Morgunblaðið - 12.05.2003, Blaðsíða 27
KOSNINGAR 2003
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. MAÍ 2003 27
BS-90 í búvísindum
Fjölbreytt búvísindanám, með áherslu á búfjárrækt, jarðrækt og
bútækni auk margra valgreina. Námið er undirstaða fyrir
framhaldsnám í búvísindum, ráðgjafastörf, kennslu og rannsóknir
auk búrekstrar.
BS-90 í landnýtingu (landgræðsla og skógrækt)
Skipulag, nýting og umhirða lands með áherslu á skógrækt,
landgræðslu og náttúruvernd við íslenskar aðstæður. Námið
hentar vel til undirbúnings fyrir störf að landgræðslu og
skógrækt, mati á umhverfisáhrifum, kortagerð, umhverfismálum
og náttúruvernd almennt.
BS-90 í umhverfisskipulagi (landslagsarkitektúr)
Fjallað er um samspil skipulags, náttúru og félagslegra aðstæðna.
Námið er fyrri hluti náms í landslagsarkítektúr og öðrum
skipulagsfræðum. Störf að námi loknu geta verið hjá opinberum
aðilum, sveitarfélögum, teiknistofum og ráðgjafafyrirtækjum.
Kandidatsnám
Boðið er upp á eins árs viðbótarnám og rannsóknaþjálfun til
kandidatsprófs í búvísindum og landnýtingu að loknu BS-90
námi. Námið hentar einkar vel þeim, sem ætla að verða
leiðbeinendur í landbúnaði, t.d hjá: búnaðarsamböndum,
landgræðslu og skógrækt. Inntökuskilyrði er BS-próf frá LBH eða
sambærilegt BS- nám frá öðrum háskólum.
Meistaranám (MS)
Meistaranám til 60 eininga í búvísindum. MS-námið veitir
möguleika á sérhæfingu á sviði búfjárræktar, jarðræktar og
bútækni. Meistaranám til 60 eininga í landnýtingu. MS-námið
veitir möguleika á sérhæfingu á sviði landgræðslu, skógræktar,
umhverfisstjórnunar, jarðræktar og bútækni.
MS-námið er skipulagt sem einstaklingsbundinn námsferill með
sveigjanlegri námsframvindu. MS-nám við LBH er skipulagt í
samstarfi við NOVA-háskólana á hinum Norðurlöndunum.
Inntökuskilyrði er BS-gráða í búvísindum, landnýtingu, líffræði,
landfræði og annað sambærilegt BS-nám.
Háskólanám á Hvanneyri
Umsóknarfrestur er til 5. júní 2003 www.hvanneyri.is - lbh@hvanneyri.is - 433 7000
Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri er vel búinn tækjum og þar er gott sérhæft bókasafn og rannsóknastofur. Nemendur njóta hagræðis af því að búa á staðnum og þægileg nánd er á milli nemenda
og starfsfólks. Á Hvanneyri er góð aðstaða fyrir nemendur og fjölskyldur þeirra í starfi og leik. Þar eru nemendagarðar fyrir fjölskyldur jafnt sem einstaklinga, grunnskóli og leikskóli. Útivistar- og
afþreyingarmöguleikar eru fjölbreyttir og stutt í alla þjónustu. Hvanneyri er í um klukkustundar akstursfjarlægð frá Reykjavík.
Nám við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri hentar þeim vel,
sem vilja starfa í tengslum við íslenska náttúru
! "
#$"
%
&
'! (#
) * "
+,- +,- +,- +,- +,- +,- +,-
#
+,- +,- +,- +,- +,- +,- +,- +,- +,-
#
+,- +,- +,- +,- +,- +,- +,-
"
%-!
)
.
"
/!
%-!
&
*
0
1"
,
'
! "
#$"
%
&
'! (#
) * "
+,-
'
&
*
0
1"
,