Morgunblaðið - 08.05.2003, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 08.05.2003, Blaðsíða 38
38 FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. SÉRKENNILEGT er, að í umræðunum um stöðu okkar Íslendinga meðal þjóða heims er oft látið að því liggja, að þá fyrst færum við að njóta okkar sem skyldi, ef við færum í Evrópusambandið. Staðreyndin er hins vegar sú, að síðustu ár hefur okkur vegnað mun betur á öll- um sviðum en þjóðum Evrópusambands- ins, ef byggt er á þeim mælikvörðun, sem almennt eru notaðir til að mæla vel- gengni þjóða. Nægir að nefna fjöl- mennsta ríki Evrópusambandsins, Þýskaland, þar til samanburðar. Rangfærslurnar um stöðu þjóðarinnar í alþjóðlegum samanburði byggjast á svipaðri blekkingu og þeirri, sem birtist í sjónvarpsauglýsingu Samfylking- arinnar, þegar sýnt er, að ung íslensk skólastúlka er að dragast aftur úr á hlaupum eftir eyðilegum þjóðvegi. Að halda því að ungum Íslendingum, að þeim vegni verr en ungu fólki annars staðar er argasta fölsun. Af öllu því sér- kennilega, sem Samfylkingin hefur grip- ið til í því skyni að ná til sín atkvæðum í kosningabaráttunni, finnst mér hún hafa lotið lægst í þessari blekkingariðju gagn- vart ungu skólafólki, jafnvel lægra en í skírskotunum sínum til að sanna, að henni þyki meira um jafnrétti karla og kvenna en öðrum. Neikvæð kynning á málefnum byggist almennt á því í kosningum, að leitast er við að gera lítið úr verkum andstæðinga sinna eða bregða á þá skugga. Í um- ræðum um menntamál hefur Samfylk- ingin ekki valið þann kost í auglýsingum sínum, heldur beint athyglinni að nem- endum og gefur til kynna, að þeir séu verr í stakk búnir en annarra þjóða fólk til að ná árangri. Þeir séu að dragast aftur úr eða stundi ekki nám sitt af nægilegri alúð heldur ákveði að hverfa úr framhaldsskóla, án þess að ljúka prófi. Til að upphefja sig í jafnréttismálum velur Samfylkingin þann kost að tefla frambjóðanda sínum fram á þann hátt í auglýsingum, að gert er lítið úr þeim, sem treyst hefur verið til forystu þjóð- arinnar á síðu um frambjóða eins að þeir e Þarna er hinu um beint að l lega í trausti að fyrir sig fr sem eru sagð annars staðar Viðbrögð h gagnvart því hefur kosning arinnar, hafa andi fylgi hen síðustu daga. neikvæða áró minni verður Samfylkingun Sjálfumgle Frambjóðend ingarinnar ga Hin neikvæða barátta Samfylkingarinnar Eftir Björn Bjarnason „Hvaða hugur er að baki því, málamenn skrifa þannig um flokk? Eigum við venjulegir m bugta okkur og beygja? Þak stíga á sömu grund og þetta ÞAÐ má heita undarlegt upphaf á blaða- grein á lokaspretti kosningabaráttu að velta því fyrir sér hvað skipti stjórn- málamenn mestu þegar litið er yfir far- inn veg. Það skyldi þó ekki vera að ýms- ir vildu þegar þar að kemur minnast frekar annarra hluta en þeirra sem þeir létu hafa sig út í í taugaveiklunarandr- úmslofti elleftu stundar fyrir kjördag. Gæti því ekki verið svipað farið með pólitíska ævi og lífshlaupið sjálft að þeg- ar upp er staðið skipti mestu máli að hafa haldið sjálfsvirðingu sinni? Hvers virði er stundarathygli, fengin á ódýrum forsendum í stjórnmálum? Hvers virði er fylgi lokkað til stjórnmálamanna eða flokka með sniðugum auglýsingabrell- um? Helgar tilgangurinn meðalið? Er allt eða a.m.k. næstum allt leyfilegt til að ná árangri, fylgi, völdum? Má kaupa atkvæði? Um hvað eiga kosningar að snúast? Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur gert það að sérstöku aðalsmerki sínu í íslenskum stjórnmálum að skipa málefnum í öndvegi. Við viljum fyrst og síðast höfða til kjósenda á grundvelli stefnu og viðhorfa til þess hvernig skipa á málum, hvers konar grunngerð við viljum í samfélaginu, hvernig við viljum skipta kökunni, umgangast náttúruna o.s.frv. Við viljum að barátta okkar sé einörð. Það kostar að standa í lappirnar og verja sannfæringu sína hvort sem er meðal jábræðra eða andstæðinga. Stjórnmálahreyfingar sem haga seglum eftir vindi, tala tungum tveim, taka veðrið að morgni og hafa skoðun í ljósi þess um eftirmiðdaginn, hvaða pólitíska grundvallartilgangi þjóna þær? Ef við samþykkjum að kosningarétt- urinn í lýðræðissamfélagi sé helgur, verðum við ekki einnig að skilgreina í hverju hann sé fólginn? Jú, auðvitað að hafa úr skýrum kostum að velja og hafa réttinn til að kjósa, ein/n í kjörklefanum, það stjórnmálaafl, stefnu, áherslur, tækifæri, fólk eða mótmæli sem fólgin eru í afstöðu eða hjásetu í kosningum. Við viljum ekki að kosningar snúist um titla eða peninga. Við „keypt“ eða l dýrum ímynd hönnuðum, g Ekki heldur um sem litlar fyrir að gefa og væru í mó aráherslur. Þ Vinstrihreyfi ekki öllum öl ingar, þ.m.t. unum sem ei staðar niður. Við viljum hafa okkur. V að hafa það s um, fyrir hve Við reynum a þjóðfélagi sam velferðar, um Stjórnmál og sjálfsvirði Eftir Steingrím J. Sigfússon „Við höfum náð umtalsverðu koma okkar baráttumálum á dæmis áherslu á velferðarm ferðarstjórnar. Við lok barát við málefnalega traustum fó MORGUNBLAÐIÐ leggur allt kapp á það þessa dagana að ala á þeirri goð- sögn að miðju- og vinstristjórnir séu uppskrift að verðbólgu og óstöðugleika. Markmið blaðsins virðist fyrst og fremst vera að hafa áhrif á framgang kosningabaráttunnar, enda reynir það eftir megni að skauta framhjá stað- reyndum sem styðja ekki kenninguna, svo sem eins og þeirri að síðasta rík- isstjórn sem hrökklaðist frá vegna óstjórnar í efnahagsmálum var undir forystu Sjálfstæðisflokksins og að mik- ill árangur náðist í efnahagsmálum á valdatíma ríkisstjórnarinnar 1988–1991. Í forystugrein Morgunblaðsins 5. maí sl. eru gagnrýnd tvö atriði í grein minni daginn áður sem fjallaði um þessi mál. Þótt annir kosningabaráttunnar séu miklar eru skrif Morgunblaðsins um þessi mál af því tagi að ekki verður komist hjá því að svara þeim. Í fyrsta lagi heldur blaðið því fram að umfjöllun mín um stjórnina 1988– 1991 byggist á grundvallarmisskilningi þar sem árangurinn sem náðist á valda- tíma hennar í baráttunni við verðbólg- una sé henni óviðkomandi og hafi orðið fyrir atbeina tveggja verkalýðsleiðtoga og eins forystumanns atvinnurekenda. Misskilningurinn er hins vegar blaðs- ins en ekki minn. Þjóðarsáttarsamningarnir 1990 gegndu vissulega lykilhlutverki við að koma á þeim stöðugleika sem við höfum búið við síðan og þar léku menn eins og Ásmundur Stefánsson, Guðmundur J. Guðmundsson og Einar Oddur Krist- jánsson forystuhlutverk, ásamt fleirum. En þessir samningar voru ekki gerðir í tómarúmi. Þeir hefðu hvorki komist á né skilað árangri ef ekki hefðu verið fyrir hendi forsendur sem meðal annars voru skapaðar af efnahagsstefnu stjórn- valda. Ein af þessum forsendum var að gengi krónunnar var fest í desember 1989 á stigi sem gat staðist til lengri tíma. Önnur stærstan hlut ingana, og þá isstjórnar og manna. Þá þa að samskiptin ins eru einn framkvæmd Það væri í ra fréttnæmt la ef þrír menn á sama tíma aðra átt. Mor betur. Hitt atriðið athugasemd að efnahagsle meiri á valda stæðisflokks tók við 1974 Morgunblaðið og sögule Eftir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur „Þótt annir kosningabarátt miklar eru skrif Morgunblað þessi mál af því tagi að ekk ist hjá því að svara þeim.“ ÞRIGGJA FLOKKA STJÓRNIR Reynslan af þriggja flokkastjórnum á Íslandi er ekki góð.Það var alveg rétt, sem Hall- dór Ásgrímsson utanríkisráðherra sagði í sjónvarpsþætti í gærkvöldi, að það er mun erfiðara að ná samkomu- lagi milli þriggja flokka á vettvangi ríkisstjórnar en tveggja. Það skiptir í raun litlu máli um hvaða þrjá flokka er að ræða. Þriggja flokka ríkisstjórn Ólafs Thors 1944–1947 var sögulega merki- leg ríkisstjórn, sem féll af sögulegum ástæðum, sem ristu mjög djúpt. Þriggja flokka ríkisstjórn Stefáns Jóhanns Stefánssonar sem tók við 1947 gegndi því sögulega hlutverki að sjá um inngöngu Íslands í Atlantshafs- bandalagið. Hvorug þessara ríkis- stjórna sat út kjörtímabil, en þær höfðu ákveðnu hlutverki að gegna, sem ekki á að gera lítið úr. Þriggja flokka ríkisstjórn Her- manns Jónassonar 1956–1958 hefur jafnan síðan verið dæmi um vinstri stjórn, þar sem hver höndin var uppi á móti annarri. Hermann sjálfur lýsti því yfir á þingi Alþýðusambands Ís- lands í desember 1958, að innan rík- isstjórnar hans væri engin samstaða um úrræði í efnahagsmálum. Naut þó sú ríkisstjórn mikils stuðnings frá verkalýðshreyfingunni. Tvær þriggja flokka ríkisstjórnir Ólafs Jóhannessonar á áttunda ára- tugnum voru misheppnaðar ríkis- stjórnir, sem skildu efnahagslíf þjóð- arinnar eftir í uppnámi. Innan beggja þeirra ríkisstjórna endurtók sagan sig frá 1956–1958. Engin samstaða var á milli samstarfsflokkanna þriggja um meginmál. Þriggja flokka ríkisstjórn Gunnars Thoroddsens 1980–1983 varð eingöngu til vegna löngunar Framsóknarflokks og Alþýðubandalags á þeim tíma að kljúfa Sjálfstæðisflokkinn. Þriggja flokka ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar sat skamma hríð fyrst og fremst vegna þess að persónuleg sam- skipti manna á milli gengu ekki upp. Reynslan af þriggja og síðar fjög- urra flokka ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar 1988–1991 hafði þau áhrif á þáverandi formann Alþýðu- flokksins, Jón Baldvin Hannibalsson, að hann virtist ekki geta hugsað sér að halda slíku stjórnarsamstarfi áfram þótt hann ætti kost á embætti for- sætisráðherra. Það var athyglisvert að lesa Morg- unblaðið sl. laugardag, sunnudag og mánudag. Á laugardag birtist í blaðinu stefnumarkandi yfirlýsing frá Ingi- björgu Sólrúnu Gísladóttur þess efnis, að hún vildi bjóða upp 30 þúsund tonna þorskkvóta. Á sunnudag birtust hörð andmæli Guðjóns Arnar Kristjánsson- ar, formanns Frjálslynda flokksins, og Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstri grænna, við þeim hugmyndum. Á mánudag birtist umsögn Ingibjarg- ar Sólrúnar Gísladóttur um yfirlýsing- ar þeirra tveggja þar sem hún sakaði þá nánast um kjarkleysi og að hlaupa í skjól. Fréttir um slík ágreiningsefni voru daglegt brauð á tímum ríkis- stjórna Ólafs Jóhannessonar á áttunda áratugnum. Ef fengin reynsla er höfð í huga yrði það ekki góð niðurstaða fyrir íslenzkt samfélag, ef úrslit kosninganna á laug- ardaginn kemur leiddu til myndunar ríkisstjórnar þriggja flokka. FARSÆL RÍKISSTOFNUN Vegagerð ríkisins er dæmi um rík-isstofnun, sem stjórnað hefur ver- ið með einstaklega farsælum hætti. Vinnubrögð hjá Vegagerðinni hafa tekið miklum breytingum í áranna rás. Nú er viðtekið að lagning vega og smíði brúa sé boðin út, en áður var það svo að Vegagerðin sá um verkið frá upphafi til enda, skipulagningu, fram- kvæmd og viðhald. Helgi Hallgríms- son, fyrrverandi vegamálastjóri, lýsir ferli sínum hjá Vegagerðinni í viðtali við Hildi Einarsdóttur í Morgun- blaðinu á sunnudag og ræðir þar bæði breytingar á starfsháttum og sam- skiptum við stjórnmálamenn. Á þess- um tíma gegndi Helgi ýmsum störfum hjá Vegagerðinni, byrjaði reyndar í brúarvinnu eftir stúdentspróf, en þeg- ar hann hafði lokið námi í verkfræði réðst hann til stofnunarinnar á ný. Helgi hefur hannað margar brýr á landinu og haft umsjón með smíði þeirra, þar á meðal yfir Skeiðarársand og Borgarfjarðarbrúin. Þar er um að ræða tvö gerólík verkefni, en segja má að bæði beri þau vitni þeirri fag- mennsku, sem verið hefur aðal Vega- gerðarinnar. Brúin yfir Skeiðarár- sand, sem var smíðuð undir miklum þrýstingi því að framkvæmdir hófust haustið 1972 og þurfti að ljúka í tæka tíð til þess að opna mætti hringveginn í tilefni 1100 ára afmælis Íslandsbyggð- ar, var hönnuð þannig að henni var skipt niður í búta og gæti einn bútur farið án þess að hinir skemmdust. Þessi hönnun hefur sannað sig í Skeið- arárhlaupum. Borgarfjarðarbrúin var einnig verk- fræðilegt afrek og á það ekki aðeins við um brúna sjálfa heldur einnig skipu- lagningu byggingarinnar vegna þess að vinna þurfti alla brúarsmíðina af sjó eins og Helgi lýsir í viðtalinu. Helgi varð forstjóri tæknideildar Vegagerðarinnar 1978 og 1991 varð hann vegamálastjóri. Á þessum tíma varð bylting í samgöngum á Íslandi með lagningu bundins slitlags, sem reyndar höfðu verið gerðar tilraunir með fyrr, en hófst fyrir alvöru upp úr 1980. Þá má ekki gleyma jarðgöngum, sem einnig hafa verið snar þáttur í starf- semi vegagerðarinnar og hafa átt þátt í því að stytta vegalengdir. Allir þessir þrír þættir hafa átt þátt í því að bæta samgöngur verulega og auðvelda ferð- ir um landið. Undir það geta allir tekið, sem muna eftir löngum ferðum í ryk- mekki á holóttum malarvegum fyrir aðeins tveimur eða þremur áratugum. Ákvarðanir um framkvæmdir í sam- göngumálum eru vitaskuld stjórn- málamanna, en það hefur verið hlut- verk Vegagerðarinnar að hrinda þeim ákvörðunum í framkvæmd. Það hefur stofnunin gert af fagmennsku. Á með- an deilt er um rekstur heilsugæslu svo dæmi sé tekið hafa störf Vegagerðar- innar verið óumdeild. Það verður að teljast nokkurt afrek í ljósi þess hversu viðamikill og mikilvægur mála- flokkurinn er. Vegagerðarmenn hafa unnið mikið afrek við vegalagningu á Íslandi á einni öld, afrek, sem hefur gert Ísland byggilegra land en ella.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.