Morgunblaðið - 09.05.2003, Side 1
F Ö S T U D A G U R 9 . M A Í 2 0 0 3 B L A Ð C
BLESSAÐ BARNALÁN/2 JÖRÐ OG VATN Á 100% BÓMULL/3
SKÓLASTOFAN ENDURSPEGLAR ÞJÓÐFÉLAGIÐ - AGI Á UNDANHALDI?/4
ALLIR DANSA ALLSGÁÐIR/7 AUÐLESIÐ EFNI/8
ÉG VAR með fyrstu kynn-
inguna í nóvember síðastliðn-
um, þannig að segja má að
þetta sé glænýtt,“ segir Anna
Silfa Þorsteinsdóttir, hár-
snyrtir og förðunarfræðingur,
sem er konan að baki Secret-
förðunarvörunum hér á landi.
Um er að ræða snyrtivörur
sem framleiddar eru í Kanada
og víðar, en Anna Silfa velur,
hannar og markaðssetur eigin
línu, Secret, fyrir íslenska
neytendur. „Hugmyndin var í
raun að koma á laggirnar
„dótabúð förðunarfræðings-
ins“ þar sem allt væri til.
Draumurinn er að úrvalið verði það
mikið að hver förðunarfræðingur
eða hvert leikhús geti sett saman
eigið safn úr flórunni. En einhvers
staðar byrja allir og þetta hefur bara
gengið mjög vel þessa fyrstu mán-
uði.“
Anna Silfa á og rekur Hárhúsið í
Mosfellsbæ, en það var fyrir
skömmu valið Sprotafyrirtæki árs-
ins 2002 af bæjaryfirvöldum þar.
Hún er þakklát fyrir viðurkenn-
inguna. „Ég hef starfað við hár-
greiðslu í sautján ár og lærði förðun
fyrir tæpum áratug. Ég hef alltaf
haft mikinn áhuga á tísku og hef
hrærst lengi í þeim heimi; litum og
stíl. Þegar ég þurfti svo að minnka
við mig hárgreiðsluna samkvæmt
læknisráði fannst mér spennandi til-
hugsun að flytja inn förðunarvörur
eins og ég vildi hafa þær,“ segir
Anna Silfa, en það sem hefur háð
henni eru laskaðir hálsliðir sem
rekja má til bílslyss sem hún lenti í
um tvítugt á Hawaii, þar sem hún
starfaði einmitt á hárgreiðslu- og
snyrtistofu.
„Ég veit að tískubransinn er erf-
iður bransi en ég er bjartsýn. Ég er
líka komin með nægilegt sjálfsör-
yggi eftir öll þessi ár til þess að ráð-
leggja fólki og er talsvert bókuð í
ráðgjöf, bæði um hár, förðun og fatn-
að. En þetta er allt spurning um að
útbúa trausta ímynd og vera með
gæðavöru sem stendur undir nafni.
Mýkt línunnar hefur til dæmis
mælst vel fyrir og hentar breiðu ald-
ursbili. Annar kostur er sá að við er-
um með farða fyrir ljósa húð, dökka
húð og allt þar á milli. Hér á landi
búa sífellt fleiri konur með annan
húðlit en hinn norræna og Secret
mætir þeirra þörfum,“ segir Anna
Silfa og tekur fram að línan sé ein-
göngu í sölu hjá snyrti- og förðunar-
fræðingum. „Þetta er vara fyrir fag-
fólk, en þó löguð að hinni venjulegu
konu.“
Um sumarið 2003 segir hún:
„Hermannatískan heldur velli frá í
vetur. Hjá Secret er sjógræni litur-
inn splash rosalega vinsæll, ásamt
litum með perlumóðuráferð. Þá
koma bleikir og fjólubláir sumarlitir
inn og glimmer og gloss gefa frísk-
legt yfirbragð. Annars fer þetta allt
eftir því hvað hentar hverjum og ein-
um og fatnaður og farði mynda
vissulega alltaf eina heild.“
▲ „Áslaug er með léttan farða sem hentar sumrinu og
er án sólarvarnar. Þá er hún með bleikan og ferskjulit-
an gljáa sem kinnalit, bleikbrúnan varalit og húðlitan
gloss,“ segir Anna Silfa Þorsteinsdóttir sem farðaði Ás-
laugu með sumarlitum Secret. „Augnblýanturinn er
grænn og á augnlokum er sjógrænn augnskuggi, en
einnig bleikur duftaugnskuggi og örlítið silfurduft.“
Anna Silfa sá einnig um hár beggja stúlknanna.
Morgunblaðið/Jim Smart
▲ „Íris er með blágrænan augnskugga og túrkíslitað
glitduft yfir, en maskarinn er grænn. Í augnkrókunum
er silfurblik sem gefur birtu og opnar augnsvipinn. Á
miðjum augnlokunum er eins konar perlumóðurduft,“
segir Sif Davíðsdóttir, förðunarmeistari, sem vann
þessa björtu sumarförðun með Secret-vörum. „Þá er
Íris með bleikan kinnalit sem gefur ljóma í húðina. Á
vörunum er svo appelsínugult gloss með skeljaáferð.“
Su
m
ar
lit
ir
ni
r
20
03
Ígrænumsjó