Morgunblaðið - 08.05.2003, Síða 62
DAGBÓK
62 FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Mánafoss og Örfirisey
koma í dag. Keilir,
Dettifoss og Helgafell
fara í dag.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9–12
bað og opin handa-
vinnustofa, kl. 9–12.30
bókband og öskjugerð,
kl. 9.45–10 helgistund,
kl. 10.15 leikfimi, kl. 11
boccia, kl. 13–16.30 op-
in smíða- og handa-
vinnustofa.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–16 hárgreiðsla, kl.
8.30–14.30 bað, kl. 9–
9.45 leikfimi, kl. 9–12
myndlist, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 13 bók-
band, kl. 14–15 dans.
Leikfimi og qigong.
Félagsstarf eldri
borgara í Mosfellsbæ,
Kjalarnesi og Kjós.
Félagsstarfið opið
mánu- og fimmtudaga.
Fimmtudagur: kl. 13
tréskurður, kl. 14
bókasafnið, kl. 15–16
bókaspjall, kl. 17–19
æfing kórs eldri borg-
ara í Damos.
Félagsstarfið, Dal-
braut 27. Kl. 8–16 opin
handavinnustofan, kl.
9–12 íkonagerð, kl. 10–
13, verslunin opin, kl.
13–16 spilað.
Félagsstarfið Dal-
braut 18–20. Kl. 9 bað
og opin handa-
vinnustofa, kl. 14 söng-
stund.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–12
bað, kl. 9 glerskurður,
kl. 10 leikfimi, kl. 13.30
söngtími, kl. 9–14 hár-
greiðsla.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9
fótaaðgerð, kl. 10 hár-
greiðsla, kl. 13 föndur
og handavinna. Kl. 15
bingó
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Kl. 15 í
Garðabergi: Endur-
menntun Ellismella
fær gjafir. Allir hópar í
félagsstarfinu hvattir
til að mæta.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Glerlist
kl. 13, bingó kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Brids kl. 13.
S. 588 2111.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Kl. 10.30
helgistund,
frá hádegi vinnustofur
og spilasalur opin. All-
ar upplýsingar um
starfsemina á staðnum
og í síma 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, kl. 9.05 og 9.50 leik-
fimi, kl. 10.50 leikfimi,
kl. 9.30, klippimyndir,
kl. 13 gler og postulíns-
málun, kl. 20 gömlu
dansarnir, kl. 21 línu-
dans.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulíns-
málun, kl. 10 ganga, kl.
13–16 handa-
vinnustofan opin, kl. 13
brids.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna og perlu-
saumur, og hjúkr-
unarfræðingur á
staðnum, kl. 9.05 leik-
fimi, kl. 10 boccia, kl.
11 leikfimi, kl. 14 fé-
lagsvist.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9 bútasaumur, kl. 10
boccia, kl. 13 handa-
vinna, kl. 13.30 fé-
lagsvist. Fótaaðgerðir,
hárgreiðsla.
Korpúlfar, Graf-
arvogi, samtök eldri
borgara, hittast á
fimmtudögum kl. 10,
aðra hverja viku er
púttað á Korpúlfs-
stöðum en hina vikuna
er keila í Keilu í
Mjódd.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa
og tréskurður, kl. 13–
16.45 leir, kl. 10–11
ganga.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12
bað, kl. 9.15–15.30,
handavinna, kl. 10–11
boccia, kl. 10.15–11.45
enska, kl. 13–14 leik-
fimi, kl. 13–16 kóræf-
ing og mósaik. Ragnar
Páll Einarsson leikur á
hljómborð fyrir dansi
föstudaginn 9. maí frá
kl. 14–16. Föstudaginn
9. maí kl. 15 koma
fulltrúar Fjálslynda
flokksins í heimsókn,
Gísli Helgason tekur
lagið. Allir velkomnir.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla,
kl. 9. 30 glerskurður og
morgunstund, kl. 10
fótaaðgerð og boccia-
æfing, kl. 13 hand-
mennt og spilað.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.15 í Digra-
neskirkju.
Félag áhugamanna
um íþróttir aldraðra.
Leikfimi í Bláa salnum
kl. 11.
Sjálfsbjörg félag fatl-
aðra, Hátúni 12, kl.
19.30 tafl.
Kristniboðsfélag
kvenna, Háaleitisbraut
58–60. Fundur kl. 17 í
umsjá Katrínar Guð-
laugsdóttur og Gísla
Arnkelssonar. Allar
konur velkomnar.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids að
Gullsmára 13. Skrán-
ing kl. 12.45, spil hefst
kl. 13.
Í dag er fimmtudagur 8. maí,
128. dagur ársins 2003.
Orð dagsins: Sá sem vill elska
lífið og sjá góða daga, haldi tungu
sinni frá vondu og vörum sínum
frá að mæla svik.
(1Pt. 3, 10.)
Friðrik Daníelssonefnaverkfræðingur
ritar kjallaragrein í DV.
Hann rifjar upp þegar
hann kom til Svíþjóðar
árið 1968. „Svíar voru þá
í fremstu röð á sviðum
lista, vísinda, tækni og
iðnaðar og ein auðugasta
þjóð heims, sjálfstæð og
hlutlaus; fyrirmynd-
arþjóð.“
Um þetta leyti urðu, aðsögn Friðriks, af-
drifaríkar breytingar í
sænskum stjórnmálum.
„Slagorðin voru „jafn-
rétti og lýðræði“ sem nú
átti endanlega að inn-
leiða. Þetta kom okkur
Íslendingunum á óvart,
við vissum ekki betur en
að Svíþjóð væri eitt af
höfuðvígjum jafnréttis og
lýðræðis. Smám saman
rann þó upp fyrir okkur
að nýja jafnréttið þýddi
ekki jafnrétti, heldur
heildarútjöfnun lífsgæða
með stjórnvalds-
aðgerðum, lýðræði þýddi
í raun ábyrgðarlausar
ákvarðanir, að allir áttu
að ráða og óábyrgir og
ókunnandi ekki síst.“
Í nafni jafnréttis máttinú eyða almannafé
nærri takmarkalaust í
sameiginlegar þarfir,
bætur og styrki, mennt-
un, sjúkraþjónustu og
samfélagsþjónustu. „Bæt-
ur voru auknar og nýjar
fundnar upp, það endaði
með því að menn báru
svipað úr býtum hvort
sem þeir fengu bætur af
almannafé eða unnu í
sveita síns andlits,“ segir
Friðrik.
Nærri hver einastimaður varð þiggj-
andi ölmusunnar. Meiri
vinna þýddi meiri skatta.
Skattar jukust og urðu
tvær af hverjum þremur
krónum sem var aflað.
Fyrirtækin hættu að
standa undir sköttum og
öllum réttindum launa-
fólks. Reglur og skrif-
finnska hægðu á fram-
kvæmdum. Svíþjóð fór að
safna skuldum.
Nú, um aldarþriðjungisíðar, ríkir stöðnun
og svartsýni í Svíþjóð,
segir Friðrik. Atvinnu-
leysi er óviðráðanlegt og
alþjóðafyrirtækin eru
farin úr landi. „Afsiðunin
er komin á það stig að
vinnuskróp er það hæsta
í hinum þróaða heimi,
skattaáþjánin er heims-
met og reglugerða-, laga-
og kvaðabálkarnir ófær
fen,“ segir hann.
Friðrik segir að sembetur fer hafi Íslend-
ingar aldrei fetað þessa
braut. „En eftir stjórn-
málaumræðuna og skoð-
anakannanirnar hér síð-
ustu mánuði virðist
kominn tími til að spyrja
sig hvort Íslendingar
muni nú, eftir að hafa
varast það í áratugi, falla
í sömu gryfju og Svíar og
kjósa yfir sig öfl sem
muni leggja efnahaginn
og sjálfsímyndina í rúst
og afsala sjálfstæði Ís-
lands aftur.“
STAKSTEINAR
Fylgjum við Svíum?
Víkverji skrifar...
ALVEG er það ótrúlega algengt aðfólk gleymir að slökkva á farsím-
unum sínum þegar það á við. Flestir
þekkja sjálfsagt dæmi þess að far-
símar hringja í miðri kvikmyndasýn-
ingu og sumir eru jafnvel svo ósvífnir
að svara í símann og blaðra eitthvað í
hann um að þeir séu í bíó og geti ekki
talað í símann núna (og af hverju
slökktu þeir þá ekki á símanum áður
en þeir fóru í salinn!?) Víkverja finnst
merkilegt að fólk skuli ekki geta van-
ið sig á þennan einfalda hlut. Víða,
t.d. í leikhúsum, er fólk sérstaklega
beðið um að slökkva á farsímunum
sem er í sjálfu sér góðra gjalda vert
og dregur sjálfsagt úr hringingunum
óþolandi. En það er í sjálfu sér
merkilegt að það þurfi yfirleitt að
biðja fólk um þetta. Það er t.d. ekki
talin þörf á því að biðja leikhúsgesti
um að tala ekki saman meðan á leik-
sýningu stendur eða um að grípa ekki
fram í fyrir leikurunum. Matargestir
á veitingahúsum eru ekki heldur
beðnir um að smjatta ekki mjög hátt.
Víkverja finnst það svo sjálfsögð
kurteisi að slökkva á farsímanum
þegar þess er þörf, að ekki þurfi að
biðja fólk um það sérstaklega. En
samt þarf þess. Því miður.
x x x
KUNNINGI Víkverja hefur ununaf gönguferðum. Nýlega lagði
hann leið sína að fossinum Glym í
Hvalfirði. Glymur er hæsti foss
landsins og er getið í ferðakortum og
öðru lesefni fyrir ferðamenn. Kunn-
inginn komst að því að best væri að
skoða fossinn af austurbakka foss-
gljúfursins, en þangað er ógreiðfært
eftir að brú yfir ána tók af. Leiðin upp
með gilinu að vestanverðu þótti
kunningjanum torfær, brött og laus
undir fæti. Gönguleið sem krefst góðs
fótabúnaðar og töluverðs þreks. Ekki
heppileg fyrir börn og gamalmenni.
Í bakaleiðinni var gengið fram á
erlenda ferðamenn, þar á meðal bæði
börn og aldraða. Sumir voru að rýna í
kort og ferðapésa en áttuðu sig ekki á
því hvar Glymur var, því það vantaði
skilti sem vísuðu leið. Kunningjanum
þótti ekki forsvaranlegt að ekki væru
góðar merkingar á svæðinu, og eins
að ferðamenn væru ekki upplýstir
um gönguleiðina og hvers hún krefst
í fótabúnaði og atgervi. Honum þótti
eðlilegt að opinberir aðilar tryggðu
nauðsynlega upplýsingagjöf á aug-
lýstum ferðamannaslóðum, að
minnsta kosti í næsta nágrenni höf-
uðborgarinnar.
x x x
VÍKVERJI verður að viðurkennaað honum finnst ekkert stórmál
þótt ekki hafi risið tónlistarhús í
Reykjavík. Hann skilur á hinn bóginn
vel pirringinn í tónlistarmönnum
enda sjálfsagt ekki vanþörf á slíku
húsi. En þarf það virkilega að kosta
sex milljarða? Víkverji telur að
stuðningur við byggingu hússins
myndi aukast ef ódýrari lausn yrði
fundin. Væru t.d. þrír milljarðar ekki
nóg?
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Muna að slökkva!
LÁRÉTT
1 hreyfa til, 4 sveia, 7
rugga, 8 venslamönnum,
9 rekkja, 11 ráða við,
13 vegg, 14 tafla, 15
hörfa, 17 kögur, 20 eld-
stæði, 22 ala afkvæmi, 23
merkur, 24 stöng, 25
gripdeildin.
LÓÐRÉTT
1 binda fast, 2 eftirsjá, 3
mjög, 4 tölustafur, 5
mastur, 6 numið brott,
10 ásýnd, 12 herma eftir,
13 op, 15 snjókorns, 16
reyna, 18 illa innrætt,
19 drepsóttin, 20 rétt, 21
hljómur.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 Kópavogur, 8 ljóns, 9 dubba, 10 aka, 11 náinn,
13 rýran, 15 hratt, 18 sakna, 21 alt, 22 skalf, 23 aspir, 24
kaðallinn.
Lóðrétt: 2 ósómi, 3 ausan, 4 oddar, 5 umber, 6 flón, 7
rann, 12 net, 14 ýta, 15 hest, 16 apana, 17 tafla, 18 stall,
19 kápan, 20 aurs.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Merkilegir tímar
ÞEIR sem hafa nálgast að
lifa heila öld, geta horft yfir
gjörbreytt þjóðfélag. Rót-
tækasta breytingin er að
mörgu leyti á stöðu kvenna.
Sé litið í þingtíðindi á fyrsta
hluta tuttugustu aldar, þeg-
ar harðar deilur voru í
þinginu um vitsmunaþroska
kvenna, kemur margt í ljós
sem verkar hlægilega á nú-
tímafólk. Sumir þingmenn
héldu að konur hefðu tæp-
lega fullt mannsvit. Í minn-
um var haft um ræður eins
mælskasta ræðumannsins,
hve mikil vandræði gætu
stafað af þátttöku kvenna í
stjórn landsins. Hannesi
Hafstein blöskraði svo mál-
flutningur eins síns besta
fylgismanns á þingi að
Hannes orti þessa vísu:
Elskulegi Múli minn
mikið gull er túli þinn,
en vendu þig af þeim vonda sið
að velta þér yfir kvenfólkið.
Sjálfur reyndist Hannes
mikill vinur Bríetar Bjarn-
héðinsdóttur brautryðjanda
kvenréttinda á Íslandi.
En eins og Davíð orti. Fá-
ir njóta eldanna sem fyrstir
kveikja þá. Bríet náði aldrei
sæti á Alþingi, þar brugðust
konur sínum mikla velgerð-
armanni.
Nú er önnur tíð sem bet-
ur fer. Allir flokkar prýða
lista sína með konum í fram-
boði. Það er vegna þess að
þegar konur loksins náðu
sæti á Alþingi þá reyndust
þær þess betur sem þeim
var meiri ábyrgð á hendur
falin.
Þegar Vigdís Finnboga-
dóttir var fyrsti kvenkyns
þjóðkjörni forseti lands síns
fengu Íslendingar bestu
landkynningu sem þeir
höfðu nokkru sinni haft.
Hún kom Íslandi á kortið.
Nær allar þjóðir þekktu
Vigdísi, t.d. Kínverjar, fjöl-
mennasta ríki heims. Í Nor-
egi vissi nær hvert manns-
barn hvað forseti Íslands
hét þannig mætti lengi
áfram telja.
Og nú líður senn að kosn-
ingum, rétt einn ganginn
enn og mikið í húfi. Hver
mun skipa sæti forsætisráð-
herra? Vel væri unnið og
gæfulega ef hinn reyndi
stjórnmálamaður Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir skipaði
þann sess fyrst kvenna.
Sannarlega væri þá loksins
jafnrétti á Íslandi.
Sigurveig Guðmunds-
dóttir, fyrrverandi
formaður Kvenréttinda-
félags Íslands.
Um skoðana-
kannanir í síma
HRÍÐ skoðanakannana
fjölmiðla dynur nú yfir okk-
ur almenning í landinu og
eftir því sem kosningarnar
nálgast verður hríðin harð-
ari. Þessar skoðanakannan-
ir virðast flestar fram-
kvæmdar á þann hátt að
hringt er í tiltekinn fjölda
símanúmera og spurt um
skoðanir svarandans.
Mig langar til þess að vita
hvernig þessar símaskoð-
anakannanir mæla pólitísk-
an vilja þeirra sem banna að
hringt sé í þá? Þeir eru
nokkuð margir, ef marka
má rauðu merkin í síma-
skránni.
Ég er ein í hópi þeirra
þúsunda símnotenda sem
lét merkja við nafn mitt í
símaskrá og banna þar með
að hringt sé í mig í nafni
sölumennsku, kosninga-
kannana o.fl. Það virkar vel
og ég fæ að vera í friði á
kvöldin, en það var nú ekki
svoleiðis áður, t.d. hefur
aldrei verið hringt í mig nú í
vetur og spurt hvað ég
hyggist kjósa í komandi
kosningum.
Hvernig er það annars
með okkur í þessum hópi,
hefur nokkuð verið kannað
hvort það séu t.d. kjósendur
tiltekins flokks, eða eitthvað
sérstakt fólk sem þarna er
um að ræða og vill ekki láta
hringja í sig?
Verður svona „random“
símakönnun sem fram-
kvæmd er af atvinnufólki
svo sem af félagsvísinda-
stofnun HÍ eða af amatör-
um svo sem pólitískum fjöl-
miðlum t.d. ekki skökk, ef
ekki má hringja í þennan
undirhóp?
Ég bara velti þessu svona
fyrir mér.
Raunar finnst mér að
banna ætti birtingu niður-
staðna svona skoðanakann-
ana síðustu vikuna fyrir
kosningar.
Reykvísk kona
á eftirlaunum.
Tapað/fundið
Týndur hattur
SVEINN Aðalsteinsson
tapaði hattinum sínum á
Hótel Borg sl. laugardags-
kvöld. Honum er mjög annt
um hattinn sem hefur mikið
tilfinningalegt gildi fyrir
hann. Þeir sem vita um hatt-
inn geta haft samband við
Svein í síma 561 7900 eða
663 5363 eða á netfanginu:
isgull@isholf.is
GSM-sími í óskilum
MOTOROLA Timesport
GSM-sími fannst fyrir utan
leikskólann Lækjarborg.
Upplýsingar í síma 659 9922
og 568 1562.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Sveinn með hattinn.