Morgunblaðið - 08.05.2003, Side 47
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2003 47
GLÆPAMENN selja fíkni-
efni – börn verða þeim að
bráð. Við eigum börnin. Og
fíkn veldur fátækt.
Davíð Oddsson vill stuðla
að menntun barna, drengja
sem heltast úr námi. Stuðla
að því að börn byggi upp
heilsteypta sjálfsmynd –
kunni að segja nei við fíkn –
við sorg.
Þess vegna styð ég Davíð.
Jón Gunnar
Hannesson
Fíkn
Höfundur er læknir.
ÞAÐ voru orð í tíma töluð hjá
Knúti Bruun í blaðagrein 2. maí
s.l. þegar hann benti á að penninn
væri vandmeðfarið
vopn og fólk skyldi
fara varlega í að
senda frá sér blaða-
grein meðan hatur
og reiði yfirgnæfðu
dómgreindina.
Undanfarnar vikur
og mánuði hafa stjórnarandstæð-
ingar, þó einkum Samfylkingar-
fólk, farið mikinn í því að svívirða
Davíð Oddsson án þess að hafa til
þess nokkur haldbær rök, en látið
stjórnast af hatri og öfund.
Sá sem lifað hefur langa ævi og
fylgst með pólitískri þróun og tek-
ið þátt í uppbyggingu íslensks
þjóðlífs úr öskustónni til vel-
sældar, veit að aldrei hefur ís-
lenska þjóðin lifað við betri kjör
en síðastliðinn áratug. Því verður
heldur ekki á móti mælt að for-
maður Sjálfstæðisflokksins, Davíð
Oddsson, hefur stýrt þjóðarskút-
unni þennan áratug.
Því er ekki úr vegi að skoða
svolítið nánar inntak slagorða í
greinum flestra Samfylkingar-
manna undanfarið. Slagorðin eru
til dæmis: almennar leikreglur,
lýðræði, valdbeiting, hroki, jafn-
rétti og hreinskiptni og dirfska
Ingibjargar Sólrúnar, þegar í
reynd hún er að færa stjórnmála-
umræðuna niður á lægsta stig
þjóðmenningarinnar.
Skoðum ‘leikreglur’ og ‘hrein-
skiptni’ Samfylkingarinnar. Ingi-
björg Sólrún bauð sig fram til
borgarstjóra síðastliðið vor með
því loforði að vera óflokksbundinn
borgarstjóri þriggja stjórn-
málaflokka næstu fjögur ár og
fékk þar með Framsókn og
Vinstri græna til að kjósa sig á
röngum forsendum. Það loforð
sveik hún með léttum leik og
sagðist ekki una því að vera bund-
in vistarböndum í borginni. Þau
vistarbönd reyrði hún sér sjálf og
batt á marga rembihnúta sem síð-
an reyndust sleppilykkjur og
röknuðu upp við það eitt að toga í
spotta. Þannig hnúta binda aðeins
þeir sem ætla sér að hafa greiða
útgönguleið. Heitir þetta ekki á ís-
lensku að skrökva, véla og svíkja?
Skoðum nú ‘lýðræði’ Samfylking-
arinnar. Á þeim bæ var haldið
prófkjör og þar börðust frambjóð-
endur eins og vera ber, en kosn-
ingin var að engu höfð. Sótt var
kona úr borgarstjórastól til þess
að leiða listann úr fimmta sæti
Norður-Reykjavíkurkjördæmis og
verða forsætisráðherraefni hvort
sem hún næði inn á þing eða ekki.
Er þetta lýðræði? Var allt fólkið
sem tók þátt í prófkjörinu ónot-
hæft þegar til kom? Það er greini-
legt, enda hefur hingað til, þegar
þetta er skrifað, enginn úr flokkn-
um og allra síst konurnar, verið
sýnilegur í auglýsingum Samfylk-
ingarinnar. Þar trónir Ingibjörg
Sólrún ein. Það sem ég furða mig
mest á er lítilþægni kvennanna.
Er öll sú kvennafjöld sem Sam-
fylkingin státar af bara höfðatala?
Aftur á móti var Ellert Schram
uppgjafa fyrrverandi formanns-
frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins
leiddur til sætis við háborðið milli
Ingibjargar og Össurar. Það að
hann tók ekki þátt í prófkjörinu
skipti engu máli. Er þetta jafn-
rétti eða lýðræði? Hvað skyldi
hafa verið sagt um ‘valdbeitingu’
ef Davíð Oddsson hefði ekki tekið
þátt og unnið fyrsta sæti í próf-
kjöri Sjálfstæðismanna? Hversu
hátt hefði ekki verið hrópað um
foringjadýrkun og einræði ef heil-
síðumyndir af honum hefðu birst í
öllum dagblöðum upp á hvern ein-
asta dag vikum saman?
Þá er komið að ‘hreinskiptninni’
og ‘dirfskunni’ úr Borgarnesræð-
um Ingibjargar. Það var auðvitað
sorgarsaga að hún skyldi telja sig
knúna til þess að færa stjórnmála-
umræðuna niður á lægsta plan, en
skiljanlegt í ljósi þess að hún var
að leggja inn gott orð fyrir fjár-
mögnun kosningabaráttunnar. Það
gerði hún með því að klaga Davíð
með dylgjum í kjaftasögustíl fyrir
að vera vondur við þá Baugsfeðga,
Jón Ólafsson og Kaupþing. Hún er
ekki ódýr í rekstri þessa dagana
hún Ingibjörg Sólrún. En hún
fékk heilt fréttablað til einkaaf-
nota frá Baugsfeðgum ásamt Stöð
2 með vinarkveðju frá Jóni Ólafs-
syni & Co til að vinna gagngert
fyrir sig. Æ sér gjöf til gjalda. Þá
er fáheyrð smekkleysa að draga
forseta Íslands og biskup inn á
slíkt umræðuplan.
Davíð Oddsson er maður hreinn
og beinn, en fastur fyrir. Þegar
hann segir skoðun sína á ein-
hverju málefni þá talar hann af
þekkingu, yfirvegun og rökstyður
málflutning sinn. Hann hleypur
ekki út um allar flóagrundir til að
afla vinsælda, eitt í dag, annað á
morgun. Það vita allir að hann er
staðfastur og fyrst og fremst að
orð hans halda, enda bregst það
ekki að þegar hann talar hlusta
allir og yfirleitt bregðast stjórn-
arandstæðingar ókvæða við. Eitt
dæmi: flestir hafa hingað til kvart-
að yfir háum sköttum. Þegar Dav-
íð boðaði skattalækkanir þá varð
allt vitlaust. Verkalýðsforingjar,
prófessorar, formaður BSRB, allir
formenn stjórnarandstæðinga. Nú
vilja þeir ekki skattalækkanir,
þ.e.a.s. nema þeir fái sjálfir að
ráða hvaða, hverjar og hvenær
skattalækkanir eigi að koma til
framkvæmda.
Undanfarinn áratugur ber ljóst
vitni um að það er hægt að búa
vel í haginn fyrir fólkið í landinu
með farælli stjórnarstefnu. Það
þarf stöðugleika, heilindi og bjart-
sýni til að skapa öllum þjóðfélags-
þegnum skilyrði til velmegunar.
Það tryggir Sjálfstæðisflokkurinn.
Orð í tíma
töluð
Eftir Þuríði Pálsdóttur
Höfundur er söngkona.
ADAPTÎVE FARÐI
SEM VEITIR BLANDAÐRI
HÚÐ STÖÐUGT JAFN-
VÆGI - SPF 10
heimsæktu lancome.com
Einstaklega léttur farði sem aðlagar sig þörfum húðar-
innar hverju sinni. Í formúlu Adaptive er að finna nýja
tækni, ADAPTI-LAST:™
Hámarkar samtímis virkni mattandi púðurs á feitum
svæðum og virkni rakagefandi efna á þurrum svæðum.
Viðheldur fullkomnu jafnvægi í húðinni allan daginn.
ÁRANGUR: Litarhátturinn helst ferskur, náttúrulegur,
jafn og fallegur.
Kynning í dag.
Komdu og láttu snyrtifræðing
Lancôme aðstoða þig við val
á snyrtivörum.
Margar spennandi nýjungar.
Kaupaukar og ýmis tilboð.
TRÚÐU Á FEGURÐ
ADAPTÎVE
N T T
Austurver • Sími 581 2101
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
KR
I
21
07
9
0
5/
20
03
Kringlan er…
…fjölbreyttari
Afgreiðslutími
verslana:
Mánudag til
miðvikudags
10.00 til 18.30
Fimmtudag
10.00 til 21.00
Föstudag
10.00 til 19.00
Laugardag
10.00 til 18.00
Sunnudag
13.00 til 17.00
Veitingastaðir
og Kringlubíó eru
með opið lengur á
kvöldin.
Kringlan er yfir 150 verslanir,
veitingastaðir og þjónustuaðilar.
Gott vöruúrval og fjölþætt þjónusta eru lykilatriði í rekstri verslunar -
miðstöðvar. Með nýju Focus-versluninni á 2. hæð í suðurhluta
Kringlunnar er aukið enn á fjölbreytnina í Kringlunni. Focus er
skóverslun fyrir karla og konur með úrval af götu- og strigaskóm.
Við bjóðum skóverslunina Focus hjartanlega velkomna.