Morgunblaðið - 08.05.2003, Síða 45
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2003 45
ÞAÐ var fráleitt sjálfgefið að
segja söguna af samskiptum mín-
um við Ingibjörgu Sólrúnu Gísla-
dóttur eftir að hún
hafði sest í stól
borgarstjóra í
Reykjavík árið 1994.
Ætlaði raunar aldr-
ei að gera það. En
dæmalausar ásak-
anir í Borgarnesi
gengu svo yfir mig að ekki varð
undan því vikist. Þess vegna ritaði
ég stutta grein á dögunum; með
vasa fulla af grjóti. Og það þrátt
fyrir vissu um að fjölmörgum mis-
líkaði.
En það þarf að gera fleira en
gott þykir. Það þarf halda sannleik-
anum til haga.
Nú hefur kosningastjóri Sam-
fylkingarinnar og stór-Víkingurinn
Ingvar Sverrisson gengið fram fyr-
ir skjöldu og sakað mig um að ráð-
ast á pólitískan andstæðing með
dylgjum og óhróðri.
Það er nú svo.
Ég hef mínar skoðanir en á enga
pólitíska andstæðinga. Aldrei verið
virkur í pólitík, svo það komi fram.
Rifjum upp atburðarásina. Í
Borgarnesi sakaði Ingibjörg for-
sætisráðherra um að hamast á
mönnum og skipa þeim í lið, allt
eftir pólitískum lit. Hún málaði
ógnina sterkum litum; forseti, bisk-
up, fjölmargir gætu ekki um frjálst
höfuð strokið. Hún eggjaði menn
að stíga fram og segja sögu sína.
Enginn steig fram utan strákur
úr Bústaðahverfi. Sem fréttamaður
hafði ég flutt fréttir sem voru Ingi-
björgu ekki þóknanlegar. Hún
sparaði ekki stóru orðin í gagnrýni
sinni; sakaði mig um að vera í liði
og þess vegna ekkert að marka
fréttirnar.
Þannig var nú það.
Strákur var formaður Víkings.
Við vorum að byggja upp Víkina í
Fossvogi eftir að hafa flutt úr
Hæðargarði. Höfðum byggt glæsi-
legt íþróttahús og félagsheimili.
Þar var mikið verk að vinna. En
með innkomu R-listans 1994 fraus
allt fast. Ég sem formaður fór
ítrekað fram á fund en var ekki
virtur svars af skrifstofu borgar-
stjóra. Ég var í liði, hinu liðinu. Við
sérstök tækifæri kallað bláa hönd-
in.
Árið 1996 lét ég af störfum sem
formaður Víkings.
Ingvar Sverrisson svaraði grein
minni; nefndi hana með fullri reisn.
Hann nefndi fyrirgreiðslu til Vík-
ings síðustu misserin. Allt gott um
það, þótt lítil ástæða sé til að hrópa
húrra. Það tók á annan áratug að
fá uppfylltan samning frá 1989 um
stækkun Víkurinnar. Árið 2001
framlengdi borgin leigusamning um
gróðrarstöðina Mörk gegn ein-
dregnum óskum Víkings og ráðum
embættismanna. Og það þrátt fyrir
stefnumótun frá 1990 þegar borgin
hóf viðræður um kaup á Mörkinni
til þess að framselja í hendur Vík-
ingi. Víkingur hefur í áratug leitað
eftir framlagi frá borginni um að
reisa stúku en við litlar undirtektir
þar til loksins, loksins á dögunum
að Íþrótta- og tómstundaráð sam-
þykkti að ganga til samninga við
Víking um að ljúka stúkunni í Vík-
inni.
Gott mál og ég fagna því. En
getur verið að samþykkt ÍTR nú
tengist því að Ingibjörg hafi yf-
irgefið ráðhúsið? Fyrir aðeins ári –
í tíð Ingibjargar í ráðhúsinu – felldi
meirihluti ÍTR að styðja sömu
framkvæmd. Vonandi er að liðkast
um stuðning við Víking.
Eitt helsta stefnumið Samfylk-
ingarinnar er siðbót. Með Ingi-
björgu Sólrúnu er samræðupólitík
sögð skipa öndvegi – nýir tímar,
siðbót í stjórnmálum, betri stjórn-
sýsla. Hver frambjóðandinn á fæt-
ur öðrum stígur fram og vitnar um
siðbótina. Kannski hafa hlutirnir
breyst en ég upplifði vonda stjórn-
sýslu þegar ég knúði dyra í ráðhús-
inu fyrir tæpum áratug.
Í Borgarnesi eggjaði Ingibjörg
menn til þess að stíga fram og lýsa
blárri ógn. Ekkert gerðist utan
strákur úr Bústaðahverfi kveðst
hafa lent á rauðu ljósi eftir að hafa
flutt fréttir sem Ingibjörgu mislík-
aði.
Þannig var nú það.
Á rauðu ljósi
Eftir Hall Hallsson
Höfundur er fyrrverandi formaður
Víkings og fréttamaður.
ÞEGAR menn lýsa ástandinu í
þjóðmálunum er gjarnan notað lík-
ingamál um þjóðarskútuna, þetta
fley sem við eigum
öll og siglum á í
gegnum æviskeið
okkar. Ástand skút-
unnar getur verið
mjög mismunandi
og ekki síst sá sjór
sem hún siglir
hverju sinni og þá skiptir heldur
ekki litlu máli hverjir standa við
stjórnvölinn hjá okkur. 10. maí
kemur í ljós hvort við höldum
sömu stjórnendum eða fáum nýja
að einhverju eða öllu leyti. Ég bið
þig, lesandi góður, að staldra að-
eins við og athuga ástandið með
mér, hvernig er ástatt með fleyið
okkar og er bræla eða byr?
Til að sem best fari um alla um
borð þarf líka að hlúa vel að skip-
inu og haga seglum eftir vindi
hverju sinni, það hefur Framsókn-
arflokkurinn haft að leiðarljósi
þau ár sem hann hefur staðið í
brúnni. Lítum á nokkur dæmi um
það sem flokkurinn stendur fyrir
og vill gera til að tryggja áfram-
haldandi vöxt og velferð.
Öflugt atvinnulíf
Öflugt atvinnulíf er undirstaða
almennrar velmegunar og velferð-
arþjónustunnar. Það verður að
hlúa að atvinnuvegunum og skapa
þeim skilyrði til vaxtar, án þess
munum við ekki njóta áfram
þeirra lífsgæða sem við höfum og
enn síður sjá þar nokkurn vöxt.
Fátt dregur kjarkinn og þrekið
fljótar úr mönnum en atvinnuleysi,
það drepur neistann, skaðar sjálfs-
ímyndina og veldur að sjálfsögðu
ómældu fjárhagslegu álagi. Því
þarf stöðugt að leitast við að
fjölga störfum og það er ekki gert
nema með öruggri uppbyggingu
atvinnulífsins. Þetta hefur Fram-
sóknarflokkurinn haft í huga við
sína vinnu, hann hefur fjölgað
störfum og undirbúið jarðveginn
fyrir áframhaldandi vöxt með
framsýni og kjarki.
Allir njóta árangursins
Ábyrg umsýsla ríkisfjármála er
forsenda stöðugleika í efnahags-
málum og þar má ekki eyða um
efni fram fremur en á heimilunum,
þá er voðinn vís. Á sama tíma og
aðhald er nauðsynlegt, verður að
tryggja áframhaldandi félagslega
þjónustu til handa öllum lands-
mönnum. Vegna vasklegrar fram-
göngu Framsóknarflokksins í
þessum efnum undanfarin ár, höf-
um við ekki aðeins haldið í horfinu
heldur getum við nú öll notið þess
hagnaðar sem hefur myndast og
mun myndast á næstu árum. Við
viljum því lækka tekjuskatt á ein-
staklinga úr 38,55% niður í
35,20%. Þetta getum við gert
vegna góðrar stjórnunar og fram-
sýni í atvinnuuppbyggingu og
þurfum ekki að skera niður í vel-
ferðarmálunum til að ná þessu
fram. Finnst þér þú ekki eiga það
skilið að fá aðeins meira í budduna
af því sem þú vinnur þér inn? Á
sama tíma viljum við greiða kr.
36.500 í ótekjutengdar barnabætur
með öllum börnum að 16 ára aldri
og tvöfalda þá upphæð fyrir börn
undir 7 ára aldri. Hvað finnst þér,
heldurðu ekki að þetta auki aðeins
vellíðan og þægindi um borð í
skútunni?
Menntun og öryggi
Það eru sjálfsögð réttindi hvers
einstaklings hér á landi að geta
menntað sig að eigin ósk, eignast
þak yfir höfuðið og búa við það ör-
yggi sem því fylgir. Enn eigum við
ýmislegt ógert til að ná þessum
markmiðum að fullu, en okkur
miðar samt vel áfram. Framsókn-
arflokkurinn hefur staðið vörð um
þessi mannréttindi og mun því
ekki samþykkja skólagjöld í
grunnskólum, framhaldsskólum
eða ríkisreknum háskólum. Við
viljum líka lækka endurgreiðslu
LÍN-lánanna til samræmis við
eldri lánaflokk, endurskoða fram-
færslugrunn LÍN og að ekki verði
krafist ábyrgðar þriðja aðila á lán-
in.
Hvað húsnæðismálin varðar,
viljum við auðvelda öllum að eign-
ast þak yfir höfuðið með því að
bjóða 90% lán og þá meinum við
90% af verðgildi eigna með ákveð-
ið hámark sem viðmiðun.
Viltu rugga bátnum?
Það er hægt að minnast á svo
margt, margt fleira, svo sem mál-
efni aldraðra, öryrkja, langveikra
og svo jafnréttismálin, allt málefni
sem eru gríðarlega mikilvæg og
þurfa að vera til fyrirmyndar í
þjóðfélagi eins og okkar. Fram-
sóknarflokkurinn hefur unnið öt-
ullega að því að koma þessum
málum í það horf sem nauðsynlegt
er, t.d. með breytingum á fæðing-
arorlofinu, sem er bylting í jafn-
réttismálum og þú getur treyst
því að við munum halda áfram
verkinu, því betur má ef duga
skal. En við megum alls ekki
gleyma því, að án stöðugleika,
sterks atvinnulífs og ábyrgrar
fjármálastjórnar, verður lítið um
þessa þjónustu sem við öll viljum
sjá og njóta…og þá aftur að þjóð-
arskútunni.
Þú veist það eins vel og ég að
það er hægt að velta bát á sléttum
sjó, það eina sem þarf er að ein-
hver byrji að rugga. Nú er það
sjaldnast svo að sjávarflötur skút-
unnar okkar sé spegilsléttur og
ekki dettur mér í hug að segja að
svo sé nú, en það er hins vegar al-
veg klárt að siglingin hefur verið
með besta móti undanfarin ár og
það blæs byrlega framundan. Ein-
mitt þegar þannig er ástatt má
ekki byrja ruggið sem stöðvað
getur ferðina, jafnvel velt okkur
um koll og valdið okkur öllum
ómetanlegu tjóni. Veldu áfram-
haldandi stöðugleika og velferð,
veldu þann flokk sem hefur sann-
að sig.
Áframhaldandi
stöðugleiki
Eftir Halldór N. Lárusson
Höfundur er framkvæmdastjóri og
skipar 5. sæti B-lista í Rvk suður.
UMRÆÐAN um fiskveiðistjórn-
un hefur verið mikil í þessari
kosningabaráttu hjá stjórnarand-
stöðuflokkunum og
þá talað um fyrn-
ingarleið eða sókn-
ardaga.
Sóknardagar
hafa þegar verið
reyndir og gengu
ekki upp. Að fara
fyrningarleið og leigja aflaheim-
ildir mun stórauka brottkast á Ís-
landsmiðum. Ástæðan er þessi.
Það hefur verið sýnt fram á að
brottkast er stundað á kvótalaus-
um og kvótalitlum bátum sem
leigja til sín heimildir í dag, því
menn vilja fá sem mest fyrir
veiddan fisk. En hvað gerist þegar
allir eru orðnir leiguliðar? Sam-
fylkingarmenn hafa verið að tala
um hóflegt veiðileigugjald, svona
30–50 kr. pr. þorskígilidiskíló.
Tökum létt dæmi: Útgerðaraðili
tekur 10 þorskígildistonn á leigu.
Bátur hans fer á sjó og fær fisk
sem hann veit að hann fær ekki
nema 100 kr. fyrir per kíló og
annan sem hann veit að hann fær
fyrir 150–200 kr. pr. kíló. Hvað
skyldi hann gera? Hvort ætli hann
vilji 1 milljón eða 1,5–2 milljónir
fyrir þau 10 þorskígildistonn sem
hann er með á leigu? Dæmi nú
hver fyrir sig en ég veit hvað ég
geri.
Fyrningarleið
þýðir stóraukið
brottkast
Eftir Jón Þorbergsson
Höfundur er sjómaður.
Í STEFNU ríkisstjórnarinnar í málefnum langveikra barna sem gef-
in var út í mars árið 2000 af heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu
segir á bls. 7 í því merka riti: „Fjarvera foreldra langveikra barna frá
vinnu er oft mikil og því er mikilvægt að auka rétt for-
eldra til að sinna langveiku barni heima. Til að ná því
markmiði samþykkir ríkisstjórnin að sett verði á lagg-
irnar nefnd skipuð fulltrúum heilbrigðis-, félags-,
mennta- og fjármálaráðuneytis auk fulltrúa vinnumark-
aðarins og samtaka um málefni langveikra barna sem
hefði það hlutverk að tryggja betur en nú er rétt for-
eldra til launa í fjarveru frá vinnu og rétt til sjúkra-
dagpeninga vegna veikinda barns. Ríkisstjórnin samþykkir að skipuð
verði nefnd fjögurra ráðuneyta, þ.e. heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytis, félagsmálaráðuneytis, menntamálaráðuneytis og fjár-
málaráðuneytis, til að fylgja eftir stefnumótun ríkisstjórnarinnar í
málefnum langveikra barna, sjá um að samræma aðgerðir sem falla
undir fleiri en eitt ráðuneyti og vera tengiliður við hlutaðeigandi að-
ila.“
Félagsmálaráðherra skipaði í umrædda nefnd 29. janúar 2001 og
hefur hún ekki skilað áliti og mun vart gera héðan í frá og eru það
okkur sem að þessum málaflokki standa gríðarleg vonbrigði. Öll bund-
um við miklar vonir við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, „Í
fremstu röð á nýrri öld“, sem var í samræmi við ályktun Alþingis um
stefnumótun í málefnum langveikra barna sem samþykkt var 2. júní
1998.
Staðið hefur verið við loforð um nýjan barnaspítala og hvíldarheim-
ili fyrir langveik börn með mikla hjúkrunarþörf og því ber að fagna.
Einnig ber að þakka þann árangur sem náðst hefur í fæðingarorlofi,
en hvað gerist ef börnin okkar verða alvarlega veik af völdum sjúk-
dóma og fötlunar, jafnvel alla ævi? Börn fá líka hættulega og alvar-
lega sjúkdóma eins og fullorðnir, sjúkdóma sem geta verið ólæknandi.
Þeim fjölskyldum duga ekki sjö til tíu veikindadagar eins og veik-
indarétturinn er fyrir flesta launþega í landinu. Því miður er það svo
að sumir foreldrar verða að hætta allri atvinnuþátttöku vegna veik-
inda barna sinna og það er enginn sem bætir fjölskyldunni upp það
tekjutap. Fjárhagserfiðleikar geta því orðið miklir hjá fjölskyldum
langveikra barna. Veikindin gera ekki boð á undan sér og fjölskyldan
verður að standa við sínar skuldbindingar. Fjárhagserfiðleika þessara
fjölskyldna má oftast rekja til þess hve veikindarétturinn er takmark-
aður. Fátækt hefur verið mikið í umræðunni að undanförnu og má
segja að þessar fjölskyldur séu í mikilli hættu á að lenda í gildru fá-
tæktar. Þessar fjölskyldur hafa ekkert val. Það er grátlegt að heyra
foreldra segja: „Á ég virkilega að missa íbúðina mína af því að barnið
mitt er sjúklingur?“
Hvað varð um veikindarétt
foreldra á vinnumarkaði?
Eftir Ragnheiði Sverrisdóttur
Höfundur er innanhússarkitekt og
móðir langveiks barns.
Heimsókn í Vesturfarasetrið
á Hofsósi
Þjóðræknisfélag Íslendinga efnir til ferðar til Hofsóss og dagskrár
þar í samvinnu við Vesturfarasetrið helgina 17.-18. maí n.k.
Farið verður með hópferðabíl frá Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík
kl. 9 að morgni laugardags 17. maí.
Að loknum málsverði á Hofsósi hefst dagskrá í Vesturfarasetrinu.
• Komið verður saman í gamla Kaupfélagshúsinu.
Vesturferðasýningin Annað land, annað líf skoðuð, einnig
Stefánsstofa, undir leiðsögn Valgeirs Þorvaldssonar.
• Farið í Konungsverslunarhúsið og Norður-Dakotasýningin
Akranna skínandi skart skoðuð undir leiðsögn Valgeirs
Þorvaldssonar og Wincie Jóhannsdóttur.
• Efnt verður til kvöldvöku, þar sem vestur-íslenski
rithöfundurinn og „Hofsósbúinn“ Bill Holm les úr verkum
sínum, spjallar og spilar undir söng. Anna Sigríður
Helgadóttir syngur með honum.
• Á sunnudagsmorgun verður farið í Frændgarð og Utah-
sýningin Fyrirheitna landið skoðuð.
• Á leiðinni til Reykjavíkur verður höfð viðdvöl á Borðeyri ef
veður leyfir, en þaðan lögðu margir Íslendingar af stað til
nýrra heimkynna í Vesturheimi.
Gisting og málsverðir á Hofsósi. Vesturfarasetrið annast bókanir og
veitir nánari upplýsingar, sími 453 7935, tölvup. hofsos@hofsos.is
Allt áhugafólk velkomið.
FASTEIGNIR
mbl.is