Morgunblaðið - 08.05.2003, Side 37
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2003 37
Verslunin flytur
Glæsibæ, s. 552 0978
Opnum í Glæsibæ á morgun, föstudag
Rómantískur
rúmfatnaður
í úrvali
OPNUNARTILBOÐ
Veitingahúsið DINER-INN,
Ármúla 21, er til sölu
Opnunartími hefur verið frá kl. 7.30-17 alla virka daga. Morgunmat-
ur og hádegismatur. Einnig bakkamatur í hádeginu. Staðurinn er
vel búinn tækjum og búnaði. Fullkomið veislueldhús. Allt er til stað-
ar fyrir minni samkvæmi, afmæli o.fl. Þetta er gullið tækifæri fyrir
gott verð. Verð aðeins kr. 6,5 milljónir.
Allar upplýsingar gefur
Halldór á fasteignasölunni Hóli
í síma 595 9095.
Opið virka daga kl. 9-18
laugard. kl. 12-14
Skúlagata 17
Sími 595 9000
Fax 595 9001
holl@holl.is
www.holl.is
SAGT er að sá eða sú er kemst
undir regnboga geti óskað sér og
fengið sína ósk uppfyllta. Þetta
mun hins vegar
vera nokkuð erfitt
og ekki fyllilega á
valdi venjulegs
fólks. Að komast
undir regnhlíf er
hins vegar á færi
flestra og stjórn-
arformanni Sambands ísl. sam-
vinnufélaga, Jóhannesi Geir Sig-
urgeirssyni, er ákafalega tamt í
munni að mæla með Sambandinu í
samtíð og framtíð sem regnhlíf-
arsamtökum í stað þess að stefna
að starfsemi undir eigin nafni
Sambandsins. Sú var vissulega tíð-
in að samvinnumenn í þessu landi
litu til leiðtoga sinna norðanlands
með virðingu og sóttu til þeirra
leiðsögn og hvatningu. Það var á
þeim tíma er samvinnufélög sinntu
hlutverki sínu, sér í lagi með
verslun hvert á sínum stað og
stunduðu samstarf sín á milli.
Höfundur átti því láni að fagna
að sækja menntun í samvinnuskól-
ann á þeim tíma sem skólinn á
Bifröst fékk að vera kenndur við
stofnendur sína og bar þeim verð-
ugt vitni. Eftir síðan 2ja ára
starfsnám var minn starfsvett-
vangur í byrjun að kortleggja
vandamál ýmissa minni kaup-
félaga landsins sem hagdeild Sam-
bandsins vildi koma til aðstoðar
með ákveðnum aðgerðum. Það var
talið mikilvægt að samfelld keðja
kaupfélaganna um landið héldist
og fólk nyti atvinnumöguleika og
þjónustu. Það var talið mikilvæg-
ara að skapa betri skilyrði til bú-
setu sem víðast og viðhalda þeim
heldur en hámarka gróða af starf-
seminni.
Það skýtur þess vegna skökku
við þegar þessi stjórnarformaður
Sambandsins tekur upp hanskann
fyrir núverandi fiskveiðistjórnun
þar sem samþjöppun veiðiheimilda
með gjafakvóta og öðru slíku í for-
grunni hefur fært örfáum óska-
stöðu en öllum þorra lítilla útgerð-
arstaða landsins kyrrstöðu eða
stórfellda afturför. Hér er átt við
grein Jóhannesar í Morgunblaðinu
23. apríl sl. Það er því miður orðið
hlutskipti formanns Sambands ísl.
samvinnufélaga að vera boðberi
sérhyggju í stað samhyggju með
sjávarbyggðum landsins vítt og
breitt. Ekki er það svo að und-
irritaður furði sig svo mjög á þeim
boðskap sem þarna kemur fram
frá Jóhannesi enda höfum við áður
verið á öndverðum meiði bæði um
samvinnumál og sjávarútvegsmál.
Hitt vekur mér fremur furðu
hverja samvinnumenn velja til for-
ystu í landinu en ástæðan hlýtur
að vera sú að reyna sem mest að
halda þeirri hreyfingu sofandi eða
sundraðri um okkar daga.
Ég minnist umræðu í nefnd um
sjávarútvegsmál á flokksþingi
framsóknarmanna fyrir nokkrum
árum þar sem ég taldi leið fyrir
kvótalitlar byggðir að fá til sín
hluta af úthlutaðri aukningu í fisk-
veiðiheimildum. Jóhannes greip til
kröftugra andmæla þótt hann vissi
að ég hefði í huga m.a. samvinnu-
fyrirtækin á Þingeyri sem voru þó
sannarlega alls góðs makleg eftir
langa og merkilega útgerðarsögu.
Mér þótti þetta lúalegur málflutn-
ingur samvinnuleiðtogans úr Eyja-
firði. Framsóknarflokkurinn hafði
á þeim tíma uppi slagorðið fólk í
fyrirrúmi sem ég dáðist að en
lærði þá fljótlega að þetta var öf-
ugmæli. Ég er nokkuð ánægður
með það að Jóhannes Geir og hans
líkar komast varla undir regnbog-
ann frekar en aðrir til þess að
óska sér. Þeir væru vísir til þess
að óska sér einfaldlega að þeirra
fyrirtæki yrðu ennþá öflugri og
sér í lagi á annarra kostnað og
þar af leiðandi einhverjar lán-
samar byggðir en aðrar byggðir
og fleiri í erfiðri stöðu mættu eiga
sig. Sem betur fer er breytt fisk-
veiðistjórnun á næsta leiti hvað
svo sem kvótakóngar segja. 80%
þjóðarinnar óska eftir því og
munu fylgja því eftir í komandi
kosningum.
Undir
regnboganum
Eftir Sigurð Kristjánsson
Höfundur skipar 3. sæti á lista
Nýs afls í Suðvesturkjördæmi.
DILBERT
mbl.is