Morgunblaðið - 08.05.2003, Qupperneq 73
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2003 73
Mögnuð hrollvekja frá
Stephen King sem
engin má missa af!
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. / Sýnd kl. 6 og 8. / Sýnd kl. 8.
X-97,7
Kvikmyndir.is
kl. 6, 8 og 10. B.i. 14. / kl. 5.20, 8 og 10.30. B.i. 14. / kl.10. B.i. 14.
ÁLFABAKKI
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRIÁLFABAKKI / AKUREYRI / KEFLAVÍK
Tvöfaldur
Óskarsverðlaunahafi,
Michael Caine í
stórbrotinni kvikmynd sem
byggð er á sígildri
skáldsögu Graham Greene.
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 14.
ÁLFABAKKI
Tilboðkr. 500
ÁLFABAKKI KRINGLAN ÁLFABAKKI / KRINGLAN
Sýnd kl. 4 og 6. Tilboð 500 kr. Sýnd kl. 8. B.i. 12. Sýnd kl. 4. ísl. tal / Sýnd kl. 6. ísl. tal Sýnd kl. 4.
SG DV
Kvikmyndir.com
Svona snilldarverk
eru ekki á
hverju strái.”
Þ.B. Fréttablaðið
PETE Townshend, gítarleikari
hljómsveitarinnar The Who, var á
miðvikudag formlega færður á lista
breskra lögregluyfirvalda yfir kyn-
ferðisafbrotamenn fyrir að greiða
fyrir aðgang að vefsvæði með barna-
klámi. Myndir af Townshend,
fingraför hans og upplýsingar um
erfðaefni hans verða því geymd í
gagnagrunni lögreglu næstu fjögur
árin. Þetta kemur fram á fréttavef
BBC.
Þá var Townshend formlega var-
aður við því að koma nálægt barna-
klámi. Ásakanir um að hann hafi
haft ólöglegt klámefni undir hönd-
um hafa hins vegar verið látnar nið-
ur falla en fjögurra mánaða lög-
reglurannsókn vegna málsins er nú
lokið.
Townshend, sem játaði að hafa
notað kredidkort sitt til að fara inn á
barnaklámsíðu einungis í rannsókn-
arskyni, mætti á lögreglustöð í
London á miðvikudag til að hlýða á
áminninguna.
Barnavernd-
unarsamtökin
NCH sögðust ekki
ánægð með máls-
vörn Towns-
hends. „Við von-
umst til þess að
þetta verði alvar-
leg viðvörun til þeirra sem hyggist
nota Netið til að skoða barnakláms-
myndir í rannsóknarskyni. Þetta er
ekki nægileg málsvörn og styður að-
eins við barnaklámiðnaðinn,“ sagði
John Carr, netráðgjafi samtakanna.
Townshend á lista yfir kynferðisafbrotamenn
Alvarleg viðvörun
Pete Townshend
BANDARÍSKA
leikkonan Gwyn-
eth Paltrow er
hætt við að leika í
myndinni Happy
Endings á móti
Lisu Kudrow.
Paltrow, sem
missti föður sinn í
október, er sögð
hafa borið við ofþreytu er hún til-
kynnti aðstandendum myndarinnar
að hún væri hætt við að leika í
myndinni.
„Hún lék í tveimur myndum strax
eftir að faðir hennar dó og sú þriðja
hefði einfaldlega reynt of mikið á
hana,“ segir Steven Huvane, tals-
maður leikkonunnar. Hann vísar þó
á bug sögusögnum um að leikkonan
þjáist af alvarlegu þunglyndi. „Hún
þjáist ekki af alvarlegu þunglyndi.
Hún þarf bara að fara í frí,“ segir
hann …Franski
leikarinn Ger-
ard Depardieu
hlaut minnihátt-
ar meiðsl á fæti
er hann lenti í
mótorhjólaslysi í
miðborg Parísar
í gærmorgun.
Sonur Dep-
ardieu, Guillaume, hefur aldrei náð
sér almennilega eftir að hann slas-
aðist alvarlega í mótorhjólaslysi fyr-
ir sjö árum og
stendur til að ann-
ar fótleggur hans
verði fjarlægður í
júní …Victoria
Beckham ætlar
að afhenda verð-
laun á kvik-
myndaverð-
launahátíð MTV í
New York. Kyndir það undir orð-
róm þess efnis að hún hafi áhuga á
að verða þekkt í Bandaríkjunum.
Hún mætti nýlega í veislu á vegum
Vogue ásamt ofurfyrirsætunni
Naomi Campbell. Hún var einnig
gestur í bandaríska viðtalsþætt-
inum 20/20 ásamt eiginmanninum
David Beckham og ræddi hún op-
inskátt um líf þeirra.
Heimildir herma að þetta sé aðeins
fyrsta skrefið í viðleitni hennar að
verða súperstjarna vestra. Hún
verður fyrirsæta í tískuþætti í
næsta tölublaði bandaríska Vogue
og hefur ennfremur ráðið almanna-
tengslafólk Aliciu Keys í þjónustu
sína. …Leik-
arinn Christ-
opher Reeve,
sem er hvað
þekktastur fyrir
hlutverk sitt sem
Superman,
hvatti dóttur sína
til að leggja
stund á hesta-
mennsku þrátt fyrir að hann hafi
sjálfur lamast er hann féll af hest-
baki.
Reeve segist hafa hvatt hina tvítugu
Alexöndru til að leggja stund á
hestamennsku og hestaíþróttir þar
sem hann hafi ekki viljað láta það
sem kom fyrir hann spilla fyrir
börnum sínum. „Hana langaði til að
stunda hestaíþróttir og það sem
kom fyrir mig var slys, sem end-
urtekur sig ekki, þannig að ég hvatti
hana áfram. Það sem kom fyrir mig
hefði getað komið fyrir hvern þann
sem sest í söðul. Ég lít það heim-
spekilegum augum og læt mér ekki
detta í hug að banna Alexöndru að
stíga aftur á hestbak vegna þess
óláns sem ég varð fyrir,“ segir
Reeve í viðtali við Daily Mail. Þá
segist hann ekki vilja ýta undir ótta
dóttur sinnar þar sem það muni ein-
ungis trufla einbeitingu hennar gera
hana óörugga. Alexandra er nú fyr-
irliði kvennaliðs Yale-háskólans í
póló.
FÓLK Ífréttum
www.fotur.net
ATVINNA mbl.is