsmúla. Vann hann til margra verðlauna á síðasta ári og er hann fyrirliði landsliðs Íslands í hesta- íþróttum. Meðal annarra dagskrárliða var glæsileg sýning bútasaumsverka eftir nokkrar konur í héraðinu. Mikla athygli vakti einnig sýning gamalla ljósmynda eftir Helga Hannesson kaupfélagsstjóra sem teknar voru í Rang- árþingi á árunum 1930 til 1950. Ýmislegt fleira var á dagskrá héraðsvök- unnar en að henni lokinni var gestum boðið upp á glæsilegar veitingar. Morgunblaðið/Anna Ólafsdóttir Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri veitti Glerverksmiðjunni Samverki ehf. viðurkenningu fyrir hönd Rótaryklúbbs Rangæinga. Ragnar Pálsson framkvæmdastjóri tók við viðurkenn- ingunni. Hjá honum stendur eiginkona hans, Guðrún D. Ragnarsdóttir, og hjónin Erla Emils- dóttir og Páll G. Björnsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Fjöldi gesta á héraðsvöku Rangæinga Hella ÞAÐ var fjölmenni á Hrafnkelsstöðum I þegar hjónin Jóhanna Bríet Ingólfsdóttir og Haraldur Sveinsson bændur tóku á móti fjölda gesta í hesthúsi sínu í tilefni þess að tamningastöðin hefur verið rekin í fjörtíu vetur samfellt. Meðal gesta var landbúnaðarráðherra Guðni Ágústs- son sem flutti ávarp og árnaði heilla. Hið sama gerði fyrrverandi hrossaræktarráðunautur Þor- kell Bjarnason. Karlakór Hreppamanna söng nokkur lög undir stjórn Edit Molnár. Nokkur hross sem eru í tamningu voru sýnd í reið en auk hjónanna brugðu fyrverandi tamningarmenn hjá þeim sér á hestbak og tóku þátt í sýningunni. Nákvæm skrá í tölvutæku formi er til um öll þau 1287 hross sem tekin hafa verið í tamningu og þjálfun á þessu tímabili. Þar er m.a. getið uppruna, aldurs, litar og faðernis viðkomandi hross. Alltaf hefur verið byrjað strax eftir ára- mót og flest árin verið að til maíloka. Veturinn 1967 voru fá hross í tamningu þar sem þau hjón voru að byggja íbúðarhús en eigi að síður komust fjögur hross frá stöðinni á fjórð- ungsmót á Gaddstaðaflötum. Tamningamenn með þeim Jóhönnu og Har- aldi hafa verið 30, þar af 12 verknemar frá Land- búnaðarháskólanum á Hvanneyri. Þau hjón segja að rekstur tamningastöðvarinnar hafi fall- ið vel að sauðfjárbúskap þeirra en þau eru með mjög myndarlegt sauðfjárbú. Aldrei hafi orðið slys á fólki og aðeins einn hestur slasast. Snyrti- mennska og öll umgengni á þessu býli er til fyr- irmyndar enda er gjarnan farið með innlenda og erlenda gesti að Hrafnkelsstöðum I þegar sýna á fyrirmyndarbýli. Morgunblaðið/Sigurður Sigmunds Jóhanna og Haraldur á Hrafnkelsstöðum. Tamningar falla vel að fjárbúskap Hrunamannahreppur Tamningar á Hrafn- kelsstöðum í 40 ár BYGGINGAFYRIRTÆKIÐ Nestak lauk við að reisa parhús á Bakkatúni í Nes- kaupstað og því var flaggað við hún og reisugilli haldið. Húsið sem nú er risið er einingahús, framleitt í Eistlandi fyrir ís- lenska fyrirtækið Hús og hönnun. Mikill uppgangur er í húsbyggingum í Nes- kaupstað um þessar mundir. Handan við Bakkatúnið hefur verið hafist handa við grunn að nýju einbýlishúsi og bráðlega verður hafist handa við einbýlishús á Bakkatúninu. Reisugilli á Bakkatúni Neskaupstaður Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir Hátíð í bæ – hús risið á Bakkatúni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.