Morgunblaðið - 14.05.2003, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2003 B 3
bílar
MMC Lancer 4d Gli 1,3
Nýskr. júlí 2000. Ek. 55 þ.
km. Bsk. Verð kr. 960 þús.
Toyota Touring 4x4 1,8
Nýskr. okt. ‘97. Ek. 85 þ.
km. Bsk. Verð kr. 960 þús.
Kia Sportage Wagon 2,0
Nýskr. des. 1999. Ek. 55 þ.
km. Bsk. Verð kr. 1.330
þús.
Daihatsu Terios 1,3
Nýskr. sept. 1997. Ek. 85 þ.
km. Bsk. Verð kr. 690 þús.
MMC Pajero Diesel 2,8 Tdi
Nýskr. okt. 1995. Ek. 147 þ.
km. Ssk. Verð kr. 1.340 þús.
Suzuki Swift 1,3
Nýskr. maí 1998. Ek. 83 þ.
km. Bsk. Verð kr. 550 þús.
Nissan Sunny Slx 1,6
Nýskr. mars ‘94. Ek. 163 þ.
km. Ssk. Verð kr. 300 þús.
LR Freelander xei 1,8
Nýskr. febrúar 2000. Ek. 66 þ.
km. Bsk. Verð kr. 1.850 þús.
Leður. Sóllúga. Álfelgur.
Vw Passat Wagon 1,6
Nýskr. júní 1998. Ek. 87 þ.
km. Bsk. Verð kr. 990 þús.
Tilboð 790 þús. Tilboð 575 þús.Tilboð 1.190 þús.
Tilboð 890 þús.Tilboð 1.600 þús. Tilboð 1.150 þús.
VW Golf Variant 1,6
Nýskr. janúar 1997. Ek. 107
þ. km. Verð kr. 720 þús.
Bílasala Suðurlands - Fossnesi 14 - 800 Selfossi
www.toyotaselfossi.is • toyotaselfossi@toyotaselfossi.is
480 8000 480 8000
SELFOSSI
Toyota Landcr. VX disel
turbo 38" árg. 1995, 5 gíra,
ek.193 þús. Verð 2.950 þús.
Toyota Landcr. VX disel tur-
bo 38" árg. 1994, 5 gíra, ek. 201
þús. Afturhásing færð, olíumiðstöð,
gasinnspýting. Verð 3.390 þús.
Mitsubishi L200 Double cap
GLS turbo 2003 árg. 2003, 5
gíra, ek. 5 þús. Verð 2.690 þús.
Nissan Patrol Elegance 3,0
diesel turbo 35", árg. 2001,
sjálfsk., ek. 44 þús. Verð 4.300
þús. Tilb. 3.800 þús.
KT Tölvur - Neðstutröð 8 - Kópavogi
S. 554 2187 - www.bilasport.com - kt@kt.is
Magnarar ,hátalarar og
bassakeilur frá
Maxxsonics.
Frábær hljómgæði.
Kjörið í húsbílinn.
Breyttu bílnum í hljómleikahöll!
„HÖLDUM honum einföldum, hrein-
um og fögrum,“ sagði Bob Lutz, yf-
irmaður GM, þegar VX Lightning-
hugmyndabíllinn var frumkynntur í
Bandaríkjunum í byrjun vikunnar.
Kynningin var miðpunktur hátíða-
halda í tilefni af aldarafmæli GM og
þótti við hæfi við þessi tímamót að
kynna þennan stórglæsilega tveggja
sæta sportbíl sem byggist á sömu
tækni og Pontiac Solstice-hugmynda-
bíllinn sem kynntur var á bílasýning-
unni í Detroit í fyrra.
VX Lightning var hins vegar hann-
aður til að falla breskum í geð í hönn-
unarstöð GM í Englandi. Undir
langri vélarhlífinni er ný útgáfa af 2,2
lítra ECOTEC álvél Opel og búið er
að bæta við hana forþjöppu þannig að
hún skili 240 hestöflum og 305 Nm
togi. Við vélina er tengd sex þrepa
handskiptur gírkassi en bíllinn er aft-
urhjóladrifinn. Undirvagninn er með
sjálfstæðri fjöðrun á öllum hjólum og
fjöðrunarbúnaðurinn að aftan er all-
ur úr áli til þess að draga úr þyngd
bílsins. Allt gerir þetta að verkum að
bíllinn nær næstum jafni þyngdar-
dreifingu á fram- og afturöxul sem
tryggir góða aksturseiginleika og lip-
urð.
Eins og menn vita er Vauxhall
framleiddur í Bretlandi fyrir breskan
markað en þetta er systurfyrirtæki
Opel og jafnan með sömu fram-
leiðslubílana á boðstólum. VX
Lightning á að marka upphaf endur-
komu Vauxhall inn á sportmarkaðinn
þar í landi en á árum áður var merkið
þekkt fyrir framleiðslu slíkra bíla.
Því miður, eins og oft er raunin
með hugmyndabíla, eru engin áform
um að smíða þennan bíl. GM hyggst
hins vegar fylgjast náið með við-
brögðum almennings og þau gætu
breytt afstöðu fyrirtækisins.
Wieck
Rick Wagoneer stjórnarformaður og Simon Cox hönnuður afhjúpa bílinn.
VX Lightning í Bretlandi
GM afhjúpaði Vauxhall VX Lightning á Dorchester-hótelinu í London.
HAGNAÐUR BMW á fyrsta árs-
fjórðungi 2003 dróst saman um
17,9%, fór í 830 milljónir evra úr
1.011 milljónum evra á fyrsta árs-
fjórðungi 2002. Þetta var í samræmi
við væntingar BMW.
Samdrátturinn tengist miklum út-
gjöldum vegna nýrrar framleiðslu og
markaðsstarfs og minni sölu á BMW
en væntingar voru um.
Minni hagn-
aður BMW
METHAGNAÐUR varð á starfsemi
Toyota Motor Corporation (TMC) á
síðasta fjárhagsári sem lauk 31. mars
sl. Hagnaður fyrirtækisins jókst um
53,4% frá fyrra fjárhagsári og nam
944,6 milljörðum jena eftir skatta.
Methagnaður
Toyota
NOTKUN afturrúðuhitara og mið-
stöðvar veldur auknu álagi á rafala
og þar með aukinni bensíneyðslu.
Ökuljósin á ekki að spara, þau auka
umferðaröryggið. Notið ekki mið-
stöðina fyrr en vélin er orðin heit.
Lítið ráð
Í LJÓS hefur komið að stöðugleika-
stýring, ESP (Electronic Stability
Programme), er mun áhrifaríkari
búnaður til að draga úr hættu á
óhöppum en áður var talið. Í Svíþjóð
eru umferðarslys um 30% fátíðari á
blautum vegum og um 40% fátíðari á
hálum vegum þegar bílar með stöð-
ugleikastýringu eiga í hlut. Þetta
kemur fram í rannsókn sænsku
vegagerðarinnar í samvinnu við
Folksam-tryggingafélagið.
Öryggi með
ESP-kerfi