Morgunblaðið - 08.05.2003, Qupperneq 67
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2003 67
ÍSLENSKIR knattspyrnumenn
skoruðu sjö mörk í 1. umferð
norsku bikarkeppninnar í gær en
þá léku úrvalsdeildarliðin öll á úti-
völlum gegn liðum úr 3. deild. Þau
unnu flest stóra sigra, ekkert þó í
líkingu við meistara Rosenborg
sem unnu lið Buvik, 17:0. Það er fé-
lagsmet hjá Rosenborg sem áður
hefur gert 16 og 15 mörk í bikar-
leikjum. Árni Gautur Arason var
ekki í marki liðsins frekar en í und-
anförnum leikjum.
Hannes Þ. Sigurðsson nýtti tæki-
færi sem hann fékk í byrjunarliði
Viking og skoraði tvö mörk á fyrstu
12 mínútunum þegar lið hans vann
Kopervik, 5:1.
Jóhann B. Guðmundsson skoraði
2 marka Lyn sem vann Kolbu, 7:0.
Tryggvi Guðmundsson gerði tvö
mörk fyrir Stabæk sem vann
Rakkestad, 4:0. Tryggvi fórnaði
reyndar marki þegar hann tók víta-
spyrnu og renndi boltanum til hlið-
ar á félaga sinn, sem skaut beint á
markvörðinn!
Indriði Sigurðsson gerði eitt af
mörkum Lilleström sem vann
Kirkenes, 7:0, eftir eitt lengsta
ferðalag sem hægt er að fara í Nor-
egi. Það er jafnlangt að fara frá
Ósló til Kirkenes, sem er langt
norðan við heimskautsbaug og
austur við rússnesku landamærin,
og frá Ósló til Ungverjalands, sam-
kvæmt beinni loftlínu.
Molde vann Hamar 6:0 og Rau-
foss vann Fjellhamar 6:0. Íslend-
ingar komust ekki á blað.
Sjö íslensk mörk og
Rosenborg skoraði 17
JOHN Walsh, borgarstjóri í Bolt-
on, er mikill aðdáandi Guðna
Bergssonar, landsliðsmanns í
knattspyrnu. Þar sem Guðni leik-
ur síðasta leik sinn fyrir félagið á
sunnudaginn hélt borgarstjórinn
hóf til heiðurs Guðna í ráðhúsi
borgarinnar í fyrrakvöld. Þar var
Guðni leystur út með gjöf frá
borgarstjóranum – forláta krist-
alsvasa. Í ræðu sem borgarstjór-
inn hélt í hófinu sagði hann meðal
annars; „Guðni hefur gegnt frá-
bæru hlutverki fyrir félagið og
hann hefur svo sannarlega verið
góður sendiherra fyrir Bolton.
Framkoma hans utan sem innan
vallar hefur verið frábær og hann
hefur gegnt leiðtogahlutverki
sínu af mikilli hollustu. Það verð-
ur mikill missir fyrir félagið og
ekki síður stuðningsmenn þess að
sjá á eftir Guðna og skarð hans í
liðinu verður vandfyllt. Fyrir mig
persónulega verður mjög erfitt að
sætta sig við að hann sé að
hætta.“
Þessi orð borgarstjórans og
hófið sem hann hélt Guðna til
heiðurs er enn ein rósin í hnappa-
gat Guðna sem á ferli sínum með
Bolton, sem hófst árið 1995, hefur
leikið 316 leiki fyrir félagið.
Guðni þakkaði fyrir sig og sagði
að fyrst og fremst ætti hann eftir
að sakna fólksins í Bolton. „Ég hef
eignast mjög marga vini hjá félag-
inu og sömu sögu er að segja af
minni fjölskyldu. Ég er snortinn
yfir þeim orðum sem um mig hafa
fallið og þessu hófi sem er mér til
heiðurs og þetta er sérstök stund
fyrir mig,“ sagði Guðni.
CRAIG Dean, enski knattspyrnu-
maðurinn sem er til reynslu hjá
Breiðabliki, lék fyrri hálfleikinn í
gærkvöld þegar Kópavogsliðið tap-
aði fyrir Val, 4:2. Hann fór þá meidd-
ur af velli en Blikar ætla að skoða
hann nánar á næstu dögum.
ÁRMANN Smári Björnsson, varn-
armaðurinn hávaxni, lék á ný í fram-
línu Vals í leiknum. Hann gerði tvö
markanna og krækti í vítaspyrnu.
Jóhann H. Hreiðarsson og Birkir
Már Sævarsson gerðu hin mörk Vals
en Olgeir Sigurgeirsson og Gunnar
Örn Jónsson skoruðu fyrir Blika.
JENS Sævarsson tryggði Þrótti
sigur á Fram, 1:0, í æfingaleik úr-
valsdeildarliðanna í knattspyrnu
sem fram fór á Valbjarnarvelli í
Laugardal í gærkvöld.
KÁRI Ársælsson, unglingalands-
liðsmaður úr Breiðabliki, lék með
Þrótti í leiknum og gengur væntan-
lega til liðs við félagið. Kári er sonur
Ársæls Kristjánssonar, fyrrum
varnarmanns úr Þrótti.
LOTHAR Matthäus, fyrrverandi
fyrirliði þýska landsliðsins í knatt-
spyrnu og leikmaður Bayern
München, stýrði Partizan Belgrad
til meistaratitils í Serbíu og Svart-
fjallalandi. Matthäus tók við þjálfun
Partizan í desember og tók hressi-
lega til í herbúðum liðsins, setti m.a.
nokkra „fasta“ menn út úr liðinu
vegna þess að þeir lögðu sig ekki
fram á æfingum. Undir stjórn Matt-
häus vann liðið tíu af tólf síðustu
leikjum sínum og fékk 13 stigum
meira en næsta lið, Rauða Stjarnan.
FÓLK
RÚNAR Sigtryggsson lék með
Ciudad Real í gærkvöldi þegar liðið
vann Torrevieja, 34:26, í spænsku 1.
deildinni í handknattleik í gærkvöldi.
Rúnar náði ekki að skora. Ciudad
Real er sem fyrr í 2. sæti deildarinn-
ar, tveimur stigum á eftir Barcelona
sem tapaði stigi í gær þegar liðið
gerði jafntefli við Ademar Leon,
29:29.
BANDARÍKIN munu senda eins
sterkt körfuknattleikslandslið og
hægt er á Ólympíuleikana í Aþenu,“
segir talsmaður NBA-deildarinnar í
gær en bakverðirnir Allen Iverson
frá Philadelphiu og Kobe Bryant eru
í liðinu. Í febrúar var tilkynnt að Tim
Duncan (San Antonio Spurs), Tracy
McGrady (Orlando Magic), Jason
Kidd (New Jersey Nets) og Ray All-
en (Seattle Supersonics) myndu
skipa liðið og nú nýverið var þeim
Karl Malone (Utah Jazz) og Mike
Bibby (Sacramento Kings) bætt í
hópinn.
BÚAST má við að þeir Elton
Brand frá Los Angeles Clippers,
Richard Jefferson frá New Jersey,
Jermaine O’Neal, Indiana og Nick
Collison frá Kansas-háskólanum
bætist í hópinn.
OLIVER Kahn markvörður þýska
landsliðsins og Bayern München
segir í viðtali við tímaritið Sport Bild
að hann finni fyrir þörf hjá sér til
þess að fara frá liðinu og reyna fyrir
sér erlendis. „Ég hef unnið allt sem
hugsast getur með Bayern München
og það verður alltaf erfiðara að halda
áfram á sömu braut án þess að missa
áhugann. Ef ég færi til útlanda þyrfti
ég að sanna mig á nýjan leik og
kannski er það það sem ég þarfnast,“
segir Kahn en hann er 33 ára gamall
en er samningsbundinn Bayern fram
til ársins 2006. Hann hefur verið í níu
ár í herbúðum Bayern eða frá árinu
1994 en hann var áður hjá Karls-
ruhe.
TIM Flowers, markvörður Leic-
ester, hefur ákveðið að leggja skóna
á hilluna. Flowers er 36 ára gamall
og lék nokkra leiki með enska lands-
liðinu á síðasta áratug. Hann var
m.a. markvörður Blackburn þegar
liðið varð enskur meistari vorið 1995.
FÓLK
Ég er viss um að hann mun haldaáfram að starfa náið með okkur
þegar hann hættir. Ég vil endilega fá
hann til að finna fleiri leikmenn á
borð við Guðna Bergsson, Eið Guð-
johnsen, og Arnar Gunnlaugsson
fyrir okkur. Þeir þrír Íslendingar
sem leikið hafa með Bolton hafa
reynst félaginu mikill happafengur
og þegar maður veltir því fyrir sér að
íbúafjöldinn er svipaður á Íslandi og
hér í Bolton er ótrúlegt til þess að
vita hversu margir góðir knatt-
spyrnumenn eru á Íslandi. Íslend-
ingar eiga leikmenn víðs vegar um
Evrópu og Guðni getur orðið mikil-
vægur hlekkur fyrir Bolton á Ís-
landi.“
Allardyce telur að Guðni hafi tekið
rétta ákvörðun um að sinna lög-
fræðistörfum þegar hann hættir
frekar en að fara út í að stýra knatt-
spyrnuliði. „Ég held að Guðni verði
ánægðari með því að velja sér nýjan
starfsferil og ég held að hann vilji
ekki verða framkvæmdastjóri. Hann
vill komast í rólegra umhverfi og
verða topplögfræðingur á Íslandi
þar sem hann getur verið með eigin-
konu sinni og börnum,“ segir Allar-
dyce sem reyndi ítrekað að fá fyrir-
liða sinn til að leika eitt ár til
viðbótar en án árangurs.
Guðni leikur síðasta leik sinn fyrir
Bolton á sunnudag og ekki verður
annað sagt en að sá leikur sé einn sá
mikilvægasti sem hann hefur spilað
fyrir liðið. Bolton tekur á móti
Middlesbrough og þarf sigur til að
tryggja sér áframhaldandi sæti í úr-
valsdeildinni en fyrir lokaumferðina
berjast Bolton og West Ham um að
forðast fall en West Ham mætir
Birmingham á útivelli. Liðin eru jöfn
að stigum en markatala Bolton er
betri sem nemur sex mörkum.
Guðni Bergsson og John Walsh, borgarstjóri í Bolton, með hinn
forláta kristalsvasa sem Walsh leysti Guðna út með í hófinu.
Allardyce
vill fá Guðna
í lið með sér
SAM Allardyce, knattspyrnustjóri Bolton, segir í viðtali við Man-
chester Evening News að hann vilji fá Guðna Bergsson til að vinna
fyrir Bolton þegar hann kveður félagið eftir níu ára dygga þjónustu
við það í sumar. Allardyce vill fá Guðna til að útvega hæfileikaríka
unga leikmenn til félagsins en íslenskir leikmenn hafa reynst Bolt-
on-liðinu ákaflega vel að mati Allardyce.
ÓLAFUR Stefánsson skoraði 7
mörk, þar af tvö úr vítakasti, þegar
Magdeburg lagði Wilhelmshavener,
36:25, á útivelli í þýsku 1. deildinni í
handknattleik í gærkvöldi.
Sigfús Sigurðsson skoraði 5
mörk fyrir Magdeburg, sem með
sigrinum heldur þriðja sæti
deildarinnar en það gefur þátt-
tökurétt í meistaradeild Evrópu á
næstu leiktíð.
Gylfi Gylfason komst ekki á blað
fyrir Wilhelmshavener í leiknum en
liðið er í fallhættu.
Einar Örn Jónsson skoraði eitt
mark fyrri Wallau Massenheim
þegar liðið tapaði, 31:25, fyrir
Nordhorn.
Tólf marka leikur
hjá Ólafi og Sigfúsi
Opna Calsberg-mótið
laugardaginn 10. maí
Höggleikur með og án forgjafar.
Hámarksforgj.
karlar 24, konur 28.
Ræst út kl. 8:00-15:00
Skráning fer fram á www.golf.is og í síma 421 4100.
Mjög góð verðlaun fyrir:
Sæti 1-3 án forgj.
Sæti 1-3 m forgj.
Nándarverðl. á 3. og 16. braut.
0,0%
Keppnisgjald kr. 2.500
Allir fá teiggjafir
Borgarstjórinn hélt
hóf fyrir Guðna