Morgunblaðið - 08.05.2003, Blaðsíða 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2003 29
„AÐ horfa á og skynja lit vekur allt-
af jafnmikla furðu. Hvort það er lit-
urinn eða blómið sem er málað
verður aldrei upplýst. Þegar lit-
urinn og það sem verkið sýnir sam-
einast á yfirborðinu birtist nýr
raunveruleiki sem er gjörólíkur því
sem þekkist úti í náttúrunni.“ Þann-
ig mælist Eggerti Péturssyni í hug-
leiðingu um verk sín, en í dag kl. 17
verður opnuð sýning á 5 stórum ol-
íumálverkum eftir hann í i8 á
Klapparstíg.
„Þetta eru fimm verk sem ég er
búinn að vera að vinna að síðustu
tvö ár – þrjú þeirra hafa tekið mest-
an tíma minn þennan tíma. Þetta
eru íslenskar plöntur og stærri
myndir en ég hef verið að mála áð-
ur, og verk sem hafa ekki verið
sýnd áður.“ Á síðustu árum hefur
Eggert málað myndir úr íslenska
jurtaríkinu – stóra fleti, þar sem
svörðurinn hverfur undir þykkum
jurta- og blómabreiðum. Myndirnar
kalla á augað að koma nær, og ná-
kvæmnin í útfærslu hverrar blóm-
krónu, hvers laufs og hvers mosa-
bings er gríðarleg. En hvað á
listamaðurinn við með því að það
verði ekki upplýst hvort hann máli
liti eða blóm?
„Þetta eru hugleiðingar mínar
um vinnuna við verkin. Þessar
myndir eru meiri málverk en þær
fyrri, og meiri málverk en að ég sé
að gera grasafræðilegar myndir,
þetta skýrist þegar þær eru skoð-
aðar. Myndirnar eru optískar og ég
nota fleiri liti nú og mála fleiri teg-
undir af blómum. En það sem ég á
við er að maður veit ekki alltaf á
hvað maður er að horfa, hvort þetta
er lýsing á einhverju úti í nátt-
úrunni eða bara ímyndunaraflið,
liturinn og það sem er abstrakt. Ég
reyni að vera einhvers staðar þarna
mitt á milli.“
Eggert segir að þótt hann sé með
nákvæmt plan um það hvernig
hann vinnur hvert verk, sé óneit-
anlega skemmtilegra að sjá þau
núna komin upp á vegg í sýning-
arsalnum en á vinnustofunni. „Þau
eru svolítið öðruvísi í þessu ljósi en
þegar maður er að vinna þau.“
Gallerí i8 sýnir fimm olíumálverk eftir Eggert Pétursson
Nota fleiri liti og mála
fleiri tegundir af blómum
Eggert Pétursson myndlistarmaður: Myndir úr jurtaríkinu.
Morgunblaðið/Kristinn
áfram Ísland
Til fundar vi› flig
Grafarvogur
Fimmtudagur 8. maí
Rimaskóli – íflróttahús kl. 20.00
Fundarstjóri ver›ur Ásta Möller alflingisma›ur.
Gu›laugur fiór fiór›arson borgarfulltrúi flytur inngangsor›.
S‡nd ver›a myndbrot frá upphafsárum bygg›ar í Grafarvogshverfi.
Daví› Oddsson forsætisrá›herra flytur ávarp.
Kíktu vi› og rifja›u upp frumb‡lisárin yfir kaffibolla!
xd.is
Daví› Oddsson
w
w
w
.c
lin
iq
ue
.c
om
100% ilmefnalaust
GÓÐ
GJÖF
Ráðgjafi frá Clinique verður í
Lyf og heilsu kl. 13-17.
Í dag í Lyf og heilsu Melhaga.
Á morgun í Lyf og heilsu Kringlu.
Á laugardag í Lyf og heilsu Austurveri
Tilboðið gildir einnig í Lyf og heilsu Mjódd,
Austursræti, Glerártorgi Akureyri og á Selfossi.
Meðan birgðir endast.
Kaupauki!
4 hlutir í tösku!
Ef þú kaupir 2 hluti frá CLINIQUE
er þessi gjöf til þín.*
• Comforting cream cleanser 30 ml
• Naturally glossy mascara
• Long last varalitur sugar bean
• Aromatics Elixir perfume spray 4 ml