Morgunblaðið - 12.05.2003, Blaðsíða 1
Morgunblaðið/Sverrir
Halldór Ásgrímsson og Davíð Oddsson koma af fundi sínum í Ráðherrabústaðnum. Að baki þeim eru, f.v. Atli
Ásmundsson, blaðafulltrúi Halldórs, Illugi Gunnarsson, aðstoðarmaður Davíðs, og Þorkell Samúelsson, bílstjóri Dav-
FORMENN stjórnarflokkanna, þeir
Davíð Oddsson forsætisráðherra og
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra, munu í dag fara fram á það við
nýkjörna þingflokka Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks að þeir
veiti þeim umboð til formlegra við-
ræðna um áframhaldandi ríkisstjórn-
arsamstarf. Stjórnarflokkarnir héldu
meirihluta sínum í alþingiskosningun-
um á laugardag, hlutu samtals 34
þingmenn af 63 og 51,4% atkvæða, en
stjórnarandstaðan á þingi fékk 47,2%
atkvæða.
Davíð Oddsson og Halldór Ás-
grímsson hittust á fundi í Ráð-
herrabústaðnum við Tjarnargötu upp
úr hádeginu í gær. Davíð sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að þar hefðu
þeir farið stuttlega yfir málin. „Nið-
urstaðan varð sú að vegna úrslita
kosninganna, þar sem ríkisstjórnin
hélt velli með þetta traustum meiri-
hluta, teldum við eðlilegt að við mynd-
um leita eftir umboði til þess hjá þing-
flokkunum að hefja formlegar
viðræður,“ segir Davíð. „Við fórum
ekki yfir nein efnisatriði, enda rétt að
fara formlega leið og heyra í okkar
þingflokkum. Ég á von á að þeir muni
samþykkja þessar tillögur og viðræð-
ur hefjist í framhaldinu. Svo verður
að koma í ljós hvort menn ná saman
um málefni eða aðra skipan mála. Það
liggur að sjálfsögðu ekki á borðinu.“
Halldór Ásgrímsson sagðist myndu
leggja til við þingflokkinn að hefja
formlegar stjórnarmyndunarviðræð-
ur við Sjálfstæðisflokkinn. Hins vegar
væri ekkert hægt að segja meira um
hvað viðræðurnar tækju langan tíma
né um niðurstöðu þeirra.
Stjórn Framsóknar og
Samfylkingar yrði afar veik
Framsóknarflokkurinn og Sam-
fylkingin eiga möguleika á að mynda
ríkisstjórn með eins manns meiri-
hluta. Halldór segir að Össur Skarp-
héðinsson, formaður Samfylkingar-
innar, hafi hringt í hann í gær og þeir
rætt almennt um niðurstöðu kosning-
anna og stöðu mála. „Ég skýrði hon-
um frá því að ég og forsætisráðherra
hefðum talað saman í dag [í gær],“
segir Halldór. Um hugmyndir um
stjórn með Samfylkingu segir Hall-
dór: „Ég dreg enga dul á að slík rík-
isstjórn yrði mjög veik.“
Aðspurður hvort hann gangi á fund
forseta Íslands í dag, að loknum kosn-
ingum, segir Davíð Oddsson engin
efni vera til þess „að raska ró“ forset-
ans. Stjórnarflokkarnir haldi velli og
stefni að því að starfa saman.
Samfylking bætti
við sig fjórum
Úrslit þingkosninganna urðu þau að
Sjálfstæðisflokkurinn fékk 33,7% at-
kvæða og 22 þingmenn kjörna, en fékk
í kosningunum 1999 40,7% og 26 menn.
Samfylkingin fékk 31% atkvæða og 20
þingmenn, hafði 26,8% og 16 menn.
Framsóknarflokkurinn fékk 17,7% at-
kvæða og 12 þingmenn, hafði áður
18,4% og jafnmarga menn. Vinstri-
hreyfingin – grænt framboð fékk 8,8%
atkvæða og fimm þingmenn, en hafði
áður 9,1% og sex menn. Þá fékk
Frjálslyndi flokkurinn 7,4% og fjóra
menn, en hafði áður 4,2% og tvo þing-
menn. Nýtt afl og sérframboð Krist-
jáns Pálssonar í Suðurkjördæmi náðu
ekki mönnum á þing.
Ríkisstjórnin hélt velli í kosningunum með fimm þingsæta meirihluta
Hefja viðræður um áfram-
haldandi stjórnarsamstarf
Kosningar/4–27
Samfylking og
Frjálslyndir
bættu við sig,
VG tapaði manni
Einstefna
á Ásvöllum
Haukar réðu lögum og lofum í þriðja
leiknum gegn ÍR Íþróttir B4
Grænir fánar í blómapottum og
gámasalar á kosningavöku 18
Ozzy
breytir til
Unnið að samningi um
starfslok við Epic Fólk 47
STOFNAÐ 1913 127. TBL. 91. ÁRG. MÁNUDAGUR 12. MAÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Hamingja og
Maístjarnan
Alltaf sóst eftir
að leiða stjórn
„ÉG hef alltaf sóst eftir því að leiða
ríkisstjórn og að Framsóknarflokk-
urinn nái afli til þess. Það er eins
núna,“ segir Halldór Ásgrímsson,
formaður Framsóknarflokksins.
Skv. upplýsingum Morgunblaðsins
er talsverður þrýstingur á það innan
flokksins að Halldór geri kröfu um
forsætisráðuneytið sér til handa í
viðræðunum við Sjálfstæðisflokkinn.
„Við höfum ekki hafið neinar um-
ræður um þetta en þetta er eitt af
því sem flokkarnir munu ræða í
þeim viðræðum sem framundan eru.
Í mínum huga eru málefnin aðal-
atriði og sá vilji okkar að halda
áfram að byggja upp blómlegt at-
vinnulíf og öflugt velferðarkerfi.“
LÍKUR eru á að forsætisráðherrar
Ísraela og Palestínumanna fundi á
föstudag að því er ísraelska útvarp-
ið greindi frá í gær. Á skrifstofu Ar-
iels Sharons, forsætisráðherra Ísr-
aels, fékkst ekki staðfesting á
fréttinni en Sharon hafði skömmu
áður látið í ljósi vilja til að hitta
Mahmud Abbas, forsætisráðherra
Palestínumanna.
Utanríkisráðherra þeirra, Nabil
Shaath, staðfesti skömmu síðar við
sjónvarpsstöðina CNN að áætlanir
væru uppi um fund forsætisráð-
herranna. Það yrði í fyrsta sinn sem
þeir hittust frá því Abbas tók við
embætti í lok apríl, en þeir höfðu
áður hist á laun eftir að Sharon tók
við embætti 2001.
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, átti fundi með þeim
í gær og lét Abbas í ljósi óánægju
með að Palestínumönnum væri gert
að leggja meira af mörkum við að
framfylgja friðarvegvísinum svo-
nefnda, þriggja þrepa áætlun um
frið í Mið-Austurlöndum, sem lögð
var fram af Bandaríkjamönnum,
Rússum, Sameinuðu þjóðunum og
Evrópusambandinu.
Í vegvísinum er m.a. gert ráð fyr-
ir að palestínskt ríki verði stofnað
fyrir 2005. Palestínumenn hafa
samþykkt áætlunina en Ísraelar
gert 15 athugasemdir við hana og
aldrei sæst á hana opinberlega.
Horfur á fundi Abbas og
Sharons á næstu dögum
Jerúsalem, Jeríkó. AFP.
Inni í myndinni
að hætta
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
segir að það sé inni í myndinni að
hann hætti á Alþingi á þessu kjör-
tímabili. „Ég gæli við það að eiga
rýmri tíma fyrir mig sjálfan ein-
hvern tímann, hvernig sem þau mál
þróast. Þetta er alveg eins inni í
myndinni. Þó að mér sé lýst sem
valdagírugum og það allt saman þá
er ég ekkert háður valdinu. Svo er
aldrei hægt að útiloka að ég slái til
og haldi áfram. Þetta verður bara
að koma í ljós,“ segir Davíð.
Hann bendir á að á kjörtímabilinu
verði a.m.k. tveir landsfundir Sjálf-
stæðisflokksins, „þannig að slík mál
geta komið til athugunar á þeim
fundum, hinum fyrri og síðari eftir
atvikum. Ég tók við formennsku í
Sjálfstæðisflokknum í mars [1991],
fór síðan í kosningar 20. apríl og
myndaði ríkisstjórn 30. apríl þannig
að þetta er allt saman til í dæminu.“