Morgunblaðið - 12.05.2003, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 MÁNUDAGUR 12. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Verð kr. 19.950
M.v. 2 fyrir 1.
Fargjald kr. 32,600/2 = 16,300.
Skattar kr. 3,650, samtals kr. 19,950.
Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt tilboð á síðustu
sætunum til Prag, þessarar fegurstu borgar Evrópu, sem hefur heillað
Íslendinga með heillandi mannlífi, stórkostlegri byggingarlist og sögu
sem þú upplifir á hverju horni. Þú bókar 2 sæti, en greiðir bara fyrir 1
og tryggir þér frí á frábæru verði. Að auki getur þú valið um úrval góðra
hótela í hjarta Prag á góðu verði.
6 dagar
Munið Mastercard
ferðaávísunina
2 fyrir 1
Prag
23. maí
frá kr. 19.950
BIRKIR Jón Jónsson, aðstoðarmaður
félagsmálaráðherra og fjórði maður á
lista Framsóknarflokksins í Norðaust-
urkjördæmi, er næstyngsti frambjóð-
andi sögunnar
sem nær kjöri til
Alþingis, eða 23
ára og 290 daga
gamall. Sá yngsti
var Gunnar Thor-
oddsen sem kjör-
inn var árið 1934,
þá 23 ára og 177
daga gamall.
Næstyngstur í
sögunni fyrir þess-
ar kosningar var Ragnar Arnalds sem
var 24 ára og 336 daga gamall er hann
fór á þing árið 1963. Af þeim þing-
mönnum sem voru á Alþingi fyrir
þessar kosningar hafði Halldór Ás-
grímsson verið yngstur til að setjast á
þing. Hann var 26 ára og 295 daga
gamall er hann náði fyrst kjöri árið
1974.
Fleiri nýir þingmenn eru yngri en
þrítugir. Næstyngstur á eftir Birki er
Ágúst Ólafur Ágústsson, sem skipaði
4. sætið á lista Samfylkingarinnar í
Reykjavíkurkjördæmi suður, 26 ára
frá því í mars sl. Dagný Jónsdóttir,
sem skipaði 3. sætið hjá framsóknar-
mönnum í Norðausturkjördæmi, varð
27 ára í janúar sl. og Katrín Júlíusdótt-
ir, Samfylkingunni í Suðvesturkjör-
dæmi, verður 29 ára síðar á þessu ári.
Þá varð Sigurður Kári Kristjánsson,
nýr þingmaður Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík norður, þrítugur daginn
fyrir kosningar.
Meðalaldur nýrra
þingmanna er 35 ár
Aldursforseti þingsins nú er Hall-
dór Blöndal, forseti Alþingis, sem
verður 65 ára síðar í sumar. Lengstan
starfsaldur sem sitjandi þingmaður á
Halldór Ásgrímsson, sem kjörinn var
sem fyrr segir árið 1974 og hefur verið
þingmaður síðan ef undan er skilið
stutt þing frá 1978–1979.
Meðalaldur þingmanna eftir þessar
kosningar lækkar um fimm ár, fer úr
52 árum í 47. Ef meðalaldur nýrra
þingmanna er skoðaður sérstaklega
þá kemur í ljós að hann er aðeins 35 ár.
Birkir Jón
næstyngsti
þingmaður
sögunnar
Birkir Jón Jónsson
KONUM á Alþingi fækkar um fjór-
ar eftir kosningarnar 10. maí. Af 63
þingmönnum á síðasta kjörtímabili
voru 23 konur, eða 36,5% hlutfall,
en um helgina náðu nítján konur
kjöri, sem þýðir að hlutfall þing-
kvenna fer niður í 30%.
Af 45 þingmönnum sem náðu
endurkjöri eru sextán konur og af
átján nýjum þingmönnum eru að-
eins þrjár konur. Af þeim tólf þing-
mönnum sem gáfu kost á sér, en
náðu ekki kjöri, voru fimm konur,
allar úr Sjálfstæðisflokknum.
Nýjar konur á Alþingi nú eru
Dagný Jónsdóttir (B), Anna Kristín
Gunnarsdóttir (S) og Katrín Júl-
íusdóttir (S). Fyrir eru Ásta R. Jó-
hannesdóttir (S), Bryndís Hlöðvers-
dóttir (S), Drífa Hjartardóttir (D),
Guðrún Ögmundsdóttir (S), Jó-
hanna Sigurðardóttir (S), Jónína
Bjartmarz (B), Kolbrún Halldórs-
dóttir (U), Margrét Frímannsdóttir
(S), Rannveig Guðmundsdóttir (S),
Sigríður Anna Þórðardóttir (D), Siv
Friðleifsdóttir (B), Sólveig Péturs-
dóttir (D), Valgerður Sverrisdóttir
(B), Þorgerður K. Gunnarsdóttir
(D) og Þórunn Sveinbjarnardóttir
(S).
Flestar konur í Samfylkingu
Af einstökum þingflokkum er
hæst hlutfall kvenna hjá Samfylk-
ingunni, eða níu af tuttugu þing-
mönnum, 45%. Hjá Vinstri grænum
er hlutfallið 40% þar sem tvær af
fimm þingmönnum eru konur.
Þriðjungur þingflokks Framsóknar-
flokks er skipaður konum, 18%
þingflokks Sjálfstæðisflokksins en
þingflokkur Frjálslynda flokksins
er eingöngu skipaður körlum.
Konum á þingi
fækkaði um fjórar
KJÖRSÓKN í kosningunum um
helgina var 87,8% en af 211.289 kjós-
endum á kjörskrá þá kusu alls
185.398 manns. Þetta er heldur betri
kjörsókn en fyrir fjórum árum þegar
hún nam 84,1%, sem þá var slakasta
kjörsóknin frá stofnun lýðveldisins.
Þetta er hins vegar svipað og árið
1995 þegar kjörsóknin var 87,4% en
nokkuð frá bestu þátttöku kjósenda í
þingkosningum, sem var 91,4% árin
1967 og 1974.
Kjörsókn var í Norðvesturkjör-
dæmi og Suðurkjördæmi, eða 89,3%
í hvoru kjördæmi. Í Suðvesturkjör-
dæmi var kjörsóknin 88,5%, 87,4% í
Norðausturkjördæmi, 87,2% í
Reykjavík suður og lökust var kjör-
sóknin í Reykjavík norður, eða
85,6%. Til samanburðar var kjör-
sóknin í Reykjavík 82,1% 1999.
Kjörsókn
betri en
árið 1999
IINGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir,
talsmaður Samfylkingarinnar, og
Davíð Oddsson, forsætisráðherra og
formaður Sjálfstæðisflokksins, tak-
ast í hendur á Stöð tvö á laugardags-
kvöld, en forystumenn flokkanna
hittust þar til að ræða um fyrstu töl-
ur sem birtar voru kl. 22. Milli þeirra
stendur Hjörleifur Sveinbjörnsson,
eiginmaður Ingibjargar Sólrúnar.
Morgunblaðið/Golli
Beðið eftir fyrstu tölum
TÆPLEGA helmingur þeirra sem
búa við Framnesveg í Reykjavík,
sunnan Hringbrautar, kaus í röngu
kjördæmi vegna villu í kjörskrá. Þeir
sem áttu eftir að kjósa þegar mistök-
in voru uppgötvuð og leiðrétt voru
fluttir í rétt kjördæmi og gert að
kjósa þar.
Allir íbúar Framnesvegar voru á
kjörskrá í Reykjavíkurkjördæmi
norður, þótt gatan nái yfir Hring-
braut sem skiptir kjördæmum og 79
íbúar séu sunnan megin.
Gunnar Eydal, skrifstofustjóri
borgarstjórnar og starfsmaður yfir-
kjörstjórnar, segir að kortið sem við-
komandi starfsfólk borgarinnar hafi
unnið með við gerð kjörskrár hafi
ekki sýnt Framnesveg sunnan
Hringbrautar og vegna ókunnug-
leika hafi verið talið að Álagrandi
næði alveg að Hringbrautinni. Hann
segir að það hafi því verið mannleg
mistök að valdið hafi skekkjunni.
Kjósendum á þessum hluta göt-
unnar sem komu í Hagaskóla til að
kjósa var í fyrstu vísað á kjörstað í
norðurkjördæmi, eða þangað til einn
þeirra vakti athygli yfirkjörstjórnar-
manns á málinu. Þórunn Guðmunds-
dóttir, formaður yfirkjörstjórnar í
Reykjavíkurkjördæmi norður, segir
að landskjörstjórn hafi verið búin að
draga kjördæmamörkin eftir Hring-
braut og því hafi verið augljóst að
kjörskráin hafi verið röng að þessu
leyti. Hún segir að yfirkjörstjórnirn-
ar í Reykjavíkurkjördæmunum hafi,
að höfðu samráði við fulltrúa lands-
kjörstjórnar, ákveðið að mælast til
þess við borgarráð að kjörskráin
yrði leiðrétt og þeir sem áttu eftir að
kjósa fluttir í suðurkjördæmið.
Á ekki að gerast
Borgarráð kom saman til skyndi-
fundar og flutti þá 40 íbúa Framnes-
vegar sunnan Hringbrautar sem
áttu eftir að kjósa í sitt rétta kjör-
dæmi. Þórunn segir að vissulega hafi
einnig komið til greina að láta kjör-
skrána standa, eins og hún var aug-
lýst, en niðurstaðan hafi verið að
leiðrétta mistökin strax. „Það er
mjög slæmt að þetta skuli hafa gerst,
það á ekki að gerast. En þegar slík
mistök verða á að bregðast við strax
og leiðrétta þau,“ segir Þórunn.
Íbúar við Framnesveg
kusu í röngu kjördæmi
ATKVÆÐI utan kjörfundar í Suður-
kjördæmi, alls um 500, voru þau síð-
ustu til að vera talin í þingkosning-
unum. Voru þær tölur lesnar upp af
formanni yfirkjörstjórnar, Karli
Gauta Hjaltasyni, upp úr klukkan
níu í gærmorgun eða meira en tíu
klukkustundum eftir að kjörfundi
lauk að kvöldi laugardags.
Þessi 500 atkvæði höfðu úrslita-
áhrif um skiptingu þingsæta í kosn-
ingunum. Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, sem skipaði 5. sæti
Samfylkingarinnar í Reykjavík
norður, hafði verið inni og úti sem
jöfnunarþingmaður undir morgun
þegar síðustu tölur komu frá öðrum
kjördæmum. Hún var inni áður en
tölurnar úr Suðurkjördæmi voru
lesnar upp en skipting þessara utan-
kjörfundaratkvæða var þannig að
hún varð að víkja fyrir Árna Magn-
ússyni, sem skipaði 2. sæti á lista
Framsóknarflokksins í Reykjavík
norður. Árni hafði sömuleiðis verið
„inni og úti“ kosninganóttina.
Ástæða þess að talning í Suður-
kjördæmi tók þetta langan tíma var
einkum sú að illa gekk að stemma af
kjörgögn. Liðu sex klukkustundir
frá fyrstu talnabirtingu á ellefta tím-
anum á laugardagskvöld þar til
næstu tölur birtust. Síðustu kjör-
kassar komu ekki á talningarstað á
Hótel Selfossi fyrr en um tvöleytið
um nóttina og að sögn Karls Gauta
hafði það einnig áhrif að utankjör-
fundaratkvæði voru óvenjumörg að
þessu sinni.
Illa gekk að stemma af kjörgögn í Suðurkjördæmi
Síðustu tölur höfðu úrslita-
áhrif á skiptingu þingsæta
YFIRKJÖRSTJÓRN Reykjavíkur-
kjördæmis suður hefur samþykkt að
óska lögreglurannsóknar á því af
hverju umslög utan um utankjör-
fundaratkvæði, sem flutt var frá
Tékklandi með hraðflutningafyrir-
tækinu DHL, höfðu verið rifin upp
og límd aftur með límbandi merktu
DHL þegar þau komu á kjörstað í
Hagaskóla. Var umrætt atkvæði úr-
skurðað ógilt af yfirkjörstjórn.
Haraldur Blöndal hrl. á sæti í yf-
irkjörstjórninni. Hann segir að málið
sé grafalvarlegt. Þrjú umslög utan
um atkvæðið hafi verið rifin upp og
límd aftur með límbandi frá DHL-
fyrirtækinu. Hann telur að sam-
kvæmt vissum ákvæðum kosningar-
og hegningarlaga geti það varðað
þungum refsingum að ógilda kjör-
gögn með einum eða öðrum hætti.
„Málið varðar það mikla almanna-
hagsmuni að það verður að finna út
úr þessu. Þarna er verið að eyði-
leggja rétt manna til að hafa áhrif á
kosningar í landinu. Kjósendur sem
búa erlendis verða að geta treyst því
að atkvæðum þeirra sé komið til
skila og án ótta við að þau verði
skemmd. Við höfum ekki hugmynd
um hvort þetta gerðist hér á landi
eða erlendis en það skiptir ekki
nokkru máli. DHL rauf þessa send-
ingu og við viljum láta rannsaka
það,“ segir Haraldur.
Yfirkjörstjórn óskar eftir
að lögregla rannsaki málið
Umslög utan um
atkvæði rifin upp