Morgunblaðið - 08.05.2003, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 08.05.2003, Blaðsíða 64
ÍÞRÓTTIR 64 FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ GUÐJÓN Valur Sigurðsson, landsliðsmaður í handknatt- leik, getur ekki leikið með Essen í þýsku úrvalsdeildinni næstu vikurnar. Guðjón meiddist í sýningarleik með Essen gegn liði úr 5. deildinni síðastliðið sunnudag og við læknisskoðun kom í ljós að tvö liðbönd í ökklanum sködd- uðust. „Ég kom illa niður á vinstri fótinn. Hann lenti ofan á fæti annars leikmanns og við það missteig ég mig mjög illa. Ég þarf sem betur fer ekki að fara í aðgerð en tvö liðbönd í ökklanum rifnuðu. Ég er kom- inn í spelku og nú tekur bara við að styrkja ökklann sem er mjög bólginn,“ sagði Guðjón við Morgunblaðið. Sjálfur segist Guðjón hafa tekið stefnuna á að spila með Essen á móti Pfullingen í næstsíðustu umferð deildar- innar sem fram fer 21. maí en til þess þarf batinn að verða mjög skjótur að sögn Guðjóns. Guðjón átti stórleik með Essen í sigrinum á Grosswall- stadt um síðustu helgi. Hann skoraði 10 mörk og hans verð- ur sárt saknað í tveimur næstu leikjum sem eru á móti Nord- horn og Lemgo en Essen er í harðri baráttu við Magdeburg um þriðja sæti deildarinnar sem gefur sæti í Meistaradeild Evrópu. Guðjón Valur kominn á sjúkralista hjá Essen Guðjón Valur STJÓRN Alþjóðakörfuknatt- leikssambandsins, FIBA, ákvað á fundi sínum í mars að kollvarpa keppnisfyrirkomulagi Evrópu- keppni landsliða sem búið var að samþykkja á ársfundi FIBA fyrir tveimur árum. Ólafur Rafnsson, formaður Körfuknattleikssam- bands Íslands, KKÍ, segir að nið- urstaðan sé gríðarleg vonbrigði fyrir íslenskan körfuknattleik. FIBA hætti við að nota fyrir- komulag sem svipar til þess sem þekkist í Evrópukeppni lands- liða í knattspyrnu, þar sem öll lið nema gestgjafar og Evrópu- meistararnir eru dregin í riðla og leikið er heima og að heiman í riðlakeppni. „Við vorum búnir að miða okkar áætlanir við fyrri sam- þykktir FIBA og sáum fram á „alvöru“ landsleiki á Íslandi strax í haust, 2003, þar sem við gátum fengið bestu lið Evrópu í okkar riðil. En FIBA hefur nú snúið frá þessu, og eru það gríð- arleg vonbrigði fyrir okkur og aðrar þjóðir,“ sagði Ólafur og átti hann von á því að næstu leik- ir íslenska liðsins í forkeppni Evrópumótsins færu fram í sept- ember árið 2004 þar sem sex leikir færu fram. Íslenska lands- liðið leikur því þrjá leiki gegn Norðmönnum síðar í þessum mánuði, tekur þátt á Smáþjóða- leikum en síðan gæti svo farið að rúmt ár líði þar til liðið leikur „alvöru“ landsleiki á ný. Vonbrigði er FIBA breytti um stefnu  TEDDY Sheringham fær ekki áframhaldandi samning við Totten- ham í sumar. Samningur þessa 37 ára gamla framherja rennur út í næsta mánuði og hann leikur því síð- asta leik sinn með Tottenham þegar liðið tekur á móti Blackburn í loka- umferð deildarinnar á sunnudag.  RUUD Van Nistelrooy, marka- maskínan í liði Manchester United, segir í viðtali við Manchester Ewen- ing News að hann hafi mikinn hug á að enda feril sinn hjá Manchester United. „Mig langar að vinna allt sem hægt er að vinna með United og ég get þannig vel hugsað mér að leika með liðinu allt þar til ég legg skóna á hilluna,“ segir Nistelrooy sem keyptur var frá PSV fyrir 18,5 milljónir punda fyrir tveimur árum.  NISTELROOY, sem er 26 ára gamall, lék sinn 100. leik fyrir Unit- ed í sigrinum á Charlton um síðustu helgi og í þessum leikjum hefur hann skorað 79 mörk fyrir félagið. Hann hefur skorað 43 mörk á leiktíðinni en vantar þrjú mörk til að jafna met Denis Law sem skoraði 46 mörk á einni á sömu leiktíðinni.  DAVID O’Leary segir við BBC að hann yrði afar ánægður ef honum yrði boðið að taka við enska úrvals- deildarliðinu Leeds Utd. á ný en liðið bjargaði sér frá falli í 1. deild með 3:2 sigri gegn Arsenal.  DAVID O’Leary stýrði Leeds á þar til s.l. sumar er hann var látinn fara frá félaginu en undir hans stjórn komst Leeds í undanúrslit í Meist- aradeild Evrópu.  ÞAÐ var stjórnarformaður liðsins, Peter Ridsdale, sem taldi að best væri að láta O’Leary fara frá félag- inu en nú hefur Risdale sagt af sér og O’Leary telur sig eiga ágæta möguleika á því að fá gamla starfið sitt á ný. Peter Reid er knattspyrnu- stjóri liðsins þessa stundina en eft- irmaður O’Leary, Terry Venables, sagði af sér þegar átta umferðir voru eftir af ensku deildarkeppninni.  DANNY Murphy var kjörinn leik- maður ársins hjá Liverpool af stuðn- ingsmönnum þess. Murphy hlaut 6,270 atkvæði, Steven Gerrard varð annar með 3,180 og Michael Owen þriðji með 2,178.  FORRÁÐAMENN tveggja af toppliðunum í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu, Uli Höness hjá meist- urum Bayern München og Michael Meier hjá Dortmund segja tillögu Bayer Leverkusen um að tvö efstu liðin eftir deildakeppnina leiki tvo undanúrslitaleiki og einn úrslitaleik um meistaratitilinn sé alveg út í hött. „Þetta er fáránleg tillaga. Það lið sem er efst eftir 34 umferðir á ekki að hæga það á hættu að tapa titlinum með því að spila einn lélegan leik,“ segir Uli Höness. FÓLK Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfarikarlalandsliðsins hefur valið 17 leikmenn til undirbúnings fyrir leik- ina þrjá en síðan mun hann velja þá leikmenn sem taka þátt í Smáþjóða- leikunum á Möltu í byrjun júní. Damon Johnson mun leika sína fyrstu landsleiki gegn Norðmönnum en Brenton Birmingham verður að öllum líkinindum enn að leika með liði sínu Ruiel í Frakklandi. Guðmundur Bragason, UMFG, kemur aftur inn í hópinn eftir nokk- urt hlé. Landsliðshópur karlaliðsins er þannig skipaður: Sverrir Þór Sverrisson (Keflavík/4 leikir), Gunn- ar Einarsson (Keflavík/19), Magnús Þór Gunnarsson (Keflavík/4), Jón Nordal Hafsteinsson (Keflavík/15), Damon Johnson (Keflavík/0), Frið- rik Stefánsson (UMFN/61), Páll Ax- el Vilbergsson (UMFG/30), Guð- mundur Bragason (UMFG/161), Sigurður Þorvaldsson (ÍR/6), Baldur Ólafsson (KR/32), Hlynur Bærings- son (Snæfell/1), Pálmi Freyr Sigur- geirsson (Breiðablik/4), Logi Gunn- arsson (Ulm/23), Jón Arnór Stefánsson (Trier/26), Fannar Ólafs- son (IUP/29), Helgi Már Magnússon (Catwaba/13), Brenton Birmingham (Ruiel/3). Gáfu ekki kost á sér Ingvaldur Magni Hafsteinsson (KR), Jakob Sigurðarson (Birming- ham S.), Sævar Sigurmundsson (Alabama), Helgi Jónas Guðfinnsson (UMFG), Hreggviður Magnússon (ÍR), Herbert Arnarson (KR), Teitur Örlygsson (UMFN) og Páll Kristins- son (UMFN) voru valdir í hópinn, en gáfu ekki kost á sér vegna meiðsla eða af persónulegum ástæðum. Friðrik sagðist hafa miklaráhyggjur af því hve margir leik- menn veldu það að taka ekki þátt í verkefnum landsliðs- ins, en mál Helga Jónasar væri sér- stakt. Alls eru átta leikmenn sem Frið- rik leitaði til fyrir utan hópinn að þessu sinni og eru ástæðurnar marg- ar. „Ég veit ekki hvort það er meiri áfellisdómur yfir körfuknattleiknum eða knattspyrnunni á Íslandi að Helgi sé ekki með íslenska landslið- inu á ný. Mér finnst það ótrúlegt að hann geti nánast gengið inn í eitt besta knattspyrnulið landsins þegar grasið fer að grænka. Ég er svekktur, sár, reiður og á stundum alveg brjálaður út af þessu. En ég get engu breytt úr þessu en ég mun ekki erfa þessa ákvörðun við leikmanninn. En ég skil hana hins vegar alls ekki,“ sagði Friðrik Ingi. Það eru ýmsar ástæður fyrir því að leikmennirnir sem Friðrik leitaði til gáfu ekki kost á sér. Ingvaldur Magni Hafsteinsson (KR) gefur ekki kost á sér vegna vinnu, Jakob Sigurðarson (Birming- ham) er við nám í sumarskóla í byrj- un júní, Sævar Sigurmundsson (Ala- bama) og Teitur Örlygsson völdu ekki landsliðið af persónulegum ástæðum. Hreggviður Magnússon úr ÍR er að ljúka námi í byrjun júní og stefnir á framhaldsnám vestan- hafs næsta haust. Herbert Arnarson er meiddur á hné og Páll Kristinsson er enn að jafna sig eftir að hann fór úr axlarlið í vor, auk þess sem hann mun ganga upp að altarinu ásamt unnustu sinni 24. maí, sama dag og íslenska landsliðið leikur gegn Norð- mönnum. Að auki er óvíst hvort Jón Arnór Stefánsson verður klár í slaginn fyr- ir Smáþjóðaleikana en hann fer í speglun á hné á næstu dögum en stefnir á að vera með verði hann heill heilsu. Fannar Ólafsson er einnig að jafna sig eftir meiðsli en hann hefur verið í gifsi undanfarnar vikur eftir handarbrot. „Það er vissulega mjög slæmt fyr- ir íslenskan körfuknattleik að geta ekki stillt upp sterkasta landsliðs- hópnum. Ég hef verulegar áhyggjur af því hve margir leikmenn setja ís- lenska landsliðið aftar í forgangsröð- ina en áður. Við þurfum að skoða þessi mál gaumgæfilega að loknum Smáþjóðaleikunum,“ sagði Friðrik Rúnar en markmið íslenska lands- liðsins á þeim leikum er að vinna til gullverðlauna en það tókst síðast fyrir áratug. „Ég virði ákvörðun Helga Jónasar, en ég skil hana ekki,“ segir Friðrik Ingi Rúnarsson, landsliðsþjálfari í körfuknattleik „Hef miklar áhyggjur af þróuninni“ „ÉG virði ákvörðun Helga Jónasar Guðfinnssonar, en ég skil hana ekki,“ sagði Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari karlalandsliðsins í körfuknattleik, í fyrradag er hann tilkynnti landsliðshóp sinn fyrir þrjá leiki gegn Norðmönnum í lok mánaðarins og Smáþjóðaleikana á Möltu í byrjun júní. Leikmaður ársins á Íslandsmóti karla, Helgi Jónas, sem leikur undir stjórn Friðriks Inga í Grindavík valdi annað árið í röð að leika knattspyrnu með úrvalsdeildarliði Grindavíkur í stað þess að taka þátt í verkefnum landsliðsins. Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson Morgunblaðið/Einar Falur Ingólfsson Keflvíkingurinn Damon Johnson leikur sína fyrstu landsleiki fyrir Ísland gegn Norðmönnum hér á landi í lok maí. Damon í landsliðs- hóp Friðriks Inga ÍSLENSKU karla- og kvennalandsliðin í körfuknattleik mæta þeim norsku í þremur vináttulandsleikjum hér á landi dagana 23.–25. maí og fara leikirnir fram í Keflavík, Reykjavík og Hafnarfirði. Bæði landsliðin taka síðan þátt í Smáþjóðaleikunum á Möltu í byrjun júní.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.