Morgunblaðið - 08.05.2003, Qupperneq 49
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2003 49
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa
kl. 14–17 í neðri safnaðarsal. Sönghópur
undir stjórn Kára Þormar, organista. Kaffi
og með því eftir sönginn. Allir velkomnir.
Bústaðakirkja. Foreldramorgunn kl. 10–
12 í umsjá Lovísu Guðmundsdóttur.
Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl.
12. Orgelleikur, íhugun. Léttur málsverð-
ur í safnaðarheimili að stundinni lokinni.
Háteigskirkja. Taizé-messa kl. 20. Eldri
borgara starf. Á morgun kl. 13.30 sam-
vera í Setrinu (bridsaðstoð).
Landspítali Háskólasjúkrahús, Arnar-
holt. Guðsþjónusta kl. 15. Sr. Kjartan Örn
Sigurbjörnsson.
Langholtskirkja. Kl. 10–12 foreldra- og
ungbarnamorgunn. Guðrún Bjarnadóttir
verður með fræðslu um málþroska barna
og samskipti við þau fyrstu árin. Kaffi-
sopi. Söngstund. Allir foreldrar velkomnir.
Laugarneskirkja. Kyrrðarstund í hádegi
kl. 12. Orgeltónlist, hugvekja, altaris-
ganga og bænastund. Léttur málsverður í
safnaðarheimili að samveru lokinni. Sam-
vera eldri borgara kl. 14. Systurnar Guð-
laug og Svana Hróbjartsdætur skemmta
ásamt sínum vinkonum. Kaffiveitingar og
stjórnun í umsjá þjónustuhóps kirkjunnar,
kirkjuvarðar og sóknarprests. (Sjá síðu
650 í Textavarpi.)
Neskirkja. Nedó, unglingaklúbbur Nes-
og Dómkirkju, kl. 19.30. Umsjón Munda
og Hans.
Digraneskirkja. Fjölskyldumorgnar kl.
10–12. Kirkjustarf aldraðra, Leikfimi ÍAK
kl. 11.15. Bænastund kl. 12.10. Ung-
lingakór Digraneskirkju kl. 17–19.
Fella- og Hólakirkja. Biblíulestur og helgi-
stund í Gerðubergi kl. 10.30–12. Starf
fyrir 8–10 ára stúlkur kl. 16.30.
Grafarvogskirkja. Foreldrarmorgnar kl.
10–12. Fræðandi og skemmtilegar sam-
verustundir, ýmiss konar fyrirlestrar. Allt-
af heitt á könnunni, djús og brauð fyrir
börnin.
Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar kl. 16.30.
Kópavogskirkja. Samvera eldri borgara í
dag kl. 14.30–17 í safnaðarheimilinu
Borgum. Kyrrðar- og bænastund í dag kl.
17. Fyrirbænaefnum má koma til sókn-
arprests eða kirkjuvarðar.
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðarstund í
kirkjunni kl. 22. Gott er að ljúka deginum
og undirbúa nóttina í kyrrð kirkjunnar og
ber þar fram áhyggjur sínar og gleði. Bæn-
arefni eru skráð í bænabók kirkjunnar af
prestum og djákna. Boðið er upp á mola-
sopa og djús að lokinni stundinni í kirkj-
unni.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung
börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safn-
aðarheimili Strandbergs, kl. 10–12. Opið
hús fyrir 8–9 ára börn í safnaðarheimilinu
Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl. 17–
18.30.
Víðistaðakirkja. Foreldrastund í dag kl.
13. Kjörið tækifæri fyrir heimavinnandi
foreldra með ung börn að koma saman í
notalegu umhverfi og eiga skemmtilega
samverustund. Barnastarf fyrir 10–12
ára börn í dag kl. 17.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. TTT-starf fyrir 10–
12 ára kl. 16.30–18.
Lágafellskirkja. TTT-starf Lágafellskirkju
er í dag, fimmtudag, kl. 16. Mikið fjör,
mikið gaman. Allir krakkar á aldrinum 10–
12 ára velkomnir. Safnaðarstarf Lága-
fellskirkju. Æskulýðsstarfið Sound.
Æskulýðshópurinn okkar er með fundi
alla fimmtudaga kl. 17. Frábær hópur fyrir
frábært ungt fólk í 8.–10. bekk. Safnaðar-
starf Lágafellskirkju.
Þorlákskirkja. Biblíupælingar í kvöld kl.
20.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 10.
Mömmumorgunn í Safnaðarheimilinu.
Kaffi og könnunni og þægilegt andrúms-
loft.
Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir vel-
komnir.
AD-KFUM. Fundur í kvöld kl. 17. Heim-
sókn í Álverið í Straumsvík. Farið með
rútu frá Holtaveginum kl. 17. Eftir heim-
sóknina verður komið við á Holtaveginum
og höfð stutt samverustund. Allir karlar
velkomnir. Athugið breyttan tíma.
Akureyrarkirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund kl. 12. Léttur hádegisverður á
vægu verði í Safnaðarheimili eftir stund-
ina.
Safnaðarstarf
Morgunblaðið/Jim Smart
Bústaðakirkja
SÍÐASTI fræðslufundur
vetrarins hjá Nýrri dögun,
samtökum um sorg og sorg-
arviðbrögð, verður haldinn
fimmtudaginn 8. maí kl. 20–
22. Yfirskrift samverunnar
er „Sumarið og sorgin“. Sr.
Halldór Reynisson mun leiða
umræðuna með þátttöku
syrgjenda. Fundarstaður er
safnaðarheimili Háteigs-
kirkju, 2. hæð. Allir eru vel-
komnir og aðgangur ókeyp-
is.
Sumarið
og sorgin
alltaf á föstudögum
Kleppsvegur - útsýni
Vorum að fá í sölu mjög fallega
77 fm 3ja herb. íbúð á 4. hæð í
lyftuhúsi. Góðar suðursvalir.
Mjög fallegt útsýni er úr íbúðinni
til norðurs og suðurs.
V. 10,9 m. 3312
áfram Ísland
Íslensk heilbrig›isfljónusta er me› flví besta sem flekkist.
Sjálfstæ›isflokkurinn vill áfram tryggja öllum grei›an a›gang a› bestu
heilbrig›isfljónustu sem völ er á og ey›a bi›listum.
Á flessum fundi me› málsvörum Sjálfstæ›isflokksins í heilbrig›ismálum
ver›ur rætt hvernig fletta ver›ur best gert og hva›a lei›ir eru farsælastar
til a› n‡ta skattfé borgaranna sem best í almannaflágu.
Frummælendur eru málsvarar Sjálfstæ›isflokksins í heilbrig›ismálum á Alflingi:
xd.is
Heilbrig›ismál
á heimsmælikvar›a
Ásta Möller, alflingisma›ur
og hjúkrunarfræ›ingur
Katrín Fjeldsted,
alflingisma›ur og læknir
Fundur í Valhöll í dag kl. 17.00