Morgunblaðið - 08.05.2003, Qupperneq 33
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2003 33
HÖFÐABAKKI 9 112 REYKJAVÍK
SÍMI: 544 5330 FAX: 544 5335
Leitið tilboða
í stærri verk
Stærð:
D: 50 cm
B: 30/40 cm
H: 180 cm
Stál-
skápar
fyrir
vinnustaði
kr. 7.300,-
Verð frá
Stálskápar
Stærð:
D: 100 cm
B: 290 cm
H: 250 cm
Tekur
9 bretti
Brettahillur
kr. 17.928,-
Næsta bil
kr. 13.894,-
Lagerhillur
Stærð:
D: 60 cm
B: 190 cm
H: 200 cm
3 hillur
kr. 17.800,-
Næsta bil
kr. 15.366,-
Stálhillur
í fyrirtæki
og heimili
Stálhillur
Stærð:
D: 40 cm
B: 100 cm
H: 200 cm
5 hillur
kr. 8.327,-
Næsta bil
kr. 5.819,-
en gott
Við bjóðum
ÓDÝRT
13
58
/
TA
K
T
ÍK
-3
x1
3
-
N
r.:
29
C
Salurinn kl. 18 Í tilefni af Evrópu-
ári fatlaðra verða hinir árlegu vor-
tónleikar Fjölmenntar, fullorðins-
fræðslu fatlaðra, haldnir. Í boði er
afar fjölbreytt dagskrá, einleikur og
einsöngur, en einnig koma fram
ýmsar hljómsveitir.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
VORTÓNLEIKAR Stúlknakórs
Húsavíkur verða haldnir á Sal Borg-
arhólsskóla á föstudag kl. 20.30.
Kórfélagar sem eru 27 eru á aldr-
inum 12–16 ára og er kórinn starf-
ræktur innan Tónlistarskóla Húsa-
víkur. Á tónleikunum koma einnig
fram nemendur í söngbekk.
Efnisskráin er fjölbreytt en þetta
er 10. starfsár Stúlknakórsins. Inn-
lend og erlend lög og syrpa af lögum
eftir W.A. Mozart þar sem ævi tón-
skáldsins er rakin í stuttu máli.
Tónleikarnir eru fjáröflunartón-
leikar en kórinn fer til Reykjavíkur í
lok maí og mun halda tónleika í
Lindaskóla í Kópavogi og með
Stúlknakór Reykjavíkur. Píanóleik-
ari er Aladar Racz og kórstjóri
Hólmfríður Benediktsdóttir.
Vorsöngur
á Húsavík
SAMSÝNING stendur yfir þessa
dagana á kosningaskrifstofu Sam-
fylkingarinnar við Lækjargötu í
Reykjavík. Sýning þessi er skipu-
lögð af Galleríi Hlemmi og er hluti af
þjónustu þess við fyrirtæki og stofn-
anir.
„Samtímamyndlist á stöðugt er-
indi til fólks í þjóðfélaginu og kosn-
ingaskrifstofa því áhugaverður vett-
vangur samfélagsins. Þó að
myndlistin sé í sjálfu sér sé ekki
flokkpólitísk er hún þverpólitísk,“
segir í kynningu.
Samsýning hjá
Samfylkingunni
„Í MÍNUM höndum“ nefnist mál-
verkasýning Lovísu Lóu Sigurð-
ardóttur sem nú stendur yfir í
Galleríi Skoti í Bókasafni Ölfuss í
Þorlákshöfn. Þetta er fimmta
einkasýning Lóu en hún hefur áð-
ur haldið einkasýningar í Finn-
landi og á Íslandi. Lóa hefur einn-
ig tekið þátt í ellefu samsýningum,
m.a. í Reykjavík, Skotlandi og
Finnlandi, og framið sjö gjörninga.
„Í mínum höndum“ samanstend-
ur af abstrakt fígúratívum mynd-
um þar sem listamaðurinn vinnur
með blandaðri tækni og olíu á
striga. Léttleiki tilverunnar er
helsta viðfangsefnið – leikur
manneskjunnar í tíma og rúmi, á
því leiksviði sem hún hefur valið
sér.
Lovísa Lóa Sigurðardóttir
stundaði nám við Svenska hög-
skolan í Nykarleby í Finnlandi,
Edinburgh College of Art í Skot-
landi og The Commedia School í
Kaupmannahöfn.
Sýningin er opin til 1. júní á af-
greiðslutíma bókasafnsins.
Abstraktverk í
Þorlákshöfn
NOKKRIR nemendur Listaháskóla
Íslands munu í dag kynna verkefni
sitt „Designer for a day“ sem þau
hafa unnið að síðustu mánuði, og
sýndu á einni stærstu hönnunarsýn-
ingu heims í Mílanó í vor.
Sýningin verður í Hafnarhvoli,
Tryggvagötu 11, á milli kl. 17 og 21.
Nemendur
kynna hönnun
Umsækjandi Heiti rits Styrkur
Nesútgáfan ehf. KJARVAL – Listamaðurinn Jóhannes S. Kjarval. Höfundur
megintexta Kristín G. Guðnadóttir listfræðingur 1.500.000
Collegium Musicum, Landsbókasafn
Íslands og Gagarín ehf.
Myndlist og tónlist í handritum Landsbókasafns Íslands (Útgáfa á
geisladiski). Verkefnisstjóri er Hringur Hafsteinsson 1.000.000
Guðrún ehf. Edda Snorra Sturlusonar í ritstjórn Björns Jónassonar 600.000
Vaka-Helgafell Íslensk spendýr eftir dr. Pál Hersteinsson og Jón Baldur Hlíðberg 500.000
Fjölvaútgáfan Skrímsli á Íslandi eftir Þorvald Friðriksson, endurúthlutun 500.000
Sölkubækur ehf. Upphafið – bréf til þín frá ljósunni þinni eftir Huldu Jensdóttur 500.000
Mál og menning Huldukonur í íslenskri myndlist eftir Hrafnhildi Schram 500.000
Mál og mynd ehf. Lagarfljót – Mesta vatnsfall Íslands eftir Helga Hallgrímsson 500.000
Saga bílsins á Íslandi Saga bílsins á Íslandi eftir Sigurð Hreiðar Hreiðarsson 400.000
JPV útgáfa Þegar tilveran splundrast eftir Jónínu Michaelsdóttur 400.000
Gylfi Gröndal Fólk í fjötrum - Baráttusaga íslenskrar alþýðu eftir Gylfa Gröndal 400.000
Rannveig Lund og Ásta Lárusdóttir Greinandi ritmálspróf fyrir 14 ára nemendur eftir Rannveigu Lund
og Ástu Lárusdóttur 400.000
Mál og menning Íslam og Vesturlönd eftir Magnús Þorkel Bernharðsson 300.000
Jón Hilmar Magnússon Íslensk-færeysk orðabók eftir Jón Hilmar Magnússon 300.000
Hið íslenska bókmenntafélag Laufás I, Staðurinn eftir Hörð Ágústsson, viðbótarstyrkur 300.000
Pjaxi ehf Helgi Pjeturss og jarðfræði Íslands. Höfundar Elsa G.
Vilmundardóttir, Samúel D. Jónsson og Þorsteinn Þorsteinsson 300.000
Djúpavogshreppur Djúpivogur – Siglt og róið eftir Ingimar Sveinsson 300.000
Davíð Ólafsson Bækur lífsins. Dagbækur og dagbókaritun á Íslandi á 18., 19. og
fyrsta fjórðungi 20. aldar eftir Davíð Ólafsson 300.000
Guðmundur Pálmason Jarðhitinn eftir dr. Guðmund Pálmason 300.000
JPV útgáfa Héðinn. Saga Héðins Valdimarssonar og samtíðar hans eftir
Matthías Viðar Sæmundsson, 2 bindi 300.000
Félag tónskálda og textahöfunda FTT í tuttugu ár eftir Kristján Hreinsson 300.000
Sögufélag Samvinnuhreyfingin í sögu Íslands eftir Helga Skúla Kjartansson,
Jónas Guðmundsson og Jón Sigurðsson 300.000
Mál og menning Firnindi - Ævisaga Vilhjálms Stefánssonar eftir Gísla Pálsson 300.000
Hið íslenska bókmenntafélag Ástarspekt eftir Stefán Snævarr 300.000
Mál og menning Jón Sigurðsson II eftir Guðjón Friðriksson 300.000
Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og
heyrnarskertra Tíu þjósögur á táknmáli. Ritstjóri Margrét Gígja Þórðardóttir 300.000
Orðanefnd RVFÍ Raftækniorðasafn 11. Ritstjóri Bergur Jónsson 300.000
Gylfi Gröndal Fólk í fjötrum – Baráttusaga íslenskrar alþýðu eftir Gylfa Gröndal. 300.000
Sögufélag Horfinn heimur. Árið 1900 í nærmynd eftir Þórunni Valdimars-
dóttur 300.000
Mál og menning Þorgerður og kórarnir eftir Árna Heimi Ingólfsson 300.000
Örlygur Hálfdanarson Íslenskt mannlíf milli stríða. Ritstjóri meginmáls Magnús
Kristinsson, myndritstjóri Örlygur Hálfdanarson. Viðbótarstyrkur 300.000
Mál og menning Egla – útgáfa fyrir börn eftir Brynhildi Þórarinsdóttur og Margréti
E. Laxness 300.000
Erlendur Jónsson Svipmót og manngerð eftir Erlend Jónsson 200.000
Sigurjón Gunnarsson Handbók um tréskurð eftir Sigurjón Gunnarsson 200.000
Fornleifastofnun Íslands og Félag ís-
lenskra fornleifafræðinga Íðorðasafn í íslenskri fornleifafræði. Höfundur Birna Lárusdóttir 200.000
Forlagið Bílaöldin eftir Örn Sigurðsson og Ingiberg Bjarnason 200.000
Snorrastofa Til heiðurs og huggunar. Hlutverk trúarkvæða á fyrri tíð.
Ritstjórar eru Svanhildur Óskarsdóttir og Anna Guðmundsdóttir 200.000
Fornleifastofnun Íslands Fornleifarannsóknir í Skálholti 2003 eftir dr. Gavin Lucas 200.000
Vigfús Björnsson Smaladrengurinn eftir Vigfús Björnsson 200.000
Bjartur ehf. Njáls saga, texti Reykjabókar eftir dr. Svein Yngva Egilsson 200.000
Bjartur ehf. Ferðalok – skýrsla handa akademíu eftir Jón Karl Helgason 200.000
Elísabet Steinunn Jóhannsdóttir Skagfirskir rósavettlingar eftir Elísabetu St. Jóhannsdóttur og
Sigríði Sigurðardóttur 200.000
Hið íslenska þjóðvinafélag Andvari – tímarit Hins íslenska þjóðvinafélags í ritstjórn Gunnars
Stefánssonar 200.000
Börkur Hansen, Jóhanna Einarsdóttir og
Ólafur H. Jóhannsson
Frumkvöðlar – Uppeldi, menntun og skólar. Ritstjórar Börkur Han-
sen, Jóhanna Einarsdóttir, Ólafur H. Jóhannsson 200.000
Stofnun Gunnars Gunnarssonar Austfirskar álfasögur. Ritstjóri Skúli Björn Gunnarsson 100.000
ÚTHLUTAÐ hefur verið úr Menn-
ingarsjóði fyrir árið 2003. Auglýst
var eftir umsóknum 25. janúar og
rann umsóknarfrestur út 28. febr-
úar sl. Alls barst 141 umsókn að
þessu sinni frá 90 aðilum með beiðni
um styrki að fjárhæð alls kr. 113
milljónir. Stjórn Menningarsjóðs
samþykkti samhljóða að veita 45
styrki, samtals að fjárhæð kr. 15,2
milljónir.
Hlutverk Menningarsjóðs er skv.
1. gr. reglugerðar um sjóðinn nr.
707/1994 að veita fjárhagslegan
stuðning til útgáfu þeirra bóka á ís-
lenskri tungu, sem verða mega til
eflingar íslenskri menningu. Sérstök
áhersla skal lögð á að efla útgáfu
fræðirita, handbóka, orðabóka og
menningarsögulegra rita. Jafnframt
getur sjóðurinn veitt fjárhagslegan
stuðning annarri skyldri starfsemi
s.s. vegna hljóðbókagerðar.
Stjórn Menningarsjóðs skipa þær
Bessí Jóhannsdóttir, kennari, for-
maður, Áslaug Brynjólfsdóttir, fyrr-
verandi fræðslustjóri, og Dóra Lín-
dal Hjartardóttir, kennari. Starfs-
maður sjóðsins er Björg Ellingsen,
stjórnarráðsfulltrúi.
Úthlutað
úr Menn-
ingarsjóði
LEIKSÝNINGIN Gesturinn, sem
frumsýnd var á síðasta leikári í
Borgarleikhúsinu í samstarfi Þí-
bilju og Leikfélags Reykjavíkur,
verður sýnd á tveimur sýningum á
Nýja sviði Borgarleikhússins 11. og
18. maí. Gesturinn er eftir franska
leikritahöfundinn Eric-Emmanuel
Schmitt.
Það er Gunnar Eyjólfsson sem
fer með hlutverk Sigmund Freud,
en Ingvar Sigurðsson leikur hinn
dularfulla gest. Aðrir leikarar eru
Jóna Guðrún Jónsdóttir og Kristján
Franklín Magnús. Þór Tulinius leik-
stýrir. Stígur Steinþórsson gerir
leikmynd, Stefanía Adolfsdóttir
búninga. Lárus Björnsson hannar
lýsingu. Hljóðmynd gerir Baldur
Már Arngrímsson. Þýðandi er
Kristján Þórður Hrafnsson.
Morgunblaðið/Ásdís
Gunnar Eyjólfsson og Ingvar E. Sigurðsson í hlutverkum sínum
Gesturinn kemur á ný
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
www.fotur.netAUGLÝSINGADEILDnetfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111