Morgunblaðið - 08.05.2003, Side 30
LISTIR
30 FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
S
SVEINBJÖRN I. Baldvinsson á að
baki ótrúlega fjölbreyttan feril. Hann
hefur m.a. skrifað kvikmynda- og
sjónvarpshandrit, leikrit, einþátt-
unga, ljóð, smásögur, skáldsögu,
barnabækur, óperutexta og dægur-
lagatexta. Hann hefur gefið út ljóð-
verk á hljómplötu, þýtt skáldsögur og
leikrit, kennt handritsgerð, leikið á
gítar í hljómsveit og verið dagskrár-
stjóri innlendrar dagskrárgerðar
Ríkissjónvarpsins. Auk þess hefur
hann setið í ótal nefndum sem við
koma ritlist.
Í kynningarbæklingi Útvarpsleik-
hússins fyrir apríl og maí eru kynnt
„ný leikrit“ eftir Sveinbjörn I. Bald-
vinsson og Braga Ólafsson og sama er
upp á teningnum á vefsíðu Ríkisút-
varpsins. Ekki er því alveg að heilsa
hvað þetta leikrit Sveinbjörns varðar.
Samnefnt verk á ensku „Visiting
Hour“ hlaut verðlaun í samkeppni
sem haldin var á vegum Suður-Kali-
forníuháskóla 1989. Í kjölfar þessarar
verðlaunaveiting-
ar setti Quixotic-
leikhópurinn í Los
Angeles þennan
einþáttung Svein-
björns upp ásamt
öðrum til í Cent-
ury City-leikhús-
inu. Í umsögn í
Los Angeles Tim-
es var minnst á að
fjallað væri um
ábyrgð manna á glæpum þeim og
grimmdarverkum sem styrjöldum
fylgja, svo augljóst er að Heimsóknin
er að stofni til sama verk og „Visiting
Hours“, jafnvel íslensk þýðing verks-
ins. Sá möguleiki að flytja sviðsverkið
í útvarp liggur í augum uppi – aðal-
persónan er blind og treystir á heyrn-
ina til að skynja umhverfi sitt.
Aldur verksins kæmi ekki að sök ef
það hefði elst betur. Þó að líklegt sé
að leikritið hafi verið valið til flutnings
nú einmitt vegna stríðsins í Íraks þá
hefur tímans tönn leikið það einkenni-
lega illa. Bandaríkjamenn voru á
löngu tímabili mjög uppteknir af þátt-
töku sinni í Víetnamstríðinu og það
tók þjóðina áratugi að gera upp málin,
allt frá því frásagnir um fjöldamorðin
í My Lai-spurðust út og tekur verkið
mið af því.
Leikritið gerist 1987, fimmtán ár-
um eftir harmleikinn sem Tom varð
vitni að og rúmum fimmtán árum fyr-
ir Íraksstríðið. Það fjallar um stund
milli þessara stríða. Því miður eru
bæði söguþráður Heimsóknarinnar
og efnistök börn síns tíma og ákaflega
mörkuð því þjóðfélagi sem verkið var
ritað í og fyrir.
Það er vel til fundið að flytja leikrit
sem hafa til að bera boðskap sem á er-
indi í samtímaumræðu – og því beitt-
ara sem leikritið er, því betur kemst
það sem höfundinum liggur á hjarta
til skila. Illa grundað verk gerir aftur
á móti jafnvel harmrænar frásagnir
hjákátlegar.
Það er margt sem hljómar svo
klisjukennt úr textanum að jaðrar við
skopstælingu: Hjúkrunarkonan frk.
Davis sem tönnlast á öllu tengdu
dauðanum; hetjudáðir Richards í
seinna stríði; afskræming Toms á
myndinni af Jenny og ræða hans í
kjölfar þess; allt sem viðkemur ýlu-
dúkkunni, nafnið á sprengjunni o.fl.
Hilmar Oddsson er ekki öfunds-
verður af að leikstýra þessu verkefni.
Þrátt fyrir að hann hafi á að skipa
mjög sterkum hópi sviðsleikara er
verkið í hans meðförum andvana fætt.
Enginn leikaranna kemst á virkilegt
flug, þó að Ingvar Sigurðsson eigi sín
augnablik inni á milli. Það vantar sár-
lega í verkið meiri spennu milli upp-
gjafarhermannsins og gamla verk-
fræðingsins. Viðbrögð Þorsteins
Gunnarssonar sem Johns Braddocks
við að ofbeldismaður hefur líf hans í
hendi sér eru ótrúlega lítil og tók þó
steininn úr úrræðaleysi sonar hans,
Marks, og frk. Davis hjúkrunarkonu
þegar Tom var horfinn af vettvangi
og þau finna Braddock reyrðan í
hjólastólinn. Það var greinilega erfitt
að halda leikstílnum upp úr skopstæl-
ingunni og væmninni sem textinn
kallar á. Klukknatifið, skóhljóðin og
tónlistarvalið undirstrika enn frekar
þessa tilfinningu svo minnir á ýktustu
leikritin í útvarpinu í gamla daga.
Stund milli stríða
LEIKLIST
Útvarpsleikhúsið
Höfundur: Sveinbjörn I. Baldvinsson.
Leikstjóri: Hilmar Oddsson. Hljóðvinnsla:
Björn Eysteinsson. Leikarar: Ingvar E.
Sigurðsson, Ívar Örn Sverrisson, Nanna
Kristín Magnúsdóttir og Þorsteinn Gunn-
arsson. Frumflutt sunnudaginn 4. maí;
endurtekið fimmtudagskvöldið 8. maí.
HEIMSÓKNIN
Sveinn Haraldsson
Sveinbjörn I.
BaldvinssonTeppi á stigaganga
Ármúla 23, sími 533 5060