Morgunblaðið - 08.05.2003, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2003 63
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
NAUT
Afmælisbörn dagsins:
Þið eruð staðföst, sannfær-
andi og umhyggjusöm. Á
þessu ári þurfið þið að læra
að sleppa tökunum og skapa
rými fyrir eitthvað nýtt.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Dagurinn hentar vel til
skemmtana með öðrum. Þið
njótið þess að daðra og fara í
boð, bíó, leikhús eða á íþrótta-
leik
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Ykkur líður vel í vinnunni og
því eruð þið nógu sjálfsörugg
til að leggja nýjar hugmyndir
fyrir yfirmenn ykkar. Þegar
við trúum á okkur sjálf eru
meiri líkur á að aðrir geri það.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þið hafið hug á að fara í ferða-
lag eða leggja stund á frekara
nám. Ykkur finnst gaman að
læra og þið þolið ekki að láta
ykkur leiðast.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þetta er góður dagur til við-
skipta og fjáröflunar. Gætið
þess þó að eyða ekki um efni
fram.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Gefið ykkur tíma til að fylgjast
með viðbrögðum annarra
gagnvart ykkur og því sem þið
eruð að gera. Þið þurfið að vita
hvernig þið virkið á aðra áður
en þið takið næsta skref.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Ykkur gengur vel í vinnunni í
dag. Tímasetning ykkar vekur
aðdáun annarra. Þið eruð á
réttum stað á réttum tíma og
segið rétta hluti við rétta fólk-
ið.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Dagurinn hentar vel til við-
skipta. Reynið að vera raunsæ
og vænta ekki of mikils fyrir of
lítið.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Ykkur langar til að flytja eða
gera breytingar á heimilinu.
Reynið að líta hlutina jákvæð-
um augum en gæta þess jafn-
framt að færast ekki of mikið í
fang.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Bjartsýni ykkar og jákvæðni
smita út frá sér. Þið eruð upp-
örvandi og skemmtileg og fólk
nýtur þess að vera með ykkur.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þetta er góður dagur til við-
skipta en þið ættuð þó að gæta
þess að ofmeta ekki hæfni ykk-
ar. Hlutirnir líta vel út en ekk-
ert er fullkomið.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þið sjáið í hendi ykkar hvað
þarf að gera og getið talið
næstum hvern sem er á hvað
sem er. Sjálfstraust ykkar vek-
ur traust fjöldskyldu ykkar.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þið eigið auðvelt með að fá
óformlegan stuðning við það
sem þið viljið gera í vinnunni í
dag. Þið hafið eittvað að segja
og fólk er tilbúið að hlusta á
ykkur.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
HVER ERT ÞÚ?
Í fyrsta sinn und friðarboga eg sá þig,
um fjöll og himin lagði geislinn brú.
Eg starði björtum, feimnum augum á þig,
og ást mín spurði: Hver, ó, hver ert þú?
Nú langt er orðið síðan fyrst eg sá þig,
um sundin leggur hvítur máninn brú.
Eg stari dauðafölum augum á þig,
og aftur spyr mitt hjarta: Hver ert þú?
Guðfinna Jónsdóttir
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
90 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 8.
maí, er níræð Margrét Guð-
leifsdóttir, Garðvangi,
Garði, áður til heimilis á
Háteigi 5, Keflavík.
60 ÁRA afmæli. Ámorgun, föstudaginn
8. maí, verður sextug Rósa
Árilíusardóttir, Hóli, Norð-
urárdal. Eiginmaður henn-
ar er Þórir Finnsson. Hún
verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
KERFI Íslandsmeist-
aranna er mikið að vöxtum
og um margt óvenjulegt.
Dvergagrandið sáum við í
gær, en nú skulum við líta
á annað sérkenni kerfisins
– yfirfærslusvör við láglit-
aropnun:
Suður gefur; NS á
hættu.
Norður
♠ D9875
♥ 96
♦ ÁD94
♣97
Vestur Austur
♠ 104 ♠ G632
♥ ÁD83 ♥ K10742
♦ KG5 ♦ –
♣KG64 ♣D082
Suður
♠ ÁK
♥ G5
♦ 1087632
♣Á53
Spilið kom upp undir lok
Íslandsmótsins og þeir
Haraldssynir, Anton og
Sigurbjörn, sátu í NS gegn
Hjálmari S. Pálssyni og
Böðvari Magnússyni:
Vestur Norður Austur Suður
Hjálmar Sigurbjörn Böðvar Anton
– – – 1 tígull
Pass 1 hjarta * Dobl 2 tíglar
4 hjörtu 5 tíglar Pass Pass
Dobl Pass Pass Pass
Opnun á tígli er alltaf
byggð á ójafnri skiptingu
og svar norðurs á einu
hjarta sýnir spaðalit!
Ágóðinn af yfirfærslum í
þessari stöðu er ekki öllum
skiljanlegur, en Anton
vinnur að doktorsritgerð
um efnið og lofar að deila
niðurstöðum sínum þegar
þær liggja fyrir. Hér notar
Böðvar tækifærið til að
koma hjartalitnum sínum á
framfæri með dobli og
Hjálmar skýst rakleiðis í
fjögur hjörtu. Það er hið
besta spil og vinnst auð-
veldlega. En Sigurbjörn
hafði engan áhuga á að
verjast með fjórlitarstuðn-
ing við tígulinn og fór í
fimm tígla. Hjálmar dobl-
aði, að sjálfsögðu, og bjóst
við góðri uppskeru.
Það fór þó á annan veg.
Vörnin tók tvo slagi á
hjarta og spilaði næst
laufi. Anton drap strax og
„fór svo djúpt í tígulinn“,
lét tíuna svífa yfir. Laufin
tvö heima fóru niður í
spaðann í rólegheitum og
Anton fékk 11 slagi: 750 og
36 stig af 38 mögulegum.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
Þessir vösku krakkar í grunnskólanum á Laugarvatni
héldu hlutaveltu nú nýverið til styrktar Rauða krossi Ís-
lands. Þau söfnuðu 5.000 kr. og voru á leið í bankann að
leggja inn peningana þegar myndin var tekin. Þetta eru
þau Jakob Alf og Alla María fyrir aftan, og Ezmeralda,
Birna Eyvör, Júlía, Anný Björk og Elínborg Anna. Á
myndina vantar Hermann Ágúst sem lá heima veikur.
1. d4 Rf6 2. Rc3 d5 3. Bg5
Rbd7 4. Dd3 e6 5. e4 dxe4
6. Rxe4 Be7 7. Rxf6+
Bxf6 8. Bxf6 Dxf6 9. Rf3
c5 10. 0–0–0 0–0 11. De3
b6 12. Bb5 De7 13. d5 Rf6
14. Bc6 Hb8 15. d6 Dd8
16. d7 Bb7 17. Re5 Rg4
18. Rxg4 Bxc6 19.
Hd6 Bd5 20. Hd1
h5 21. c4 Bxc4 22.
Re5 Bd5
Staðan kom upp
á Sigeman-mótinu
sem stendur nú yf-
ir í Málmey í Sví-
þjóð. Jonny Hector
(2.553), „Tal Norð-
urlanda“, hafði
hvítt gegn Bent
Lindberg (2.393).
23. H1xd5! exd5
24. Rc6 Dc7 25.
Re7+ Kh7 25 …
Kh8 gekk upp vegna 26.
Hh6+ gxh6 27. Dxh6#. Í
framhaldinu ræður svart-
ur ekki heldur við sókn
hvíts. 26. De5 g6 27.
Rxd5 Dd8 28. Rf6+ Kh6
29. g4! hxg4 30. Rxg4+
Kh7 31. Rf6+ Kh6 32.
Hd3 g5 33. Hh3+ Kg6 34.
De4+ Kg7 35. Hh7+ Kxf6
36. Hh6+ og svartur gafst
upp enda mát í næsta
leik.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
HLUTAVELTA
Þetta líkist nú ekki
beint fyrirmyndinni!
Hann kemur með
beinið sitt! Ég skal
veðja að hann hefur
grafið inniskóna mína
einhvers staðar!
3.990 áður 5.990
Brúnir
st. 37-41
3.990 áður 5.990
Drappaðir
st. 36-41
Kringlan, sími 533 5150
3.990 áður 6.490
Svartir/bláir
st. 36-41
4.990 áður 6.990
Svartir/ljósir
st. 36-41
4.990 áður 9.990
Svarbrúnir
st. 40-46
HELGARTILBOÐ
Fimmtudag - föstudag - laugardag
Opið mánudaga-föstudaga
frá kl. 12-18 og laugardaga
frá kl. 11-14 Skólavörðustíg 2 – sími 544 8880.
ÚTSALA
Nú er tækifærið...
glæsilegt úrval minkapelsa á frábæru verði
Stuttar og síðar kápur
sumarúlpur, heilsársúlpur,
regnúlpur, ullarjakkar,
hattar og húfur
Opið virka daga frá kl. 9-18
Laugardaga frá kl 10-15
Mörkinni 6 - Sími 588 5518