Morgunblaðið - 08.05.2003, Síða 66

Morgunblaðið - 08.05.2003, Síða 66
ÍÞRÓTTIR 66 FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ ANDRIUS Stelmokas, litháíski handknattleiksmaðurinn sem leikið hefur með KA undanfarin, ár hefur ekkert gert upp hug sinn hvar hann leikur á næstu leiktíð. Hann fékk í hendurnar nýtt tilboð frá KA- mönnum í gær en fleiri félög hafa gert hosur sínar grænar fyrir leik- manninum, þar á meðal deildar- meistarar Hauka. Jóhannes Bjarnason, þjálfari KA- manna, sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær að hann vonaðist inni- lega eftir því að Stelmokas yrði um kyrrt en Stelmokas hyggst gefa KA- mönnum svar eftir helgina. „Það er hellingur af liðum sem hafa sett sig í samband við Andrius og eitthvað vill hann skoða málin. Við höfum alla vega gert allt sem í okkar valdi stendur til að halda hon- um og ef það dugar ekki þá sýnist mér stefna í enn eitt uppbyggingar- árið hjá okkur,“ sagði Jóhannes. Stelmokas hefur leikið frábær- lega með KA-mönnum undanfarin ár og það yrði mikil blóðtaka fyrir norðanliðið ef hann færi frá því. Haukarnir vilja væntanlega fá Stelmokas í stað Hvít-Rússans Aliaksandr Shamkuts en hann hefur verið orðaður við lið Fylkis sem ætl- ar að senda lið til leiks á nýjan leik á næsta vetri. KA og Haukar bítast um Stelmokas Andrius Stelmokas, línumaður KA, er eftirsóttur. EKKERT verður úr fyrirhugaðri þátttöku frjálsíþróttmanna úr FH í Evrópukeppni félagsliða síðar í þessum máðnuði. Að sögn Eggerts Bogasonar, eins forvígismanna frjálsíþróttadeildar FH, þá bíður það næsta árs að FH-ingar sendi sveit sína í Evrópukeppnina. Egg- ert segir einkum tvær ástæður liggja að baki þess að ákveðið hafi verið að hætta við þátttöku nú. Önnur ástæðan sé sú að fyrirhugað er að keppni í riðli FH-inga fari fram í Júgóslavíu. Þangað sé ein- faldlega afar dýrt að fara með á fjölmennan hóp. Hin ástæðan sé sú að þrátt fyrir að FH-ingar hafi tilkynnt um þátt- töku innan tilskilis tíma þá hafi staðið á staðfestingu frá Frjáls- íþróttasambandi Evrópu um hvort FH-ingum yrði heimiluð þátttaka eða ekki. Um síðir hafi svar borist og þá á þá leið að FH-ingar yrði fyrsta varasveit í sínum riðli og yrðu að stóla á að einhver drægi þátttöku sína til baka. Ekki sé mögulegt að bíða í óvissu með þátt- töku í keppni af þessu tagi. Þá hafi það einnig sitt að segja að tveir fremstu frjálsíþróttamenn FH, Silja Úlfarsdóttir og Jónas Hallgrímsson séu bæði við nám í Bandaríkjunum og ekki væntanleg heim fyrr en í byrjun júní, þau hefðu því misst af keppninni og það hefði verið skarð fyrir skildi fyrir FH. „Það er ekkert gaman að fara nema geta teflt fram sterkasta liði sem völ er á,“ segir Eggert. FH-ingar ekki með í Evrópubikarnum HANDKNATTLEIKUR Úrslit karla, annar leikur: Austurberg: ÍR - Haukar .....................19.15  Haukar eru yfir 1:0. Í KVÖLD KNATTSPYRNA Meistaradeild Evrópu Undanúrslit, fyrri leikur: AC Milan – Inter Mílanó ......................... 0:0 78.000. AC Milan: Nelson Dida, Alessandro Costa- curta, Kakha Kaladze, Paolo Maldini, Alessandro Nesta, Cristian Brocchi (Sergio Serginho 73.), Gennaro Gattuso (Fernando Redondo 78.), Rui Costa, Clarence Seedorf, Filippo Inzaghi, Andriy Shevchenko (Riv- aldo 81.) Inter: Francesco Toldo, Fabio Cannavaro, Francesco Coco (Giovanni Pasquale 84.), Ivan Cordoba, Marco Materazzi, Javier Zanetti, Luigi Di Biagio, Emre Berezoglu, Sergio Conceicao (Andres Guglielmin- pietro 66.), Hernan Crespo, Alvaro Recoba (Mohamed Kallon 71.) England Úrvalsdeild: Arsenal – Southampton...........................6:1 Robert Pires 8., 22., 46., Jermaine Pennant 15., 18., 25. - Jo Tessem 34 - 38.052. Staða efstu liða: Man. Utd 37 24 8 5 72:33 80 Arsenal 37 22 9 6 81:42 75 Newcastle 37 21 5 11 61:46 68 Chelsea 37 18 10 9 66:37 64 Liverpool 37 18 10 9 60:39 64 Everton 37 17 8 12 47:47 59 Blackburn 37 15 12 10 48:43 57 Man. City 37 15 6 16 47:53 51 Tottenham 37 14 8 15 51:58 50 Middlesbro 37 13 10 14 47:42 49 Skotland Motherwell – Celtic.................................. 0:4 Staða efstu liða: Celtic 35 28 4 3 87:24 88 Rangers 35 28 4 3 89:27 88 Hearts 35 17 9 9 56:48 60 HANDKNATTLEIKUR Þýskaland Nordhorn – Wallau-Massenheim ........31:25 Wilhelmshavener – Magdeburg ..........25:36 Pfullingen – Kiel....................................27:37 Staðan: Lemgo 29 27 0 2 991:802 54 Flensburg 30 25 0 5 954:787 50 Magdeburg 30 23 1 6 960:832 47 Essen 30 21 3 6 868:791 45 Nordhorn 30 18 1 11 903:862 37 Gummersb. 30 16 3 11 892:844 35 Kiel 30 14 4 12 854:810 32 Hamburg 29 13 3 13 765:770 29 Wallau 30 11 6 13 872:887 28 Grosswallst. 30 9 7 14 763:791 25 Wetzlar 30 10 4 16 743:811 24 Göppingen 30 9 5 16 773:818 23 Eisenach 30 10 1 19 788:844 21 Wilhelmshav. 30 9 2 19 767:850 20 Minden 30 8 2 20 795:868 18 Pfullingen 30 7 4 19 759:876 18 N-Lübbecke 30 7 2 21 777:869 16 Willst.Schutt. 30 7 2 21 803:915 16 KÖRFUKNATTLEIKUR NBA-deildin Úrslitakeppnin, átta liða úrslit: Austurdeild: Detroit – Philadelphia...........................98:87  Detroit er yfir 1:0. Vesturdeild: Dallas – Sacramento .........................113:124  Sacramento er yfir 1:0. ÚRSLIT Óli G.H. Þórðarson úr SH settisex Íslandsmet í sínum flokki, eða í öllum greinunum sem hann keppti í – 50 m, 100 m og 200 m bringusundi og skriðsundi í flokki 65– 69 ára. Óli var langelstur keppenda – hann er fæddur 1936. Framkvæmdastjóri mótsins var Ólafur Baldursson, sem sagði að mótshaldið hefði tekist vonum fram- ar. Ólafur var ekki einasta fram- kvæmdastjóri heldur einnig kepp- andi, mótshaldari, ræsir og afhenti verðlaunin. „Mest kom mér á óvart fjöldi þátt- takenda, en garparnir setja það greinilega ekki fyrir sig að sækja landsmótið út á land. Svo skemmti- lega vildi til að fjórir Siglfirðingar kepptu í sama riðli 200 m bringusundi og nefndu gárungarnir sveitina Sigl- firsku sveitina. Hún var skipuð Inga Haukssyni, sem býr á Siglufirði, Ás- mundi Jóni Jónssyni, sundfélaginu Óðni, Jóni Baldvini Hannesyni, Óðni, og svo var ég fyrir KS,“ sagði Ólafur. Norðurlandamót garpa er haldið á fimm ára fresti hér á landi og verður í Hafnarfirði í byrjun október en það er einnig í fyrsta sinn sem það er haldið utan Reykjavíkur. Mikill áhugi og spenningur er meðal sundgarpa fyrir mótið og er vænst mikillar þátt- töku. Sundgarpar settu fjölmörg met Morgunblaðið/Helga Guðrún Siglfirska sveitin áður en lagt var í 200 metra bringusundið. TÍUNDA opna íslenska meist- aramót garpa í sundi, eldri sundmanna, var haldið á Siglu- firði um sl. helgi. 78 keppendur frá ellefu íþróttafélögum tóku þátt en þetta er í fyrsta sinn sem landsmótið er haldið utan Reykjavíkur. Sveit SH fékk flest stig – 1.687, í öðru sæti var sveit Óðins með 697 stigog í þriðja sæti sveit UMSK með 386 stig. Alls voru sett 41 met á mótinu. Hector Cuper, þjálfari Inter, varmjög ánægður með úrslitin, enda lagði hann aðaláherslu á að stöðva sóknarmenn AC Milan, þá Andriy Shevchenko og Filippo In- zaghi, sem gerðu honum lífið leitt í deildaleikjum liðanna í vetur. „Ég greip því til þess að tefla fram þriggja manna vörn gegn þeim og auk þess þrengdum við að Milan á miðjunni. Í heild var þetta því mjög góð frammi- staða hjá okkur en vissulega vorum við ekki sókndjarfir í seinni hálfleikn- um,“ sagði Cuper en Christian Vieri lék ekki með Inter vegna meiðsla og ólíklegt er að hann nái síðari leiknum. Carlo Ancelotti, þjálfari AC Milan, var ekki eins kátur. „Það eru von- brigði að leikurinn skyldi enda 0:0, þar sem við sóttum mikið meira, einkum í síðari hálfleik. Mínir menn spiluðu vel og hefðu fyllilega verð- skuldað að skora. En þetta einvígi er í járnum og verður það allt þar til síð- ari leikurinn verður flautaður af. Við neyddumst til að breyta okkar spili talsvert vegna þess hvernig Inter lék, en okkur tókst að þróa það í rétta átt og tókum völdin í leiknum í síðari hálfleik,“ sagði Ancelotti. „Við nálgumst leikinn á uppbyggi- legan hátt en Inter kemur til leiks með því markmiði að brjóta hann nið- ur. Það er munurinn á liðunum,“ sagði Clarence Seedorf, leikmaður AC Milan og fyrrum leikmaður Inter. Reuters Rui Costa og Filippo Inzaghi, leikmenn AC Milan, sækja að Fabio Cannavaro, leikmanni Inter, í Mílanóslagnum í gærkvöld. Cuper fagnaði markaleysinu á San Siro EKKERT mark var skorað í fyrri viðureign ítölsku Mílanóliðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í gærkvöld. AC Milan, sem taldist eiga heimaleikinn þó að hann færi fram á hinum sameigin- lega heimavelli félaganna – San Siro, sótti mun meira í annars til- þrifalitlum leik en stendur örlítið betur að vígi fyrir síðari viðureign- ina þar sem Inter náði ekki að skora mark á „útivelli.“ Aftur til Betis ef ekki semst við Villa FORRÁÐAMENN spænska knattspyrnufélagsins Real Betis hafa gert Jóhannesi Karli Guðjónssyni það ljóst að hann snúi aftur til félags- ins í sumar ef ekki nást samn- ingar við Aston Villa um sölu hans þangað. „Ef ekkert verður af sölu, ætlumst við til þess að hann komi aftur hingað,“ sagði talsmaður spænska félagsins við dag- blaðið The Mirror í gær. Áð- ur hefur verið haft eftir Jó- hannesi í enskum fjölmiðlum að hann færi ekki aftur til Spánar þótt hann yrði ekki áfram í röðum Aston Villa. Hann er samningsbundinn Betis til næstu fjögurra ára en hann gerði sex ára samn- ing við félagið í september árið 2001. Real Betis leigði Jóhannes til enska félagsins í janúar og Graham Taylor, knatt- spyrnustjóri Villa, hefur sýnt áhuga á að kaupa hann af Betis, en til þess þarf hann að selja leikmenn. Rætt hefur verið um að Betis og Villa skipti á Jóhannesi og kól- umbíska framherjanum Juan Pablo Angel.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.