Morgunblaðið - 08.05.2003, Side 71
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2003 71
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
kl. 10.20. B.i 12
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20.
Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
X-men 2 er mynd
með boðskap,
brellur og
brjálaðan hasar...
Hvað viltu meira?
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.30. B.i 12. Forsýning kl. 8. B.i 16.
Sýnd kl. 6.Sýnd kl. 6. B.i 16. Sýnd kl. 8 og 10.20.
Síðustu sýningar
Síðustu sýningar
HK DV
SV MBL
HK DV
X-97,7
HJ MBL
Kvikmyndir.com
Brjálaður
morðingi,
Stórhættulegir
dópsmyglarar
Nú er honum
að mæta.
Svakaleg
spennumynd
með
töffaranum
Vin Diesel
úr xXx.
400
kr
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 4, 6.30 og 9. B.i. 12 Sýnd kl. 10.20. B.i. 16. Miðasala opnar kl. 16.
Sýnd kl. 4. Ísl. tal. 400 kr.Sýnd kl. 5.45.Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
HK DV
SV MBL
Brjálaður
morðingi,
Stórhættulegir
dópsmyglarar
Nú er honum
að mæta.
Svakaleg
spennumynd
með
töffaranum
Vin Diesel
úr xXx.
FORSÝNING
Millilendingu og eftir hana liggja
tvær breiðskífur, Júdas No.1 og Eins
og fætur toga.
ein sú fyrsta til að taka hið hryn-
heita fönk upp á sína arma. Sveitin
lék undir á plötu Megasar frá 1975,
LAUGARDAGSKVÖLDIÐ 17. maí
snýr fornfræga hljómsveitin Júdas
aftur upp úr gröfinni, rokksveit sem
hljómlistarmaðurinn þjóðkunni
Magnús Kjartansson leiddi um miðj-
an áttunda áratuginn. Munu þeir
troða upp á Kringlukránni en sveitin
hefur ekki leikið opinberlega á höf-
uðborgarsvæðinu í tugi ára. Nánar
verður rætt við Magnús um þennan
viðburð í næstu viku. Júdas var vin-
sælasta sveit landsins um hríð og var
Hljómsveitin Júdas snýr aftur
Júdas í árdaga; í hörkustuði eðlilega.
Endur-
fæðing og
upprisa
HÉR á landi er nú staddur reggí-
tónlistarmaðurinn Englishman og
sveitin Shangoband. Verkalýðsdag-
inn 1. maí, sem var fimmtudagur,
tróðu þeir fyrsta sinni upp á Grand
Rokk og spiluðu svo alla þá helgi. Og
hér eru þeir ennþá en í gær brunuðu
þeir til Keflavíkur, til rokkafans Rún-
ars Júlíussonar í þeim tilgangi að
taka upp eitt stykki plötu í hljóðveri
hans, Geimsteini! Í kvöld tekur hins
vegar við spilamennska á nýjan leik;
verða þeir á Grand Rokk í kvöld, á
föstudag og laugardag í Fjörukránni
(á 13 ára afmæli Fjörukrárinnar) en
svo aftur á Grand Rokk á sunnudags-
kvöldið.
Englishman, sem fer fyrir Shango-
band, er þaulreyndur reggíkappi.
Hann er fæddur í bænum St. Ann,
Jamaíka, sama bæ og Bob Marley en
þeir voru málkunnugir og vel það. Á
unglingsaldri fluttist Englishman svo
til
London en fór svo loks til Wash-
ington árið 1979, þar sem hann og
Shangoband starfa alla jafna í dag, en
reggísenan þar í borg er glettilega
sterk. Englishman hefur alla tíð
starfað við reggííð með einum eða
öðrum hætti, unnið með listamönnum
eins og Peter Tosh og Jimmy Cliff og
leiddi um langt skeið sveitina The Ro-
ots Vibration Band.
„Rastafaraaaa …“
Blaðamaður náði tali af Engl-
ishman þar sem hann var staddur í
Stúdíói Geimsteini ásamt félögum
sínum. Hvað á það að þýða að taka
upp plötu svona upp úr þurru?
„Þegar við ferðumst til ólíkra landa
finnst okkur gaman að fara í hin ólíku
hljóðver og kanna þau, finna hljóm-
inn og svona,“ útskýrir Englishman.
„Einnig finnst okkur mikilvægt að
starfa með innlendum tónlist-
armönnum um leið og „grúva“ dálítið
með þeim. Mér er sagt að þetta sé
mjög frægt hljóðver sem ég er í. Er
það ekki rétt?“
Jú, Englishman fær það staðfest
og er svo spurður hvernig honum lít-
ist á íslenska reggííð en Rúnar Júl-
íusson hefur einmitt fengist dálítið
við þá gerð tónlistar.
„Við fengum að heyra smá af því og
okkur líkaði vel. Það er mjög gaman
að heyra hversu víða jamaísk menn-
ing og tónlist hefur farið. Annars er-
um við á á stuttu ferðalagi núna til að
kynna nýja plötuna okkar en langar
gjarnan til að koma aftur og stefnum
ótrauðir á að koma hingað í sumar,
nánar tiltekið í ágúst.“
Englishman lætur vel af veru sinni
hér og segist glaður yfir því að vera
að fara að djamma með afa rokksins.
Að vísu hafi tekið þá smátíma að að-
lagast veðurfarinu en það sé komið í
höfn núna.
„Að lokum vil ég að þú komir skila-
boðum áfram til Íslendinga fyrir
mig,“ segir Englishman að lokum.
„Ein ást til allra – við erum mjög
hrifnir af eyjunni ykkar og skemmt-
um okkur mjög vel. Rastafaraaaa …“
Englishman og Shangoband ásamt Guðmundi Kristni Jónssyni, upptöku-
manni í Geimsteini, en hann aðstoðaði kappana við reggígaldurinn.
Reggí
á ís
TENGLAR
.....................................................
www.dcreggae.com
arnart@mbl.is
Englishman & Shangoband verða á
Grand Rokk í kvöld, í Fjörukránni á
morgun og laugardag og svo aftur á
Grand Rokk á sunnudaginn.
Jamaísku reggílistamennirnir Englishman & Shangoband á Íslandi
Ljósmynd/Sævar
ÍSLANDSVINIRNIR í Suede eru
að vinna nýtt efni um þessar
mundir og verður það sett á safn-
plötu sem út kemur síðar á árinu.
Talið er víst að lagið „Love The
Way You Love“ sem sveitin lék á
tvennum tónleikum í Danmörku í
apríl verði gefið út á smáskífu
áður en safnplatan kemur út.
Þá er opinber saga sveit-
arinnar væntanleg en hana ritar
David Barn-
ett. Hann
hefur verið
að taka við-
töl að und-
anförnu og
hefur látið
hafa það eft-
ir sér að No
One Here
Gets Out
Alive, hin
fræga ævisaga Jims Morrisons,
líti út eins og saga eftir Enid
Blyton í samanburði við róstu-
sama ferilssögu Suede, þar sem
allt flóði í torkennilegum efnum
um skeið.
Nýtt frá
Suede