Morgunblaðið - 14.05.2003, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2003 B 11
formúlan
sérstakt andrúm. Má sjá beljur á
beit við brautarjaðar og raska
keppnisfákarnir lítt ró þeirra er
þeir æða hjá með tilheyrandi mót-
orsöngli. Fyrsta mótið í brautinni
var haldið 1997 og hafði hún verið
endurhönnuð að nær öllu leyti og
byggðist aðeins að litlu leyti á of-
urhraðri Österreich-hring-braut-
inni á sama stað, en síðast var
keppt í henni árið 1987. Gamla
brautin var talin ein sú fínasta til
kappaksturs í heiminum en notkun
hennar var hætt eftir 1987 er tvö
stórslys urðu í brautinni í upphafi
keppni. Komst keppnin ekki af
stað fyrr en í þriðju ræsingu það
ár vegna fjöldaárekstra í upphafi
og í fyrstu beygju. Í þriðju tilraun
hófu sex bílar keppni af bílskúra-
svæðinu.
Reynir á bremsur
og rétta uppstillingu
Brautin er í raun þrír meðal-
langir beinir og mjög hraðir kaflar
með mjög hægum beygjum í lok
þeirra. Í miðri brautinni er svo
bugðuslaufa til að brjóta taktinn
upp. Reynir mjög á að bremsur
bílanna séu skilvirkar og mikið ríð-
ur á að hitta á rétta uppsetningu
bíla því lítil frávik geta haft afger-
andi afleiðingar til hins verra.
Loftafl vængja verður að vera
nógu mikið til að auðvelda
bremsun inn í beygjurnar og skila
nægri rásfestu til að aka fljótt í
gegnum þær og út úr þeim. Hins
vegar nógu lítið til að halda ekki
aftur af bílunum á hröðu beinu
köflunum.
Yfirborð brautarinnar er fremur
slétt og þar sem ökuþórarnir æfa
aldrei í henni milli þess sem þar er
keppt reynist þeim jafnan erfitt að
finna heppilegt jafnvægi. Ekki síst
þar sem eiginleikar brautarinnar
breytast við aukinn akstur er
dekkjagúmmí sest í hana. Verða
þeir að treysta mjög á minni sitt
úr brautinni næstu árin á undan
um hvernig þeir breyta uppsetn-
ingu bílsins eftir því sem á keppn-
ishelgina líður.
Nýjar keppnisreglur og nýtt
tímatökufyrirkomulag bitnar lík-
lega meira á ökuþórum í A-1 Ring
en víða annars staðar. Ekki síst
þar sem þeir hafa brúkað annað
vængafl í tímatökum en keppni.
Þurfa því að finna málamiðlun þar
á milli nú, þó þannig að mögu-
leikar verði til framúraksturs, en
því minna vængafl sem þeir kom-
ast af með – án þess að það bitni á
bremsugetu – þeim mun meiri eru
þeir. Dekkjaval liða getur og ráðið
miklu um árangurinn; dekkin
verða að vera sérlega hitaþolin
vegna hins háa meðalhraða í
brautinni og þola jafnframt mikið
bremsuálag. Bridgestone-fyrirtæk-
ið leggur samstarfsliðum sínum
m.a. til alveg nýja dekkjategund
sem ekki hefur verið reynd á árinu
í keppni þótt gúmmíblandan sé úr
„sömu fjölskyldu“ og í þeim börð-
um sem þegar hafa verið reyndir.
Erfitt er nokkru að spá en búast
má við að keppnin verði ekki síður
jöfn og spennandi en í undanförn-
um mótum og að þar komi við
sögu ökuþórar a.m.k. toppliðanna
fjögurra, McLaren, Ferrari, Re-
nault og Williams.
ÞRÁTT fyrir nokkurn fjárhagslegan
samdrátt í keppnishaldi og að
keppnum hafi fækkað úr sex í fimm
í Íslandsmeistaramótinu í ralli, virð-
ast keppendur vera nokkuð áhuga-
samir og koma til leiks vel undir-
búnir með bíla sína. T.d. er Subaru-
bíll þeirra bræðra Rúnars og Bald-
urs Jónssona á leið til landsins eftir
hefðbundið viðhald ytra fyrir keppn-
istímabilið. Sigurður Bragi Guð-
mundsson og Ísak Guðjónsson hafa
tekið Metróinn ógurlega hressilega í
gegn í vetur, sem gaman verður að
sjá á ferðinni í sumar. Bíllinn er
einnig kominn í nýjan lit og má bú-
ast við að þeir félagar geri góða
hluti, því svo virtist sem Sigurður
hafi náð meiri hraða með Ísak sem
aðstoðarmann síðasta sumar í þeim
keppnum sem þeir kepptu í saman.
Nú er hins vegar stefnan sett á all-
ar keppnir og verður hart barist um
titilinn. Hins vegar er líka ljóst að
lítið má útaf bera hjá ökumönnum í
rallinu í sumar. Allar keppnir telja til
meistara og þannig geta aðrir öku-
menn fengið góð tækifæri til að
standa sig vel, jafnvel á mun kraft-
minni bílum, því dýrt verður að falla
úr keppni og fá engin stig.
Stigagjöf hefur líka verið breytt,
til að gera bil á milli keppenda
minna.
Því má búast við skemmtilegu
keppnistímabili hjá röllurum í sumar.
Búist við spennandi ralltímabili
Morgunblaðið/Gunnlaugur Briem
Það gengur oft ýmislegt á í rallinu. Hér stökkva þeir Hjörtur P. Jónsson og Ísak Guðjónsson.
Bílasprautun - Réttingar
Bílaverk ehf.
Tjónaskoðun og
-viðgerðir á öllum
tegundum bíla
Sími 565 0708
Kaplahraun 10 220 Hafnarfjörður
G.T. ÓSKARSSON
Vörubílavarahlutir
Vesturvör 23, 200 Kópavogi
sími 554 6000.
Vagnhöfða 6 - 110 Reykjavík
Sími 577 6090 - Fax 577 6095
Eigum til vatnskassa/bensíntanka
og miðstöðvar, ásamt aukamiðstöðvum
ætluðum bifreiðum/bátum og vinnuvélum.
Einnig intercoolera í vörubíla og vinnuvélar.
FELLIHÝSI - TJALDVAGNAR
Vantar fellihýsi og tjaldvagna í sölu.
Mikil eftirspurn.
Öll hús geymd inni.
Varahlutir — hagstætt verð
Gabriel höggdeyfar, drifliðir,
drifliðshosur, vatnsdælur, vatnslásar,
stýrisendar, spindilkúlur, tímareimar,
sætaáklæði, ökuljós o.fl.
Bíldshöfða 14 • sími 567 6744
Rauðagerði 64 • sími 553 1244 • 128 Reykjavík
P.O. BOX 8804 • FAX 568 1299
Umboðsaðili fyrir TRANSPO INC. USA, sem framleiðir DIODUR
og spennustilla í flestar gerðir alternatora
LAGERVARA
Seljum einnig ALTERNATORA og STARTARA
GOTT VERÐ
BÍLSKÚRS
OG IÐNAÐARHURÐIR
Eldvarnar-
hurðir
Öryggis-
hurðirÁrmúla 42 - sími 553 4236
netfang: glofaxi@simnet.is
Hurðir
til á lager
Smíðað
eftir máli
Alternatorar – Startarar
í allflesta fólksbíla, vörubíla, vinnuvélar,
bátavélar á lager og hraðpantanir.
Trumatic gasmiðstöðvar
í bíla, báta o.fl.
Bílaraf Auðbrekku 20, s. 564 0400, f. 564 0404, n.bilaraf@isl.is
umboðið umboðið
Varahlutir í vörubíla
Fjaðrir, plastbretti og verkfærakassar.
Einnig notaðir varahlutir.
Útvegum vörubíla, vagna og ýmis tæki.
Heiði rekstrarfélag, Réttarholti,
Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Afgreiðsla: Vélahlutir, Vesturvör 24, Kópavogi,
símar 554 6005 og 897 6510.