Morgunblaðið - 11.05.2003, Blaðsíða 14
14 B SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ferðalög
MÚRINN er löngu fallinn og Berlínaftur orðin ein borg og höfuðborgÞýskalands síðan 1999. En þrátt
fyrir það slá þar tvö hjörtu, eitt í austri og
annað í vestri.
Fyrir heimsstyrjöldina síðari var
Potsdamer Platz reyndar hjarta Berlínar.
Það var hraðskeiðasta torg Evrópu á
þriðja áratugnum, þar fóru um bílar,
sporvagnar, gangandi vegfarendur og hjólandi.
Allt iðaði af lífi. Eftir sprengingar stríðsins og
ris múrsins þvert yfir torgið, féll þar allt í
dauðadá og drabbaðist niður í fjóra áratugi, eða
þar til endurbygging hófst að nýju eftir hvarf
múrsins. Og skipuleggjendur áætla að hjarta
Potsdamer Platz eigi eftir að slá að nýju og
verða þriðja hjarta borgarinnar þegar uppbygg-
ingu þar líkur árið 2006.
Við keyrum þvert yfir torgið, þar sem enn má
sjá verksummerki múrsins á götunum, og stór-
glæsilegar nýbyggingar í áhugaverðum arki-
tektúr blasa við á báðar hendur.
„Nei,“ efast ung leigubílastýra á götóttri
peysu, „Potsdamer Platz verður áreiðanlega
aldrei þriðja hjarta Berlínar. Ekki fyrir okkur
borgarbúana, kannski fyrir útlendingana. Hér
eru að rísa mikið af byggingum og þjónustu fyr-
ir þá, og ef þeir eiga eftir að sækja hingað mikið,
þá er aldrei að vita.“
Allt og tvennt af öllu
Ég er stödd í Berlín í boði Ferðamálaráðs
Berlínar og Ferðaskrifstofunnar Terra Nova-
Sól, anda að mér margvíslegum menningar-
áhrifunum og nýt mín í botn. Skrepp á veit-
ingastaði, bari og í leikhús á milli þess sem ég
mynda mig við það sem eftir stendur af múrn-
um, skoða mig um í neðanjarðarloftvarnarbyrgi,
kíki á söfn og slappa af í kynnisferðum. Og ég
væri ekki Íslendingur ef ég þrammaði ekki í
þessar líka fínu búðir með bros á vör innan um
ódýrar gæðavörur. Ég hef því miður ekki tíma
fyrir annan af tveimur dýragörðum borgarinn-
ar, en vegna sögunnar er hér tvennt af öllu. Það
er helst að ég finni fyrir svekkelsi að hafa ekki
tíma til komast yfir allt sem borgin bíður upp á.
Hún er ótrúlega margslungin og magnþrungin.
Stöðug endurnýjun og breytingar
Í Berlín er allt að gerast. Á seinasta áratug
hefur engin borg breyst jafnmikið og breyting-
arnar halda áfram. Berlín er nú fjórði vinsælasti
áfangastaður í Evrópu á eftir London, París og
Róm. Það er áþreifanlegt hversu æstir Berlín-
arbúar eru í að komast ofar á vinsældalistann,
geysileg uppbygging á sér stað og mikil sam-
keppni hefur skapast meðal þjónustuaðila, m.a.
á milli hóteleigenda, sem er aldeilis fínt fyrir
okkur ferðalangana. Í Berlín er hægt að fá 5
stjörnu hótel fyrir verð sem aðeins dygði fyrir
3–4 stjörnu hóteli í London eða París. Einnig
vilja þeir halda því fram að verðlagið sé almennt
mun lægra í Berlín. Ekki ónýtt það.
Græn vatnaborg
Berlín er risastór. Með sinn 891 ferkílómetra í
flatarmál, er hún níu sinnum stærri en París. Í
henni búa 3,5 milljónir manna af 180 þjóðernum,
enda Berlín þekkt fyrir umburðarlyndi í gegn-
um aldirnar.
Árið 1920 sameinaðist kjarni Berlínarborgar
öllum nærliggjandi þorpum svo inn á milli glæsi-
bygginganna eru heilu skógarnir þar sem Berl-
ínarbúar stytta sér stundir. Eiginlega er Berlín
mjög græn borg, og segir leiðsögumaðurinn
mjóslegni, sem er með allar tölur á hreinu, að
þriðjungur Berlínar sé skógi vaxinn og 7% borg-
arinnar séu vatn. Já, í borginni eru heilu stöðu-
vötnin og í gegnum hana rennur áin Spree. Út
frá henni myndast fjöldi síkja, sem eru alls 180
kílómetrar. Yfir síkin liggja fleiri en 1.700 brýr,
sem er meira en í Amsterdam og Feneyjum.
Hver hefði getað ímyndað sér það?
Að stjórna ferðinni
Það er meira en ljúft að fá sér bátsferð um
Berlín í maí og sjá borgina þannig frá annarri
hlið. Annars eru samgöngur ekkert vandamál í
Berlín. Drapplitaðir leigubílar eru á hverju
strái, en líklega er hagkvæmara að kaupa
þriggja daga svokallað WelcomeCard sem gildir
í alla strætisvagna, neðanjarðarlestir og spor-
vagna. Kortið er þægilegt og gildir fyrir allt að
einn fullorðinn og þrjú börn. Samt er líka
skemmtilegt að ferðast um í gulum áberandi
strætisvögnum sem kalla sig „City Circle Sight
Seeing“ og ganga eftir vissum leiðum á 10 mín-
útna fresti um alla borg. Í þeim eru heyrnartól
svo hægt er að fræðast um borgina um leið og
maður kemst leiðar sinnar. Í stað þess að sitja
fastur í heillangri kynnisferð, ræður maður ferð-
inni sjálfur.
Seinna meir …
Næst þegar ég fer til Berlínar ætla ég að vera
miklu lengur, og hafa tíma til að gera allt og sjá
allt. Og ef eitthvað er að marka kraftalega leigu-
bílstjórann sem á systurdóttur á Íslandi, þá um-
lykur fjöldi stöðuvatna borgina þar sem fínt er
að baða sig á sumrin. Ég sé mig í anda hvíla mig
þar með girnilega matarkörfu mér við hlið, full-
an kollinn af menningu og sögu, og bólgna dans-
og innkaupafætur í glænýju bikiníi.
Berlín – borgin
með hjörtun tvö
Potsdamer Platz – þriðja hjartað?
Berlín er margslungin og magn-
þrungin. Sagan er áþreifanleg á
hverju götuhorni þessarar lifandi
borgar, sem heillaði Hildi Lofts-
dóttur upp úr skónum.
Morgunblaðið/Hildur
Brandenborgarhliðið í öllu sínu veldi.
Berlínasíða Terra Nova - Sól:
www.terranova.is/w/user/cat/38/64/
206
Allar mögulegar upplýsingar fyrir tilvon-
andi ferðalanga Berlínar:
www.berlin-info.de
www.berlin-tourist-information.de
hilo@mbl.is
Hvernig stendur á því að þú fluttir til Búlgaríu?
„Maðurinn minn, Jón Bergsson, er framleiðslustjóri hjá ís-
lenska fyrirtækinu BalkanPharma í Búlgaríu og til að byrja með
var ég hér heima og hann úti en svo flutti ég alfarið út fyrir
tveimur árum.“
Hvernig líkar þér í landinu?
„Vel. Við komum heim í stuttar heimsóknir nokkuð reglulega
og þess vegna endumst við betur í Búlgaríu. Ég hef haft tæki-
færi til að ferðast töluvert um landið og það er afskaplega fal-
legt og fjölbreytilegt.
Það er áhugavert að skoða heimsminjar UNESCO í Búlgaríu
sem eru níu. Þetta eru klaustur, annað í 70 km fjarlægð frá Sof-
íu og hitt er klettaklaustur sem reist var úr sandsteini. Þá er
Boyana-kirkjan í útjaðri Sofíu einstök vegna veggmynda sem
hana prýða, frá 13. öld. Bærinn Nessebur er í miklu uppáhaldi
hjá mér en hann er í vörslu UNESCO. Hann stendur við Svarta-
hafið þar sem Balkanfjöllin hníga í sjó og þetta mun vera elsti
bær í Evrópu. Allar götur liggja til sjávar sem gefur tilfinningu
fyrir eilífðinni. Elstu minjar eru frá 5. öld fyrir Krist og kirkj-
urnar í bænum eru á fimmta tug og margar þeirra eru frá 10.
og 11. öld.
Þá eru meðal minja grafhýsi Þraka frá þriðju öld fyrir Krist en
þau eru í Svesthari í Norðaustur-Búlgaríu. Þarna hafa fundist
elstu minjar um manninn og enn er verið að grafa þarna upp.
Grafhýsin eru um hundrað en aðeins eitt hefur verið opnað.
Þessi gröf er aðgengileg gestum og UNESCO hefur búið mynd-
arlega að gröfinni.“ Guðrún Helga segir að annað grafhýsi frá
þriðju öld fyrir Krist sé á lista UNESCO yfir heimsminjar en það
er í Dal rósanna í miðri Búlgaríu. Hún segir að þá sé Pirin-
þjóðgarðurinn einnig talinn til minja UNESCO og Reiðmaðurinn
frá Madara.
En hvernig eru Búlgarar?
„Þeir eru seinteknir en þegar þeir á annað borð taka manni þá
eru þeir raungóðir og traustir. Búlgarar eru í eðli sínu stór-
skemmtilegir og það er einkennandi fyrir þá hversu fast þeir
halda í allar hefðir.“
Lýstu höfuðborginni, Sofíu
„Það búa um milljón manns í borginni og að sumu leyti minnir
hún á Kaupmannahöfn og París. Fólk situr gjarnan á kaffi-
húsum og fylgist með mannlífinu. Á heildina eru húsakynni
frekar þröng og því situr fólk mikið úti. Það eru margir fallegir
almenningsgarðar í borginni og þangað leitar fólk til að hittast,
fer með nesti, spilar borðtennis, brids eða skák og skeggræðir
heimsmálin ef því er að skipta. Fram til þessa hefur ekki verið
mikið um ferðamenn í borginni en það er að breytast og nú er
verið að reisa hótel víða. Það er einnig verið að taka borgina
alla í gegn og koma henni í nútímalegt horf.“
Guðrún Helga segir að helsta kennileiti borgarinnar sé Alex-
ander Nefsky-kirkjan sem stendur á hæð í miðri borginni. Kirkj-
an er sú stærsta á Balkanskaganum og hófst bygging hennar
seint á nítjándu öld en lauk 1912. Kirkjuna skreyta gullkúplar og
í kjallaranum er verðmætasta íkonasafn Búlgara. Nefsky-
markaðurinn er fyrir framan kirkjuna og þar eru á boðstólum
sérkennilegir og fágætir hlutir auk mikils úrvals af íkonum.
Hvað eru ferðamenn aðallega að kaupa í Búlgaríu?
„Það er aðallega ýmiskonar handverk, vefnaður, heklaðir dúk-
ar, útskurður og sokkar. Þá hafa margir áhuga á íkonum og
gömlu dóti sem hægt er að kaupa á mörkuðum.“
Hvað um glæpatíðni?
„Ég hef óhrædd gengið um götur Sofíu og held að hún sé ekki
verri en gengur og gerist. Á hinn bóginn sniðgengur maður
viss hverfi eins og gerist og gengur þegar um stóra borg er að
ræða og á kvöldin er maður ekkert að fara í almennings-
garðana því þeir eru óupplýstir.“
Hvaða matur er einkennandi fyrir Búlgaríu?
„Búlgarar borða mikið af grænmeti og ávöxtum sem er lífrænt
ræktað því bændur hafa vart efni á tilbúnum áburði.
Þeir borða mikið af svínakjöti og kjúklingum. Almennt er matur
mjög góður í Búlgaríu og það er ódýrt á okkar mælikvarða að
fara út að borða. Vínin þeirra eru líka frábær en vínframleiðsla
fer vaxandi og nú má kaupa búlgörsk rauðvín um heim allan.“
Hvað einkennir landslagið á landsbyggðinni?
„Fjölbreytni. Þarna eru sléttur og fjalllendi og miklir skógar og
svo hrjóstrugt á öðrum stöðum. Það er einkennandi úti á landi
að það eru engar girðingar neinstaðar sem er mjög fallegt.“
Guðrún Helga segir að í Búlgaríu sé mikið bil milli ríkra og fá-
tækra. „Það er t.d. ekki óalgengt að vera að aka á hraðbraut og
sjá BMW-bifreið við hliðina á gömlum hjónum á hestvagni.“
Búlgaría er afar fjölbreytilegt og fallegt land, segir Guðrún Helga Sederholm sem er búsett í Sofíu, höfuðborg Búlgaríu.
Þinghúsið í Sofíu. Stytta af rússneskum herforingja fyrir framan.
Guðrún Helga segir að á mörkuðum í Sofiu sé
meðal annars hægt að kaupa fallega íkona.
Verið að koma
borginni Sofíu í
nútímalegt horf
Áhugavert land