Morgunblaðið - 12.05.2003, Blaðsíða 44
44 MÁNUDAGUR 12. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
VEGNA FJÖLDA ÁSKORANA!
Stevie
Sýnd kl. 5.30
Ég er Arabi / Gamla Brýnið
Sýnd kl. 8
Biggie & Tupac
Sýnd kl. 10.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10. Sýnd kl. 5.50, 8, 10.10. B.i.14 ára.
SG DV
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
Svona
snilldarverk
eru ekki á
hverju strái.”
Þ.B.
Fréttablaðið
Frábær rómantísk gamanmynd
sem hefur allstaðar
slegið í gegn.
Sýnd kl. 9. Sýnd kl. 8.Sýnd kl. 6.Sýnd kl. 6. Bi. 14
Síðasta sýning
ÓHT Rás 2
HK DV
„Magnað verk“
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. / Sýnd kl. 8.
KRINGLAN / AKUREYRI
KEFLAVÍK
Tilboð
500
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. Sýnd kl. 4. Tilboð 500 kr.Sýnd kl. 3.50. ísl. tal
ÁLFABAKKIÁLFABAKKI
KJÖRDAGUR er dagur fólksins í landinu. Dagurinn er jafntíður gestur á
dagatölum og 29. febrúar en verður að teljast öllu mikilvægari. Á kjördag
sannast að maður er manns gaman.
Hvort sem menn kusu að sitja heima eða hópast á kosningavöku þá var
líf og fjör hjá flestum á kjördag. Ungir og gamlir komu saman á kjörstöð-
unum til að neyta réttar síns og hitta mann og annan.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kátir voru karlar…á kosningavöku
Fylgisaukning Frjálslyndra kætti þá Jón Stefánsson og Jóhann Sigfússon.
Fólk á kjördag
Morgunblaðið/Ómar
Ungt fánasölufólk á kjörstað
SYSTKININ Telma Dögg og Bragi Hlífar Guðbjörnsbörn eru reyndar ekki
komin með kosningarétt. Þau létu það þó ekki aftra sér frá því að mæta á
kjörstað í Árbæjarskóla í gær og seldu fána í tilefni dagsins.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Inn – út – inn – inn – út
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir náði ekki inn á þing en gladdist engu að
síður með Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur og öðru Samfylkingarfólki á
Broadway á kosninganótt.
Morgunblaðið/Golli
Tveir forsætisráðherrar
HVORT sem menn eru leiðtogar í stjórnmálum eða sjónvarpsstjörnur þá
gera sterk ljós í stúdíói það að verkum að allir þurfa smink, jafnt Davíð
Oddsson sem Steingrímur Hermannsson.
Morgunblaðið/Ómar
Lætur sig aldrei vanta á kjörstað
ÁRNI Kr. Hansson kýs í Kópavogi. Hann er einn af frumbyggjum bæjarins,
hefur búið þar og kosið þar síðan 1947. Í þetta sinn fór Árni á kjörstað með
dóttur sinni Ragnheiði D. Árnadóttur og tengdasyni Braga Sigurjónssyni.
MARGIR hafa beðið óþreyjufullir
eftir því að Indiana Jones-mynd-
irnar komi út á mynddiski. Nú er
orðið ljóst að biðin er senn á enda
því að í lok þessa árs, nánar tiltekið
4. nóvember, verður gefinn út veg-
legur 4 diska pakki með myndun-
um þremur og ríflegum skammti af
aukaefni. Pakkinn mun heita Æv-
Endur-
koma Indy
Á KJÖRDAG opnuðu útskriftar-
nemendur og aðrir nemendur í
myndlist og hönnun við Listaháskóla
Íslands sýningu á verkum sínum í
Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhús-
inu við Tryggvagötu.
Sýningin er hluti af Vorhátíð
Listaháskólans en 56 nemendur eiga
verk á sýningunni, 28 í hönnun og 28
í myndlist. Sýningarstjórar eru
Hekla Dögg Jónsdóttir, sem stýrir
uppsetningu á myndlistarhlutanum,
og Steinþór Kári Kárason, sem sér
um hönnunarhlutann ásamt því að
hafa umsjón með innsetningum í for-
dyri og göngum safnsins.
Í sérstakri útskriftarbók má finna
ljósmyndir af verkum nemenda og
umfjallanir þeirra um verk sín eða
lífið og listina almennt.
Sýning þessara upprennandi
hönnuða og myndlistarmanna stend-
ur til fimmtudagsins 29. maí og er
aðgangur ókeypis.
Útskriftar-
verk sýnd í
Hafnarhúsi
Halldór Gíslason, prófessor í arki-
tektúr, leiddi Ólaf Ragnar Grímsson
og Dorrit Moussaieff í gegnum sýn-
ingu útskriftarnemanna. Hjálmar
H. Ragnarsson rektor fylgist með.
Morgunblaðið/Kristinn
Margir lögðu leið sína í Hafnar-
húsið á kjördag enda tilvalið að
nýta kjördaginn til að njóta listar.