Morgunblaðið - 08.05.2003, Side 32
LISTIR
32 FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FYRIR nokkrum áratugum kom
upp hugmyndin um dauða höfundar-
ins. Svokölluð afbygging eða decon-
struction bókmennta- og listaverka
komst mjög í tísku ásamt þeirri hug-
mynd að höfundurinn sem slíkur væri
horfinn en eftir stæði textinn eða
listaverkið, opið til greiningar. Þetta
ásamt fleiru kollvarpaði eldri hug-
myndum um listamanninn sem inn-
blásinn snilling. Listaverk voru svipt
dulúð sinni og áru, í þeim fólst enginn
hulinn kjarni innblásturs eða listar
lengur, þau var hægt að greina niður í
öreindir sínar.
Franski fræðimaðurinn Roland
Barthes sem oft var við skriftir utan
Parísarborgar og fylgdist m.a. með
gróðrinum í kringum vinnustofu sína
líkti þessu við það að listaverk hefðu
breyst úr apríkósum í lauka. Apríkós-
an ljúffenga og safaríka, með hörðum
kjarna, hafði vikið fyrir lauknum sem
fletta má í sundur, lag eftir lag þar til
eftir er – ekkert.
Þetta líkingamál Barthes heitins
kom upp í huga mér við skoðun á skil-
merkilegri og vel unninni yfirlitssýn-
ingu á verkum okkar frábæru lista-
konu Gerðar Helgadóttur sem nú
stendur yfir í listasafni Kópavogs,
Gerðarsafni. Safnið á um 1.400 verk
eftir Gerði og hér eru nú sýnd rúm-
lega 150 þeirra. Það auðveldar áhorf-
andanum stórlega yfirsýn að verkin
eru sett upp í tímaröð, þau elstu fyrst
og síðan koll af kolli. Þróun hennar
sem listakonu er því auðlesin, allt frá
því hún hóf feril sinn með því að
höggva í stein og til steindra glugga,
mósaíkverka og bronsmynda sem
voru hennar síðustu verk.
Það er ótrúlegt hvað gæði verka
hennar eru jöfn sama hvað hún tók
sér fyrir hendur.
Framan af ferlinum voru verk
hennar ekki mjög persónuleg þótt
þau væru vel unnin og bæru hæfileik-
um hennar vitni. Stíllinn á hreyfiverk-
um hennar frá sjötta áratugnum er til
dæmis mjög líkur þekktum verkum
Calders og þegar Gerður hóf að vinna
í járn tók hún verk Danans Roberts
Jacobsens sér til fyrirmyndar. En
hún vann sig alltaf frá áhrifavöldum
sínum og fann sér sína eigin leið svo
hvert verk varð hennar eigið.
Metnaðurinn
Þegar ég skoðaði sýninguna leitaði
mjög á mig sú hugmynd sem ég talaði
um í upphafi, að verk bæri að greina
án tengsla þeirra við höfund sinn. En
þegar um verk Gerðar er að ræða er
mér það ómögulegt, – ég get ekki
skoðað þau og greint eins og maður
flettir í sundur lauk, heldur aðeins
notið þeirra eins og ljúffengra og
safaríkra apríkósa. Og einhvers stað-
ar á bak við eða inni í verkinu, eins og
kjarni, leitar ímynd Gerðar sterkt á
mig, sérstaklega eins og henni er lýst
í ævisögunni, Gerður, ævisaga mynd-
höggvara, sem rituð er af Elínu
Pálmadóttur og kom út árið 1985. Þar
dregur Elín upp sterka mynd af þess-
ari ótrúlega hugrökku konu og þeim
margvíslegu aðstæðum sem mótuðu
hana og list hennar. Ég get ekki hugs-
að mér nokkurn listamann í dag sem
gæti uppfyllt þær kröfur sem Gerður
gerði til sín og vinnu sinnar. Gerður
var brautryðjandi í höggmyndalist á
Íslandi og hún færði fórnir sem á okk-
ar tímum, þó ekki sé langt um liðið,
væru óhugsandi. Hún gerði ótrúlegar
kröfur til sjálfrar sín en ekki má
gleyma því að miklar kröfur voru
gerðar til hennar líka. Allt frá því að
hún afréð að stunda nám við Hand-
íðaskólann sautján ára gömul, þá í
óþökk föður síns sem fljótlega varð þó
hennar helsti stuðningsmaður og síð-
an haldreipi og mesta stoð í lífinu á
allan hátt á meðan hann lifði, stóð
henni aldrei til boða að hætta við.
Ævisaga hennar lýsir fyrst og
fremst stöðugri vinnu og aftur vinnu,
metnaðurinn var gríðarlegur, en eins
og áður sagði kom aldrei neitt annað
til greina. Gerður átti engin börn,
henni fannst hún ekki geta sameinað
listina barneignum og án efa var það
rétt hjá henni, þótt erfitt sé að ímynda
sér það í dag. Það er kannski of langt
gengið að tengja sum verka hennar
þessari staðreynd, en verk eins og
Þögn I og II minna að nokkru leyti á
eitthvert dulið dýrmæti, en í ævisögu
hennar er sagt frá sorglegri reynslu
sem hún talaði aldrei um. Hér er ég
líklega að oftúlka en þannig er það
með öll góð listaverk að þau koma
ímyndunaraflinu af stað. Að baki
hverju verki Gerðar á sýningunni
slær hjarta hennar svo sterkt að ann-
að er varla hægt.
Kjarninn
Það er athygli vert hversu mörg
verkanna hafa til að bera einhvers
konar kjarna, bókstaflega, oft í formi
glers eða þá litar í steindu myndun-
um. Gerður lagði stund á andleg fræði
í Frakklandi, nam hjá fólki sem gekk
m.a. út frá fræðum dulspekingsins
G.I. Gurdjieffs. Þau lögðu stund á
andlegar æfingar jafnt sem líkamleg-
ar, meðal annars var unnið að því að
skerpa eftirtekt og brjóta upp viðjar
vanans. Gerður hafði einnig áhuga á
störnuspeki og heimspeki. Í tengslum
við kirkjulistaverk sín las hún auðvit-
að mikið um trúarbrögð og bar til
dæmis saman hinar ýmsu útgáfur
Biblíunnar á mismunandi tungumál-
um. Í bók sinni segir Elín Pálmadótt-
ir: „Gerður trúði því þá og síðar að
einhvers staðar væri einhver kjarni –
eitthvað hreint, fagurt og satt sem
væri þess virði að lifa fyrir – fann í
þessari fræðslu leiðir fyrir sína innri
leit sem endurspeglast í listsköpun
hennar.“
Þessi innri leit endurspeglast sann-
arlega í listsköpun hennar og stöðugri
þróun sem listamaður. Hvert tímabil í
list hennar býr yfir sínum töfrum,
hvort sem það eru einföld form ungr-
ar og saklausrar stúlku sem meitluð
eru í stein, form-og litfagrar óhlut-
bundnar klippimyndir, fínleg víra-
virki, lifandi og kraftmiklar brons-
myndir eða hrífandi falleg glerverk
hennar og mósaíkmyndir.
Ævisaga Elínar um Gerði er góður
minnisvarði en frábært væri ef ein-
hver ynni að stórri listaverkabók um
Gerði þar sem meðal annars væri
reynt að hafa uppi á öllum verkum
hennar erlendis. En verk hennar lifa
þó enn góðu lífi og vonandi að sem
flestir fái notið þeirra í Gerðarsafni í
Kópavogi fram til 17. júní.
Apríkósur en
ekki laukar
Morgunblaðið/Arnaldur
„Ég get ekki hugsað mér nokkurn listamann í dag sem gæti uppfyllt þær kröfur sem Gerður gerði til sín og vinnu
sinnar,“ segir meðal annars í umsögn Rögnu Sigurðardóttur um yfirlitssýningu á verkum Gerðar Helgadóttur.
Mjúkar línur meitlaðar í stein. Eitt
af fyrstu verkum Gerðar Helga-
dóttur, Stúlkuhöfuð, 1947.
MYNDLIST
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn
Til 17. júní. Listasafn Kópavogs er opið
alla daga nema mánudaga frá kl. 11–17.
BLÖNDUÐ TÆKNI, YFIRLITSSÝNING Á
VERKUM GERÐAR HELGADÓTTUR
Ragna Sigurðardóttir
MARK Levine hefur verið lengi að
og er með þekktari djasspíanistum í
San Francisco og nágrenni. Hann er
einn af þessum fyrsta klassa tónlist-
armönnum sem maður rekst á hér og
þar án þess að tónsköpun hans greyp-
ist í hugann. Hann hefur leikið með
mönnum á borð við Stan Getz, Joe
Henderson og Milt Jackson og marg-
ir hafa hljóðritað tónverk hans.
Þekktastur er hann þó líklega fyrir
latíndjass sinn en þar hefur hann ver-
ið í félagsskap manna á borð við
Mongo Santamaria og Tito Puente
auk þess að stjórna eigin salsasveit.
Auk þess þykir hann fyrsta flokks
kennari og hefur samið kennslubæk-
ur í heimsklassa.
Levin gerði hér stuttan stans sl.
mánudag. Hélt námskeið um daginn í
Tónlistarskóla FÍH og tónleika um
kvöldið ásamt Tómasi R. bassaleikara
og Matthíasi M.D. trommara. Þeir
hittust stuttu fyrir tónleika og fóru
yfir efnisskrána og svo var spilað.
Þetta er einn af töfrum djassins – þrír
tónlistarmenn hittast, velja þekkta
söngdansa og leika svo saman einsog
ekkert sé. Það gefur auga leið að ekki
var neitt af tónverkum Levines á efn-
isskránni eða þeirra Tómasar eða
Matthíasar. Lögin voru allt þekktir
söngdansar ásamt tveimur djassó-
pusum sígildum: Satin Doll Duke Ell-
ingtons og Blue Monk Theloniusar.
Tríóið var ekki upp á marga fiska í
upphafsdansinum; Have You Met
Miss Jones, sem Agnar Már hefur
glímt skemmtilega við með B3
tríóinu, en í þriðja laginu, Alone To-
gether, var tríóið farið að smella sam-
an og ekki laust við að kviknaði í sam-
spilinu. Night in Tunisia var leikið á
klassískan máta þar sem latínkaflar
og hrein sveifla skiptust á, en tríóið
náði aldrei flugi í Satin Doll. Það er
ótrúlega erfitt að ná listrænu flugi í
þessum Ellingonópusi. Svo komu
tveir ópusar sem Guðmundur Ing-
ólfsson spilaði gjarnan: I’m Gettin
Sentimental Over You, kynningarlag
Tommy Dorseys og Blue Monk. Þá
var nú farið að færast fjör í leikinn og
allt sentimental ballöðuspil fokið út í
veður og vind og smáævintýri í blúsn-
um.
Það er erfitt að dæma píanista á
borð við Mark Levine af tónleikum
sem þessum. Hann er mikill hljóma-
kall án þess að ganga á vit blokkar-
anna og smekklegur er hann með af-
brigðum. Hann er bæði expressj-
ónískur og impressjónískur – svífur
einhvers staðar milli Bill Evans og
Oscars Petersons í leik sínum á kvöldi
sem þessu. Tómas og Matthías kom-
ust vel frá sínu í stuttum sólóum,
Matthías yfirleitt í fjórum á móti Lev-
ine, sem kompaði skemmtilega undir
sólóum hrynhljóðfæranna og færði
sólóana frá þeim leiðindum sem oft
setja mark sitt á píanótríó þar sem
bassi og tromma leika sóló í nær
hverju lagi og oftast helst til langa.
Þetta var skemmtileg kvöldstund
og ekki ætlað annað.
Tíðindalítið
en ljúft
DJASS
Tónleikasalur FÍH
Mark Levine píanó, Tómas R. Einarsson
kontrabassa og Matthías M. D. Hem-
stock trommur.
Mánudagskvöldið 5.5. 2003.
LEVINE, TRE OG HEMSTOCK
Vernharður Linnet
JÖKLALEIKHÚSIÐ eftir Steinunni
Sigurðardóttur hefur verið gefið út
á sænsku undir heitinu Jökel-
teatern. Útgáfa
bókarinnar varð
sænska dag-
blaðinu Kristian-
stadsbladet að
umfjöllunarefni í
vikunni og sagði
blaðið Steinunni
hafa skemmt
sænskum les-
endum með
óhefðbundnum
skrifum sínum hátt í tíu ár. „Hún
hefur með djörfum og árangurs-
ríkum hætti háð smástríð gegn of-
ríki listgreinanna og sent frá sér
sínar skáldsögur með ljóðum, bréf
og dagbókarsamantektir,“ segir í
Kristianstadsbladet sem telur
Jöklaleikhúsið ekki síður einkenn-
ast af húmor, kaldhæðni og sér-
kennilegheitum en fyrri verk Stein-
unnar. „Það er mögulegt að hinn
snubbótti endir sé meðvituð stríðni
af hálfu höfundar en maður hefur
engu að síður sterkan grun um að
bókin sé, þrátt fyrir sín íronísku
sniðugheit og árásirnar á íslensku
sérkennilegheitin, umfram allt eins
konar öfugsnúin ástarjátning til Ís-
lands,“ segir gagnrýnandi blaðsins
og bætir við að skáldsögur Stein-
unnar séu eins konar spéspegill í
bókarformi. Undir fáránlegu yf-
irborði sem bendi á sérkennilegheit
þjóðarinnar leynist nefnilega einn-
ig hið veraldarvana og menning-
arlega sem einkenni Ísland.
Jöklaleikhús Steinunnar
Sigurðardóttur
Öfugsnúin
ástarjátning
Steinunn
Sigurðardóttir
HÁTT á annað hundrað gestir
fylltu aðalsal Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra, þegar haldin
var á vegum Menor vaka til heið-
urs skáldinu Hannesi Péturssyni
síðastliðinn sunnudag. Með þessari
samkomu lauk Sæluviku að þessu
sinni. Skagfirðingar sýndu enn
hug sinn til þessa ástsæla skálds
með því að fjölmenna á vökuna, en
því miður gat Hannes ekki komið
og tekið þátt í samkomunni svo
sem áætlað var.
Samkoman hófst með því að sr.
Ólafur Hallgrímsson á Mælifelli
setti samkomuna og bauð gesti vel-
komna en einnig kynnti hann þau
atriði sem flutt voru.
Sölvi Sveinsson skólameistari
fjallaði í erindi um skáldið Hannes
Pétursson og verk hans, en inn í
flutning Sölva var fléttað lestri fé-
laga í Leikfélagi Sauðárkróks úr
verkum skáldsins.
Þá voru flutt tónlistaratriði,
sungin lög við ljóð skáldsins, en
einnig var lesið úr verkum hans,
Úr hugskoti, Misskipt er manna
láni og smásagan Ferð inn í fjalla-
myrkur.
Þessu næst flutti sr. Gísli Gunn-
arsson lokaorð og ræddi þann sess
sem skáldið og verk hans skipa í
hugum Skagfirðinga og hvers virði
tengsl hans við átthagana og hér-
aðið væru báðum.
Benti hann á að sá fjöldi sem hér
hefði komið til að njóta verka hans
bæri þessu glöggt vitni.
Að lokum kallaði kynnir til þau
frú Ingibjörgu Hauksdóttur og
Hauk Hannesson og færði þeim
blóm og bókina Slóðir mannanna
sem gefin var út á 20 ára afmæli
Menor á liðnu vori, sem þakklæt-
isvott fyrir komuna en Haukur
þakkaði þann heiður sem föður
hans var sýndur með vökunni.
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Ólafur Hallgrímsson, Ingibjörg Hauksdóttir og Haukur Hannesson.
Vaka Hannesar Péturs-
sonar við lok Sæluviku