Morgunblaðið - 13.05.2003, Síða 39

Morgunblaðið - 13.05.2003, Síða 39
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 39 Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa kl. 10–14 í neðri safnaðarsal kirkjunnar. Bæna- og fyrirbænastund kl. 12. Að lokinni bænastund gefst þátttakendum kostur á léttum hádegisverði. Samvera foreldra ungra barna er kl. 14 í neðri safnaðarsaln- um. Bústaðakirkja. TTT-æskulýðsstarf fyrir 10–12 ára kl. 17. Grensáskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Orgelleikur, ritningarlestur, altaris- ganga, fyrirbænir. Léttur hádegisverður að samverustund lokinni. Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Eldri borgara starf kl. 13. Leikfimi, súpa, kaffi og spjall. Háteigskirkja, eldri borgarar. Á morgun er stutt messa, fyrirbænastund, kl. 11. Súpa og brauð kl. 12. Brids kl. 13. Laugarneskirkja. Nú er fullorðins- fræðslunni lokið en kl. 21 er Þriðjudagur með Þorvaldi. Lofgjörðarstund þar sem Þorvaldur Halldórsson leiðir söng við undir- leik Gunnars Gunnarssonar, en sóknar- prestur flytur guðs orð og bæn. Fyrirbæna- stund kl. 21.30 í umsjá Margrétar Scheving, sálgæsluþjóns og hennar sam- starfsfólks. (Sjá síðu 650 í Textavarpi.) Neskirkja. Litli kórinn – kór eldri borgara kl. 16.30. Stjórnandi Inga J. Backman. Allir velkomnir. Foreldramorgunn miðvikudag kl. 10–12. Vorferð í Húsdýragarðinn. Grill- um saman. Umsjón Elínborg Lárusdóttir. Árbæjarkirkja. Foreldramorgunn í safnað- arheimilinu kl. 10–12. Hittumst, kynn- umst, fræðumst. Kl. 16.15–17.15. STN- starf fyrir 7–9 ára börn. Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta með altarisgöngu kl. 18.30. Bænaefnum má koma til sóknarprests í viðtalstímum hans. Digraneskirkja. Kirkjustarf aldraðra. Kl. 11.15 leikfimi ÍAK. Unglingakór Digranes- kirkju kl. 17–19. (Sjá nánar: www.digranes- kirkja.is) Fella- og Hólakirkja. Síðasta fjölskyldu- stund (mömmumorgunn) vorannar í Fella- og Hólakirkju. Förum á okkar bílum út í blá- inn kl. 10.15 og komum til baka kl. 12. Kvöldvaka fullorðinna í safnaðarheimilinu kl. 20. Þorvaldur Halldórson leikur og syng- ur og fleira til skemmtunar. Helgistund í kirkjunni í lok kvöldvökunnar. Starf fyrir 11– 12 ára stúlkur kl. 16.30. Grafarvogskirkja. Opið hús fyrir eldri borg- ara kl. 13.30–16. Helgistund, handavinna, spil og spjall. Kaffiveitingar og alltaf eitt- hvað gott með kaffinu. Hjallakirkja. Prédikunarklúbbur presta kl. 9.15. Bæna- og kyrrðarstund kl. 18. Kóræf- ing kl. 19.45. Kópavogskirkja. Foreldramorgunn í dag kl. 10–12 í safnaðarheimilinu Borgum. Seljakirkja. Mömmumorgunn. Opið hús milli kl. 10–12. Kaffi og spjall. Víðistaðakirkja. Barnastarf fyrir 8–9 ára börn í dag kl. 17. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–12 ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi, Vonarhöfn frá kl. 17–18.30. Vídalínskirkja. Í sumar verður opið hús á vegum kirkjunnar fyrir eldri borgara í safn- aðarheimilinu Kirkjuhvoli kl. 13–16. Spilað og spjallað. Þorlákur sér um akstur fyrir þá sem óska. Lágafellskirkja, barnastarf. Kirkjukrakkar í Lágafellsskóla í dag fyrir 6–7 ára börn kl. 13.15 og 8–9 ára börn kl. 14.30. Umsjón Þórdís djákni. Grindavíkurkirkja. Foreldramorgnar alla þriðjudaga kl. 10–12. Hveragerðiskirkja. Kl. 10–12 foreldra- morgunn. Ef veður leyfir göngum við niður að gróðurhúsi og fáum að sjá hvernig rós- irnar verða til. Allir mæti búnir eftir veðri með barnavagn. Borgarneskirkja. Helgistund í kirkjunni kl. 18.30–19. Þorlákskirkja. Fermingarfræðsla í dag kl. 13.40. Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomnir. Kefas. Bænastund kl. 20.30. Allir velkomn- ir. Akureyrarkirkja. Morgunsöngur kl. 9. Glerárkirkja. Kyrrðar- og tilbeiðslustund í kirkjunni kl. 18.10. Safnaðarstarf ✝ Sighvatur Jó-hannsson fæddist í Reykjavík 30. apríl 1946. Hann lést á heimili sínu Litla- bæjarvör 13 í Bessa- staðahreppi hinn 3. maí síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Jóhann Jónas- son, fyrrverandi for- stjóri Grænmetis- verslunar landbún- aðarins, f. 2. mars 1912 í Öxney, og Margrét Sigurðar- dóttir húsfreyja, f. 3. mars 1916 á Borgum á Skógar- strönd. Systkini Sighvats eru: Elín, f. 1943, Snorri, f. 1944, Sturla, f. 1949, Jónas, f. 1951, og Sigrún, f. 1952. Árið 1975 kvæntist Sighvatur eftirlifandi eiginkonu sinni Sig- ríði Tryggvadóttur, f. 20. júlí 1951. Synir þeirra eru Þórarinn, f. 1. maí 1971, og Þórður, f. 20. maí 1978. Sambýliskona Þórarins er Elísabet Sigtryggsdóttir, f. 15. ágúst 1950. Fyrir átti Sighvatur soninn Ingvar Örn, f. 4. febrúar 1970, með Hafdísi Ágústs- dóttur, f. 7. desem- ber 1948. Eiginkona Ingvars er Kristín Heiða Kristinsdótt- ir, f. 25. mars 1964. Þeirra börn eru Melkorka, f. 1. febr- úar 1989, og Krist- inn, f. 24. júlí 1998. Sighvatur ólst upp á Bessastöðum til tíu ára aldurs þar sem Jóhann faðir hans var bústjóri. Eftir það flutti fjölskyldan í Sveinskot í Bessastaðahreppi. Sighvatur hóf ungur störf hjá Grænmetisverslun landbúnaðar- ins og starfaði þar sem verkstjóri og matsmaður um árabil. Síðustu sextán árin starfaði hann sem sendibílstjóri á Nýju sendibíla- stöðinni og sat þar í stjórn til nokkurra ára. Útför Sighvats verður gerð frá Bessastaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Eins og blóm án blaða söngur án radda skyggir dökkur fugl heiðríkjuna. Vorið sem kom í gær, er aftur orðið að vetri. (Magnús Jóhannsson.) Nýkominn heim úr vel heppnaðri helgarferð í skjólinu þeirra Siggu fyrir vestan. Þreyttur og sæll eftir gleðistundir með sonum og skyld- fólki. Leggur sig rétt sem snöggv- ast. Vaknar ei meir. Þannig fór Sig- hvatur tengdafaðir minn hljóðlega og fyrirvaralaust brott úr þessum heimi. Svo sárt að sjá á eftir fólki allt of fljótt. Svo sárt að hann fái ekki að njóta alls sem eftir á að koma. Að hann fái ekki að fylgjast með barnabörnunum vaxa úr grasi. Að hann fái ekki að verða gamall með henni Siggu sinni. Að hann fái ekki að fara fleiri ferðir vestur í skjólið í Skorravík og skjótast í Hólminn. En enginn má sköpum renna. Að leiðarlokum þakka ég Sighvati stutta en góða samfylgd og þá hlýju og hjálpsemi sem hann sýndi mér og mínum. Megi honum farnast vel á nýjum slóðum. Kristín Heiða Kristinsdóttir. Elsku frændi. Hvernig getur það verið að þú sért farinn? Við höfum svo oft talað um hversu ótrúlega heppin við séum. Amma og afi á lífi og allir afkomendur þeirra og þá hverfur þú á brott svo fyrirvara- laust. Á þessari stundu þakkar maður fyrir þessi nánu fjölskyldu- bönd. Síðast þegar ég hitti þig varstu svo hress og sagðir frá hesta- mennsku þinni. Þú sagðist eiga mynd af mömmu á hestbaki, það þótti okkur nú frekar ótrúlegt. Þegar þið bjugguð í kjallaranum og ég átti að vera hjá ömmu og afa, laumaði ég mér oft niður til ykkar. Einu sinnu spurðir þú mig hvort ég borðaði hvalkjöt, ég hélt nú ekki en þú sagðir það nú lagi því að það væri nautakjöt í matinn og auðvitað var ég til í það og borðaði með bestu lyst en svo kom í ljós að ég borðaði hvalkjöt og fannst það bara gott. Þú sagðir oft frá þessu enda hafðirðu gaman af að stríða mér. Þegar mamma og pabbi voru að byggja týndist Eyrún oft og fannst þá heima hjá ykkur, enda vildi hún bara vera hjá ykkur Siggu og leika við Gretti. Svo þegar Elva Eik fæddist þá tókuð þið henni opnum örmum og voruð alltaf tilbúin að passa fyrir mig ef ég þurfti. Hún segir að nú sért þú hjá Gretti og spurði hvort þú værir ekki örugg- lega í jakkafötum. Ég trúi því að þið séuð nú saman og sitjið og fylg- ist með okkur. Guð blessi minningu þína og gefi öllum aðstandendum styrk í sorg- inni. Andrea. Elsku Sighvatur. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Hjartans þakkir fyrir alla hjálp- semina, vináttuna og samleiðina á liðnum árum. Hvíl þú í friði. Elsku Sigga, Þórarinn, Ella, Þórður, Ingvar og aðrir aðstend- endur, sendi ykkur okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Guð styrki ykkur og huggi í framtíðinni. Elísabet Svansdóttir og fjölskylda. Við burtför þína er sorgin sár af söknuði hjörtun blæða. En horft skal í gegnum trega tár í tilbeiðslu á Drottin hæða og fela honum um ævi ár undina dýpstu að græða. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Við þökkum þér, kæri vinur, samfylgdina. Elsku Sigga, Þórarinn, Ella, Þórður, Ingvar og fjölskylda, góður guð styrki ykkur og blessi. Svanur og Edda. Manstu? Manstu allar góðu stundirnar sem við áttum saman? Ég man þær og mun aldrei gleyma þeim. Við höfum búið hlið við hlið óralengi. Fyrst var ég alltaf svo hrædd við þig útaf skegginu en svo þegar ég kynntist þér betur þá varstu besta skinn. Ég man þegar ég heimsótti ykk- ur, þið voruð alltaf svo glöð að sjá mig, þú varst oft að leggja kapal en ég og Grettir lékum okkur saman og þegar við vorum orðin þreytt þá gáfuð þið mér eitthvað að narta í. Við munum öll sakna hans Sighvats okkar og votta ég ykkur samúð mína. Eyrún Eðvaldsdóttir. SIGHVATUR JÓHANNSSON Foreldramorgnar í Selfosskirkju Á MORGUN, miðvikudaginn 14. maí, kl. 11, heimsækir Björn Hjálm- arsson barnalæknir okkur. Hann mun meðal annars fjalla um bólu- setningar og svara fyrirspurnum. Allir foreldrar velkomnir. Selfosskirkja. EFTIR áramót hafa verið kvöld- vökur fyrir fullorðna í safn- aðarheimili kirkjunnar í samvinnu við félagsstarf fullorðinna í Gerðu- bergi. Síðasta kvöldvakan verður þriðjudagskvöldið 13. maí og hefst kl. 20 stundvíslega. Meðal gesta verður hinn kunni söngvari Þor- valdur Halldórsson sem mun syngja nokkur lög og leika sjálfur undir. Þá verður upplestur og fleiri atriði á dagskránni. Kaffi og meðlæti er í boði kirkjunnar. Dagskránni lýkur um kl. 22 með stuttri kvöldandakt í kirkjunni sem sr. Svavar Stef- ánsson sóknarprestur sér um. Allir fullorðnir eru hjartanlega velkomnir á þessar kvöldvökur, þær hafa notið vinsælda og verið vel mætt á þær. Sóknarnefndirnar. Kvöldvaka Fella- og Hólakirkju Morgunblaðið/Arnaldur Halldórsson Fella- og Hólakirkja.  Fleiri minningargreinar um Stef- aníu Jónasdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegr- ar móður okkar og tengdamóður, GUÐRÍÐAR SIGURBJARGAR (Lóu) HJALTESTED, hjúkrunarheimilinu Seljahlíð, áður Karfavogi 43. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á hjúkr- unarheimilinu Seljahlíð fyrir góða umönnun og hlýju. Gunnar Hjaltested, Gyða Þorsteinsdóttir, Stefán Bjarni Hjaltested, Margrét Pálsdóttir, Kristján Björn Hjaltested. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur vináttu og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, HÖGNA BJÖRNS JÓNSSONAR, Keldulandi 3. Málfríður Hadda Halldórsdóttir, Esther Gerður Högnadóttir, Marteinn Karlsson, Þórunn Högnadóttir, Brandur Gunnarsson, Aron Högni, Hadda Rakel, Tristan Þór, Magnea Rut, Birgitta Líf, Birgir Þór. sem var næstelst í stórum systkina- hóp. Landsprófi lauk hún frá Héraðs- skólanum á Laugum í Reykjadal og stundaði síðan nám í Húsmæðraskól- anum á Löngumýri. Eftir að hún giftist bróður mínum, sem var skólastjóri á Laugum, fylgd- ist hún vel með skólastarfinu enda var íbúð þeirra hjóna í sama húsi og heimavist stúlkna og kennslustofur. Árum saman var hún þannig í nánum tengslum við nemendur og allt, sem gerðist í hinum fjölmenna heimavist- arskóla. Stefanía hafði mikinn áhuga á ís- lensku máli og næma tilfinningu fyrir notkun þess, bæði í ræðu og riti. Hún vandaði málfar sitt og vildi að aðrir gerðu það líka. Mjög vel fylgdist hún með námi barna sinna og hvatti þau til dáða. Alla ævi lagði hún stund á að auka margvíslega þekkingu sína, þegar tækifæri gáfust. Stefanía var mjög vel verki farin, handlagin og afar snyrtileg í allri um- gengni. Allur gróður í náttúrunni átti hana að vini. Á unglingsárum tók hún þátt í skógrækt á Þórðarstöðum í Fnjóskadal, þar sem hún ólst upp frá 10 ára aldri. Þegar maður hennar hætti skólastjórn á Laugum og þau fluttu heim í Brautarhól í Svarfaðar- dal, á bernskuheimili okkar systkina, plantaði hún trjám í skjólbelti í land- areigninni. Áður höfðu þau reyndar dvalið á sumrin í Svarfaðardal en haft bústjóra á vetrum til að annast skepnurnar. Í garðinum við íbúðar- húsið ræktaði hún blóm, grænmeti og ber. Allan jarðargróður, ásamt öðr- um afurðum búsins nýtti hún vel fyrir heimilið. Hún var hagsýn og féll aldr- ei verk úr hendi. Jafnvel þegar hún kom í heimsókn og bjó á heimili mínu, og ég var sjálf útivinnandi, naut garð- urinn minn góðs af komu hennar. Af bústofni þeirra hjóna hafði Stefanía mesta ánægju af kindunum. Hún var fjárglögg og mjög lagin við að hjálpa ánum um sauðburðinn, ef þess gerð- ist þörf. Hún hlynnti að og hjúkraði lasburða lömbum og kom lífi í þau. Þrátt fyrir nóg verkefni úti og inni á heimilinu á Brautarhóli, tók hún þátt í félagsmálum sveitarinnar. Í mörg ár var hún í stjórn kvenfélags- ins, gegndi þar gjaldkerastörfum. Ég er þess fullviss, að það rækti hún af kostgæfni. Það var háttur hennar, þegar hún tók eitthvað að sér. Hún söng í kirkjukórnum í nokkur ár og hafði ánægju af, enda lagviss. Meðan maður hennar var í sóknarnefnd Vallasóknar, sá hún um hirðingu á kirkjunni. Einnig sinnti hún mjög vel um leiðin í kirkjugarðinum, þar sem vandamenn okkar höfðu fengið hinstu hvílu. Þeim leiðum, sem enga eða litla umhirðu fengu, gleymdi hún heldur ekki. Fyrir allt þetta átti hún miklar þakkir skildar. Stefanía var ekki fljót að kynnast fólki. En hún var trúfastur vinur. Á því varð engin breyting, þó að sam- fundum fækkaði af ýmsum ástæðum. Oft var gaman að taka upp sending- arnar, sem bárust að heiman fyrir jól- in. Þar lét hún fylgja gómsæt mat- væli, sem hún hafði sjálf lagað og vissi að okkur mágkonum hennar bragðaðist vel. Þannig sýndi hún hugulsemi á ýmsan hátt, og allt, sem kom frá hennar hendi, var bæði gott og afar hreinlegt. Nú er skarð fyrir skildi heima á Brautarhóli. Sauðburður er byrjaður og engin Stefanía þar lengur til að sinna þörfum bæði manna og skepna. Líklega verður það hlutskipti yngsta sonarins, sem enn er heima hjá föður sínum, að annast ærnar, sem ekki geta borið hjálparlaust. Eflaust reyn- ir fjölskyldan líka að hugsa um garð- inn og gróðurhúsið, sem reist var í fyrra til að gleðja hana. Börn þeirra hjóna eru dugleg og makarnir hjálp- fúsir. Barnabörnin sakna áreiðanlega ömmu, sem sinnti þeim af kostgæfni og kenndi þeim margt. Erfiðast verð- ur það bróður mínum, sem er aldinn að árum, að takast á við það, sem framtíðin ber í skauti sér. En ég veit, að hér eftir sem hingað til mun hann njóta aðstoðar barna sinna og tengdabarna. Ég bið Guð að gefa þeim öllum styrk á erfiðum stundum og leggja líkn með þraut. Lilja S. Kristjánsdóttir. KIRKJUSTARF

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.